Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2012, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2012, Blaðsíða 2
L ágmarkslaun eru afar lág og litlu munar á þeim og at­ vinnuleysisbótum. Einstak­ lingur í 100 prósent starfi á lágmarkslaunum þénar ekki nema um 16 þúsund krónum meira á mánuði en einstaklingur á fullum atvinnuleysisbótum sé tillit tekið til skatta, útsvars og greiðslu í lífeyris­ sjóð. Þetta er sýnt myndrænt á með­ fylgjandi grafi. Þar sést einnig að einstaklingur á atvinnuleysisbótum getur þénað tæplega 20 þúsund krónum meira á mánuði en einstak­ lingur í 100 prósent starfi á lág­ markslaunum nýti hann sér frí­ tekjumark vegna tilfallandi starfs meðfram bótum. Atvinnuleysi hefur minnkað um­ talsvert á undanförnum misserum og mældist um 4,8 prósent í júní­ mánuði. Athygli vekur að um 3.500 manns hafa þegið atvinnuleysis­ bætur í meira en eitt ár. Ónefndur heimildarmaður DV segir enn sjást merki góðæris í bótakerfinu. Tekjur á bótum og tekjur á lágmarkslaun­ um eru þó fjarri því að duga fyrir áætluðum útgjöldum neysluvið­ miða velferðarráðuneytisins. Hvatinn ætti að vera meiri „Okkur finnast atvinnuleysisbæt­ urnar heldur háar núna miðað við það sem væri eðlilegt,“ segir Vil­ hjálmur Egilsson, formaður Sam­ taka atvinnulífsins, í samtali við DV. „Hvatinn til þess að vinna er heldur lítill.“ Vilhjálmur segist þó „mjög ánægður með að atvinnuleysis­ tölurnar séu að lækka og séu loks komnar undir fimm prósent“ og tel­ ur átök Vinnumálastofnunar og að­ ila vinnumarkaðarins hafa skilað ágætum árangri. Þó vill Vilhjálmur meina að gera hefði mátt enn betur. „Þetta kerfi þarf allt saman að virka þannig að það sé raunverulegur hvati til að taka vinnu. Okkur finnst að það halli frekar á í þeim efnum.“ Einnig telur hann hafa vantað töluvert upp á hjá stjórnvöldum þegar kemur að því að ýta undir fjárfestingu. Lágmarkslaun nærri bótum Unnur Sverrisdóttir, forstöðumaður stjórnsýslusviðs Vinnumálastofn­ unar, segir minnkandi atvinnu­ leysi hafa komið gleðilega á óvart. „Tölurnar tala sínu máli. Þetta er góð þróun.“ Þó lítill munur sé á at­ vinnuleysisbótum og lágmarkslaun­ um segir Unnur að það sé „alltaf betra að vera í vinnu en að vera á bótum“ og telur Vinnumálastofnun hafa unnið þrekvirki í því að styðja fólk til náms og vinnu. Eins og áður hefur verið sagt mun­ ar aðeins um 16 þúsund krónum á lágmarkslaunum og atvinnuleysis­ bótum. Þá getur einstaklingur á bót­ um þegið tilfallandi starf og fengið greitt allt að 59 þúsund krónum á mánuði án þess að atvinnuleysis­ bæturnar skerðist. Þannig er unnt að þiggja óskertar atvinnuleysisbætur en þéna samt töluvert hærri upphæð en einstaklingur í 100 prósent starfi. LítiLL hvati tiL að vinna 2 Fréttir 18. júlí 2012 Miðvikudagur Brettagarður í Laugardal Unnið er að byggingu brettagarðs í Laugardal. Stefnt er að því að garðurinn verði tilbúinn fyrir lok ágústmánaðar. Um er að ræða um það bil 500 fermetra bretta­ garð sem verður umlukinn hljóð­ mön. Völlurinn sjálfur er aflöng steypt plata á 280 fermetra fyll­ ingu með upphækkuðum pöllum til beggja enda. Brettagarðurinn er staðsettur við Engjaveg vest­ an við knattspyrnuvöll Þróttar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Styrkja hjálparstarf í Austur-Eþíópíu Hjálparstofnun kirkjunnar tók við rúmum 1,7 milljónum króna frá Fatímusjóðnum á dögunum. Það voru þær Jóhanna Kristjónsdótt­ ir, Guðlaug Pétursdóttir og Ragný Guðjohnsen, fulltrúar sjóðsins, sem afhentu styrkinn. Styrknum er ætlað að efla starf kirkjunnar í Jijiga­héraði í Austur­Eþíópíu. Stærstu hluti sjóðsins fer í að reisa vatnsþró en afgangurinn í að byggja kamra og í smálánasjóð kvenna. Jijiga­hérað er í Sómalíu­ fylki Eþíópíu en það er mjög harð­ býlt og þurrt svæði og vatn á þeim slóðum af skornum skammti. Í tilkynningu frá sjóðnum kemur fram að hann hafi verið stofnaður árið 2005 í þeim tilgangi að styðja börn, einkum stúlkur, í Jemen til mennta. Þar sem nú ríki óeirð­ ir í landinu og skólahald hafi að mestu verið lagt niður hafi stjórn sjóðsins ákveðið að styðja að þessu sinni við verkefni hjálpar­ starfsins í Austur­Eþíópíu. n Munar 16 þúsund krónum á atvinnuleysisbótum og lág- markslaunum Ólafur Kjaran Árnason blaðamaður skrifar olafurk@dv.is 10 % 7 % 4 % 1 % 9 % 6 % 3 % 0 % 8 % 5 % 2 % Jún. 2007 Jún. 2009 Okt. 2007 Okt. 2009 Feb. 2008 Feb. 2010 Jún. 2008 Jún. 2010 Jún. 2011 Okt. 2008 Okt. 2010 Okt. 2011 Feb 2009 Feb. 2011 Feb. 2012 Jún. 2012 n Eins og sést á þessu grafi hefur atvinnuleysi dregist umtalsvert saman á undan- förnum misserum og stendur nú í 4,8 prósentum. Það skýrist að hluta til af árstíðabundinni sveiflu en einnig af batnandi efnahagsástandi og vel heppnuðum úrræðum fyrir atvinnulausa. HeiMiLd: www.vMst.is. Mánaðartekjur einstaklings eftir skatt, útsvar og greiðslu í lífeyrissjóð 22 3 þ ús un d 16 7 þ ús un d 1 20 4 þú su nd 3 18 2 þ ús un d 2 16 3 þ ús un d 4 5 Hress og kát Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Vilhjálmur Egilsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, hljóta að gleðjast yfir fréttum um minnkandi atvinnuleysi. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Leitað að þýskum hjónum Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í loftið síðdegis á þriðjudag til að svipast um eftir þýskum hjónum sem óttast er um. Hjónin ætluðu sér að ganga yfir Eyjabakkajökul, sem er í norðaustanverðum Vatnajökli. Gönguleiðin sem þau ætluðu að fara er nokkuð algeng gönguleið á Lónsöræfum en hjón­ in munu hafa snúið við á laugar­ dagskvöld. Bíll hjónanna stendur við Snæ­ fellsskála, en það var skálavörður sem óskaði eftir aðstoð lög­ reglunnar á Egilsstöðum um klukkan þrjú á þriðjudag þar sem hjónin höfðu ekki skilað sér til baka. Var því ákveðið að kalla eft­ ir þyrlu Landhelgisgæslunnar sem hóf flug síðdegis. Björgunar­ sveitir munu taka þátt í leitinni ef nauðsyn krefst þess. 1 167 þúsundEinstaklingur á atvinnu- leysisbótum ef miðað er við 100% bótarétt. 2 182 þúsundEinstaklingur á atvinnu- leysisbótum sem vinnur sér inn 59 þúsund krónur á mánuði í tilfallandi vinnu. (Frítekju- mark vegna tekna samhliða atvinnuleysisbótum nemur um 59 þúsund krónum.) 3 204 þúsundEinstaklingur sem fær hámarksfjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta. 4 163 þúsundEinstaklingur í 100% starfi á lágmarkslaunum. 5 223 þúsundMánaðarútgjöld einstaklings samkvæmt neysluviðmiðum velferðarráðu- neytisins. HeiMiLd: www.vMst.is og reiknivéL www.rsk.is.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.