Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2012, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2012, Síða 18
Sérútbúið neSti í útiviStina 18 Neytendur 18. júlí 2012 Miðvikudagur Þolinmæði og liðlegheit n Starfsmenn Iceland Express brugðust fljótt við og aðstoðuðu farþega sem sendi eftirfarandi: „Lof mitt fá Andri og Birgir hjá Iceland Express. Fyrir skömmu tap­ aði ég vegabréfi mínu í flugvél Iceland Express til Berlínar. Það uppgötvað­ ist ekki fyrr en vélin var löngu farin aftur til Íslands. Hófst þá mikill taugatitringur með tilheyrandi sím­ hringingum. Þess­ ir frábæru starfsmenn Iceland Express fundu vegabréf­ ið, fylgdu málinu eftir allt til enda og komu því aftur í mínar hendur. Þeir sýndu ofurstressaðri konukind ómælda þolinmæði og liðlegheit og eiga ómælt lof skilið!“ Lélegt sumarkerfi n Lastið fær Strætó bs. en DV fékk skilaboð frá óánægðum við­ skiptavini. „Ég myndi vilja lasta Strætó bs. fyrir lélegt tímakerfi yfir sumarið. Strætó gengur á hálftíma fresti, nema mögulega stofnleið­ irnar, jafnvel um 8–9 á morgnana. Það er því lítið tillit tekið til þeirra sem þurfa að mæta í vinnuna á sumrin. Ég missti af strætó einn morgun­ inn um daginn, og þurfti að taka leigubíl, vegna þess að of langt var að bíða eftir næsta. Sama sagan á við um heimleiðina, um 16–17, ef maður missir af strætó þarf maður að bíða í hálftíma. Glatað!“ Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs. segir að farþega­ fjöldi minnki verulega yfir sum­ armánuðina eða allt að 50 prósentum. „Vegna fjárskorts var því á sínum tíma ákveðið að draga úr þjónustunni yfir sumar­ mánuðina til að eiga fjármuni til að beita tíðari þjónustu yfir vetrar­ mánuðina. Það gagnast að sjálf­ sögðu ekki þeim sem vilja nota strætó þá til að komast í og úr vinnu. Það er vilji til að bæta úr þessu og því er meðal annars ekið um helstu stofnleiðir á 15 mínútna fresti í sumar og einnig hefur sumaráætl­ un verið stytt um tvær vikur, það er eina að vori og eina að hausti. Hvað verður með framhaldið yfir sum­ armánuðina verður framtíðin að skera úr um. Eitt atriði er þó mikil­ vægt fyrir alla farþega hversu tíðar sem ferðirnar eru, aldrei að missa af vagni, þá þarf alltaf að bíða. Bendum við farþegum á rauntíma­ kortið á vefnum og á öpp sem eru til fyrir bæði iPhone­ og Android­ snjallsíma.“ SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS Lof&Last V ið byrjuðum á FerðaAskin­ um fyrir nokkrum mánuð­ um en þetta er að fara á fullt núna, segir Borghildur Sverrisdóttir, einkaþjálfari og framkvæmdastjóri MatAsks ehf. sem býður nú upp á FerðaAsk, sér­ útbúið og sérpakkað nesti fyrir úti­ vistarferðir. Þeir sem eru á leið í úti­ vist geta því sparað tíma sem fer í að versla, útbúa og pakka nestinu. Á leiðinni út úr bænum er pakkinn svo sóttur en áhersla er lögð á íslenskt hráefni og afurðir, auk þess sem holl­ ustan er í fyrrirúmi. Vafalaust er hægt að kaupa og smyrja sér sjálfur nesti fyrir minni pening en sá kostur að geta keypt sér tilbúið nesti heillar ef­ laust einhverja. Heildarlausn í nestismálum Borghildur segir að hugmyndin að FerðaAskinum hafi kviknað í göngu­ hóp sem hún hefur verið hluti af í nokkur ár. „Ég hef verið að setja saman matarpakka fyrir göngurn­ ar og þá kom upp sú hugmynd að finna heildarlausn fyrir fólk. Ég held að margir veigri sér jafnvel við því að fara í ferðalög eða göngur því þeir vita ekki hvað á að taka með og hversu mikið. Fólk tekur oft allt of mikið með og óhentugar matvörur eins og jógúrt og þunga drykki,“ segir hún. Fékk fagfólk í lið með sér Hún segir að það hafi mikið verið lagt í að þróa FerðaAskinn og hún hafi fengið fagfólk með sér í verk­ efni og nefnir bæði næringarfræðing og reynda fjallagarpa. Farið var yfir innihald og reiknuð út orkuþörf en þegar komi að vali á matvælunum sé fyrst og fremst hugsað um að það sé orku­ og næringarríkt. „Auðvitað þurfum við meiri fitu og salt á fjöll­ um en dagsdaglega svo við erum til dæmis með baunasalat og hangikjöt og reyktan lax. Við reynum að leggja áherslu á alíslenskt hráefni og vör­ ur. Sérstaklega fyrir erlenda ferða­ menn en það er skemmtilegt fyrir þá að prófa rúgbrauð með lifrarkæfu, flatköku með hangikjöti og harðfisk.“ Nokkrar gerðir nestispakka Þar sem magn matvæla sem taka þarf með fer eftir fólki og lengd ferðar býð­ ur MatAskur upp á nokkrar tegundir nestispakka. „Hægt er að velja á milli matarpakka fyrir dagsferðir og lengri ferðir og innan þeirra eru einnig þrjár stærðir. Innihald og hitaein­ ingar hverrar stærðar má svo sjá inni á heimasíðu okkar. Fólk getur því val­ ið eftir því hve mikla orku það þarf en það fer eftir lengd ferðar. Ef þú ert til dæmis að fara að ganga Laugaveg­ inn þá er nauðsynlegt að hafa mikið og gott nesti.“ Borghildur segir að það skipti einnig máli að matvælin hald­ ist fersk fram á fimmta dag göngunn­ ar. Þau leggi því mikið upp úr því að hafa umbúðirnar góðar og hentugar og einnig skipti þyngdin miklu máli. Hún segir að hún hafi fengið fín viðbrögð við FerðaAskinum og fólk sé ánægt með þessa nýjung. „Það er voðalega hentug að panta ferðamat­ inn á netinu og geta svo náð í hann á leiðinni út úr bænum þar sem hann er geymdur í kæli,“ segir Borghildur. Hægt sé að sækja pöntunina á Stöð­ ina í Suðurfelli í Breiðholti og á Stöð­ ina við Vesturlandsveg en einnig sé hægt að fá nestispakkann sendan heim. Mismunandi stærðir fyrir mismunandi ferðir FerðaAskur hentar þeim sem eru á leið í dagsferð eða lengri ferðir, svo sem göngur, hestaferðir, jeppaferðir, rútuferðir, veiðiferðir, skíðaferðir eða aðra útivist, hvort sem ferðirnar eru á eigin vegum eða með leiðsögn. Hér eru hinir mismunandi FerðaAskar sem fólk getur valið: Dagsferðir: *FerðaAskur, lítill, hentar þeim sem eru að fara í jeppa­ eða rútuferðir frá morgni fram á seinni part dags. Magnið gerir ekki ráð fyrir mikilli hreyfingu. Hann inniheldur um 1.800–1.900 hitaeiningar svo nestið ætti að duga vel fyrir flesta þar sem ekið er meira en gengið. *FerðaAskur, miðstærð, hentar þeim sem stefna á einhverja hreyf­ ingu yfir daginn. Hann inniheldur um 2.400–2.500 hitaeiningar svo nestið ætti að duga vel fyrir nokkurra klukkustunda hreyfingu. *FerðaAskur,stór, hentar þeim sem stefna á töluverða/mikla hreyf­ ingu yfir daginn. Hann inniheldur um 3.300–3.400 hitaeiningar svo nestið ætti að duga flestum við töluverða/mikla hreyf­ ingu. Lengri ferðir: *FerðaAskur, lítill, inniheldur um 3.600–3.700 hitaeiningar á dag. *FerðaAskur, miðstærð, inni­ heldur um 4.500–4.600 hitaein­ ingar á dag. *FerðaAskur, stór, inniheldur um 5.400–5.500 hitaeiningar á dag. Þessir pakkar innihalda morgun­ og kvöldverði. n Sérútbúinn nestispakki sem einfaldar undirbúning ferðalagsins Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is „Ég held að margir veigri sér jafnvel við því að fara í ferðalög eða göngur því þeir vita ekki hvað á að taka með og hversu mikið. FerðaAskur Hér má sjá dæmi um innihald í Ferðaaskinum. SveitaAskurinn: MatAskur útbýr einnig SveitaAsk og Borghildur segir að fyrirtækið sé í samstarfi við um það bil 20 bændur af öllu landinu en margir þeirra séu almennt ekki að selja vörur sínar á höfuðborgarsvæðinu. „Það sem vakir fyrir okkur er að kynna þessar frábæru afurðir sem bændur framleiða og sýna hvað það er margt spennandi að gerast þar. Þetta eru heilnæmar vörur sem innihalda engin aukaefni. Við viljum bjóða fólki af höfuðborgar- svæðinu og ekki síst erlendum ferðamönnum að prófa þessar sælkeravörur,“ segir hún. Viðskiptavinir geti valið á mili þess að kaupa fyrirfram ákveðna SveitaAska eða að velja sjálfir hvað fer í askinn á heimasíðu fyrirtækisins. Á heimasíðu MatAsks má finna ýmsar leiðbeiningar þegar kemur að ferðalögum og úti- vist en þar á meðal er þessi listi yfir búnað sem gott er að skoða áður en haldið er af stað. Fatnaður: Síðar ullarnærbuxur D Síður ullarbolur D Stuttermabolur (ekki bómull) D Göngubuxur D Flíspeysa D Göngusokkar (ekki bómull) D Auka sokkar D Gönguskór D Vettlingar D Buff/húfa/derhúfa D Sólgleraugu/skíðagleraugu D Vaðskór Vatns- og vindheldar buxur D Vatns- og vindheldur stakkur D Vatnsheldur farangurspoki (eða plastpoki) undir föt sem geymd eru í bakpokanum Útbúnaður Bakpoki D Vatnsflaska D Hnífur Göngustafir D Áttaviti og kort D S GPS - tæki og rafhlöður D S Dýna Svefnpoki Tjald S Prímus, eldsneyti og eldfæri S Pottar og eldunaráhöld S Hitabrúsi D Þvottasvampur og viskustykki S Flugnanet D Ruslapokar S Tannbursti Tannkrem S Handklæði og hreinsiklútar Sólarvörn S Nál og tvinni S Klósettpappír S Teygjubindi, plástrar og verkjalyf D S Hælsærisplástrar D S GSM sími / talstöð D S Neyðarblys D S Mataráhöld D Nesti D D = Útbúnaður fyrir dagsferð (eftir því sem við á) S = Getur verið hluti af sameiginlegum búnaði hóps Búnaður Borghildur Sverrisdóttir Fram- kvæmdastjóri MatAsks og einkaþjálfari býður ferðalöngum sérútbúna nestispakka. E ld sn ey ti Algengt verð 245,5 kr. 247,3 kr. Algengt verð 243,2 kr. 246,9 kr. Algengt verð 245,1 kr. 246,8 kr. Algengt verð 245,4 kr. 246,9 kr. Algengt verð 247,5 kr. 247,3 kr. Melabraut 245,2 kr. 246,9 kr. Bensín Dísilolía

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.