Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2012, Blaðsíða 20
Skemmtilegri stefnumót
n Ef þú ert ennþá á markaðnum eftir þrítugt er tímabært að endurskoða aðferðirnar
E
rtu enn að nota sömu trikk-
in úti á lífinu og fyrir tíu árum
síðan? Þá er pottþétt kom-
inn tími til að uppfæra „pick-
up“ línurnar þínar. Það er aldrei að
vita nema þér takist að ganga út.
Samkvæmt blaðamanni Ask Man-
vefsíðunnar og pistlahöfundinum
Mike Sheppard er mikill munur á
stefnumótamenningu í kringum tví-
tugs aldur og eftir þrítugt. Sheppard
segir að það sem flestir karlmenn
klikki á þegar þeir eru í makaleit sé
að endurskoða ekki aðferðir sínar á
stefnumótum því að það sem hafi
unnið með okkur í kringum tvítugt,
vinni gegn okkur þegar við erum
komin yfir þrítugt.
Í kringum tvítugt glíma flest-
ir við takmarkaða ábyrgð. Margir
eru í skóla og skilgreina sig fyrst
og fremst sem stúdent eða einfald-
lega nema. Á tímabilinu til þrítugs
á breyting sér stað þegar við hætt-
um að líta á okkur sem stúdenta og
við förum að skilgreina okkur sem
fullorðnar manneskjur. „Í kring-
um tvítugt þykir svalt að vita ekk-
ert í sinn haus, vita ekki hvert mað-
ur stefnir og vera bara slétt sama.
Á hinn bóginn er slíkur hugsunar-
háttur ekki aðlaðandi þegar við
skríðum yfir þrítugt. Þá er hreint
og beint vandræðalegt að vita ekki
hvað maður vill,“ segir Sheppard
sem segir atvinnuval ávallt bera á
góma, þó samtölin nái ekki einu
sinni tveimur mínútum. „Við vilj-
um vita við hvað mögulegur maki
starfar. Ekki beint út af peningum
heldur af því að fjárhagslegt öryggi
er aðlaðandi. Spilin hafa verið gef-
in upp á nýtt. Sá sterkasti er sá sem
þekkir sig best. Þú getur verið for-
stjóri risa fyrirtækis eða atvinnu-
laus leikari – mundu bara að segja
frá því með ástríðu.“
Sheppard segist vita að auðvitað
skipti sjálfstraust miklu máli þegar
kemur að makaleit. „Það að vita
hver maður er og hverjir styrkleikar
manns eru, veitir sjálfsöryggi. Eftir
þrítugt getum við lagt áherslu á það
sem gerir okkur sérstök, jafnvel þótt
við vildum helst ekki kannast við
þau atriði þegar við vorum yngri.
Þess vegna er miklu skemmtilegra
að fara á stefnumót eftir því sem við
verðum eldri.“ n
20 Lífsstíll 10. september 2012 Mánudagur
Þ
eir gerast ekki svakalegri
en Joe Manganiello sem
leikur varúlfinn Alcide
Herveaux í True Blood.
Flestir leikarar vampíru-
þáttanna eru í fanta formi en
enginn þeirra kemst þó með
tærnar þar sem Joe Mangani-
ello er með hælana. Þess vegna
finnst eflaust mörgum áhugavert
að forvitnast um æfingaplan og
matarræði leikarans.
Manganiello hefur alltaf ver-
ið stór og mikill og hefur sjálfur
sagt að margir hafi talið, vegna
stærðarinnar, að hann væri at-
vinnumaður í amerískum fót-
bolta. Eftir að hafa nælt í hlut-
verkið las hann bækurnar sem
þættirnir byggja á og ákvað
að taka líkamsræktina upp á
næsta þrep.
Fram að því hafði Joe lagt
mikla áherslu á að lyfta þungu
til að verða bæði stærri og sterk-
ari auk þess sem
hann gerði mik-
ið af bekkpressu og
hnébeygjum. Til að
túlka varúlfinn Acide
vildi hann tóna sig
og skera til að ná
þessu fullkomna
Hollywood-útliti og
réði stjörnuþjálfarann
Ron Matthews til að
koma sér í rétt form.
Ron þessi er enginn
byrjandi þegar kemur
að líkamsrækt en hann
kom meðal annars
leikaranum Hugh Jack-
man í sitt svakalega
form fyrir hlutverkið í
X-Men myndunum. Ron bjó til rosa-
legt æfingaplan og setti leikarann á
próteinríkt mataræði. Æfingaplanið
samanstendur af endurtekningum af
léttum lyftingum og svakalegum þol-
æfingum. Joe, sem er 196 cm á hæð,
var rúm 107 kg en tókst að missa rúm
7 kg af fitu og lækkaði fituprósentuna
úr 18 niður í 8. Útkoman varð sterkari
líkami og hraustlegra útlit sem allar
konur elska og allir karlmenn öfunda.
Joe hittir Ron tvisvar
á dag, sex daga vikunn-
ar. Á morgnana tekur hann 45 mín-
útna þolæfingu á tóman maga en á
kvöldin lyftir hann lóðum og tekur
einn líkamspart fyrir í einu. Matar-
æði hans samanstendur af miklu
próteini sem hann fær úr silungi,
buffalo-kjöti, eggjahvítu og prótein-
hristingum. Hann fær sér hafragraut
á morgnana en sykur og brauð eru
á bannlista. Síðan Manganiello sló
í gegn sem varúlfurinn Alcide hef-
ur æfingaplan Rons verið kallað „æf-
ingaplan varúlfsins“ eða einfaldlega
„Joe Manganiello æfingarnar“. n
n Joe Manganiello úr True Blood er sjóðheitur
v rúlfur
Æfðu eins og
Svakalegur Leik-
arinn, sem er fæddur
árið 1976, hefur alltaf
verið stór og mikill.
Hann er 197 cm á hæð.
Í fantaformi Leikarinn er mikið kvennagull eftir að hafa nælt í hlutverk varúlfsins Alcide í True Blood.
Passar Sookie Varúlfurinn Alcide myndi gera all
t fyrir Sookie Stackhouse.
Sjálfsöryggi heillar Ef þú veist
hvað þú vilt og hvernig þú ætlar
þér að ná því áttu góðan séns.
Matur sem
léttir lund
1 Bláar kartöflur Kannski ekki það algengasta í græn-
metiskælinum en gríptu þær ef þú
rekst á þær enda eru þær stútfullar
af kröftugum andoxunarefnum sem
hafa jákvæð áhrif á skap og minni.
2 Kræklingur Fullur af B-12 vítamíni, seleni, joði, próteini
og sínki en hitaeiningasnauður og
fitulítill. Joð, selen og sínk hafa
jákvæð áhrif á skjaldkirtilinn sem
síðan hefur áhrif á skapið auk þess
sem B-vítamín styrkir heilafrumurnar
sem svo bætir einbeitingu.
3 Dökkt súkkulaði Eykur blóðflæðið til heilans en það
bætir og kætir skapið. Þú verður
orkumeiri og hressari. Mundu bara að
borða ekki of mikið af því.
4 Grísk jógúrt Stútfull af kalki sem hjálpar heilanum að
losa um hamingjuhormón. Svo er hún
líka full af próteini.
5 Aspas Ríkt af fólíni og tryptófan-amínósýru sem
er nauðsynlegt líkama okkar. Lítið
magn fólíns getur orsakað þunglyndi,
samkvæmt rannsókn. Tryptófan
hjálpar til við serotín-framleiðslu sem
eykur vellíðan.
6 Hunang Settu hunang út í teið í stað sykurs. Hunang þykir
hafa jákvæð áhrif á skapið og hefur
mun minni áhrif á blóðsykurinn en
venjulegur sykur.
7 Kirsuberjatómatar Allir tómatar innihalda efnið
„lycopene“ sem er andoxunarefni og
ver heilann gegn bólgum. Til að ná
sem bestum áhrifum skaltu borða
tómatana með skvettu af ólívuolíu en
olían hraðar upptöku efnisins.
8 Egg Innihalda sínk, B-vítamín, ómega-3 fitusýrur og prótein og
gefa þér kraft til að endast út daginn.