Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2012, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2012, Side 10
viðurkenndur í undirheimum 10 Fréttir 4. júlí 2012 Miðvikudagur Þ arna fékk ég virðinguna sem ég fékk hvergi annars staðar,“ segir maður sem varð fyrir hrottalegu einelti í grunnskóla. Hann vill ekki koma fram undir nafni en verður hér kallaður Sigurður. Hann, líkt og margir aðrir sem fetað hafa glæpa- brautina, virðist hafa orðið fyrir ein- elti í æsku. Eineltið ristir djúpt og sumir virðast sækja í viðurkenningu innan glæpaheimsins. Nokkrir þekktir glæpamenn sem fjallað hefur verið um nýlega hafa, samkvæmt heimildum DV, verið fórnarlömb eineltis í æsku. Þar á meðal eru Börkur Birgisson og Guð- geir Guðmundsson sem nýlega hafa hlotið dóma fyrir ofbeldisverk sín. Einelti eitt og sér gerir ekki einstaklinga að afbrotamönnum en að sögn Helga Gunnlaugssonar, af- brotafræðings, er það áhættuþáttur. Sóttist í undirheimana Sigurður sótti í heim ofbeldis, glæpa og fíkniefna og segir hann ástæð- una fyrir því meðal annars liggja í brotinni sjálfsmynd sem orsakað- ist meðal annars af því hrottalega einelti sem hann varð fyrir í æsku. Grunnskóladvöl hans var algjör kvöl og pína þar sem skólafélagar hans niðurlægðu hann. „Ég var með AD/HD og var þess vegna öðruvísi en hinir. Mér var strítt, ég niður- lægður og beittur ofbeldi. Ég kveið alltaf að fara í skólann og eineltið varð til þess að mér gekk verr í skól- anum. Ég passaði ekki inn.“ Loksins jafningi Þegar hann var 14–15 ára leiddist hann út í vafasaman félagsskap en þar var honum loksins tekið sem jafningja. „Þegar ég fór út í þenn- an félagsskap í undirheimunum þá fékk ég viðurkenninguna sem ég var að sækja í. Þar var ég loksins jafn einhverjum,“ segir hann. Á skömmum tíma sökk hann djúpt í undirheimalífið, stundaði glæpi og var í mikilli neyslu. „Ég var bara barn kominn í þennan heim og átti ekkert heima þarna. En þarna var maður jafningi annarra og gerði hluti til að sanna sig. Síðan gerist eitthvað og þá ertu ekki lengur jafn- ingi, ef þú gerir eitthvað af þér þá færðu ekki annan séns. Ég mæli ekki með því við nokkurn mann að sækja sér viðurkenningu á þenn- an hátt. Þetta er ógeðslegur heim- ur,“ segir maðurinn sem sagði skilið við þetta líferni fyrir nokkrum árum síðan. Gildum samfélagsins snúið á haus Helgi Gunnlaugsson, afbrota- fræðingur og prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, segir þekkt að einstaklingar sem hafi lent utan- veltu í samfélaginu gangi til liðs við gengi þar sem þeir komist í skjól og öðlast jafnvel óttablandna virðingu frá samfélaginu. „Þetta er hægt að sjá í gengjum af ýmsu tagi. Yngri karlar mynda og fara í unglingagengi, mótorhjólagengi eða glæpagengi og mynda um leið nokkurs konar eigin kúltúr og hags- munafélag. Þeir hafa þá aðra félaga til að hjálpa sér í lífsins ólgusjó en þetta er greiði á móti greiða og ætíð hætta á að lenda í einhverju misjöfnu. Gildum samfélagsins er iðulega snúið á haus í svona félagsskap. Það sem þykir óæskilegt hjá okkur þykir kannski spennandi eða eftir- sóknarvert hjá þeim og sá sem þor- ir að ganga lengst gegn samfélaginu fær einhverja stöðu innan hópsins. Neysla fíkniefna verður álitin töff og ómissandi hluti af lífsstílnum og ofbeldi er réttlætanlegt við lausn deilumála. Stærsti glæponinn verð- ur kannski leiðtogi hópsins. Ungmenni sem hafa verið núll og nix í skólakerfinu og alltaf und- ir í samfélaginu, dragast að svona félagsskap eins og flugur að ljósi. Þarna fá þeir sálufélaga, jafn- vel uppreisn æru að eigin mati og um leið óttablandna virðingu annarra. Svona félagsskapur verður spennandi ef þú hefur alltaf verið á botninum í samfélaginu. “ Margt spilar saman Helgi kannast við að þeir afbrota- menn sem hann þekki til hafi í mörgum tilfellum verið fórnarlömb eineltis. „Það eru meira en 20 ár síð- an ég byrjaði rannsóknir á íslensk- um brotamönnum, heimsótti fang- elsi og tók viðtöl við brotamenn og síðan hef ég haldið rannsóknunum áfram með ýmsum hætti. Allir hafa sína einstöku sögu að segja, alltaf finnum við einhvern mun milli einstaklinga. Saga um erfiða æsku og mikla óreglu er þó rauður þráð- ur í lífi flestra síbrotamanna hér á landi. Dæmi af brotnu fjölskyldu- lífi, tíðum búsetuskiptum og erfiðri skólagöngu eru mjög áberandi. Fé- lagslegir erfiðleikar og persónu- bundin vandkvæði eins og til dæm- is ofvirkni eða les- og skriftarblinda liggja eins og mara yfir lífi mjög margra. Vandkvæði af þessu tagi afhjúpast síðan í skólakerfinu og menn standa berskjaldaðir gagn- vart skólanum og félögunum varla læsir eða skrifandi, jafnvel við lok grunnskólans. Þetta er vitaskuld mikil smán fyrir þessi ungmenni í augum umhverfisins og félaganna. Efnahagur fjölskyldunnar yfirleitt einnig bágborinn sem gerir þessa einstaklinga ófæra að standast kröf- ur samfélagsins um það sem þarf til skólans, hvað þá fylgja eftir tísku- sveiflum unga fólksins um rétta merkið eða nýjustu fötin. Svona ástand plægir oft á tíðum jarðveg þess að lenda í einelti, stríðni og öllu því sem fylgir áreitni og kúgun af þessu tagi. Þetta spilar allt saman með einum eða öðrum hætti og skapar hættu á einelti – sem ger- endur eða þolendur,“ segir hann. Spila sig stóra Helgi segir veikt bakland eiga stór- an þátt í lífi síbrotafólks og erfitt sé að fóta sig við sífellt nýjar aðstæð- ur. „Ungmenni í vanda þurfa oft að flytja úr einu hverfi í annað og verða því að fara í annan skóla og þá verð- ur til mikil áhætta á að lenda ætíð í sömu vandræðunum. Þau fyllast ótta yfir að verða afhjúpuð í nýja skólanum og af nýju félögunum og þá fara menn í hlutverkaleikinn, að spila sig stóra og kalda karla. Ég hef n Eineltisfórnarlamb segist loks hafa verið tekið sem jafningja innan glæpaheimsins n Einelti er áhættuþáttur þegar kemur að afbrotum og óreglu„Ég var kominn í þennan heim sem barn og átti ekkert heima þarna. En þarna var mað- ur jafningi annarra og gerði hluti til að sanna sig. Hanna Ólafsdóttir blaðamaður skrifar hanna@dv.is Viktoría Hermannsdóttir blaðamaður skrifar viktoria@dv.is séð ýmis dæmi í viðtölum mínum við brotamenn og úr öðrum rann- sóknum sem staðfesta þessa mynd. Þetta er augljóslega mikilvægur þáttur í huga margra síbrotamanna um ástæðu þess að þeir eru stadd- ir í þessum vanda í dag. Orðnir full- orðnir karlar og tala um sársauka- fulla æsku sína sem er mjög nálæg þeim og hefur verið mjög afdrifa- rík fyrir lífshlaupið að mati þeirra sjálfra.“ Aðstoð annarra skiptir máli Samkvæmt kenningum félags- og þroskasálfræðinnar mótast persónuleiki fólks á fyrstu æviárun- um og segir Helgi að erfið reynsla á þeim árum geti markað einstak- linga fyrir lífstíð. „Eins og félags- og þroskasálfræðingar segja, mótast persónuleiki okkar að mestu leyti á fyrstu æviárunum eða fram að 10 ára aldri eða svo. Ef reynslan er öll meira og minna neikvæð og þú ert sífellt að lenda í árekstrum og átökum við umhverf- ið, hvort sem það er innan fjöl- skyldunnar, skólans, vinahópsins eða annars staðar mun reynslan marka þig fyrir lífstíð. Afar mikilvægt er að vinna úr þessari reynslu. Það má ekki láta sára reynslu af þessu tagi stýra líf- inu langt inn í fullorðinsárin. Sú hætta er ætíð fyrir hendi að sár æska verði smám saman gerð að þægilegum blóraböggli og auð- veldri afsökun fyrir því hvers vegna menn séu eins og þeir eru og jafn- vel viðurkennd ástæða fyrir áfram- haldi lífsstíl sem markast af afbrot- um og vímuefnaneyslu. Nauðsynlegt er því að vinna úr erfiðri æsku og sárum heimilis- aðstæðum til að koma í veg fyrir að þessi þungbæri baggi taki ekki öll völd síðar á ævinni. Farsæl úr- vinnsla og uppgjör við æskuna er afar mikilvæg gagnvart því að öðl- ast jákvætt sjálfsmat og aukna sjálfsvirðingu. Sýna sjálfum sér og öðrum að hægt sé að vinna sig út úr erfiðri reynslu, segja skilið við hana og takast á við lífið á nýjan hátt. En oft er erfitt að gera þetta einn og óstuddur, aðstoð annarra skiptir miklu máli við úrvinnslu af þessu tagi. Ef ekkert er gert er veru- leg hætta á að þeir verði sjálfum sér eða öðrum til skaða langt fram á fullorðinsaldur.“ Mikilvægt að vinna með reynsluna Mikilvægt er að mati Helga að unnið sé rétt með þolendur eineltis og þeir fái þá hjálp sem þeir þurfa. Helgi segir að sú vinna verði að fara fram á ólíkum vettvangi samfélags- ins, bæði innan og utan fangelsis- veggja, sem lið í að aðstoða þá við að fóta sig í samfélaginu. Hann bendir á að mikið sé vitað núna um hvaða afleiðingar kynferðisofbeldi „Saga um erfiða æsku og mikla óreglu er þó rauður þráður í lífi flestra sí­ brotamanna hér á landi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.