Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2012, Page 4
Glæsihús siGurðar
fært í leynifélaG
Stendur við hvert orð
n Sigurður Líndal er ánægður með að fá reglulegar skammir
M
ér finnst þessi grein vera
óttalegt rugl,“ segir Sig-
urður Líndal lagaprófessor
inntur eftir viðbrögðum
við grein Freyju Haraldsdóttur
sem birtist í Fréttablaðinu og á
Vísi á mánudag. Greinin sem,
sem bar yfirskriftina „Kæri Sigurð-
ur Líndal“, hefur vakið gríðarlega
athygli. Í henni kemur fram gagn-
rýni á ummæli Sigurðar, sem birt-
ust í DV þann 12. júlí síðastliðinn,
þess efnis að frekt væri af öryrkjum
að vilja ógilda forsetakosningarn-
ar, á þeim grundvelli að að þeir,
sem ekki gátu greitt atkvæði hjálp-
arlaust, hafi ekki fengið að velja sér
aðstoðarmenn sjálfir.
„Það að vilja ógilda forseta-
kosningar út af þessu eina atriði er
mannréttindafrekja. Það er komið
út fyrir öll eðlileg mörk. Ég stend
við það,“ segir Sigurður. Sigurð-
ur tekur þó fram, að ef menn vilji
breyta lögunum þá sjái hann ekk-
ert athugavert við það. „Ég geri
enga athugasemd við það. Það
er allt í lagi að breyta þessu mín
vegna – kosningin verður samt al-
veg jafn leynileg.“ Sigurður seg-
ir að ákveðnir „terror-hópar“ rísi
reglulega upp og hindri málfrelsið.
„Þú mátt til dæmis ekki gera nein-
ar athugasemdir við femínisma;
þá er svoleiðis argað á þig. Það eru
smám saman að myndast hópar
í samfélaginu; einkaframtak sem
hindrar allar umræður,“ segir Sig-
urður og bætir við: „Ég er málaður
upp sem vondur karl sem ræðst á
fatlað fólk. Hvað ég svo sagði? Það
er aukaatriði.“
Sigurður kveðst ánægður með
að fá reglulegar skammir. „Þá veit
ég að ég er sennilega að segja satt;
þjóðin þolir ekki að heyra sann-
leikann.“
baldure@dv.is
4 Fréttir 18. júlí 2012 Miðvikudagur
m.dv.is
Lestu fréttir DV í farsíman
um þínum!
Sigurður Líndal Segist vera útmálaður
sem vondur karl.
Lést í slysi
Maðurinn sem lést í umferðar-
slysi á laugardag í Vatnsskarði
hét Björgvin Smári Jónatansson.
Hann var á 63. aldursári og var
búsettur á Akureyri. Bifreið hans
lenti utan vegar á Vatnsskarði eft-
ir hádegi á laugardag. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni á
Blönduósi var maðurinn úrskurð-
aður látinn á slysstað. Tildrög
slyssins eru ókunn.
Dagur skýtur
á Davíð
„Nei, sko! Íslandsmethafi í halla-
rekstri dagblaða og heimsmeistari
í gjaldþrotum Seðlabanka farinn
að veita fjármálaráðgjöf. Fallegt,“
skrifar formaður borgarráðs, Dag-
ur B. Eggertsson, í athugasemd
við frétt DV.is um leiðara Morgun-
blaðsins þar sem Jón Gnarr er
sagður í felum. Heildartap síðasta
árs af rekstri Árvakurs, útgáfu-
félags Morgunblaðsins og mbl.
is, nam 205 milljónum króna, en
árið 2010 nam það 330 milljónum
króna. Í leiðara Morgunblaðsins er
Jón Gnarr borgarstjóri gagnrýndur
fyrir meint þekkingarleysi þegar
kemur að flóknum fjármálahug-
tökum.
Leiðrétting
Vegna umfjöllunar DV á mánu-
dag, 16. júlí, um Ágeir Þór
Davíðsson, eiganda Gold-
finger, vill DV vekja athygli
á að konurnar sem birtast á
mynd með Ásgeiri sem tekin
er í Hörpu starfa ekki allar á
Goldfinger. Auk starfskvenna
eru á myndinni vinkonur og
skyldmenni Ásgeirs. Í mynda-
texta voru konurnar sagðar
starfskonur Ásgeirs en ekki var
tekið fram að það ætti ekki við
um þær allar.
E
ignarhaldsfélagið Veiðilæk-
ur ehf. er ekki lengur skráð
í eigu Sigurðar Einarssonar,
fyrrverandi stjórnarfor-
manns Kaupþings. Þar með
er Sigurður ekki lengur skráður
eigandi fyrir 843 fermetra sumar-
húsi Veiðilæks og jarðarinnar sem
sumarhúsið stendur á við Norðurá
í Borgarfirði. Í júní síðastliðnum
fékk Veiðilækur ehf. nýtt nafn og
nýja stjórnendur. Nafni Veiðilæks
ehf. var breytt í Rhea ehf. Eigend-
ur Rhea ehf. og þar með eigendur
sumarhússins og jarðarinnar, vilja
ekki gefa upp nöfn sín. Þar að auki
vilja þeir ekki greina frá hvað þeir
hyggjast gera við húsið og jörðina
sem átti að verða sumarhöll Sig-
urðar Einarssonar.
Leynd hvílir yfir Rhea ehf.
Mikil leynd hvílir á hverjir eigend-
ur Rhea ehf. eru. Samkvæmt fyrir-
tækjaskrá ríkisskattstjóra er Rhea
ehf. skráð til húsa í Skipholti 50d
en er ekki skráð fyrir símanúm-
eri. Virtus lögmannsstofa er með-
al þeirra fjölmörgu fyrirtækja sem
skráð er til húsa í Skipholti 50d.
Framkvæmdastjóri Virtus í
stjórn Rhea ehf.
Þorkell Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Virtus, er stjórnar-
maður Rhea ehf. Kristján Valur
Gíslason, sem er einnig starfsmað-
ur Virtus lögmannsstofu, er að
sama skapi stjórnarmaður Rhea
ehf. Þeir settust báðir í stjórn Rhea
ehf. í júní síðastliðnum samfara
nafnabreytingunni á félaginu. Allt
frá stofnun Veiðilæks ehf. árið 2004
þar til í júní á þessu ári hefur stjórn
félagsins þó haldist óbreytt; Sig-
urður Einarsson og Arndís Björns-
dóttir, eiginkona Sigurðar, voru
stjórnarmenn félagsins og þá var
eignarhlutur Sigurðar 100 prósent
í Veiðilæk ehf.
Þorkell Guðjónsson sagði í sam-
tali við blaðamann DV að hann
mætti ekki gefa upp hverjir eigend-
ur Rhea ehf. eru. „Það er bara
einkamál eigenda félagsins.“ Þor-
kell sagði jafnframt að Sigurður
Einarsson hafi ekki verið meðal
eigenda félagsins í nokkurn tíma
og því hefði verið ákveðið að hann
færi úr stjórn félagsins.
Skýrist síðar á árinu
Síðasti ársreikningur Veiðilæks ehf.
(nú Rhea ehf.) er frá árinu 2010. Þar
kemur fram að Sigurður Einarsson
sé eini eigandi félagsins og tap af
rekstri félagsins hafi verið rúmar
15 milljónir króna. Þegar ársreikn-
ingur Rhea ehf. birtist síðar á þessu
ári mun væntanlega skýrast hverjir
eigendur Rhea ehf. eru.
Þorkell sagði að stjórn Rhea ehf.
væri ennþá að gera upp við sig hvað
yrði um sumarhúsið og jörðina sem
sumarhúsið stendur á. „Það er ver-
ið að ræða málin. Þetta er stór og
flókin framkvæmd. Hvað við gerum
við Veiðilæk kemur í ljós síðar.“
Öllu tjaldað til
Öllu var tjaldað til þegar Sigurður
Einarsson lét reisa sumarhúsið í
Borgarfirði. Samkvæmt teikningum
átti það meðal annars að státa af
fimm baðherbergjum, vínkjallara,
gufuböðum og skotheldu gleri.
Samkvæmt heimildum DV
stendur húsið nú fokhelt með
skothelda glerinu en engar fram-
kvæmdir hafa verið við húsið í um
eitt og hálft ár. Hliðið er læst og því
er ekki hægt að keyra upp að sum-
arhúsinu.
Blaðamaður DV bankaði í
tvígang upp á hjá Sigurði Einars-
syni til að forvitnast um hverjir
væru nýir eigendur Rhea ehf. og
þar með sumarhússins Veiðilæks.
Bar það því miður ekki árangur þar
sem Sigurður var ekki heima.
n Höllin fokheld en með skotheldu gleri n Leynd yfir nýjum eigendum
Veiðilækur í Borgarfirði Ekki lengur skráð í eigu Sigurðar
Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings.
Elín Ingimundardóttir
blaðamaður skrifar elin@dv.is
„Það er bara einka-
mál eigenda fé-
lagsins.