Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2012, Blaðsíða 6
Rannsóknarnefndin fékk frest
n Rannsókn í fullum gangi á starfsháttum kaþólsku kirkjunnar
R
annsóknarnefnd sem skipuð
var til að rannsaka starfshætti
kaþólsku kirkjunnar vegna
ásakana sem upp komu í fjöl
miðlum á síðasta ári, hefur fengið
frest til þess að skila af sér skýrslu.
Nefndin átti að skila af sér niðurstöð
um þann 1. september síðastliðinn
en var gefinn frestur um einn og hálf
an mánuð samkvæmt Hjördísi Há
konardóttur formanni nefndarinnar.
Nefndin var sett á laggirnar til þess
að rannsaka starfshætti og viðbrögð
kaþólsku kirkjunnar á Íslandi vegna
ásakana á hendur vígðum þjónum og
starfsmönnum, núverandi og fyrrver
andi, um kynferðisbrot og önnur of
beldisbrot. Rannsókn nefndarinnar
tekur einnig til starfsmanna Landa
kotsskóla til ársins 2005.
Biskup kaþólsku kirkjunnar á Ís
landi ákvað þann 28. júní á síðasta ári
að rannsóknarnefndin yrði sett á lagg
irnar eftir að fjölmiðlar, Fréttatíminn
fyrst og DV og fleiri í kjölfarið, fjölluðu
um ofbeldi sem börn við Landakots
skóla urðu fyrir á árum áður. Nefndin
átti að koma með ábendingar og til
lögur um breytingar á starfsháttum
kaþólsku kirkjunnar vegna ásakana
um þessi brot og komast að því hvort
fótur væri fyrir ásökununum. Nefndin
hefur samkvæmt heimildum tekið
viðtöl við fjölda fólks sem var í skól
anum eða kom nálægt starfi hans frá
miðjum síðasta áratug síðustu aldar
og fram til ársins 2005.
Rannsóknarnefndin hefur haft
óheftan aðgang að öllum þeim heim
ildum, gögnum og skjölum sem finn
anleg kunna að vera í fórum kaþólsku
kirkjunnar eða stofnana hennar og
varpað geta ljósi á rannsóknarefnið.
Starfsmönnum kaþólsku kirkjunnar
bar skylda til að greiða fyrir störfum
nefndarinnar og veita henni óskorað
liðsinni við gagnaöflun. Líklega má
búast við niðurstöðum frá nefndinni
um miðjan október. n
viktoria@dv.is
6 Fréttir 10. september 2012 Mánudagur
Fengu frest Nefndin hefur tekið viðtöl við
fjölmarga sem voru í Landakotsskóla eða komu
nálægt starfsemi hans til ársins 2005. Niður-
staðna má vænta um miðjan október.
Þjófnaðurinn
upplýstur
Búið er að leysa þjófnaðarmál sem
kom upp í hraðbanka á Akureyri
þriðja september síðastliðinn. Á
fimmtudaginn lýsti lögreglan á
Akureyri eftir þremur útlending
um en þeir voru grunaðir um að
hafa svikið fé út úr hraðbank
anum. Grunur lék á að ferða
mennirnir hefðu farið úr landi en
lögreglan fann þá á laugardag. Um
var að ræða hollenska ferðamenn
en lögreglan hafði upp á þeim þar
sem þeir voru á ferðalagi á Suður
landi. Málið telst nú upplýst en
lögreglan á Akureyri þakkar fyrir
þann fjölda ábendinga sem bár
ust vegna málsins. RÚV greindi
frá því um helgina að þjófnað
inn hafi borið að með þeim hætti
að einstaklingur sem ætlaði að
taka peninga úr hraðbankanum
gleymdi seðlunum í rauf hrað
bankans. Stuttu seinna kom ferða
fólkið og hafði peningana á brott
með sér.
Báðu Gunnlaug
ekki afsökunar
á umfjöllun
Það er af og frá að Morgunblaðið
hafi beðið Gunnlaug Sigmunds
son, fyrrverandi alþingismann,
afsökunar á umfjöllum um Kög
unar málið svokallaða. Þetta seg
ir Styrmir Gunnarsson, fyrrver
andi ritstjóri Morgunblaðsins, en
hann ritar grein í sunnudagsblað
Morgunblaðsins. Tilefnið er vitn
isburður Gunnlaugs í Héraðs
dómi Reykjavíkur þar sem hann
hefur, ásamt eiginkonu sinni,
stefnt bloggaranum Teiti Atlasyni
fyrir meiðyrði í bloggfærslu þar
sem hann rifjaði upp umfjöllun
Morgunblaðsins á Kögun. Styrmir
segir í greininni að Morgunblað
ið hafi haldið áfram með umfjöll
un sína um eignarhald Kögunar
þrátt fyrir athugasemdir Gunn
laugs. Gunnlaugur sagði við aðal
meðferð málsins að hann hefði
litið á opnuviðtal við sig í Morgun
blaðinu sem afsökunarbeiðni og
leiðréttingu vegna umfjöllunar
blaðsins á eignarhaldi Kögunar.
Ardvis hættir ekki:
„hAldið ykkAr striki“
F
orsvarsmenn fjárfestingarfé
lagsins Ardvis, sem hefur mörg
einkenni píramídasvindls,
halda áfram að reyna að fá fólk
til að leggja verkefninu til fjár
muni þrátt fyrir gjaldþrot rekstrarfé
lags þess, Costa. Framkvæmdastjóri
Ardvis, Bjarni Þór Júlíusson, sendi
fréttabréf til fjárfesta í Ardvis síðast
liðinn miðvikudag eftir að DV hafði
fjallað um gjaldþrot Costa fyrr um
daginn. Inntakið í bréfinu er að starf
semi félagsins sé í góðu lagi og að fjár
festarnir eigi ekki að láta neinn bilbug
á sér finna þrátt fyrir umfjöllun DV.
Aðstandendur Ardvis höfðu safn
að 130 milljónum króna í hlutafé í
lok árs 2010 samkvæmt ársreikningi
félagsins, Ardvis hf., fyrir það ár. Um
140 Íslendingar höfðu þá lofað að
leggja Ardvis til rúmlega 363 milljón
ir króna í hlutafé.
Í stuttu máli átti starfsemi Ardvis
að snúast um að þróa forrit á
internetinu, Corpus Vitalis, sem átti
að gera fólki kleift að fjárfesta í vör
um og þjónustu á internetinu og
án þess að versla beint við aðra en
Ardvis. Hugmyndin átti þá að vera
sú að Ardvis kæmi sér upp samn
ingum við birgja sem gerði notend
um forritsins kleift að fá vörurnar á
hagstæðu verði. Mikill arður átti að
verða til í þessum viðskiptum sem
átti að renna til hluthafa í Ardvis sem
og fátækra í heiminum. Þegar DV
ræddi við Bjarna um stöðu samn
inganna við birgjana, síðla árs 2010,
viðurkenndi hann að engir slíkir
samningar hefðu verið gerðir. Ekk
ert bendir til að Ardvis hafi gert slíka
samninga sem er lykilforsenda í öllu
Ardvisverkefninu.
„Góður gangur“
Þrátt fyrir þetta segir meðal annars
í fréttabréfinu að góður gangur sé
í starfsemi félagsins: „Menn hafa
sannarlega ekki setið auðum höndum
í Bæjarlind 2 undanfarið. Margt hef
ur áunnist og annað er í góðri vinnslu
með nýjum starfsmönnum og tengsl
um við hugbúnaðarsérfræðinga utan
landsteinanna. Vinnan hefur jafnt
snúið að innri málum Ardvis og fram
gangi sjálfs verkefnisins með áfram
haldandi þróun og hefur verið góður
gangur í þeim málum.“
Í fréttabréfinu er fjárfestunum lof
að að búið verði að koma upp kerfi
til að selja vörur í gegnum Ardvis
nú í haust. Haft er eftir Bjarna Þór
að kerfi Ardvis verði tekið í notkun
í október. „Þetta verður komið upp
núna á haustmánuðum og við getum
farið að selja vörur okkar í lok þessa
mánaðar, en þá á ég við aðgengi að
upplýsingakerfinu. Við tökum saman
allt það sem gerist á markaðnum í
gegnum skoðanakönnunarkerfi okk
ar. Um leið verður neytandinn með
vitaður um að þarna sé eitthvað sem
hann á að fylgjast með.“
Samkvæmt þessu ættu fjárfest
ar Ardvis, sem eiga milljónir undir í
verkefninu, ekki að gefa upp vonina
um að fá fjármuni sína til baka. Ekk
ert bendir hins vegar til þess að rétt
sé farið með í fréttabréfi Ardvis.
Vondir fjölmiðlar
Þá er í fréttabréfinu rætt um slæm
áhrif fjölmiðlaumfjöllunar DV á
Ardvisverkefnið. „Eins og flest
ir vita kom verulegt bakslag í verk
efnið vegna óvandaðrar fréttaum
fjöllunar á haustdögum 2011 sem
félagið hefur mátt glíma við með
ýmsum hætti. Svo virðist sem DV
hafi ekki fengið nóg af rangfærsl
um því nýlega hringdi blaðamað
ur í Bjarna og bar undir hann at
riði úr starfseminni sem augljóst er
að blaðamaður hafði verið fóðrað
ur á af starfsmanni sem lét af störf
um um síðustu áramót. Þær upp
lýsingar voru allar færðar mjög í
stílinn og snerust um meint gjálífi
Bjarna Þórs Júlíussonar. Blaðamað
ur kvaðst hafa upplýsingar um að
allt innkomið hlutafé hafi farið til
einkaneyslu Bjarna. Upplýsingarn
ar sem blaðamaðurinn hefur verið
fóðraður á eiga að sjálfsögðu ekkert
skylt með sannleikanum. Greinileg
ur tilgangur er sá að skaða félagið og
þá um leið hluthafa.“
Í lok fréttabréfsins segir að margir
fjárfestar í Ardvis séu á einu máli um
að halda sínu striki þrátt fyrir frétta
flutning DV þar sem nú styttist óð
fluga í að Ardvis taki til starfa og
fari að búa til tekjur fyrir hluthaf
ana. „Haft hefur verið samband við
marga fjárfesta vegna fréttaflutnings
DV og eru viðbrögð þeirra á eina
lund: Haldið ykkar striki og látið
ófrægingarherferð DV sem vind um
eyru þjóta. Það er nákvæmlega það
sem við ætlum að gera og ná loka
áfanganum á næstu vikum þannig
að tekjustreymi fari að myndast á
þessu ári.“ n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Haft hefur ver-
ið samband við
marga fjárfesta vegna
fréttaflutnings DV og eru
viðbrögð þeirra á eina
lund: Haldið ykkar striki.
n Hluthöfum Ardvis sagt að tekjur fari að streyma inn á árinu
Lofa tekjum á árinu
Forsvarsmenn Ardvis,
sem hefur mörg einkenni
píramídasvindls, segja að
fyrirtækið muni byrja að fá
inn tekjur á þessu ári. Skorað
er á fjárfesta að halda sínu
striki. Bjarni Þór Júlíusson er
framkvæmdastjóri Ardvis.
Enginn sótti
um á Selfossi
Enginn sótti um stöðu sérfræðings
við heilsugæsluna á Selfossi. Stað
an var auglýst laus til umsóknar
fyrir nokkru. Á fréttavefnum Sunn
lenska, þar sem greint er frá mál
inu, segir að nokkrar breytingar
hafi verið gerðar á læknaliði Heil
brigðisstofnunar Suðurlands nú í
haust og að það séu vonbrigði að
enginn hafi sótt um stöðuna. Þá
segir að einn læknir hafi sagt upp
starfshlutfalli sínu á Selfossi og
annar farið tímabundið í náms
stöðu á barnadeild Landspítalans.