Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2012, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2012, Page 17
Þetta er mjög niðurlægjandi Það er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt Er að fara í öll lyfjapróf Guðrún María um kröfur Hafnarfjarðarbæjar um útburð. – DVÓskar Hrafn Þorvaldsson opnar íþróttavef ásamt Jóni Ásgeiri Jóhannessyni. – DV.isAnnie Mist vill koma til greina sem íþróttamaður ársins. – Fréttablaðið Mannréttindadómstólinn tökum við alvarlega Spurningin „Nei, því miður en það er draumurinn að fara fljótlega.“ Þórdís Sigurðardóttir 52 ára handverkssölumaður „Nei, það er ekki planið á næstunni.“ Aníka Rós Pálsdóttir 38 ára verslunareigandi „Já, ég fór á Hárið og á Sinfóníu- hljómsveitina fyrir börn.“ Erna Arnardóttir 42 ára verslunareigandi „Já, ég fór á árshátíð í Hörpunni.“ Andri Snær Njarðarson 24 ára leiðbeinandi á leikskóla „Já, ég fór á Bob Dylan „tribute“- tónleika.“ Gunnar Árnason 44 ára kennari Hefur þú farið á viðburð í Hörpu? 1 Jón Gnarr sagður í felum Leiðarahöfundur Morgunblaðsins gagnrýnir Jón Gnarr borgarstjóra. 2 „Ég vona til guðs að þú lendir ekki í leiðindum vegna þess sem þú birtir í blaðinu“ Ummæli Ásgeirs Þórs Davíðssonar við blaðakonuna Björk Eiðsdóttur. 3 Fjölskyldudjásnið vakti grun öryggisvarða Öryggisverðir á bandarískum flugvelli leituðu á manni vegna dularfullrar bungu á buxunum hans sem reyndist vera fjölskyldudjásnin. 4 Vinnueftirlitið gagnrýnir vinnulag Gulla „byggis“ Vinnueftirlitið gagnrýnir vinnubrögð Gunnlaugs Helgasonar sjónvarpsmanns. 5 „Heimsmeistari í gjaldþrotum Seðlabanka farinn að veita fjármálaráðgjöf“ Dagur B. Eggertsson skýtur föstum skot- um á leiðarahöfund Morgunblaðsins. 6 Coco í splitt Coco fór í splitt á nærbuxunum og setti mynd á netið. 7 Konan sem fannst nakin við Kjörgarð hefur ekki lagt fram kæru Komið var að nakinni konu fyrir utan Kjörgarð í miðborg Reykjavíkur. Mest lesið á DV.is M annréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu í síðustu viku að tvær blaðakon­ ur hefðu verið ranglega dæmd­ ar á Íslandi fyrir að miðla ummælum frá viðmælendum og að fyrir vikið væri íslenska ríkið skaðabótaskylt. Niðurstöður Mannréttindadóm­ stólsins hljótum við að taka alvarlega. Það höfum við gert áður, til dæm­ is hvað varðar kröfur um aðskilnað dómsvalds og framkvæmdavalds. Bókstafurinn og andinn Ljóst er að endurskoða þarf löggjöf sem snýr að tjáningarfrelsinu. Það verk er reyndar vel á veg komið. Hvað tján­ ingarfrelsið varðar var stórt skref stig­ ið með nýjum fjölmiðlalögum. Dóms­ málin tvö sem hér um ræðir voru til lykta leidd á grundvelli ákvæða í eldri lögum sem nú hafa verið felld úr gildi. Ný fjölmiðlalög hafa breytt stöðu mála og eins og ráða má af greinargerðinni sem fylgdi frumvarpinu til fjölmiðla­ laga, höfðu mál blaðakvennanna tveggja áhrif á að reglur um ábyrgð á miðlun efnis í gegnum fjölmiðla var skýrð. Meiðyrðalöggjöfin er nú til endurskoðunar og er mikilvægt að sú vinna taki mið af niðurstöðum Mann­ réttindadómstólsins. Það er þó ekki nóg að regluverkið sé í lagi. Beiting þess og túlkun skiptir engu minna máli. Þetta snýr að því sem kallað hef­ ur verið „andi laganna.“ Samkvæmt niðurstöðu Mannréttindadómstólsins hafa íslenskir dómstólar túlkað lög­ in of þröngt og mættu þeir að hans mati vera rýmri í andanum ef svo má að orði komast. Þetta er nokkuð sem dómstólar okkar og réttarkerfið mun án efa taka til athugunar enda hlýtur réttarkerfið eins og þjóðfélagið allt að vera í stöðugu endurmati í ljósi þeirra viðhorfa sem við viljum helst leggja rækt við. Lagaumhverfi og allt regluverk verður að taka mið af mikilvægi tján­ ingarfrelsisins. Það er okkar stjórn­ málamannanna að sjá um þá hlið. Sjálfum finnst mér miklu máli skipta að túlka lög sem snúa að tjáningar­ frelsi rúmt. Virðing fyrir tjáningar­ frelsinu er grundvallaratriði og mik­ ilvæg forsenda lýðræðisins. Einmitt á þessa leið segir í niðurstöðum Mann­ réttindadómstólsins. Hann athugaði málin í ljósi þess að ekki megi hefta mikilvæga þjóðfélagsumræðu nema mjög sterk rök mæli með því. Dóm­ stóllinn taldi slík rök ekki hafa komið fram í umræddum málum. Skyldur fjölmiðla En á þessu er síðan hlið sem fjölmiðl­ arnir hljóta að taka til skoðunar og umræðu, og hún snýr að fjölmiðlun­ um sjálfum. Ef það er nú svo að fjöl­ miðill er í vari þótt hann hafi eftir viðmælanda umdeilanleg ummæli í brennandi þjóðfélagsmáli, þá hljótum við að gera strangar kröfur til þessara sömu fjölmiðla um vönduð og sann­ gjörn vinnubrögð. Við verðum að geta treyst því til hins ýtrasta að alltaf sé satt og rétt greint frá, viðmælendurnir séu raunverulegir og ummæli þeirra aldrei færð í stílinn. Ekki er ég að gera því skóna að ís­ lenskir fjölmiðlar séu ekki almennt vandir að virðingu sinni hvað sannsögli og heiðarleika varðar. Ég er einfaldlega að benda á að réttindum fylgja skyld­ ur. Varðhundar lýðræðisins, eins og Mannréttindadómstóllinn hefur vísað til fjölmiðla, verða auðveldlega varg­ hundar lýðræðisins ef þeir sinna hlut­ verki sínu ekki af kostgæfni og ábyrgð. Fjölmiðlar greiði götu gagnrýnnar umræðu Í hitamálum í samfélaginu þurfa fjöl­ miðlar að kappkosta að gæta meðal­ hófs um leið og þeir sinna lýðræðislegu aðhaldi. Í einhverjum tilvikum getur verið áskorun að finna jafnvægi þarna á milli, en það er mikilvægt fyrir okk­ ur öll að fjölmiðlum farnist vel á þeirri slá. Á flestum málum eru tvær hliðar, stundum fleiri, þótt vissulega megi til sanns vegar færa að sá sem beitir ann­ an einstakling ofbeldi, ráðskast með hann nauðugan og misnotar, eigi sér takmarkaða málsvörn. Það er einmitt í málum af þessu tagi sem erfiðast er að fá fólk til að koma fram undir nafni. Þannig er það eðli máls samkvæmt. Þess vegna er mikilvægt að fjöl­ miðlarnir geti greitt götu gagnrýnn­ ar umræðu án þess að þurfa að óttast refsivönd réttarkerfisins. Þess vegna leyfi ég mér að fagna þessum nýju niðurstöðum Mannréttindadómstóls Evrópu. Vegvísir til framtíðar Mannréttindadómstóllinn hefur marg­ oft sýnt að hann er traustsins verður. Fyrir mitt leyti er ég mjög sáttur við að hann verði okkur vegvísir inn í framtíð­ ina í mannréttindamálum. Á því sviði fer nú fram mjög markviss vinna á veg­ um innanríkisráðuneytisins sem fer með mannréttindamál innan stjórn­ arráðsins. Sá málaflokkur teygir sig að sönnu inn fyrir dyr flestra ráðuneyta, enda er mikil samvinna þvert á ráðu­ neyti í málaflokknum. Þessi vinna er þegar farin að skila árangri og með haustinu mun enn frekari afrakstur birtast bæði hvað varðar stefnumótun og einnig framkvæmd. Gengið í blíðunni Veðrið hefur leikið við landsmenn síðustu dagana og þessir göngugarpar nutu veðurblíðunnar við Búrfellsgjá um síðustu helgi. Mynd: Eyþór ÁrnasonMyndin Umræða 17Miðvikudagur 18. júlí 2012 Kjallari Ögmundur Jónasson Innanríkisráðherra

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.