Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2012, Qupperneq 22
22 Menning 18. júlí 2012 Miðvikudagur
Veldu Pálma eða Magnús
n Níunda plata Mannakorna komin út
For a Minor
Reflection
kveðja
Hljómsveitin For a Minor
Reflection hefur ákveðið að
gera hlé á spilamennsku um
óákveðinn tíma og ætlar af
því tilefni að halda tónleika
næstkomandi föstudags-
kvöld. Ástæða hlésins er sú
að Kjartan Holm, gítarleik-
ari hljómsveitarinnar, mun
spila með Sigur Rós á tón-
leikaferðalagi um heiminn
næsta árið. Aðrir meðlimir
For a Minor Reflection ætla
að snúa sér að annarri tón-
list, námi eða vinnu. Kjartan
mun koma fram á sínum
fyrstu tónleikum með Sigur
Rós í Bandaríkjunum nú í
lok júlí.
Kveðjutónleikar hljóm-
sveitarinnar verða haldnir
á Faktorý föstudagskvöldið
20. júlí. Húsið verður opnað
klukkan 21.00 og tónleik-
arnir hefjast klukkan 23.00.
Miðaverð er 1.000 krónur og
verða miðar seldir við inn-
ganginn. Myrra Rós og My
Brother Is Pale hita upp.
Erró
áttræður
Viðamikil dagskrá verður
í Listasafni Reykjavíkur -
Hafnarhúsi í tilefni af átt-
ræðisafmælisdegi Errós
fimmtudaginn 19. júlí.
Ókeypis aðgangur verður
í húsið frá klukkan 10.00–
20.00 en nú stendur yfir yf-
irgripsmikil sýning á teikn-
ingum Errós, sem spannar
allan feril listamannsins.
Auk þess verða hinir for-
láta postulínstepottar sem
Erró gaf safninu nýlega til
sýnis, ásamt gríðarstórum
málverkum sem hann vann
tepottana út frá.
Allir eru velkomnir í
Hafnarhúsið til að fagna
afmælisdegi Errós, en þar
eru einnig fáanlegir minja-
gripir sem unnir hafa verið
út frá verkum hans og fjöl-
breytt úrval áritaðra grafík-
verka. Andvirði grafíkverk-
anna rennur í sjóð sem Erró
stofnaði í nafni Guðmundu
Kristinsdóttur, móðursystur
sinnar, og úthlutað er úr
árlega til framúrskarandi
kvenna í myndlist.
Þ
etta verður allt mjög
frjálslegt og opið að
vanda,“ segir hippinn
Vilborg Traustadóttir
en hún hefur undan-
farin fimm ár skipulagt hippa-
ball á Fljótum í Tröllaskaga
ásamt systur sinni Margréti.
„Það er fimm ára afmæli núna
og þetta er alltaf að verða líf-
legra og líflegra,“ segir Vilborg
en ballið fer fram í félagsheim-
ilinu Ketilási í Fljótum sem
er í um 30 kílómetra austur af
Hofsósi. Þegar hippaballið var
haldið fyrst fyrir fimm árum var
það í fyrsta sinn í 20 ár sem ball
var haldið í félagsheimilinu.
Mussur og margt fleira
Ballið, eða hippahátíðin öllu
heldur, fer fram núna á laugar-
daginn, 21. júlí, en fyrr um
daginn verður settur á lagg-
irnar hippamarkaður. „Það er
markaður frá tíu til þrjú þannig
að við gerum svolítið meira
úr þessu auk þess sem ýmis-
legt annað verður í boði.“ Á
markaðnum eru seld hippa-
bönd og hippamussur auk
þess sem ýmislegt matarkyns
verður í boði. „Böndin eru sér-
staklega innflutt frá vestur-
strönd Ameríku og eru gerð
af indíánum. Mussurnar eru
fengnar hér og þar – á mörk-
uðum í Portúgal og á hinum
ýmsu stöðum.“ Gestir geta því
klætt sig upp á markaðnum
fyrir ballið um kvöldið en Vil-
borg segir það aukast ár frá ári.
„Það er bara gaman af því að
fólk klæði sig upp og við mæl-
um eindregið með því til að
auka stemminguna. En það er
engin skylda.“
Blómálfarnir leika fyrir
dansi
Það er hljómsveitin Blóm-
álfarnir sem sjá um tónlistina
á ballinu en hana skipa bræð-
urnir Magnús og Finnbogi
Kjartanssynir og Ari Jónsson.
„Ballið er frá tíu til tvö eins og
sveitaböllin í gamla daga,“ en
Vilborg segir Blómálfana hafa
slegið í gegn í fyrra. „Þeir voru í
fyrsta skipti í fyrra og stóðu sig
svo vel að þeir voru bara ráðnir
á staðnum aftur. Þeir leita í
smiðju hippanna, spila gömlu
góðu lögin og bara dúndr-
andi stemming.“ Vilborg segir
miðasölu fara fram á staðnum
og að allir komist að sem vilji.
„Það er reyndar 45 ára aldurs-
takmark á ballið. Nema fólk sé
í fylgd með fullorðnum,“ bætir
hún glettin við. „Börnin mín
verða til dæmis þarna en þau
þurfa að vera í fylgd með full-
orðnum þó þau séu komin yfir
þrítugt.“
Byggja upp félagsheimilið
Eftir að fyrsta hippaballið var
haldið ákváðu þær Vilborg og
Margrét að gefa þann pening
sem safnaðist, að frádregn-
um kostnaði, til félagsheim-
ilisins. „Síðan höfum við gert
það á hverju ári og það er
búið að gera heilmikið. Fólk
hefur hjálpast að við að gera
húsið upp og það er búið að
skipta um glugga, gólfefni, eld-
húsinnréttingu, snyrtingarnar
og fleira,“ segir Vilborg að lok-
um og hvetur alla hippa til að
láta sjá sig. Sætaferðir verða frá
Tjarnarborg á Ólafsfirði klukk-
an 21.15 og frá ráðhústorginu á
Siglufirði klukkan 21.35.
asgeir@dv.is
n Undir 45 ára inn í fylgd með „fullorðnum“ n Ágóðinn fer í viðhald
Ást og friður Ballið hefst
með friðarsöng – „Allt sem
við viljum, er friður á jörð“.
Hippasystur Þær Vilborg og Margrét ásamt Jóni Guðmundssyni.
Hressir Ólafsfirðingar á ballinu í fyrra Sætaferðir verða frá
Ólafs- og Siglufirði.
Í blómabrekkunni Aðdá-
endur geta valið um Pálma
eða Magnús.
Hippar í Ketilási
M
annakorn, hljómsveit
þeirra Pálma
Gunnarssonar og
Magnúsar Eiríkssonar,
hefur sent frá sér sína níundu
breiðskífu. Sú heitir Í blóma-
brekkunni og inniheldur tíu
ný lög auk þess sem tvö auka-
lög verða gefin sérstaklega út
á tonlist.is. Fyrsta upplagið af
plötunni, 2.000 eintök, er sér-
stakt að því leyti að á 1.000 ein-
tökum prýðir Pálmi framhlið
plötunnar en á hinum 1.000 er
það Magnús. Aðdáendur sveit-
arinnar geta því valið þann
sem þeim líst betur á. Þau ein-
tök sem koma í verslanir að
þessu upplagi loknu munu svo
skarta umslagi þar sem þeir fé-
lagarnir sitja fyrir saman.
Upptökum á nýju plöt-
unni lauk í vor en þær hófust
á síðasta ári. Á plötunni eru
Mannakorn að færa sig nær
kántrí- eða sveitatónlist í
meira mæli en áður og sveitin
með ýmsa vana listamenn
með í för. Má þar nefna Ey-
þór Gunnarsson sem leikur
á hljómborð, Stefán Má, son
Magnúsar, sem sér að mestu
um gítarleikinn og Bene-
dikt Brynleifsson á slagverk.
Þá syngur Ellen Kristjáns-
dóttir á plötunni auk þess að
semja tvö laganna en Ellen
hefur reglulega komið til liðs
við Mannakorn í gegnum tíð-
ina. Hinir ýmsu gestasöngv-
arar hafa lagt Mannakornum
lið í gegnum árin er sá þekkt-
asti sennilega Vilhjálmur
Vilhjálmsson, einn dáðasti
dægurlagasöngvari Íslands
fyrr og síðar.
Fyrsta plata Mannakorna,
samnefnd sveitinni, kom út
árið 1976 og hefur sveitin því
starfað í hartnær fjóra ára-
tugi og sent frá sér marga
ógleymanlega smelli. Í kjölfar
Mannakorna kom svo plat-
an Gegnum tíðina árið 1977
en þar er að finna nokkur af
frægustu lögum sveitarinn-
ar. Það er óhætt að segja að
platan hafi markað djúp spor
í íslenska tónlistarsögu því á
henni er að finna lög eins og
Reyndu aftur, Braggablús og
Gamli góði vinur.
asgeir@dv.is