Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2012, Blaðsíða 21
Ó
vænt heimsókn Gunnars upp
á jökul til kærustu sinnar,
Öglu, breytist í martröð þegar
rannsóknarteymi hennar
hverfur sporlaust. Ekki batn-
ar ástandið þegar undarlegir atburð-
ir fara að gerast í tjaldbúðunum þar
sem þau dvelja.
Leikstjórinn Reynir Lyngdal á
eina aðra bíómynd að baki, Okk-
ar eigin Osló, sem frumsýnd var í
fyrra. Nú ræðst hann ekki á garðinn
þar sem hann er lægstur, en Frost
er vísindatryllir í svokölluðum
„found-footage“-stíl, eins og þekkja
má úr myndum eins og The Blair
Witch Project, REC og Paranormal
Activity. Reynir lét sig heldur ekki
muna um að taka myndina upp á
Langjökli í aftakaveðri um hávetur.
Tökustaðurinn skilar sér í trú-
verðugri umgjörð og hrikalegum
aðstæðum en það er eins og metn-
aðurinn hafi ekki náð mikið lengra.
Myndin virkar langdregin þrátt fyrir
að vera aðeins um 80 mínútna löng.
Kannski hefði myndin virkað bet-
ur sem 30–40 mínútna löng stutt-
mynd því alltof margar senur virtust
óþarfar og lögðu ekkert af mörkum
til sögunnar. Áhorfendum er haldið
úti í kuldanum alltof lengi án þess
að fá nokkuð fyrir sinn snúð í lokin.
Myndin er engan veginn nógu
ógnvekjandi og eyðir mestum tíma
í að hrista myndavélina og ómark-
viss samtöl aðalpersónanna. Aðal-
leikararnir, Björn Thors og Anna
Gunndís Guðmundsdóttir, eru þó
líklega það besta við myndina en
þeim tekst að ljá aðalpersónunum
heimilislegan hvunndagssjarma
sem sést alltof sjaldan í íslenskum
bíómyndum.
Aflið sem ásækir þau er alltof
óljóst og fjarrænt. Eru þetta álfar og
huldufólk? Er þetta draugur? Eru
þetta kannski geimverurnar sem
ætluðu að lenda á Snæfellsjökli?
Oft þykir það kostur að sjá ekki
ófreskju myndarinnar því það held-
ur spennunni uppi og óttinn við hið
óútskýrða er óviðjafnanlegur. Hér
eru aðstæðurnar vissulega undar-
legar og framandi en maður upp-
lifir aldrei neinn ótta við hið óút-
skýrða því fjarlægðin er alltof mikil.
Frost hefði alveg getað mark-
að tímamót í íslenskri kvikmynda-
gerð því hugmyndin er skemmtileg
og hefur ekki verið reynd áður á Ís-
landi. Það er því mikil synd að ekki
hafi tekist betur til. Maður vonar
bara að þetta hafi ekki skemmt fyrir
öðrum sem vilja reyna við íslensk-
an vísindaskáldskap, því af nægu
spennandi er að taka í íslensku um-
hverfi, þjóðsögum og menningu.
Áhorfendur
í kuldanum
Þrjú ár að vinna bókakápurnar
n Gæluverkefni Jóhanns Páls Valdimarssonar
Þ
að er nú bara klámkjafturinn
á mér að kalla bókbandsefnið
snípaleður, af því það er svo
mjúkt og yndislegt viðkomu,“
segir Jóhann Páll Valdimarsson hjá
Forlaginu sem gaf út fjórar fallegar
bækur í síðustu viku í svokallaðri
gjafabókaseríu. Jóhanni Páli finnst
fátt skemmtilegra en að fara höndum
um fallega prentgripi og í þrjú ár hef-
ur gjafabókaserían verið gæluverkefni
hans. „Ég fann fallegt bókbandsefni
frá Ítalíu sem gaf mér innblástur og
vildi vinna með það í þessari seríu. Ég
vildi hafa ákveðið samhengi í útliti og
innihaldi. Innihald bókanna er verð-
mætt og það vildi ég undirstrika. Jó-
hann Páll velti fyrir sér ýmsum fram-
leiðslumöguleikum en á endanum
leitaði hann til prentsmiðju í Kína.
„Þeir eru snillingar í að herma eft-
ir ýmsum efnum en þeim tókst ekki
að leika eftir handbragð Ítalanna. Því
fór að þeir keyptu bókbandsefnið og
unnu með það.“
Þrjár bækur seríunnar eru endur-
útgefnar. Það eru bækurnar Íslensk
kvæði sem Vigdís Finnbogadóttur
valdi. Í því kveri er að finna saman-
safn íslenskra ljóða og vísna sem Vig-
dísi hefur þótt vænt um síðan hún
kynntist þeim fyrst. Þá er endurút-
gefin Íslensk orðsnilld, fleyg orð úr
íslenskum bókmenntum sem Ingi-
björg Haraldsdóttir valdi. Í þeirri
bók er að finna fleyg orð og tilvitn-
anir, til að mynda úr Hávamálum
og Íslendingasögum. Að síðustu
var endurútgefin bókin Gæfuspor –
gildin í lífinu eftir Gunnar Hersvein
en í bókinni er leitast við að draga
fram kosti og galla mannsins, tilfinn-
ingar hans, hættulega hegðun, fagra
hugsun og skyn á tímann.
Ein bók í seríunni er ný og það
eru Ástarljóð Davíðs Stefánssonar
frá Fagraskógi en Guðmundur Andri
Thorsson og Silja Aðalsteinsdóttir sáu
um útgáfuna.
Í þessari útgáfu er fylgt þeirri tíma-
röð sem kvæðin birtust í – þau elstu
eru fremst og þau yngstu, sem Davíð
orti roskinn maður, eru aftast.
kristjana@dv.is
Menning 21Mánudagur 10. september 2012
Dansað fyrir
valdeflingu
kvenna
Ég hef sjálf verið að kenna
afró-dans í mörg ár og er núna
að starfa fyrir UN Women og datt
í hug að sameina þetta tvennt,
segir Álfheiður Pétursdóttir sem
starfar sem verkefnastýra systra-
lagsins. Þessa dagana eru hún og
samstarfsfélagar hennar að skipu-
leggja spennandi danshátíð sem
gengur út á að kynna starfsemi
UN Women sem og að safna fé til
að styrkja verkefni Unifem út um
allan heim.
„Hátíðin byggist fyrst og fremst
á danstímum sem fara fram í Bað-
húsinu og verða kenndir fjórir
dansstílar sem allir tengjast lönd-
um þar sem UN Women hefur
verið að styrkja verkefni sem miða
að jafnrétti og valdeflingu kvenna,“
segir Álfheiður.
Danshátíð UN Women hefst í
Baðhúsinu þann 11. september.
Kenndir verða fjórir dansstílar á
fjórum vikum á þriðjudögum og
fimmtudögum frá 19:45–20:45.
Þaulreyndir danskennarar sjá
um að halda fjörinu á lofti. Mar-
grét Erla Maack sér um að kenna
bollywood, Þórdís Nadia Semichat
kennir magadans, Kristín Bergs-
dóttir kennir sömbu og Álfheið-
ur Anna Pétursdóttir kennir afró.
„Ég hef alltaf haft gaman af því
að dansa og einnig hef ég áhuga
á fjarlægum og ólíkum menn-
ingarheimum. Ég kolféll fyrir
þessu. Við munum öll gefa vinnu
okkar og Baðhúsið leggur til að-
stöðuna svo allur ágóðinn rennur
óskiptur til UN Women.
Fullt verð fyrir námskeiðið er
18.900 krónur. Innifalið í því eru
tveir danstímar í viku í fjórar vik-
ur auk kynningarkvölds í upphafi
og lokahátíðar. Námsmönnum og
viðskiptavinum Baðhússins býðst
20 prósenta afsláttur af heildar-
verði. Í boði verður einnig að taka
eina, tvær eða þrjár vikur af nám-
skeiðinu.
Damo Suzuki
leikur undir
Metropolis
Damo Suzuki, fyrrum söngvari
súrkálssveitarinnar CAN, verð-
ur sérstakur gestur RIFF í haust.
Suzuki kemur hingað í tilefni þess
að Þýskaland er í kastljósinu á
hátíðinni að þessu sinni. Hann
flytur tónlist undir kvikmynd
Fritz Lang, Metropolis, frá árinu
1927. Kvikmyndatónleikarnir fara
fram í Gamla bíói 3. október. Auk
þess sýnir RIFF mynd um tón-
leikaferðalag Damo Suzuki um
Bandaríkin árið 1998, Over the Air
í leikstjórn Peter Braatz.
Fallegar bækur Bókbandsefnið
er ítalskt og gæðalegt.
„Engan veginn
nógu ógnvekjandi
Jón Ingi Stefánsson
joningi@dv.is
Bíómynd
Frost
Leikstjóri: Reynir Lyngdal
Handrit: Jón Atli Jónasson
Leikarar: Anna Gunndís Guðmundsdóttir,
Björn Thors, Valur Freyr Einarsson, Hilmar
Jónsson, Helgi Björnsson.
80 mínútur
n Hefði kannski virkað betur sem stuttmynd n Mikið um óþarfa
Frost Mikið hefur verið látið með
myndina fyrirfram en þegar á hólminn
var komið var uppskeran rýr.