Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2012, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2012, Side 14
Borða hollari mat n Transfitubann hefur skilað árangri í New York Í búar í New York-borg borða heilsu samlegri mat eftir að trans- fitubann tók gildi í borginni árið 2008. Þetta kemur fram í niður- stöðum rannsóknar sem heilbrigð- iseftirlit borgarinnar framkvæmdi. Íbúar í borginni innbyrtu 2,4 grömmum minna af transfitusýrum í hverri hádegismáltíð að jafnaði en þeir gerðu áður en bannið tók gildi. Bannið felur í sér að veitingastöð- um í borginni er bannað að bjóða upp á mat sem inniheldur meira en 0,5 grömm af transfitu. Samkvæmt rannsókninni er breyting til batnaðar á öllum stig- um samfélagsins og er samskonar samdráttur í neyslu transfitu hjá ríkum og fátækum. Þá hefur neysla á mat sem inniheldur enga trans- fitu tvöfaldast frá því fyrir bannið. Borgarstjóri New York-borgar vill að gripið verði til frekari að- gerða til að reyna að fá fólk til að borða hollari mat og má þar með- al annars nefna bann við sölu gos- drykkja í stórum drykkjarílátum til að minnka gosneyslu. Athygli hefur einnig vakið að fólk sem tók þátt í rannsókninni segist ekki geta treyst því sem mat- vælaframleiðendur segja í tengsl- um við breytingar á lögum og reglum um matvæli. „Framleið- endurnir sögðu að bannið myndi fækka vörutegundum á mark- aði – það gerðist ekki,“ sagði Kelly Brownell, deildarstjóri stofnunar- innar Rudd Center for Food Policy and Obesity, sem rekin er í sam- starfi við Yale-háskóla um áróð- ur matvælaframleiðenda. „Þeir sögðu að þetta hefði áhrif á bragð en svo var ekki. Þeir sögðu að þetta hefði engin áhrif til batnaðar en það var ekki heldur rétt.“ 14 Erlent 18. júlí 2012 Miðvikudagur É g hugsa um dóminn minn, frelsið, konuna mína og börnin. Í fangelsi í bænum Santa Rita do Sapucai í Brasilíu hafa menn tekið upp á að leyfa föng- um að stunda líkamsrækt til þess að stytta dóm sinn. Fyrir hverjar sextán klukkustundir sem þeir hjóla á kyrr- stæðum æfingahjólum fá þeir einn dag afskrifaðan af fangelsisdómi sín- um. Þetta er ekki einungis gert til þess að þeir puði, heldur skapa hjól- in einnig raforku sem notuð er til þess að hlaða rafhlöður. Þær eru svo í kjölfarið notaðar til þess að knýja ljósastaura við torg í bænum. Alls eru fjögur hjól í fangelsinu og séu þau öll í notkun tekur tíu klukkustundir að hlaða eina rafhlöðu. Sýnir þeim hvað þeir geta lagt af mörkum Fanginn Ronaldo Marcelo Wander- lei da Silva er einn þeirra fyrstu sem fékk að prófa hjólin. Hann var, vegna góðrar hegðunar, valinn ásamt sjö öðrum föngum til þess að taka þátt í verkefninu. Á meðal fanganna voru viðtökur fyrst dræmar en nú vilja næstum allir fá að spreyta sig. Stjórn- endur fangelsisins stefna því á að fjölga hjólunum upp í tíu. „Eftir því sem ég kynntist verkefn- inu frekar áttaði ég mig á því hversu mikilvægt þetta er fyrir borgina,“ seg- ir da Silva við fréttastofu CNN. „Þetta er líka mjög gott fyrir fangana og sýnir þeim hvað þeir geta lagt af mörkum.“ Ronaldo afplánar fimm og hálfs árs dóm fyrir líkamsárás og honum hef- ur tekist að skafa tíu daga af dómn- um á tveimur mánuðum. Hann not- ar tímann á hjólinu til þess að hugsa sinn gang og íhuga aðstæður sínar. „Ég hugsa um dóminn minn, frelsið, konuna mína og börnin,“ segir hann. Fékk hugmyndina frá líkamsræktarstöð Verkefnið var hugmynd dómara í borginni. Jose Henrique Mallmann hafði leitað að ódýrum orkulindum sem menga ekki. Í leit sinni rambaði hann á frétt á netinu um bandaríska líkamsræktarstöð sem er að hluta til knúin af raforku sem viðskiptavinir stöðvarinnar skapa þegar þeir puða á æfingahjólum. Í lítilli borg líkt og Santa Rita do Sapucai væri auðvelt að innleiða svipað kerfi, hugsaði Jose, og lét hann því verða að hug- myndinni. Taldi hann það líka eiga vel við, að menn sem hafi verið fang- elsaðir fyrir að ógna öryggi almenn- ings fengju nú að gera eitthvað hag- kvæmt fyrir samfélagið. Hann segir viðbrögðin við hugmyndinni vera góð. „Þessu hefur verið mjög vel tek- ið. Við erum mjög ánægð með við- brögð almennings,“ hefur bandaríski miðillinn eftir Jose. Lestur til refsilækkunar Þó að eins og er séu ekki fleiri fangelsi í Brasilíu sem hafa sams konar fyrir- komulag, þá er þetta ekki eina dæmið um frumlegan hugsunarhátt í fangels- ismálum þar í landi. Í nokkrum fang- elsum í Brasilíu er föngum til dæm- is boðið að lesa bækur og fyrir hverja bók sem að þeir lesa fá þeir fjóra daga afskrifaða af dómi sínum. Þó er há- mark á þessu og mest geta menn stytt dóm sinn um 48 daga á ári. Ritin sem boðið er upp á eru ýms- ar heimsbókmenntir, heimspekirit og bækur um vísindi og til þess að sjá til þess að menn hafi skilið efnið er öllum gert að skrifa skýrslu um þá bók sem þeir lásu. Skýrslan skal vera stílhrein og fangar verða að læra að halda sig við efnið í ritgerðum sínum. Allt þetta er tekið fram í brasilískum lögum, en löggjöf um málið var sam- þykkt í síðasta mánuði á brasilíska þinginu. Lögin ná þó aðeins til fang- elsa sem rekin eru af ríkinu, sem eru einungis brot brasilískra fangelsa. Flestir úr fátækt Að hlúa að andlegri hlið fanganna er ekki síður mikilvægt í ljósi þess að flestir fangar í Brasilíu eru mjög lítið menntaðir. Tæpur helmingur allra brasilískra fanga hefur ekki lokið níu ára grunnskólanámi. Þá eru 26.000 fangar í Brasilíu ólæsir, það eru um fimm prósent af heildarfjölda fanga í landinu. Flestir fanganna koma úr sárri fátækt og hafa leiðst út á glæpa- brautina. Lestrarverkefnið gefur þeim eitthvað til þess að stefna að og býr þá undir að taka þátt í sam- félaginu á ný. Brasilísk fangelsi eru ekki beint huggulegir staðir – veggir eru ber- ir og alltof margir fangar eru í þeim. Samkvæmt tölum frá því í desem- ber í fyrra eru þau full upp að 167 prósent hámarksgetu – nálægt tvö- földum þeim fjölda fanga sem pláss er fyrir. Frumkvæði og nýsköpun í fangelsiskerfinu eru því lífsnauðsyn- leg til þess að stemma stigu við þeim vandamálum sem fylgja óhjákvæmi- lega þessum mikla fjölda fanga. n Fangar hjóla og skapa orku til þess að knýja nærliggjandi mannvirki hjóla til að stytta dóm Plássleysi Það eru nálægt því tvöfalt fleiri fangar en pláss er fyrir í brasil- ískum fangelsum. Nýsköpun og frumkvæði í fangelsiskerfinu er því lífsnauðsynlegt til þess að stemma stigu við þeim vandamálum sem fylgja óhjákvæmilega þessum mikla fjölda fanga. Símon Örn Reynisson blaðamaður skrifar simon@dv.is Sveittur Fanginn Ronaldo Marcelo Wand- erlei da Silva puðar hér til þess að skapa raforku fyrir samborgara sína. Sextán nauðganir Sænsku lögreglunni bárust í síð- ustu viku sextán tilkynningar um nauðganir, allar nærri Gautaborg. Að sögn sænsku lögreglunnar, sem Aftonbladet ræddi við, virð- ast ekki nein tengsl vera á milli glæpanna en þrír hafa verið hand- teknir í tengslum við málin. Lög- reglan segir að í flestum málunum hafi engin vitni verið að atburðun- um og að í sumum hafi jafnvel fórnarlambið sjálft ekki munað al- mennilega eftir nauðguninni eða hvar og hvernig ráðist hafi verið á það. Í flestum tilfellum muna fórnarlömbin ekki almennilega eftir atburðunum sökum ölvunar. Segir lögreglan mögulegt að fórn- arlömbin hafi verið valin vegna þess hversu ósjálfbjarga þau voru. Segir talsmaður lögreglunnar við Aftonbladet að lögreglan reyni eftir fremsta megni að komast til botns í málunum en þau séu sér- lega erfið viðureignar. Vildi verða fyrirsæta Tuttugu og fjögurra ára bresk kona hefur verið kærð fyrir stórfelldan þjófnað úr útibúi Barclays-bank- ans í Cornwall á Englandi. Meint brot áttu sér stað í september og október í fyrra en konan, sem vann í bankanum, er ákærð fyrir að hafa stolið rúmlega níu millj- ónum króna úr bankanum. Sam- kvæmt fréttum breskra fjölmiðla notaði konan fjármunina meðal annars í brjóstastækkunaraðgerð og tannhvíttun. Konan sagði fyrir dómi, þegar málið var tekið fyrir á þriðjudag, að hún hefði átt sér þann draum að verða fyrirsæta og því ákveðið að nota peningana á þennan hátt. Fundust látin eftir langa leit Bresk hjón fundust látin í bif- reið sinni í Dorset á Englandi á þriðjudag en þeirra hafði verið saknað í tíu daga. Bifreið þeirra fannst grafin undir aur en síðast var vitað um ferðir þeirra þann 7. júlí síðastliðinn. Miklar rigningar hafa verið á Englandi að undan- förnu og hafa fjölmargar skrið- ur fallið á svæðum sem verst hafa orðið úti. Bifreiðin fannst við enda Beaminster-jarðgangnanna í Dorset en þau höfðu verið lok- uð í tíu daga eftir að skriða féll á veginn skammt frá. Slökkviliðs- menn fundu svo bifreiðina á kafi í aur sem fyrr segir. Ekki er talið að fleiri bifreiðar hafi grafist undir skriðunni. Vill að fólk borði hollari mat Michael Bloomberg, borgarstjóri í New York, hefur beitt sér fyrir breyttum mat- arvenjum og vill að fólk tileinki sér meiri hollustu í mataræði. MYNd ReuTeRS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.