Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2012, Page 12
L
ögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu hefur borist kæra
og beiðni um opinbera
rannsókn vegna meintra
brota Pálma Haraldssonar,
Iceland Express ehf., Björns Vil-
bergs Jónssonar og annarra ótil-
greindra starfsmanna Iceland Ex-
press ehf. gegn WOW air. Kæran
varðar meintar njósnir Pálma og
Iceland Express um rekstur WOW
air.
Baldur Oddur Baldursson, for-
stjóri WOW air, staðfestir að kæra
hafi verið lögð fram en vill að öðru
leyti ekki tjá sig um efni kærunnar.
Stóð njósnarann að verki
DV hefur hins vegar gögn und-
ir höndum er rekja málavexti. Í
gögnunum kemur meðal annars
fram að þann 18. júní síðastliðinn
voru forsvarsmenn WOW upplýst-
ir um það af starfsmanni Isavia,
Einari Má Atlasyni, að starfsmenn
Iceland Express stunduðu hler-
anir á svokallaðri tetra-rás. Einar
Már taldi að hlerunin hefði staðið
yfir í töluverðan tíma og stóð einn
starfsmanna fyrirtækisins, Björn
Vilberg Jónsson, að verki þann 16.
júní síðastliðinn.
„Ég varð þess uppvís þann
16. júní í hefðbundnu eftirliti að
starfsmaður (OCC) hjá Iceland Ex-
press er að hlera rás þjónustuaðila
WOW air,“ segir Einar Már í tölvu-
pósti til stjórnenda WOW air sem
DV hefur undir höndum.
Sagðist afhenda Pálma
upplýsingar um WOW
Björn Vilberg Jónsson viðurkenndi
í samtali við Einar Má þennan
sama dag að tilgangur hlerunar-
innar væri að afla upplýsinga um
farþegatölur og annað sem snýr
að starfsemi kæranda, WOW.
Þær upplýsingar sem þannig væri
komist yfir væru sendar beint
til aðaleiganda og stjórnarfor-
manns Iceland Express, Pálma
Haraldssonar.
Bendir þetta til að Pálmi hafi
gefið starfsmönnum sínum fyrir-
mæli um hlerunina og jafnframt
að upplýsingar sem þannig væri
komist yfir hafi verið kynntar öðr-
um stjórnendum Iceland Express.
Mögulegt tölvuhakk
Einar Már tilkynnti atvikið til yfir-
manns síns og varðstjóra dagvakt-
ar. Enn fremur hafði hann sam-
band við framkvæmdastjóra Isavia
og gerði honum viðvart. Í málinu
liggur fyrir dagbókarfærsla um at-
vikið sem verður afhent lögreglu.
Þjónustuaðili WOW air,
Keflavik Flight Services, segir all-
ar talstöðvar forritaðar með þeirri
tíðni sem þeir nota vera læstar. Af
þeim sökum telja þeir útilokað að
óviðkomandi aðili, eins og starfs-
maður Iceland Express, geti kom-
ist inn í þau samskipti sem fram
fara á tíðninni, nema þeir hafi
komist yfir talstöð frá WOW eða
hakkað sig inn á tíðnina.
Keflavik Flight Services bendir
á að Neyðarlínan, sem annast
rekstur talstöðvakerfisins, geti
veitt upplýsingar um hvaða aðilar
hafi notað tíðni þeirra.
Telja að meint brot
standi enn yfir
WOW hóf nýverið starfsemi sína,
en þann 3. júní hófst formlegt
áætlunar flug þeirra frá Keflavíkur-
flugvelli til 13 áfangastaða í
Evrópu. WOW, undir forystu Skúla
Mogensen eiganda, hefur boðað
mikla samkeppni en eitt af yfirlýst-
um markmiðum fyrirtækisins var
og og er að gera flugferðir til og frá
landinu ódýrari en áður hefur sést.
Forsvarsmenn WOW telja að
Iceland Express hafi brotið gróf-
lega gegn hagsmunum WOW og
réttindum þeirra með því að hlera
tetra-rás án samþykkis og vitneskju
og afla með þeim hætti upplýsinga
um atvinnuleyndarmál WOW.
Þykir þeim ljóst að auðgunar-
tilgangur hafi legið að baki hinum
meintu brotum og að háttsemin
sé ófyrirleitin og ámælisverð í
ljósi þess að WOW hefur nýver-
ið hafið starfsemi í samkeppni við
Iceland Express. Enn fremur telja
forsvarsmenn fyrirtækisins líklegt
að þeir hafi ekki enn látið af hinum
meintu brotum.
Við vinnslu fréttarinnar náðist
ekki í Pálma Haraldsson.
12 Fréttir 4. júlí 2012 Miðvikudagur
KÆRÐUR FYRIR NJÓSNIR
„Ég varð þess upp-
vís þann 16. júní í
hefðbundnu eftirliti að
starfsmaður (OCC) hjá
Iceland Express er að
hlera rás þjónustuaðila
WOW air.
n Starfsmaður Iceland Express hleraði rásir WOW air, samkvæmt kæru
Kristjana Guðbrandsdóttir
blaðamaður skrifar kristjana@dv.is
Pálmi Haraldsson
Stjórnarformaður
Iceland Express kærður
fyrir njósnir.
Ólíðandi Forsvarsmenn WOW air telja það ólíðandi að samkeppnisaðilar stundi njósnir í því
skyni að komast yfir avinnuleyndarmál og leggja fram kæru. Skúli Mogensen er eigandi WOW.
Boðið að kaupa
Iceland Express
DV sagði frá því í nóvember síðastliðnum
að fjárfestingafélaginu Títan, sem er í
eigu Skúla Mogensen, hafi verið boðið að
kaupa Iceland Express. Tilboðið barst á
borð félagsins í október 2011 þegar ljóst
var að Skúli hygðist hefja innreið sína á
flugmarkaðinn með stofnun WOW air.
Framkvæmdastjóri Títan, Baldur Oddur
Baldursson, staðfesti þetta í samtali
við DV, en að sögn Baldurs var tilboðinu
hafnað.
Ótilgreint fjármálafyrirtæki setti tilboðið
fram, en forsvarsmenn Iceland Express
neituðu að hafa veitt fyrirtækinu umboð
til slíks gernings. Talið var að þrátt fyrir
yfirlýsingar Iceland Express hafi félagið í
reynd verið til sölu fyrir „rétt verð“.
Fylgjast með farþegafjölda
n Forstjóri Iceland Express segir kæruna koma á óvart
Skarphéðinn B. Steinarsson, forstjóri Iceland Express, segir það vissulega rétt að
Iceland Express hafi fylgst með tetra-rásinni, en það sé langt í frá að hér sé um njósnir
að ræða. Hann segir þessa umræddu rás vera í eigu Iceland Express, jafnvel þótt að
þjónustuaðili WOW air, Keflavik Flight Services (KFS), sé að nota hana. „Iceland
Express Handling keypti á sínum tíma á þriðja tug rása og lagði þá KFS til nokkrar rásir
sem þeir fengu til afnota. Og þetta kerfi er enn í notkun,“ segir Skarphéðinn í samtali
við blaðamann. „Iceland Express hefur ekki gert athugasemd við það.“
Hann kveðst ekki hafa fengið veður af kærunni sem WOW hefur lagt fram gegn
Iceland Express og segir hana koma á óvart. „Við eigum þessar rásir og við notum
þær þegar það hentar. Og KFS hefur notað þessar talstöðvar okkar til þess að eiga í
samskiptum sín á milli. En ef einhver annar notar okkar rásir líka þá er varla hægt að
segja okkur vera að njósna.“
Hann neitar þó ekki að Iceland Express hafi fylgst með farþegafjölda WOW air: „Það
er rétt að við höfum verið að fylgjast með því hversu margir farþegar eru hjá WOW.
Þetta kalla þeir njósnir en farþegafjöldi þeirra er varla leyndarmál, nema kannski að
þeir vilji ekki að það fréttist hversu fáir eru að fljúga með þeim. Þeir eru með slappa
nýtingu, um fimmtíu prósent sem er mjög lélegt á þessum árstíma.“ simon@dv.is
Viðurkennir notkun Skarphéðinn viður-
kennir að Iceland Express hafi notað rásina.
Iceland Express eigi hana hins vegar og því
sé ekki hægt að tala um njósnir í umræddu
samhengi.