Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2012, Qupperneq 16
Í
spar- og flúorperum má finna
kvika silfur sem er hættulegt um-
hverfinu og heilsu manna. Það
er mikilvægt að vita hvernig
skal bregðast við ef slíkar perur
brotna en einnig hvernig skal farga
þeim en þær eru flokkaðar sem
spilli efni og ekki má henda þeim
beint í ruslið.
Nú er framleiðendum ekki leng-
ur heimilt að selja og dreifa glær-
um glóperum til heildsala og endur-
söluaðila eins og greint var frá í DV
fyrir skömmu en með þessu er verið
að uppfylla reglur um orkusparnað
í aðildarríkjum EES. Í stað gömlu
glóperanna býðst neytendum nú að
kaupa sparperur, glóperur eða led-
perur. Ekkert kvikasilfur er að finna í
led-perunum.
Betri þrátt fyrir kvikasilfrið
Á síðu Neytendasamtakanna seg-
ir að rök ESB um að slíkar perur séu
betri, þrátt fyrir kvikasilfrið, séu þau
að magn þess í sparperum sé svo lítið
að fyrir orkuna sem sparast, sé hægt
að komast hjá mun meiri kvikasilfurs-
sleppingu sem gerist í sjálfri orkufram-
leiðslunni hjá kolaorkuverum.
Þar segir einnig að í sparperum
sé að hámarki 5 mgr. af kvikasilfri í
sparperu. Til samanburðar er nefnt
að í tannfyllingum er 0,5 gr og í eldri
tegundum hitamæla eru nokkur
grömm af kvikasilfri.
Neytendur er hvattir til að velja
umhverfismerktar sparperur því þær
innihalda minna kvikasilfur og end-
ast mjög vel.
Flokkaðar sem spilliefni
Ekki er leyfilegt að henda perunum í
ruslafötuna. Þær flokkast sem spilli-
efni og því skal skila þeim á endur-
vinnslustöðvar þar sem þær eru
meðhöndlaðar á réttan hátt.
Neytendasamtökin hafa tekið
saman upplýsingar um sparperur og
hvernig skuli farga þeim en sérstök
ílát eru fyrir þær á söfnunarstöðvum
Sorpu á höfuðborgarsvæðinu sem og
á söfnunarstöðvum á Suðurnesjum. Í
þau á að setja allar ónýtar ljósaper-
ur, hvort sem um er að ræða venju-
legar glóperur, flúor- eða halógenljós
eða svokallaðar sparperur. Ekki þurfi
sérstaka meðhöndlun á glóperum en
þetta fyrirkomulag sé til einföldun-
ar fyrir neytendur svo þeir þurfi ekki
að læra að skilja á milli einstakra
tegunda.
„Flúor-, halógen- og sparperur
þarf svo að meðhöndla til að aðskilja
kvikasilfur í þeim perum frá gleri og
málmum og koma þannig í veg fyrir
að kvikasilfur berist frá þeim út í jarð-
veg og grunnvatn. Glersallinn er urð-
aður og málmarnir endurunnir en
kvikasilfrið er sent til Danmerkur til
sérstakrar meðhöndlunar.“ Þá er tek-
ið fram að ekkert kosti að skila per-
um á endurvinnslustöðvar.
Fólk hvatt til að fara varlega
Jón Steingrímsson, framkvæmda-
stjóri Efnamóttökunnar hf., segir að
það séu í sjálfu sér fáar hagkvæm-
ar lausnir í boði þegar kemur að því
að safna ljósaperum á heimilinu án
þess að þær brotni. „Ég tel þó að það
séu litlar líkur á að þær brotni. Gamla
glóperan var miklu brothættari með
sitt þunna glæra gler. Fólk veit að
gler getur brotnað og er því hvatt til
að fara varlega en ég held að það séu
litlar líkur á að fólki stafi hætta af per-
unum. Annars er gott að hafa í huga
þær ráðleggingar sem gefnar eru um
hvað skal gera ef þær brotna.“
Jón segir að það sé greinileg
vakning hjá almenningi um að
safna saman perum en bendir þó
á að til þeirra komi um það bil 20
tonn af perum á ári. „Ég hugsa að
innflutningur á perum sé margfald-
ur á við það og því mikilvægt að við
náum betri söfnun. Til dæmis fáum
við einungis um það bil 20 prósent
af rafhlöðum við söfnun. Nú þegar
það eru komnar nýjar reglur um
perur verður hugsunarhátturinn að
breytast með.“ Fólk er hvatt til að
safna öllum tegundum af perum og
er það gert til einföldunar fyrir neyt-
endur. „Þetta er eins og með raf-
hlöðurnar, þær eru mismengandi
en við viljum fá þær allar til okkar,“
segir hann.
Minni orka og lengri ending
Ástæðan fyrir því að glóperurnar eru
ekki lengur til sölu er sú að orkuspar-
andi perur nota allt að 80 prósentum
minna rafmagn og sagt er að ef heim-
ili skipti út tíu 60 vatta glóperum fyr-
ir samsvarandi orkusparandi per-
ur getur sparnaður á raforku verið
um það bil 7.000 krónur á ári. Einnig
er því haldið fram að þrátt fyrir að
sparperur séu dýrari í innkaupum þá
borgi þær sig til lengri tíma litið, því
þær nota minni orku og endast betur.
Minnkar ekki losun gróðurhúsa-
lofttegunda hér á landi
Skiptar skoðanir eru um áhrif og
hentugleika reglugerðarinnar við
íslenskar aðstæður. Í minnisblaði
orkuskrifstofu iðnaðarráðuneytisins
frá árinu 2009 um reglugerðina seg-
ir að hefði Ísland sótt um undanþágu
frá henni hefði að minnsta kosti ekki
verði bannað að markaðssetja gló-
perur hér á landi. Hins vegar ligg-
ur fyrir að sum fyrirtæki hafa hætt
framleiðslu glópera og því spurn-
ing hvort undanþága hefði nokkurn
tilgang. Þá myndi undanþága leiða
til þess að kröfur um gæði ljósapera
ættu ekki við hér á landi og því væru
engar takmarkanir á því hvers konar
ljósaperur, þar með taldar sparperur,
mætti markaðssetja hér á landi. Ís-
land yrði þá eina landið á innri mark-
aðnum þar sem markaðssetja mætti
ljósaperur sem ekki uppfylla vist-
hönnunarkröfur Evrópusambands-
ins, sem aftur gæti leitt til þess að
ljósaperum sem ekki uppfylla kröfur
annarra aðildarríkja EES-samnings-
ins yrði hent á markað hér á landi.“
Einnig er tekið fram að fallist sé
á að notkun sparpera dragi ekki úr
losun gróðurhúsalofttegunda hér
á landi þar sem slík losun frá raf-
orkuframleiðslu er lítil. Hins vegar
er bent á útreikninga Orkuseturs
um árlegan heildarsparnað raforku-
kostnaðar heimila hér á landi. Þá
segir einnig að efni reglugerðarinn-
ar hafi nokkurn samhljóm með sam-
starfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinn-
ar þar sem kveðið var á um að gerð
verði áætlun um orkusparnað, jafnt
fyrir atvinnufyrirtæki og heimili og
að efld yrði fræðsla til almennings
og fyrirtækja um vistvæn innkaup,
umhverfismerkta vöru og gildi sjálf-
bærrar neyslu. n
n Nýjar perur, sem koma í stað glóperunnar, eru flokkaðar sem spilliefni
Algengt verð 259.5 kr. 262.7 kr.
Algengt verð 256.3 kr. 258.5 kr.
Höfuðborgarsvæðið 256.2 kr. 258.4 kr.
Algengt verð 259.5 kr. 262.7 kr
Algengt verð 258.6 kr. 258.9 kr.
Melabraut 256.3 kr. 258.5 kr.
Eldsneytisverð 9. september
Bensín Dísil
Framúrskar-
andi þjónusta
n Lofið fær D&C verkstæði að
Hamarshöfða. „Verk-
stæðið sérhæfir sig í
viðgerðum á bílum
og ég vil fá að lofa það
fyrir framúrskarandi
þjónustu,“ seg-
ir viðskiptavin-
ur í skilaboðum
til DV.
Rán á holl-
ustufæði
n Lastið að þessu sinni fær Nóta-
tún fyrir hátt verð á
berjum en DV fékk
eftirfarandi sent;
„Í Nóatúni kostar
kílóið af kirsu-
berjum 2.998
krónur. Þokka-
legt rán á hollustu-
fæði. Það er fínt að fara
frekar á nammibarinn en
kílóverðið er lægra þar,“
segir óánægður viðskipta-
vinur.
Lof og last
Sendið lof eða last á neytendur@dv.is
„Nú þegar það eru
komnar nýjar regl-
ur um perur verður hugs-
unarhátturinn að breyt-
ast með.
Umhverfisstofnun hefur gefið út
leiðbeiningar um það hvað skuli
gera ef sparpera brotnar:
n Ef sparpera brotnar losnar um lítið
magn af kvikasilfursögnum sem þú skalt
forðast að anda að þér.
n Hafðu opinn glugga á meðan þú þrífur
upp perubrotin.
n Ekki nota kúst því hann getur dreift
kvikasilfrinu enn frekar.
n Skrapaðu frekar upp brotin með
pappaspjaldi og svo má nota límband
og blautan eldhúspappír til að ná
smáum ögnum.
n Gakktu frá brotunum í loftþétt ílát
svo sem sultukrukku eða frystipoka og
skilaðu þessu inn sem spilliefni á næstu
endurvinnslu- eða móttökustöð.
n Til vonar og vara er gott að lofta vel út
í 15 mínútur eftir þrifin og vera meðvit-
aður um að lofta aðeins aukalega næstu
14 dagana.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Glóperur
Tími þessara
pera er liðinn.
KviKasilfur í sparperum
16 Neytendur 10. september 2012 Mánudagur
n Lastið í síðasta blaði fékk
Munnharpan en hér birtist
svar þeirra við lastinu. „Eins
og segir á kaffiseðli okkar þá
er um að ræða Söru Bern-
hardt köku á okkar máta. Inni-
haldið er marengsbotn, kara-
melluseruð mjólk (Condensed
milk), möndlur og brætt
kaffisúkkulaði. Þetta útskýr-
ir að einhverju leyti sætleika
kökunnar. Annars er gaman
að segja frá því að þessa dag-
ana eigum við von á aðstöðu-
bætingu á kaffihluta veitinga-
hússins og munum við taka
allan kaffiseðilinn til endur-
skoðunar í kjölfarið. Ef þú, kæri
viðskiptavinur, myndir vilja
hafa samband aftur þætti okk-
ur vænt um að mega bjóða þér
til okkar hvort sem er í kaffi
og með því eða í glæsilegan
málsverð til að bæta fyrir þessa
leiðinda upplifun.“