Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2012, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2012, Síða 22
22 Menning 4. júlí 2012 Miðvikudagur B essastaðabóndinn kemur sér nú fyrir í höll sinni eina ferðina enn, og sýnist sitt hverjum. Þetta er þó varla í fyrsta sinn sem fólk hefur skiptar skoðanir um ábúanda jarðar­ innar, því í um 700 ár hefur verið talað, og oft illa, um „Bessastaðavaldið“. Jörðin var upprunalega í eigu Snorra Sturlusonar, en eftir að Ísland komst undir Noregskonung sölsaði konung­ ur undir sig svæðið og sátu æðstu um­ boðsmenn hans þar næstu aldir. Dan­ ir létu byggja steinhús árið 1761 og varð Bessastaðastofa aðsetur stift amt­ manns til 1804, þegar Lærði skólinn var fluttur þangað inn. Frá 1945 hafa Bessastaðir svo verið aðsetur forseta Íslands. Forsætisráðherra vor starfar einnig í danskri höll, eða öllu heldur fang­ elsi. Árið 1759 gaf Danakonungur út tilskipun um að reisa skyldi tugthús á Íslandi og stóð það tilbúið 1771, en var lagt niður um hálfri öld síðar. Frá 1904 hefur það verið skrifstofa ráðherra og síðar forsætisráðherra Íslands. Á gras­ inu fyrir framan stendur svo stytta af sjálfum Kristjáni 9. og merki hans skreytir einnig Alþingishúsið fyrir ofan byggingarár þess, 1881. Húsið var reyndar reist gagngert fyrir Alþingi Ís­ lendinga, en byggingarmeistarinn, F. Bald, var danskur. Því má segja að all­ ir æðstu embættismenn landsins búi í dönskum höllum, en þetta er reyndar alls ekki jafn óalgengt og í fyrstu mætti halda. Danmörk Í Danmörku sjálfri starfa reyndar ansi margir af helstu embættismönnum ríkisins í einni og sömu höll. Aðdá­ endur sjónvarpsþáttanna Hallarinn­ ar, eða Borgen, ættu að kannast við Christiansborg sem þeir draga nafn sitt af. Árið 1417 hrifsaði konung­ ur landið til sín frá biskupnum, og varð það brátt að höfuðvígi Danakon­ unga. 1731 var gamli kastalinn rifinn og Christansborg byggð, sem kostaði um helming allra ríkisútgjalda. Það fór ekki betur en svo að höllin brann rétt hálfri öld síðar, og tók um þrjá ára­ tugi að endurreisa hana. Í millitíðinni höfðu konungar komið sér vel fyrir í Amalienborg og vildu síður flytja aft­ ur yfir. Hin nýja höll var á sex hæðum og var ein þeirra ætluð sem vistarverur kvenna, en þingi og hæstarétti var svo potað inn á sömu hæð. Þegar einveldi var lagt niður árið 1849 varð konung­ ur endanlega að láta sér Amalienborg duga, en Christiansborg hýsir í dag þingið, hæstarétt og skrifstofur for­ sætisráðherra. Aftur brann hún og var núverandi bygging ekki tekin í notkun fyrr en 1937. Má því segja að bæði for­ seti og forsætisráðherra Íslands starfi í eldri dönskum höllum en forsætis­ ráðherra Danmerkur. Margrét Dana­ drottning bætir þó um betur, en haf­ ist var handa við að reisa Amalienborg árið 1750. Færeyjar Á Tinganes var þing fyrst haldið árið 825 og allt þar til það var lagt niður árið 1816. Er talið að staðurinn hafi verið valinn vegna þess hve miðlæg­ ur hann er miðað við eyjarnar allar. Höfuðstaðurinn Tórshavn reis síðar í kring, og voru verslunarhús á nesinu. Eitt þeirra, Skansapakkhúsið frá árinu 1750, er nú höfuðstöðvar lögmanns­ ins, eða forsætisráðherra Færeyja. Hef­ ur „Lögmannsskrivstovan“ verið hér síðan Færeyingar fengu heimastjórn árið 1948. Eftir að þing Færeyinga var endur­ reist árið 1852 var byggt undir það þinghús í miðbænum. Er þing sett á Ólafsvöku og ganga þá þingmenn (sem eru 33 talsins) frá dómkirkj­ unni og að húsinu. Það er þó ráðhús Tórshavn sem mest minnir á Alþingis­ hús Íslendinga. Eistland Danir komu fyrst til Eistlands árið 1219 og áttu þá frækna orrustu við heimamenn. Þeir voru við það að tapa þegar rauður fáni með hvítum krossi féll niður af himnum og fyllti þá eld­ móði. Fáninn hefur síðar orðið þjóð­ fáni Dana og er einn sá elsti í heimi. Danir réðu norðurhluta Eistlands í rúm hundrað ár, en 1343 gerðu heimamenn uppreisn. Uppreisnin mistókst, en Danir ákváðu að þetta væri of mikið vesen og seldu landið þýskri riddarareglu. Svíar komu síðar, en Danaveldi stendur hér enn í nafn­ giftum. Tallin þýðir Danavirki á eist­ nesku og kastalinn sem þeir byggðu og gnæfir yfir borgina hýsir í dag þing­ ið. Kastalinn hefur verið mjög endur­ bættur í gegnum tíðina, en nefnist enn Toompea, sem þýðir Danahöll. Forsetanum hefur þó verið komið fyrir við hlið hallar sem Katrín mikla byggði. Gana Danmörk er ekki eina landið sem stjórnað var frá Christiansborg. For­ seti Gana býr í höll sem nú heitir Osu, en var byggð sem Christiansborg upp úr 1660 þegar Danir réðu þar ríkjum. Fyrir þeirra tíð hafði svæðið tilheyrt Hollendingum og var miðstöð gulls og fílabeinsverslunar, en hinir djöfullegu Danir gerðu brátt þræla að helstu út­ flutningsvöru sinni. Fyrst Portúgalar og þá Akwamu­ ættbálkurinn stálu virkinu frá Dön­ um, en ávallt keyptu þeir það aftur. Það var svo árið 1850 að þeir seldu Bretum það, enda þrælaverslun kom­ in úr tísku og minna upp úr henni að hafa. Bretar gerðu virkið að bækistöð, en eftir að Gana varð sjálfstætt ríki árið 1957 varð það að forsetahöll. Enn er deilt um hvort rétt sé að forsetinn búi í höll sem svo mjög tengist þrælahaldi, en of dýrt þykir að byggja nýja. Von­ andi fáum við sjónvarpsþátt áður en að því kemur. Jómfrúaeyjar Kólumbus uppgötvaði þessar eyj­ ar í Karíbahafi undir lok 15. aldar, og Danir fylgdu í kjölfarið tæpum 200 árum síðar. Þeir fluttu inn þræla til að vinna sykur, en eftir að þrælahald var af numið árið 1848 þurftu dönsk yfir­ völd að borga með sér. Þeir reyndu því að selja Bandaríkjamönnum eyjarnar, en salan gekk ekki í gegn fyrr en fyrri heimsstyrjöld var skollinn á. Eyjarnar tilheyra Bandaríkjun­ um enn þann dag í dag. Á þeim búa um 100.000 manns, og hafa eyjarn­ ar eigið þing og ríkisstjóra. Í höfuð­ borginni Charlotte­Amelie búa um 19.000 manns rétt eins og í Tórshavn, og er borgin nefnd í höfuðið á eigin­ konu Kristjáns fimmta Danakonungs. Ríkisstjórnin hefur hreiðrað um sig í byggingu frá 1867, en þingið starfar í gömlum herbragga Danaveldis sem síðar hýsti landgönguliða Bandaríkj­ anna. Hinum gömlu höfuðstöðvum Dana, Ft. Christian, hefur verið breytt í safn. Af öllum hinum fyrrverandi ný­ lendum Dana eru það því íbúar Jóm­ frúaeyja sem búa um leiðtoga sína í nýlegustu Danavirkjunum. Aðrar fyrrverandi eða núverendi nýlend­ ur, svo sem Noregur og Grænland, hafa reist sér ný stjórnarráð, en þó má þess geta að konungur Noregs býr enn í sumarhöll Svíakonungs efst á Karl­Johan. n Þjóðhöfðingjar í dönskum höllum n Danir byggðu Bessastaðastofu og Stjórnarráðshúsið n Danskar stjórnarbyggingar víða Borgen Aðdáendur sjónvarpsþáttanna Borgen ættu að kannast við Christiansborg sem þeir draga nafn sitt af. Skansapakkhúsið Höfuðstöðvar forsætisráðherra Færeyja láta lítið yfir sér. Tallin þýðir Danavirki á eistnesku Kastalinn sem þeir byggðu og gnæfir yfir borgina hýsir í dag þingið. Kastalinn hefur verið mjög endurbættur í gegnum tíðina, en nefnist enn Toompea, sem þýðir Danahöll. Sagnfræði Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Bessastaðir Bessastaðastofa og stjórnarráðsbyggingin eru byggðar af Dönum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.