Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2012, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2012, Page 18
Þ egar hitnar í veðri getur orðið erfiðara að halda mat­ vælum ferskum. Flest okkar hafa ekki tíma til að kaupa fersk matvæli dag hvern og þess utan er afar óhagstætt að versla á hverjum degi. Neytendur eru frekar hvattir til að versla sjaldnar og meira í einu. Það gæti leitt til þess að matvæli skemmist en á stumble­ upon.com eru nokkur ráð um hvernig geyma megi ávexti og græn­ meti svo það haldist ferskt lengur. n Setjið berin í heitt bað Ber geta skemmst á skömmum tíma og sér í lagi þegar hitnar í veðri. Stundum gerist það jafnvel yfir nótt. Ráð til að halda þeim ferskum leng­ ur er að setja þau í heitt bað. Setjið þau í pott með heitu vatni og skolið vel og látið þau alveg í kaf. Heitt vatnið skolar af þeim myglugró og þau haldast lengur fersk. Það er best að skola jarðarber, bláber og hind­ ber upp úr um það bil 50 gráðu heitu vatni í 30 sekúndur. Eftir að berin hafa verið skoluð er þeim dreift á leirþurrku á meðan þau þorna áður en þeim er komið fyrir á geymslu­ stað sínum. n Vefjið kál í eldhúspappír Kál ætti nota einum til tveimur dög­ um eftir að það er keypt ef það á að vera ferskt og til að fá öll þau nær­ ingarefni sem í því eru. Ef það er nauðsynlegt að geyma salatið er gott ráð að setja það inn í eldhúsrúllublað sem dregur í sig auka raka. Ef það liggur raki á því, skemmist það fljótt. Setjið kál­ blöðin í eldhúspapp­ írnum í plastpoka og inn í ísskáp. Hver tegund ætti að vera í sér poka. Munið að taka öll skemmd blöð frá áður en kálið er sett í geymslu. n Ekki setja tómat ana í ísskápinn Ef þú heldur að tómatar fari vel í ís­ skáp og að það sé pottþétt leið til að geyma þá lengur þarftu að endur­ skoða það mat. Ein helstu mistök­ in sem fólk gerir er að setja tómata í ísskápinn því kuldinn dregur ekki einungis úr bragði heldur breytir einnig áferð þeirra á einungis nokkrum dögum. Settu þá frekar í skál sem hefur verið þakin eldhús­ pappír. Þannig kemur þú í veg fyrir skemmdir á þeim tómötum sem liggja upp við skálina þar sem þeir merjast auðveldlega og það flýtir fyrir rotnun. Hitastig er einnig mik­ ilvægt og tómatar geymast best við stofuhita. Haldið þeim þó frá sólar­ ljósi. Ef þú vilt halda þeim enn leng­ ur ferskum er gott ráð að færa þá til í skálinni reglulega svo þeir merjist síður. n Hresstu upp á kál og kryddjurtir í ísbaði Ef matvælin eru farin að láta á sjá vegna kuldans í ísskápn­ um eða vegna þess að þau voru látin vera við stofuhita aðeins of lengi, er hægt að fríska upp á þau með því að skella þeim í kalt bað. Setjið græn­ metið í skál með ísköldu vatni og hreyfið það í vatninu í mínútu eða tvær. Það ætti að vekja það aðeins til lífsins og láta það líta út sem nýtt. n Frystu grænmetið og ávextina Ef þú hefur misreiknað tímann sem þú ætlaðir þér að nýta matvælin sem þú keyptir þá er óþarfi að henda þeim. Skerðu frekar niður þroskuðu ávextina og grænmetið og frystu. Þú getur vel fryst matvæli eins og papriku, grænar baunir, spergilkál, rósakál, kál, sellerí, agúrkur, lauk, eggaldin, sveppi, jarðarber, bláber, banana svo eitthvað sé nefnt. Það eina sem þú þarft að muna eftir er að dýfa þessu í sjóðandi vatn áður en það er sett í frost. Heitt vatnið drepur bakteríur sem eyðileggja matvælin. n Geymdu banana í ísskáp Það eru margir sem trúa þeirri mýtu að bananar eyðileggist í ísskápnum en þótt hýðið verði fljótt brúnt eða svart þá geymist innihaldið vel. Kuldinn í ísskápnum veldur því að ensími í banananum gerir hýðið brúnt eða svart. Kuldinn kemur þó einnig í veg fyrir að bananinn þrosk­ ist of hratt. Ef þér finnst brúnir og svartir bananar ólystugir þá getur þú sett bananann í poka og lokað honum vel áður en hann er settur í ísskápinn. Með því helst guli litur­ inn lengur. n 18 Neytendur 4. júlí 2012 Miðvikudagur E ld sn ey ti Algengt verð 243,7 kr. 243,5 kr. Algengt verð 243,5 kr. 243,3 kr. Höfuðborgarsv. 243,4 kr. 243,2 kr. Algengt verð 243,7 kr. 243,5 kr. Algengt verð 245,7 kr. 243,5 kr. Melabraut 243,5 kr. 243,3 kr. Eldað úr úrvalshráefni n Veitingastaðurinn Sólon fær lofið að þessu sinni en viðskipta­ vinur staðarins vildi fá að hrósa eigendum og starfsfólki staðarins fyrir frábæra fiskrétti. ,,Ég borða stundum þarna í hádeginu og það hefur ekki brugðist að fiskurinn sem ég fæ þar er afbragðsgóður, eldaður úr úrvalshráefni. Þá er þjónustan til mik­ illar fyrirmyndar og verðinu stillt í hóf,“ segir viðskiptavinur­ inn ánægði. Rukkað fyrir innan við eins árs börn n Lastið að þessu sinn fær Smárabíó en DV fékk eftirfarandi sent: „Mig langar að benda ykkur á að í Smárabíói er rukkað fyrir börn undir eins árs aldri. Ég veit um for­ eldra sem snéru við þegar þeir ætl­ uðu í bíó með 4 ára gamla dóttur sína af því að þau áttu líka að borga inn fyrir bróður hennar sem er 11 mánaða og var þar að auki stein­ sofandi.“ Jón Eiríkur Jóhannsson, rekstrar stjóri hjá Senu, segir að for­ eldri með ungt barn þurfi yfirleitt sérsæti, jafnvel tvö, fyrir barna­ stól og aðra fylgihluti og möguleiki sé á því að ónæði skapist fyrir aðra bíógesti. „Við höfum því ekki séð ástæðu til þess að hvetja fólk til að taka með sér kornabörn í bíósalina með því að láta foreldrana fá fyrir þau frí­ miða. Við höfum hins vegar stillt barnaverði mjög í hóf til að koma til móts við þá sem kjósa að taka börnin með sér. Svona mál eru í sí­ felldri skoðun og við förum reglu­ lega yfir það hvort breyta þurfi þessu verklagi, í samræmi við ósk­ ir og þarfir okkar viðskiptavina.“ SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS Lof&Last Bensín Dísilolía Notum réttar geymsluaðferðir n Svona getum við látið grænmeti og ávexti endast lengur Láttu matvælin endast Það kannast flestir við að hafa keypt ávexti og græn- meti sem skemmist áður en þess er neytt. MYND SIgTRYggUR ARI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.