Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2012, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2012, Blaðsíða 3
SjálfStæðiSmenn ætla Sér StórSigur Þ etta er bara ofbeldi,“ seg- ir móðir unglings í 8. bekk í Hagaskóla sem telur skólann ekki taka á agavanda í ung- lingadeild skól ans. Vandinn byggir á því að nemendur í 10. bekk skólans hafa komið sér upp ákveðnu busakerfi þar sem yngri nemendur eru hrelltir. Það er að segja, að yngri nemendur í unglingadeild þurfa að hlýða ægivaldi þeirra, annars hljóti þeir verra af og eru jafnvel teknir fyrir. Verið svona lengi „Þetta hefur verið svona í mörg ár og alltaf er sagt að það sé verið að vinna í þessu, en staðreyndin er sú að yngri krakkarnir eru bara hræddir,“ segir móðirin. Hefur því skapast sú hefð að krakkarnir hlakka til að fara í 10. bekk, enda geta þau þá líka látið til sín taka gagnvart yngri nemendum. „Þau segja þetta vera svo spennandi því þá ráða þau eftir tvö ár.“ Nemendurnir setja þeim yngri reglur innan skólans en refsa þeim svo utan skólalóðarinnar óhlýðnist þeir. Aðstoðarskólastjóri Hagaskóla kannast við vandamálið, en segir að veturinn hafi farið mun betur af stað en oft áður og að samstarfið við nem- endur og foreldra gangi afar vel að þessu sinni. Mega ekki fara á ákveðna staði Meðal þess sem gengur á er að yngri nemendurnir mega ekki fara um ákveðna ganga skólans, með- al annars þar sem salerni eru, sem eru þó víðar í skólanum. „Þau bundu til dæmis einn fastan við staur um daginn af því að hann fór yfir álm- una. Þau settu teip á gólfið og sögðu hingað megið þið ekki fara.“ Unglingur sem blaðamaður DV ræddi við sagðist ekki vera hrædd- ur við nemendurna heldur vera afar hamingjusamur í skólanum. Hann væri afar sáttur í skólanum, en vissi að það væri ákveðin álma í skólan- um sem 8. bekkingar mættu ekki fara um og því hættu nemendur sér ekki þangað. Móðirin greinir frá því að fyrir tveimur vikum hefði nem- andiverið bundinn við staur eftir fót- boltaleik. Hún kveðst ekki treysta sér til að koma fram undir nafni þar sem hún óttast að barnið sitt verði þá jafn- vel tekið fyrir. Ljóst er því að upplifun nemenda í skólanum er afar misjöfn. Olweusar-áætlun og fræðsla Ómar Örn Magnússon, aðstoðar- skólastjóri Hagaskóla, segir skólann vinna markvisst að eineltismálum, en skólinn hefur verið verðlaunað- ur fyrir átak sitt í þeim málum. Hann kvaðst kannast við þessi átök milli 10. og 8. bekkjar, en segir að það hafi gengið vel að taka á því máli. Skóla- byrjun í ár hafi gengið einstaklega vel og hafi þótt sérstök ástæða til þess að hrósa nemendum unglingadeildar og var foreldrum þeirra sendur póst- ur þess efnis. „Þetta hefur verið kölluð hefð, en þetta er ekki svo gamalt innan skól- ans,“ segir Ómar Örn. Hann kannast við tilvikið um nemandann sem var bundinn við staur, en segir að það hafi ekki tengst átökum innan ung- lingadeildar, heldur hafi það ver- ið prakkarastrik sem gekk of langt. Vel hafi gengið að vinna úr því máli í samstarfi við foreldra og nemendur. Ómar bendir á að í eineltiskönn- um sem gerð var innan skólans í nóvember í fyrra sögðu 93,4 prósent nemenda að sér liði vel eða mjög vel í skólanum. Hann hvetur foreldra þessa barns til þess að hafa samband svo hægt sé að leysa málið, enda geti skólinn ekki aðhafst í málum sem honum er ekki kunnugt um. n Gæti fengið dauðadóm n Morðingi Kristjáns Hinriks Þórssonar ákærður S aksóknarar í máli Jermains Jackson, 19 ára karlmanns sem hefur verið ákærður fyr- ir morðið á Kristjáni Hin- riki Þórssyni og John White í Tulsa í Colorado í Bandaríkjunum, gætu farið fram á dauðadóm. Jackson var handtekinn þann 12. september síð- astliðinn í Arkansas en morðin voru framin fyrir utan verslun í borginni þann 8. september. Dauðarefsing eru lögleg í Colorado og aðeins í Texas og Virginíu eru fleiri fangar teknir af lífi. Flestar aftökur eru framkvæmdar í Colorado miðað við höfðatölu. Frá árinu 1976 hafa hundrað fangar ver- ið teknir af lífi í ríkinu og þar af fjórir á þessu ári. „Saksóknarar í Tulsa fara fram á dauðadóm í örfáum tilfellum á hverju ári – í innan við tíu prósentum tilvika þegar ákært er fyrir morð af fyrstu gráðu,“ segir Bill Braun, dóm- fréttaritari Tulsa World fréttamið- ilsins í samtali við DV. „Saksóknar- ar taka þessa ákvörðun ekki fyrr en eftir að málið er dómtekið og það gætu liðið nokkrir mánuðir þar til ákvörðun liggur fyrir. Þeir munu ör- ugglega skoða málið vel, sérstaklega þar sem um tvö morð er að ræða. Það eru þó til dæmi þess að ekki hafi verið farið fram á dauðarefsingu yfir einstaklingi sem er ákærður fyrir þrjú morð,“ bætir hann við. Jackson situr nú bak við lás og slá í Tulsa og er þar án þess að geta fengið lausn gegn tryggingu. DV lagði fram fyrirspurn til saksóknaraembættisins í Tulsa á föstudag en henni var ekki svarað. n Fréttir 3Mánudagur 1. október 2012 Ekki hleypt á klósettið n Unnið að agavandamálum í Hagaskóla„Þau segja þetta vera svo spennandi því þá ráða þau eftir tvö ár Ásta Sigrún Magnúsdóttir blaðamaður skrifar astasigrun@dv.is Unnið í málinu Ómar Örn Magnússon, aðstoðarskólastjóri Hagaskóla. Mynd landsbanKinn.is agavandi Móðirin segir að nemendur í 10. bekk meini þeim yngri að fara á ákveðin salerni í skólanum. Í haldi Jermaine Jackson hefur verið ákærður fyrir að myrða Kristján Hinrik og John White. n Fjölmargir ætla fram fyrir Sjálfstæðisflokkinn í prófkjörum n Mælist með mikið fylgi Kjartan Ólafsson suðurkjördæmi Fyrrverandi þingmaður Sjálf- stæðisflokksins. Settist fyrst á þing árið 2001 og sat til 2009. Vilhjálmur Árnason suðurkjördæmi Vilhjálmur er lögreglumaður og laganemi, fæddur og uppalinn í Skagafirði. Var formaður Víkings, félags ungra sjálfstæð- ismanna í Skagafirði, og er nú formaður Freyju, Félags ungra sjálfstæðismanna í Grindavík. Elín Hirst suðvesturkjördæmi Fyrrverandi fréttastjóri á Stöð 2 og Ríkisútvarpinu. Hún íhugaði forsetaframboð fyrir síðustu kosningar en ákvað að gefa ekki kost á sér. Hún hefur gefið út að hún sækist eftir 3. sætinu í Suðvesturkjördæmi. Friðjón R. Friðjónsson suðvesturkjördæmi Friðjón stundaði nám í stjórnmálafræði í Háskóla Íslands. Hann starfaði um tíma sem almannatengill hjá Góðum samskiptum, almannatengslafyrirtæki Andrésar Jónssonar. Hann starfaði fyrir framboð Þóru Arnórsdóttur til forseta í síðustu kosningum. Var tímabundið aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins. Gunnar I. Birgisson suðvesturkjördæmi Fyrrverandi þingmaður og bæjarstjóri í Kópavogi. Sagði nýlega við DV að hann hefði ekki tekið ákvörðun um framboð. Það var fyrir þremur árum sem Gunnar lét af störf- um sem bæjarstjóri Kópavogsbæjar eftir umfjöllun um viðskipti sveitarfélagsins við útgáfufyrirtækið Frjálsa miðlun. Í maí síð- astliðnum var Gunnar dæmdur til að greiða 150 þúsund krónur í sekt vegna brota sem tengdust störfum hans fyrir Lífeyrissjóð starfsmanna Kópavogs. Óli Björn Kárason suðvesturkjördæmi Ritstjóri vefsins t24 og fyrrverandi ritstjóri AMX. is. Hann var blaðamaður á Morgunblaðinu frá 1984 og síðar fréttarit- ari blaðsins í Bandaríkjunum samhliða námi í hagfræði. Hann gaf kost á sér í 4. sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins árið 2009. Óli Björn hefur undanfarið verið að þreifa fyrir sér með framboð. Kjartan Örn Sigurðsson suðvesturkjördæmi Kjartan, sem er stjórnmála- fræðingur að mennt, hefur gegnt trúnaðarstörfum fyrir flokkinn, meðal annars setið í umhverfis- og samgöngunefnd hans. Hann hefur verið formaður fræðslunefndar á Álftanesi auk þess að vera formaður bæjarráðs. Hann hefur tilkynnt þátttöku í prófkjöri. Gunnlaugur Snær Ólafsson suðvesturkjördæmi Gunnlaugur hefur stundað stjórnmálafræðinám við Háskólann í Osló og Háskóla Íslands. Hann bjó um nokkurt skeið í Noregi þar sem hann starfaði með Höyre-flokknum. Hann er varaformaður Ísafoldar, ungra Evrópusam- bandsandstæðinga. Hann starfar nú sem upplýsingafulltrúi hjá Heimssýn – hreyf- ingu sjálfstæðissinna í Evrópumálum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.