Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2012, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2012, Blaðsíða 24
T ækni, sendingar, jafnvægi og leikmenn sem treysta hver öðrum fullkomlega. Þetta er lið sem á skilið að vera bor­ ið saman við hið ótrúlega brasilíska landslið árið 1970.“ Þetta segir Jamie Redknapp, fyrrverandi leikmaður Liverpool og sparkspek­ ingur breska blaðsins Daily Mail, um spænska landsliðið í knattspyrnu sem sigraði á Evrópumótinu sem lauk um helgina. Spánverjar völt­ uðu yfir sterkt lið Ítala í úrslitaleikn­ um, 4–0, og hefur sigurinn komið af stað gömlum umræðum um bestu knattspyrnulandslið sögunnar. DV lítur hér á nokkur landslið sem öll gera tilkall til þessarar nafngiftar. Margt bendir til þess að spænska liðið sé það besta í sögunni – ef ekki það langbesta. n Þrjú stórmót í röð Spánn (2008–2012) Stjóri: Vicente Del Bosque Byrjunarlið: Casillas; Ramos, Capdevila, Puyol, Pique; Busquets, Xavi, Iniesta, David Silva; Torres, Villa Titlar: EM 2008 og 2012, HM 2010 Spánverjar hafa nú unnið þrjú stórmót í röð; Evrópumótið 2008, heimsmeistaramótið 2010 og loks Evrópumótið 2012. Engu öðru landsliði hefur tekist að vinna þrjú stórmót í röð. Liðið byggir enn á sama kjarna leikmanna sem mynd­ aði hópinn á EM fyrir fjórum árum og útlit er fyrir að sömu leikmenn muni mynda hópinn á HM í Brasilíu eftir tvö ár. Ef mið er tekið af núver­ andi leikmannahópi þá verður Xavi Hernandez elsti leikmaður spænska liðsins, eða 34 ára. Miðað við frammistöðu hans á mótinu í sumar er líklegt að Xavi verði áfram í lykil­ hlutverki á miðjunni hjá Spáni. Til marks um ótrúlegan árang­ ur spænska liðsins má geta þess að síðasti tapleikur þess í Evrópu­ keppni var leikinn fyrir sex árum, árið 2006, þegar Svíar lögðu Spánverja að velli í undankeppni EM. Síðan þá hafa Spánverjar leikið 29 leiki í röð í Evrópukeppni án þess að tapa. Þó að Spánverjar séu þekktir fyrir góð­ an sóknarbolta eru þeir ekki síðri þegar kemur að varnarleik. Spán­ verjar hafa haldið hreinu í 10 leikjum í röð í útsláttarkeppni EM sem er met og markvörðurinn, Iker Casillas, hef­ ur haldið hreinu í 79 landsleikjum af þeim 137 sem hann hefur leikið. Vicente Del Bosque, stjóri spænska liðsins, hefur nú stýrt spænska liðinu í 60 leikjum og þar af hafa 52 unnist. Del Bosque hefur skrifað undir nýjan samning og hann mun leiða spænska liðið á HM í Brasilíu þar sem Spán­ verjar munu leitast eftir því að bæta enn frekar í bikarsafn sitt. n 17 ára undrabarn Brasilía (1958–1962) Stjórar: Vicente Feola og Aymore Moreira Byrjunarlið: Gilmar; Djalma Santos, Nilton Santos, Bellini; Zito, Orlando; Garrincha, Didi, Vava, Pele, Zagallo Titlar: Heimsmeistarar 1958 og 1962 Brasilíska liðið sem stóð uppi sem sigurvegari á HM í Svíþjóð árið 1958 og 1962 í Chile er á öllum listum yfir bestu landslið sögunnar. Sautján ára undrabarn, Pele, steig sín fyrstu skref á alþjóðavettvangi á mótinu í Svíþjóð sem Brasilíumenn unnu næsta örugglega. Þeir lögðu Frakka að velli í undanúrslitum 5–2 og síðan sjálfa gestgjafana, Svía, einnig 5–2 í úrslitum. Brasilíumenn komu mörgum á óvart með leikkerfi sínu, en þeir spiluðu eins konar 4­2­ 4 leikkerfi sem kom andstæðingun­ um í opna skjöldu. Þrátt fyrir tvo heimsmeistaratitla á þessum árum tókst Brasilíumönn­ um ekki að vinna Suður­Ameríku­ keppnina. n Besti sóknarboltinn Brasilía (1970–1973) Stjóri: Mario Zagallo Byrjunarlið: Felix; Carlos Alberto, Everaldo, Brito, Piazza; Clodoaldo, Gerson; Jairzinho, Rivelino, Tostao, Pele Titill: Heimsmeistarar 1970 Brasilíska landsliðið bar höfuð og herðar yfir önnur lið á HM árið 1970 og rústaði liði Ítala í úrslitum, 4–1. Brasilíumenn spiluðu stórbrot­ inn sóknarleik og eru flestir sér­ fræðingar á einu máli um að ekkert lið hafi spilað jafn góðan sóknarbolta. Gerson, leikmaður mótsins, stýrði spilinu á miðjunni á meðan fram­ herjarnir Pele og Tostao gerðu usla í vörn andstæðinganna. Með Rivelino á vinstri kanti og Jarizinho á hægri voru Brasilíumenn geysilega hættu­ legir. Þrátt fyrir öflugan sóknarbolta var veikleika að finna í vörn liðsins en blússandi sóknarbolti bætti hins vegar upp fyrir það. Því miður tókst þessu magnaða liði ekki að láta ljós sitt skína á alþjóðavettvangi aftur. Kjarninn úr hópnum var farinn þegar kom að heimsmeistaramótinu 1974 en þar enduðu Brasilíumenn í fjórða sæti. n Zidane og allir hinir Frakkland (1998–2001) Stjórar: Aime Jacquet og Roger Lemerre Byrjunarlið: Barthez; Thuram, Lizerazu, Blanc, Desailly; Deschamps, Vieira; Henry, Zidane, Djourkaeff; Trezeguet Titlar: Heimsmeistarar 1998, Evrópumeist- arar 2000 og álfumeistarar 2001 Franska liðið var nánast ósigrandi árin 1998 til 2001 og afar fáa veika bletti að finna á liðinu. Liðið hafði ekki bara frábæra sóknarmenn á borð við Zinedine Zidane, Thierry Henry og David Trezeguet heldur var franska vörnin á þessum tíma af mörgum talin vera sú öflugasta í sögunni. Franska liðið rúllaði yfir Brasilíu í úrslitaleik mótsins, 3–0, þar sem Zinedine Zi­ dane, einn besti knattspyrnumaður sögunnar, skoraði tvö mörk. Tveimur árum síðar stóð franska liðið uppi sem sigurvegari í Evrópu­ keppninni sem haldin var í Belgíu og Hollandi og vann svo Álfukeppn­ ina ári síðar, árið 2001. Allur vindur var úr franska liðinu þegar kom að HM 2002 en þá endaði franska liðið á botni síns riðils öllum að óvörum. n 24 Sport 4. júlí 2012 Miðvikudagur Bestu landslið í sögu fótboltans n Spánverjar komnir á spjöld sögunnar n Líklega besta landslið sem uppi hefur verið Fleiri frábær landslið Ítalía 1934–1938 n Heimsmeistarar 1934 n Heimsmeistarar 1938 V-Þýskaland 1970–1976 n Heimsmeistarar 1974 n Evrópumeistarar 1972 Brasilía 2002–2006 n Heimsmeistarar 2002 n Suður-Ameríkumeistarar 2004 Ungverjaland 1951–1954 n Úrslitaleikur HM 1954 Frakkland 1982–1986 n Evrópumeistarar 1984 n Undanúrslit HM 1982 n Undanúrslit HM 1986 Holland 1974–1978 n Úrslit HM 1974 n Undanúrslit EM 1976 n Úrslit HM 1978 Bestir í sögunni? Það eru fá landslið í sögunni sem komast með tærnar þar sem Spánverjar hafa hælana. Þrír sigrar á þremur síðustu stórmótum segja allt sem segja þarf um gæði liðsins. Mynd ReuTeRS Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.