Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2012, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2012, Side 27
Fólk 27Miðvikudagur 18. júlí 2012 Kristján fór á sjóinn n Veiðir makríl og segir hann tala forníslensku A lþingismaðurinn Kristján Þór Júlíusson eyðir sumarfríi sínu frá þófinu í Alþingis- húsinu til sjós og er mjög ánægður með tilbreytinguna. Hann er háseti á Vilhelm Þor- steinssyni EA sem er á mak- rílveiðum austur af landinu. Það var Morgunblaðið sem greindi frá þessu. „Ég get al- veg vottað með fullri vissu að samstarfsviljinn, sam- starfið og samþættingin er til muna betri í þessari áhöfn en á þeim vinnustað sem ég hef verið á síðastliðin fjög- ur ár,“ sagði Kristján í sam- tali við blaðið og vísar hann þar til Alþingis. Kristján er með skipstjórnarpróf og van- ur því að vera til sjós, en hann fór einnig í makrílveiðitúra í hitteðfyrra. Í sumar vildi Kristján kom- ast að því hvort það væri rétt hjá Evrópusambandinu að það ætti makrílinn en eftir að hafa handleikið makrílinn er hann sannfærður um að hann sé alíslenskur. Hann segir makrílinn hafa talað til sín og það á forníslensku, það fari því ekkert á milli mála að „… við eigum þessi kvikindi“. Kristján segir bara ekta menn vera í áhöfninni og þetta séu bestu sjómenn sem hann hafi nokkurn tímann komist í kynni við. Smáauglýsingar smaar@dv.is sími 512 7004 Opið virka daga kl. 10.00–18.00 og laugardaga kl. 11.30–15.00 BÍLALIND.is - Funahöfða 1 - 110 Reykjavík - S: 580-8900 CHEVROLET CAPRICE CLASSIC Ár- gerð 1991, ekinn 150 Þ.km, sjálfskiptur. Verð 990.000. Raðnr. 322356 - Vertu öðruvísi! TOYOTA AVENSIS S/D TERRA 09/2000, ekinn 151 Þ.km, sjálfskiptur, álfelgur, aukadekk á felgum, EINN eigandi! Verð 790.000. Raðnr. 284490 - Gullmolinn er á staðnum! CHEVROLET CORVETTE C5 05/2002, ekinn 27 Þ.km, sjálfskiptur, carponfiberhúdd, spoilerkitt, flækjur, borlapústkerfi. Verð 3.990.000. Raðnr. 283407 - Kagginn er í salnum! NISSAN ALMERA LUXURY 01/2002, ekinn 180 Þ.km, sjálfskiptur. Verð 590.000. Raðnr. 250239 - Sá sæti er á staðnum! BMW 525XIi 4WD 08/2007, ekinn 31 Þ.km, sjálfskiptur. Verð 5.980.000. Raðnr. 250263 - Bíllinn er í salnum! MMC PAJERO INSTYLE 3.2 DÍSEL 05/2008, ekinn 80 Þ.km, sjálfsk., leður ofl. Rosalega fallegur! Verð 5.890.000. Raðnr. 250261 - Jeppinn er á staðnum! TOYOTA YARIS TERRA 06/2005, ekinn 97 Þ.km, 5 gíra. Verð 980.000. Raðnr. 284514 - Er á staðnum! LAND ROVER RANGE ROVER SPORT SE DIESEL 02/2006, ekinn 133 Þ.km, sjálfskiptur, leður umboðsbíll. Mjög gott verð 4.950.000. Raðnr. 192644 - Jeppinn er í salnum! M.BENZ A 200 CDI 03/2007, ekinn 68 Þ.km, dísel, 6 gíra. Einn eigandi! Verð 2.990.000. Raðnr. 322377 - Bíllinn er á staðnum! Tek að mér að hreinsa þakrennur, laga riðbletti á þökum, gluggaþvottur, hreinsa lóðir og tek að mér ýmiss smærri verkefni. Upplýsingar í síma 847-8704 eða á manninn@hotmail.com Funahöfða 1, 110 Reykjavík S. 567 4840 www.hofdahollin.is Flutningar Gerum tilboð í alla flutninga. Frysti- vagnar, malarvagnar, flatvagnar, gröfur ,kranabílar." Silfri ehf - s: 894-9690 BMW X5 3.0D E70 08/2007, ekinn 53 Þ.km, dísel, sjálfskiptur, einn eigandi. Verð 6.990.000. Raðnr. 290042 - Jepp- inn er í salnum! LAND ROVER RANGE ROVER SPORT SUPERCHARGED 03/2006, ek. 54 Þ.km, sjálfsk. Verð 6.490.000. Fæst á mjög góðu staðgreiðsluverði! Raðnr. 135505 Jeppinn er í salnum! PORSCHE 911 TURBO TECH ART STAGE III Árgerð 2002, ek. 82 Þ.km, sjálfsk.. Engum líkur, langflottastur! Raðnr. 282337 - Kagginn er í salnum! Tilboð Gullfallegir BRIARD hvolpar, foreldrar Imbir Bezi Bezi og Auðnu Gríma. Eru að leita að góðum heimilum. Verða afhentir heilsufarsskoðaðir, bólusettir, örmerktir ættbók frá HRFÍ. Nokkrir hvolpar eftir. www.Briard--Nipu.com s. 868 1920 Gullfallegir Briard hvolpar, foreldrar Imbir Bezi Bezi og Auðnu Gríma. Eru að leita að góðum heimilum. Verða afhentir heilsufars- skoðaðir, bólusettir, örmerktir ættbók frá HRFÍ. Nokkrir hvolpar eftir. www. briard--nipu.com, sími 868 1920 Til sölu vegna flutninga Vandað hjónarúm 160 cm breitt. Er frá Svefni og heilsu. Chiropractor dýna. Til afhendingar frá þriðjud. 24. Júlí nk. Verð 60.000 kr Upplýsingar hjá doriogmunda@gmail.com Grínast á vef Will Ferrell n Ragnhildur Magnúsdóttir skrifar grínefni af miklum móð F jölmiðlakonan Ragn- hildur Magnúsdóttir Thordarson fer fyrir grínhópnum Icelandic Poniez sem á mynd- band á „sketsa“-síðunni Funny or Die. Síðan er ein sú vin- sælasta sinnar tegundar í Bandaríkjunum en hún var stofnuð af einum þekktasta gamanleikara samtímans, Will Ferrell, og framleiðandanum Adam McKay. Myndbandið eftir Ragnhildi og félaga sem birtist á síðunni heitir 21 Hump Street og er skopstæling á gamanmyndinni 21 Jump Street sem skart- ar þeim Jonah Hill og Chann- ing Tatum. „Myndbandið fjall- ar um tvær lögreglukonur sem nota óviðeigandi aðferðir til að hræða afbrotamenn,“ seg- ir Ragnhildur en hún segir persónurnar í myndbandinu vera skopstælingu af kven- persónum í lögregluþáttum og bíómyndum. Þetta er annað myndband hópsins sem nær á forsíðu Funny or Die því myndband þeirra „Carlos & Brandi“ rataði líka á forsíðuna en það var að sögn Ragnhildar um „með- virknisfyllerí raunveruleika- sjónvarpspars.“ Handrit beggja myndbandanna eru skrifuð af Ragnhildi. Leikstjóri þess fyrra er Fabien Euresti en þess seinna Pétur Gautur Magnús- son, en hann er bróðir Ragn- hildar og annar stofnenda Icelandic Poniez. Þessa stundina er Ragn- hildur að skrifa handrit að nýj- um „skets“ sem mun heita CSI San Francisco. „Það mun fjalla um líkhús sem er rekið af hipp- um og dragdrottningum.“ Um þessar mundir er Ragnhildur að framleiða tvær stuttmyndir og skrifa vefseríu fyrir hóp sem kallar sig „Two Homies and a Gamer“. Ragnhildur útskrif- aðist í vor með masterspróf í kvikmyndaframleiðslu frá kvik- myndaskóla New York í Los Angeles. Ragnhildur, sem er stjórn- málafræðingur að mennt, flutti til Los Angeles árið 2009 til að fara í nám í kvikmyndafram- leiðslu. Hún lauk náminu í vor og er því einnig með masters- gráðu í „Creative Producing“. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hún býr í Bandaríkjunum því þegar hún var átta ára flutti hún til Kaliforníu og er mestmegn- is alin upp í San Francisco og Los Angeles. Þegar hún bjó hérna heima vann hún meðal annars við dagskrárgerð í mörg ár á Bylgjunni, Kiss FM og Skjá Einum. Fyrir nokkrum árum gerði Ragnhildur heimildamyndina From Oakland To Iceland sem fjallaði um bróður hennar sem er plötusnúður. Aðspurð hvort hún stefni að því að flytja heim til Ís- lands á næstunni svarar hún: „Mér líður mjög vel hérna í Ameríku núna og allt er kunnuglegt enda ólst ég hér upp. Fólk tekur mér kannski betur í Ameríkunni, eflaust af því að ég er svo opin. Ætli ég sé ekki afslappaðri hér, ég fæ að vera sú sem ég er og hef verið ofboðslega heppin varðandi skemmtileg tæki- færi. Það er ekkert leyndar- mál að ég er ofvirk og það nýtist mér í þessu vinnuum- hverfi enda vinn ég mikið. Auðvitað sakna ég Íslands, vina minna og fjölskyldu al- veg helling. Fjallanna sakna ég líka mjög mikið, er mik- ið náttúrubarn og finnst best í heimi að vera úti á landi á Íslandi en eins og er, er ég voðalega sátt og hamingju- söm með lífið.“ Ragnhildur Magnúsdóttir Flutti til Los Angeles til að fara í kvikmyndanám. Icelandic Poniez Myndband þeirra var birt á forsíðu Funny or Die. Í sjómennsku Kristján segir samstarfsvilj- ann á sjónum mun meiri en á Alþingi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.