Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2012, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2012, Page 14
Sakaður um svindl n Byltingarflokkurinn kemst til valda í Mexíkó á ný F rambjóðandi Byltingarflokks Mexíkó, Enrique Peña Nieto, sigraði í forsetakosningunum þar í landi með um 38 prósent atkvæða um helgina. Byltingarflokk- urinn er staðsettur vinstra megin við miðju og var við völd í Mexíkó sam- fleytt frá árinu 1929 til ársins 2000 þegar frambjóðandi hægriflokksins, PAN, náði kjöri í fyrsta sinn. Sjö ára- tuga valdatíð Byltingarflokksins er sögð hafa einkennst af spillingu og kúgun en Nieto hefur lofað að ekki verið horfið aftur til fyrri stjórnarhátta. Nieto tekur við embættinu af Felipe Calderón úr PAN-flokknum, sem hefur verið forseti síðan 2006, en samkvæmt stjórnarskrá Mexíkó má forseti aðeins sitja í 6 ár á valdastóli. Mikillar óánægju hefur gætt hjá al- menningi í Mexíkó undanfarin miss- eri, meðal annars sökum bágrar efna- hagsstöðu auk þess sem illa hefur geng ið að kveða niður umfangsmikla starf semi glæpagengja í landinu. Þau átök hafa kostað tugi þúsunda manns lífa á síðustu árum. Frambjóðandi róttæka vinstri- flokksins, Andrés Manuel López Obrador, hafnaði í öðru sæti. Hann hefur þó ekki viðurkennt ósigur sinn og sakar Nieto um að hafa svindlað í kosningunum. Þessi staða er sú sama og kom upp í kjölfar síðustu kosninga í Mexíkó, árið 2006. Þá hlaut Obrador aðeins um hálfu prósentustigi minna en Calderón og stuðningsmenn hans mótmæltu kosningasvindli í marga mánuði á eftir. Nú hefur Obrador hótað að kæra niðurstöður kosning- anna. olafurk@dv.is 14 Erlent 4. júlí 2012 Miðvikudagur Þúsund heimili hafa brunnið M eira en þúsund heim- ili hafa brunnið til kaldra kola í skógareldum víða í vesturríkjum Bandaríkj- anna undanfarna daga. Mikill sumarhiti er og þurrkar geisa nú í Bandaríkjunum en við slíkar að- stæður er mesta hættan á að skógar- eldar kvikni. Íbúar í Colorado Springs hafa far- ið verst út úr eldunum sem hafa log- að nánast stjórnlaust dögum saman. Alls hafa rúmlega 70 ferkílómetr- ar landsvæðis brunnið. Tugir þús- unda íbúa hafa flúið heimili sín og að minnsta kosti 346 heimili í fylk- inu hafa orðið eldunum að bráð. Þrátt fyrir margra daga baráttu telja slökkviliðsmenn að þeir hafi aðeins ráðið niðurlögum um helmings eld- anna. Yfirvöld telja að slökkvistarfi í Colorado verði ekki lokið fyrr en um miðjan þennan mánuð. Skæðustu eldar í sögu Colorado Skógareldarnir í Colorado eru þeir skæðustu í sögu fylkisins, en þó fer því fjarri að búið sé að meta tjónið að fullu. „Við höfum aldrei verið eins upptekn- ir,“ segir starfsmaður samhæfingar- miðstöðvar um skógarelda í Banda- ríkjunum. Í Nýju Mexíkó hafa meira en 240 heimili brunnið vegna skæðustu skógarelda sem þar hafa geisað. Í Utah loga skógareldar á fjórum stöðum og hafa 52 heimili brunnið. Meira en 1.500 slökkviliðsmenn hafa barist við eldana þar síðustu daga. Svipaða sögu er að segja í Montana en þar hafa 16 heimili orðið skógar- eldum að bráð og í Idaho hafa 66 heimili brunnið á aðeins þremur sól- arhringum. Í Wyoming er ekki vitað hversu mörg hús hafa brunnið, en yf- irvöld telja að þau skipti tugum. Eyðilegging Slökkvistarf hefur ekki gengið snurðu- laust fyrir sig. Þyrla á vegum bandar- íska hersins sem notuð var í slökkvi- starf í Suður-Dakota hrapaði á sunnu dag inn. Þyrlan var að fljúga með vatns tanka sem átti að nota til að berj- ast við eldana. Þá þurfti rannsóknar- hópur sem reyndi að finna upptök elds ins að forða sér undan fjölmörgum skógarbjörnum sem voru komnir langt í burtu frá sínum heimkynnum. Íbúar á þeim svæðum í Colorado þar sem búið er að slökkva eldana fengu að snúa tímabundið aftur heim um helgina. „Guð minn góð- ur! Ég hef aldrei séð neitt þessu líkt,“ sagði C.J. Moore við AP-fréttastof- una þegar hún kom á staðinn þar sem tveggja hæða einbýlishús henn- ar stóð áður. Þar er nú ekkert nema aska og brak. Hjónin Bill Simmons og Debbie Byes sem búa skammt frá C.J. Moore höfðu hins vegar ástæðu til að gleðj- ast þegar þau snéru aftur heim. Heim- ili þeirra var algjörlega óskemmt og rafmagnið hafði ekki einu farið af en húsið beint á móti þeim hafði brunnið til kaldra kola. „Það var smá aska í heimkeyrslunni okkar, það var allt og sumt,“ sagði Simmons. „Við vorkennum nágrönnum okkar en við vitum líka hvað við vorum heppin.“ n Skæðir skógareldar í kæfandi sumarhita í Bandaríkjunum Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður skrifar valgeir@dv.is Skæðir skógareldar Slökkviliðsmenn nota þyrlur til að berjast við skógarelda í Wood Hollow í Utah. Það gengur hægt og tjónið er gífurlegt. Mynd/REutERS Boxari í pólitík Úkraínski boxarinn Vitali Klitschko er kominn í harða bar- áttu fyrir þingkosningar sem haldnar vera í Úkraínu í haust. Klitscko, sem er 40 ára, er WBC- heimsmeistari í þungavigt en á ferli sínum hefur hann unnið 44 af 46 bardögum, þar af 40 með rot- höggi. Klitschko stofnaði stjórnmála- flokk, Udar, fyrir tveimur árum og samkvæmt skoðanakönnunum nýtur flokkurinn stuðnings 15 pró- senta kosningabærra manna. Fari svo að flokkurinn fái slíkan stuðn- ing yrði hann að líkindum þriðji stærsti stjórnmálaflokkur Úkraínu. Klitschko er nú á ferð um Úkraínu þar sem hann kynnir stefnumál sín og flokksins. Barnlausar konur í hættu Konur sem vilja eignast börn en geta það ekki vegna ófrjósemi eru í tvöfalt meiri hættu en aðrar kon- ur á að verða fórnarlömb alkóhól- isma. Þetta leiðir rannsókn, sem sérfræðingar við dönsku krabba- meinsrannsóknarstofnunina framkvæmdu, í ljós. Rannsóknin gaf einnig til kynna að sami hópur átti einnig frekar á hættu að glíma við geðsjúkdóma á borð við geð- klofa en aðrar konur. Breska blaðið The Telegraph fjallaði um niðurstöðurnar á dögunum. Þar var rætt við sér- fræðinga í ófrjósemi sem voru á einu máli um það að ófrjósemi ætti að flokka sem sjúkdóm. Veita ætti konum sem glíma við ófrjó- semi meiri aðstoð og lækka verð á meðferðum til að aðstoða þær, svo sem glasafrjóvgunum. 18 milljónir án vinnu Atvinnuleysi á evrusvæðinu var 11,1 prósent í maí og eru nú 17,6 milljónir manna án vinnu. Ekki hafa fleiri verið án atvinnu á evru- svæðinu frá því að mælingar hófust hjá Eurostat og var maí fjórtándi mánuðurinn í röð sem fjöldi atvinnulausra jókst. Af þeim sautján ríkum evrusvæðisins sem tölurnar taka til er atvinnuleysi mest á Spáni, eða um 25 prósent. „Fyrirtæki eru greinilega að búa sig undir enn erfiðari tíma,“ segir Chris Williamson, aðalhag- fræðingur hjá Markit, í samtali við The Telegraph. nýr forseti Nieto er nýkjörinn forseti Mexíkó. Andstæðinga hans grunar að maðkar hafi verið í mys unni í framkvæmd kosninganna. Mynd REutERS „Við vorkenn- um nágrönn- um okkar en við vitum líka hvað við vorum heppin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.