Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2012, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2012, Qupperneq 26
26 Fólk 27. júní 2012 Miðvikudagur Óli Geir alls ekki hættur n Ánægður með Keflavík Music Festival og skipuleggur aðra hátíð Þ etta var hrikalega gaman og ég viður- kenni að það er að- eins notalegra að vera að gera eitthvað sem fólk er ánægt með. Ég hef gert margt sem fólk er mishresst með en einhvern veginn fær það neikvæða alltaf meiri umfjöllun en það jákvæða, segir Óli Geir hjá Agent.is sem stóð fyrir Keflavík Music Festaval á dögunum og vísar þar í gagnrýni sem hann fékk þegar hann hélt Dirty Nights-kvöldin umdeildu. Tónlistarhátíðin Keflavík Music Festaval gekk svo vel að Óli Geir hefur ákveðið að um árlega hátíð verði að ræða auk þess sem hann hefur skipulagt aðra hátíð strax næstu helgi. „Ég er alls ekki hættur og hef sett upp hip hop-festival í Reykjavík sem hefur fengið nafnið YOLO, sem stendur fyrir „you only live once“. Ég hlustaði mikið á rapp og gekk í víðum fötum þegar ég var yngri en tónlist- arsmekkurinn þróaðist svo í aðra átt. Ég hef samt alltaf fílað þessa tónlist en finnst mjög lítið fyrir henni fara hér á landi. Þessir krakkar fá varla spilun í útvarpi. Þess vegna langaði mig að byrja með þessi kvöld. Ég ætla að byrja með þetta í Reykjavík en fara svo með þau út um allt land,“ segir Óli Geir en 20 listamenn munu troða upp á Þýska barnum á föstudags- og laugardagskvöld. Þar á meðal eru Úlfur úlfur, Gísli Pálmi, Skytturnar, Emm- sjé Gauti, ATH og Gabríel & Ope. Aðspurður segir Óli Geir alls ekki rétt að allir textar rappara séu niðurlægjandi fyrir konur. „Það örlar á kvenfyrirlitningu í einum og einum texta en það er svo- leiðis í rappinu úti um allan heim. Annars eru þessir strákar bara að tala um allt milli himins og jarðar. Sumir rappa um hrunið. Aðrir um það sem hefur snert þá í líf- inu,“ segir hann og bætir við að hann sé enginn rappari sjálfur. „Ég hef aldrei rappað og ætla aldrei að rappa. Hins vegar hef ég gam- an af því að hlusta á aðra.“ Forsala hefst í dag, mið- vikudag, á Þýska barnum en hægt er að fræðast meira um YOLO á fésbókarsíðu há- tíðarinnar. indiana@dv.is n Knattspyrnumaðurinn og fyrrverandi eiginmaður Ásdísar Ránar er genginn út G arðar Gunnlaugsson er kominn með nýja kærustu. Sú heppna er dökkhærð fegurðar- dís frá Akranesi en þar býr knattspyrnumaður- inn einmitt með son sinn Hektor. Nýja kærastan heitir Alma Dögg Torfadóttir og starfar sem stuðningsfulltrúi á sambýli. Fréttir af nýja sam- bandinu eiga eflaust eftir að særa margar íslenskar konur hjartasári því Garðar hefur verið einn allra heitasti pipar- sveinn landsins síðan upp úr hjónabandi hans og fyrirsæt- unnar og athafnakonunnar Ásdísar Ránar Gunnarsdóttur slitnaði fyrr á árinu. Fréttir af skilnaði Garðars og Ásdísar Ránar skóku netheima í upphafi ársins. Hjónin höfðu verið gift í sex ár en þau gengu í það heilaga á Jónsmessunótt árið 2006 eftir að hafa verið saman í rúm þrjú ár. Hvorugt vildi tjá sig um skilnaðinn í fyrstu en Ásdís Rán rauf svo þögnina í viðtali við tímaritið Lífið þar sem hún sagði fjarlægðina hafa gengið að sambandinu dauðu. Í viðtali við DV stuttu seinna tók Garðar í svipaða strengi: „Við stefndum í sitt hvora áttina. Hún var úti í Búlgaríu en ég hérna heima. Hlutirnir þróuðust bara svona,“ sagði Garðar sem vildi ekki tjá sig að öðru leyti um ástæður skilnaðarins. Garðar og Ásdís, sem eiga saman tvö börn, Hektor sex ára og Victoríu Rán fjögurra ára, höfðu verið saman síð- an Garðar var 19 ára. Þetta var því í fyrsta skiptið í mjög langan tíma sem knattspyrn- umaðurinn hefur verið á lausu. Þar sem Garðar er flinkur fótboltamaður og hefur svo sannarlega útlitið með sér, verandi fyrrverandi Herra Ísland, er varla skrítið að hann hafi ekki tollað á „markaðnum“ í lengri tíma en raun ber vitni. Samkvæmt öruggum heim- ildum blaðsins hefur sam- bandið milli Garðars og Ölmu Daggar staðið í þó nokkurn tíma. Garðar neitaði að tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. Garðar kominn með kærustu Genginn út Fréttirnar eiga eflaust eftir að hryggja hjörtu margra íslenskra stúlkna enda var Garðar án efa einn heitasti piparsveinn landsins eftir skilnað við athafnakonuna Ásdísi Rán. Einar gefst ekki upp Einar Bárðarson er ekki af baki dottinn þrátt fyrir að sagan segi að hand- boltastjarnan og einkaþjálf- arinn Logi Geirsson hafi gefist upp á að þjálfa hann sökum árangursleysis. Ein- ar hefur aftur sagt aukakíló- unum stríð á hendur og er kominn með nýjan þjálfara. Samkvæmt fésbók athafna- mannsins hefur sá nýi fyrir- skipað honum að hjóla alla- vega í klukkutíma á dag, þrjá daga vikunnar og eitthvað meira fjórða daginn. Einar byrjaði vel og hjólaði til Bláa lónsins og aftur heim sem eru tæpir 33 km. Á morgun, samkvæmt fésbókinni, ætlar hann svo að hjóla til Reykja- víkur. HVH veðjar á Bam Mbl.is sagði frá því í gær að erlent par hafi þurft að greiða 1,1 milljón króna aukalega fyrir bílaleigubíl sem hafði skemmst mikið á leigutím- anum og ekki verið skilað að honum loknum. Mað- urinn sagði líklegt að parið hefði valdið skemmdunum á bílnum og greiddi þær góð- fúslega á staðnum. „Hipp- stera“-fréttasíðan HVH, hverjirvoruhvar.tumblr.com, fjallar um fréttina og þar er veðjað á að þarna hafi verið á ferðinni Jack Ass-stjarnan Bam Margera. Ólátabelgur- inn hefur dvalið hér á landi undanfarnar vikur og sést nokkuð í miðbæ Reyjavíkur. Dónaskapur og svívirðingar Gaukur Úlfarsson, baráttu- maður fyrir framboði Þóru Arnórsdóttur til forseta- embættis, setti inn færslu á Facebook-síðu sína frá Ninju Ómarsdóttur eftir að myndband við lag samið af Jóhönnu Fjólu Ólafsdóttur til stuðnings Þóru fékk slæma útreið á netinu. „Eldri hjón ákváðu að sýna stuðning í verki og búa til lag og myndband. Þau settu það stolt á internetið. Það helltist yfir þau hæðni, dónaskapur og svívirðingar. Það hlakkaði í mörgum og margir like-uðu gagnrýnina. Þau tóku myndbandið af netinu. Ég velti fyrir mér, er virkilega í lagi að meiða fólk með ljótum orðum ef það er gert á netinu?“ Snýr sér að rappinu Óli Geir segir ekki rétt að allir textar rappara fjalli um konur á niðrandi hátt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.