Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2012, Side 6
Ráða fyRRveRandi
foRstjóRa stoða
n Var stefnt fyrir að ræna Glitni innan frá n Konan keypti hlut í GAMMA
R
áðgjafarfyrirtækið
GAMMA hefur ráðið Jón
Sigurðsson til starfa. Jón er
einn þeirra sem skilanefnd
Glitnis banka stefndi fyr-
ir dóm bæði í New York í Banda-
ríkjunum og hér á Íslandi til að fá
greiddar skaðabætur upp á nokkra
milljarða króna vegna falls bank-
ans. Jón sat í stjórn bankans þegar
hann féll en hann var forstjóri FL
Group, sem síðar varð að Stoðum,
í hruninu. Hann lét af störfum hjá
Stoðum í kjölfar þess að hafa ver-
ið stefnt fyrir dóm í málinu. Málinu
var síðar vísað frá í New York.
Undanfarin tvö ár hefur Jón starf-
að hjá sínu eigin ráðgjafarfyrir-
tæki en verður nú hluti af starfsliði
GAMMA auk þess að sitja í stjórnum
fjölmargra fyrirtækja. Eftir að hann
lét af störfum sem forstjóri Stoða hélt
hann til að mynda áfram stjórnar-
setu í dótturfyrirtækjum þess.
Með milljarða í höndunum
Fyrirtækið GAMMA hefur starfs-
leyfi til reksturs verðbréfasjóða, fjár-
festingarráðgjafar og fleiri greina
tengdum fjármálaþjónustu. Fyr-
irtækið hefur samkvæmt heima-
síðu sinni 24 milljarða króna í
stýringu fyrir lífeyrissjóði, trygginga-
félög, bankastofnanir og aðra aðila.
Mennirnir á bak við fyrirtækið eru
þeir Gísli Hauksson hagfræðingur
og Agnar Tómas Möller verkfræðing-
ur. Þeir störfuðu báðir fyrir Kaupþing
banka á árunum fyrir hrun.
Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem
Jón kemur nálægt milljörðum en
hann hefur verið lykilmaður hjá
nokkrum íslenskum fyrirtækjum á
síðustu árum. Hann sat til að mynda
í stjórn Glitnis á þeim tíma sem FL
Group var stærsti hluthafi bankans.
Konan keypti hlut
Morgunblaðið greindi frá því á
laugardag að Björg Fenger, eiginkona
Jóns, keypti nýverið tæplega tíu pró-
senta hlut í GAMMA en hún er einn
af eigendum heildverslunarinn-
ar Nathan & Olsen ásamt fjölskyldu
sinni. Athygli vekur að Jón er stjórn-
armaður í félaginu sem heldur utan
um eignarhlut Bjargar í GAMMA.
Látinn hætta hjá Stoðum
Jóni var gert að láta af störf-
um hjá Stoðum í maí í fyrra eft-
ir að slitastjórnin stefndi hon-
um. Slitastjórnin heldur utan um
stærsta einstaka eignarhlutinn í
Stoðum og á bankinn 26 prósenta
hlut í fyrirtækinu. Viðskiptablaðið
greindi frá því árið 2011 að starfs-
lokagreiðslur til Jóns hefðu numið
36 milljónum króna, um það bil
tvöfalt hærri upphæð en eftirmað-
ur hans í forstjórastarfinu fékk í
árslaun.
DV greindi frá því í mars
árið 2010 að Jón hefði fengið að
minnsta kosti 150 milljónir króna
frá FL Group þegar hann réð sig
til starfa hjá fyrirtækinu. Áður
hafði Jón verið starfsmaður Lands-
bankans en hann varð fyrst fram-
kvæmdastjóri og aðstoðarfor-
stjóri áður en hann varð forstjóri
FL Group. Fyrirtækið var almenn-
ingshlutafélag á þeim tíma sem
gengið var frá samningnum við
Jón sem tryggði honum milljón-
irnar. Samkvæmt upplýsingum frá
upplýsingafulltrúa Stoða á þeim
tíma var ástæðan fyrir greiðslunni
til Jóns sú að verið var að kaupa
upp kaupréttarákvæði sem hann
hafði unnið sér inn á meðan hann
var starfsmaður Landsbankans.
„Undanfarin tvö ár
hefur Jón starf-
að hjá sínu eigin ráðgjaf-
arfyrirtæki en verður nú
hluti af starfsliði GAMMA.
Sagt upp eftir stefnu Jón var látinn fara eftir að slitastjórn Glitnis stefndi honum fyrir
dóm. Hann sat um tíma í stjórn bankans. Mynd Stefán KarLSSon
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Var hjá fL Jón starfaði sem
forstjóri FL Group, sem síðar varð
að Stoðum, þangað til hann missti
vinnuna vegna stefnu slitastjórnar
Glitnis. Glitnir á stærsta einstaka
hlutinn í Stoðum.
Mynd Sigurður gunnarSSon
Össur vill hertar aðgerðir
n fordæmir sýrlensk stjórnvöld
Í
slensk stjórnvöld lýsa yfir full-
um stuðningi við hertar aðgerð-
ir alþjóðasamfélagsins gagnvart
Sýrlandi. Þetta kemur fram í til-
kynningu frá utanríkisráðuneytinu
sem gefin var út á þriðjudag. Drög
að ályktun þess efnis eru nú til um-
fjöllunar á vettvangi öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna að frum-
kvæði Bretlands, Bandaríkjanna,
Frakklands, Portúgal og Þýska-
lands.
Össur Skarphéðinsson utanrík-
isráðherra fordæmir framferði sýr-
lenskra stjórnvalda og í tilkynn-
ingunni segir meðal annars: „Öllu
ofbeldi verður að linna, hver svo
sem ber ábyrgð á því.“ Þá eru öll
aðildarríki öryggisráðsins hvött til
að sameinast um fyrrnefnd álykt-
unardrög en þar er kveðið á um að
gripið verði til þvingunaraðgerða ef
sýrlensk stjórnvöld framfylgja ekki
tafarlaust ályktunum ráðsins.
Stefán Pálsson, sagnfræðingur
og formaður Samtaka hernaðar-
andstæðinga, segir að þvingunar-
aðgerðir sem slíkar geti gert gagn
en hann varar þó við því að þær séu
misnotaðar af NATO-ríkjum. „Það
gerðist í Líbíu. Þá grófu NATO-
ríkin mjög rækilega undan Sam-
einuðu þjóðunum með því að taka
almenna ályktun og túlka hana eft-
ir kúnstarinnar reglum. Það er bara
eins gott að það gerist ekki aftur.“
Samkvæmt alþjóðaráði Rauða
krossins ríkir borgarastyrjöld í Sýr-
landi. Barist er víða um landið,
meðal annars í höfuðborginni þar
sem ríkisstjórnin hefur aðsetur.
johannp@dv.is
6 Fréttir 18. júlí 2012 Miðvikudagur
Kíktu á heimasíðu okkar og skoðaðu matseðilinn
!
Einn vinsælasti Kebab staðurinn á höfuðborgarsvæðinu!
www.alamir.is Hamraborg 14 a 200 Kópavogi Sími 5554885
Virkir dagar:11–21 Helgar:13–21
Össur Skarphéðinsson Vill hertar
þvingunaraðgerðir.
Ætlar ekki
að kæra
Konan sem fannst nakin fyrir utan
Kjörgarð á sunnudagsmorgun ætl-
ar ekki að kæra málið. Þetta stað-
festir Björgvin Björgvinsson að-
stoðaryfirlögregluþjónn.
Málið er þó enn í rannsókn hjá
lögreglu. „Við klárum rannsóknina
og niðurstöður hennar verða svo
sendar ákærusviði,“ segir Björg-
vin við blaðamann. Rætt var við
konuna á þriðjudag þar sem hún
greindi frá ákvörðun sinni.
Samkvæmt heimildum DV
fannst konan fyrir utan lagermót-
töku Kjörgarðs og var kjóllinn
hennar fastur undir nærliggjandi
bifreið að sögn vitna. Menn sem
voru að sinna erindum við Kjör-
garð hlúðu að konunni þar til lög-
regla kom á vettvang og var farið
með hana á neyðarmóttöku fyrir
fórnarlömb kynferðisbrota.
Vitni sáu lögregluna ná fjórum
karlmönnum á hlaupum stuttu
eftir að hún kom á vettvang en
þeir voru allir handteknir vegna
málsins. Mennirnir eru nú lausir
úr haldi.
Gulli gagnrýndur
af Vinnueftirlitinu
Aðferðir Gunnlaugs Helgason-
ar í þáttunum Gulli byggir, sem
eru á dagskrá Sjónvarpsins, þykja
oft og tíðum stórhættulegar. Þetta
segir Vinnueftirlitið um þátt-
inn og kemur fram í athugasemd
þess að einföldum vinnureglum
á byggingasvæði sé ekki fullnægt.
„Þetta er þáttur um hlutina eins
og þeir eru en ekki um hlutina
eins og þeir ættu að vera,“ sagði
húsasmíðameistarinn og leikar-
inn Gunnlaugur Helgason í sam-
tali við Fréttablaðið á þriðjudag
um málið. Í athugasemd Vinnu-
eftirlitsins er gagnrýnt að Gunn-
laugur hafi unnið á þaki húss án
þess að hafa nokkra fallvörn. Þá
var bent á glæfraleg vinnubrögð
þegar mænisás var hífður þannig
að fólk stóð undir.