Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2012, Qupperneq 12
Reykjavík fRamtíðaRinnaR
12 Fréttir 18. júlí 2012 Miðvikudagur
R
eykjavíkurborg mun breyt
ast umtalsvert á næstu
árum. Margar breytinganna
hafa legið fyrir lengi en auk
þess er unnið að breyting
um á aðal skipulagi borgarinnar.
Breytingar á borginni miða að flestu
leyti að því að þétta byggð og minnka
ferðakostnað íbúa í borginni. Páll
Hjaltason, formaður skipulagsráðs
borgarinnar, segir að mikil vinna hafi
verið lögð í skipulag borgarinnar á
síðustu þremur árum og að breyta
hafi þurft nálgun á skipulagsmálin.
Hann segir samstöðu vera um helstu
breytingar innan borgarstjórnarinn
ar en að mikilvægt sé að sátt ríki um
málin á meðal íbúanna.
Vilja minnka ferðakostnað
Mikill kostnaður fellur á heimilin í
borginni vegna samgangna. Langar
vegalengdir frá heimili og í vinnu gera
það að verkum að ferðakostnaður er
einn af stærstu útgjaldaliðum heim
ila á svæðinu. Með þéttingu byggð
ar gæti mikið sparast þegar kemur að
þessum kostnaði á meðan aðrir hlutir
tapast. Páll segir að stefnt sé að því að
skipuleggja borgina og hverfi henn
ar út frá þeirri hugsun að íbúarnir geti
sótt þjónustu í grennd við heimili sín
og þannig minnkað ferðalög.
Metnaðarfull hjólreiðaáætlun
liggur líka fyrir þar sem stefnt er að
því að gera hjólreiðafólki auðveldara
að ferðast um borgina. Samkvæmt
kynningarbæklingi sem skipulags
ráð Reykjavíkurborgar gaf út vegna
skipulagsáætlunar til ársins 2030
kemur fram að stefnt er að því að tí
falda hjólreiðastíga sem í boði eru í
höfuðborginni. Árið 2010 voru 10
kílómetrar af hjólreiðastígum en
stefnt er að því að hjólreiðastígarn
ir spanni 100 kílómetra eftir átta ár,
árið 2020.
Samráð við íbúa mikilvægt
Páll segir að núverandi borgar
stjórnar meirihluti hafi tekið við
skipulagsmálum eftir góða vinnu
fyrri meirihluta, sem meðal annars
hafi fundað með íbúum í hverfum
borgarinnar. „Sá fókus sem við höf
um verið að leggja upp með er að
hefja hverfaskipulagsferlið sem kem
ur í kjölfar aðalskipulagsins og mun
þýða að hvert einasta hverfi eða
borgarhluti í Reykjavík mun verður
endurskipulagður í miklu íbúasam
ráði með það fyrir augum að reyna að
tryggja betri þjónustu,“ segir hann og
bætir við að breytingarnar taki mið af
því að styrkja samfélagið í hverfun
um. „Stefnt er að styrkja samfélagið,
fá verslun aftur inn í hverfin og auka
tómstundir barna.“
Einn af stærstu þáttunum við
endurskipulagninguna er að gera
fólki kleift að minnka ferðalög inn
an borgarinnar. „Það er svona stóra
myndin, að reyna að minnka sam
göngur, að minnka umferð. Að fólk
skutlist síður á milli bæjarenda og
fái meiri heildstæða þjónustu inn
an síns hverfis. Þessi markmið eru
sett mjög skýrt fram í aðalskipulagi
en þeim verður framfylgt í hverfa
skipulaginu og það er svona það sem
ég held að ég verði hvað stoltastur af
þegar búið er,“ segir Páll.
Byggja innan borgarmarkanna
Hugmyndir um þéttingu byggðar snýr
n Íbúabyggð þétt til muna n Vilja heildstæða þjónustu inn í hverfin n Tífalda lengd hjólastíga n Ekki allir sáttir við breytingarnar
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
6
9
10
Kaupmannahöfn
6.300Reykjavík
429
New York
10.519
Strjálbýl borg
n Miðað við upplýsingar frá Hagstofunni og Landmæling-
um Íslands er þéttleiki byggðar í Reykjavík um 429 íbúar á
hvern ferkílómetra. Til samanburðar eru 6.300 íbúar á hvern
ferkílómetra í Kaupmannahöfn og 10.519 í New York-borg,
samkvæmt upplýsingum af vef Wikipedia.
Hverfaskipting
borgarinnar
1 Vesturbær
2 Miðborg
3 Hlíðar
4 Laugardalur
5 Háaleiti
6 Breiðholt
7 Árbær
8 Grafarvogur
9 Grafarholt/Úlfarsárdalur
10 Kjalarnes
Byggja inn Samkvæmt plönum borgarinnar á að byggja inn á við en ekki stækka borgina.
Þétta á byggð til að draga úr akstri og mynda kjarna í hverfum borgarinnar. MYNd SigtRYgguR ARi
1
3
4 8
7
5
Ingólfstorg
Deiliskipulagstillaga Sturlugötu 2, Vísindagarðar Háskóla Íslands og Stúdentagarðar
(áður austurhluti Háskólalóðar - byggingarsvæði A-F)- skýringarmynd. Mkv. 1.2000
21.september/mars , kl. 10.00
24. júní , kl. 10.00
21. september/mars , kl. 13.00
24. júní , kl. 13.00
21.september/mars , kl. 15.00
24. júní , kl. 15.00
Skuggavörp júní-september/mars
Götumynd/sneiðing A-A
Götumynd/sneiðing B-B
Sneiðmynd - til norðurs
Yfirlitsmynd - til norð austurs
Frá aðalbyggðingu Háskóla Íslands
05-02
SKÝRINGARUPPDRÁTTUR
1:1000/2000
ASK
23.03.2010
Vísindagarðar
Hjólreiðastígar
n Tífalda á lengd hjólreiðastíga í borginni á
næstu árum. Bættar hjólasamgöngur eiga að
hvetja fólk til að hjóla frekar en að nota bíl.
Elliðaárvogur
Lands
pítali
Flugvallarsvæðið
2