Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2012, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2012, Qupperneq 8
Mútur Munu 8 Fréttir 1. október 2012 Mánudagur V iðurlög við mútum verða hert gangi frumvarp inn- anríkisráðherra þess efnis í gegn. Frumvarpið er hluti af fyrirhugaðri fullgildingu á viðbótarbókun við samning Evrópu- ráðsins gegn spillingu. Þá er stuðst við tilmæli GRECO, samtaka ríkja gegn spillingu. Ísland er meðlimur í Evrópu- ráðinu og hefur verið frá árinu 1950. Auk ríkja Evrópuráðsins eru Kanada, Bandaríkin, Ísrael, Japan, Mexíkó og Vatíkanið samstarfsaðilar GRECO. Ákvæðin nái til alþingismanna Árið 1996 samþykkti ráðherranefnd Evrópuráðsins aðgerðaáætlun gegn spillingu. Áætlunin var samþykkt í kjölfar tilmæla evrópskra dóms- málaráðherra á ráðstefnu sem haldin var árið 1994 í Valletta, höf- uðborg Möltu. Meðal helstu liða áætlunarinnar var að leggja drög að einum eða fleiri alþjóðasamning- um gegn spillingu og að koma á fót kerfi til að framfylgja skuldbinding- um slíkra samninga. Í apríl árið 2008 samþykkti GRECO tvær skýr- slur um Ísland. Önnur þeirra fjall- ar um innleiðingu á mútuákvæðum spillingarsamningsins en hin um gagnsæi fjármögnunar stjórnmála- starfsemi á Íslandi. Í niðurstöðu skýrslunnar eru rakin að ákvæði ís- lenskrar löggjafar sem varða mútur og áhrifakaup. Þar segir að íslensk lög séu að mestu leyti í samræmi við ákvæði spillingarsamningsins. Þó kemur fram að bæta megi úr varð- andi tiltekin atriði. „Þannig beindi GRECO meðal annars þeim tilmælum til Íslands að tryggja að ákvæði almennra hegn- ingarlaga um mútur og áhrifakaup næðu einnig til alþingismanna, fulltrúa erlendra fulltrúaþinga sem hefðu stjórnsýslu með höndum sem og til erlendra gerðarmanna og kviðdómenda.“ Þá segir að þyngja skuli refsingar fyrir mútubrot í al- mennri atvinnustarfsemi og skoða hvort þyngja eigi refsingar fyrir mútugreiðslur til opinberra starfs- manna. Siðareglur ráðherra og embættismanna Snemma á árinu voru embættis- mönnum og ráðherrum settar siða- reglur. Í reglunum segir að þær séu settar í von um að efla fagleg vinnu- brögð og auka traust á stjórnsýslunni. Í skýrslu samhæfingarnefndar um siðferðisleg viðmið í stjórnsýslu eru hættur til spillingar í stjórnsýslunni út- listaðar. Meðal þess sem nefndin taldi til sem sérstakar hættur hér á landi er fámennið, formleysi og skortur á fag- mennsku; það er tilhneiging til að gera lítið úr kvöðum sem fylgja embætti og ábyrgð. Nálægðin er til trafala Rannsóknarskýrsla Alþingis tekur einnig á spillingu í íslenskri stjórnsýslu. Þar er bent á að mælikvarðar GRECO á spillingu takmarkist við mútuþægni en skýrslan segir slíka spillingu ekki mælast á þeim kvarða. „Smæð ís- lensks samfélags skapar miklu frem- ur forsendur fyrir fyrirgreiðslupólitík sem byggist á kunningsskap og ættar- tengslum milli manna og elur á mis- munun ekkert síður en mútuþægnin gerir, þótt með ólíkum hætti sé. Bent hefur verið á að slæleg vinnubrögð í íslenskri stjórnsýslu sé nærtækast að skýra „… með almennu agaleysi, eða skorti á grundvallarreglum sem þrífst vel við skilyrði smæðarinnar.“ n Atli Þór Fanndal blaðamaður skrifar atli@dv.is Ísland og GRECO 17. desember 1997 Samningur um baráttu gegn mútugreiðslum til erlendra opinberra starfsmanna í alþjóðlegum viðskiptum undirritaður. 17. ágúst 1998 Ísland fullgildir samninginn. 15. febrúar 1999 Samningurinn öðlast gildi á Íslandi. Desember 2010 Vinnuhópur GRECO um Ís- land samþykkir skýrslu sína. Hópurinn lítur jákvæðum augum til þeirra breytinga sem átt hafa sér stað í íslenskri löggjöf eftir hrun. n Allt að fjögurra ára fangelsi gangi frumvarp ráðherra í gegn „Smæð íslensks samfélags skapar miklu fremur forsendur fyrir fyrirgreiðslupólitík Herðir viðurlög Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur lagt fram frumvarp sem herðir viðurlög við mútum. ekki líðast Gjaldþrotum fækkar mikið Alls voru 46 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í ágústmánuði hér á landi, flest í byggingarstarf- semi og mannvirkjagerð. Þetta kemur fram í tölum sem Hagstofa Íslands birti á föstudag. Gjaldþrot- um fyrirtækja hefur fækkað tals- vert á þessu ári miðað við síðasta ár. Þannig var 661 fyrirtæki tek- ið til gjaldþrotaskipta fyrstu átta mánuði þessa árs sem er rúmlega 30 prósent fækkun frá sama tíma í fyrra þegar 950 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta. Flest gjaldþrot það sem af er árinu eru í flokknum byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, 136 talsins. Samdráttur í makrílveiðum Alþjóðahafrannsóknarráðið, ICES, hefur lagt til 15,2 prósenta sam- drátt í veiðum á makríl árið 2013. Á sama tíma leggur ráðið til um- talsverða aukningu í veiðum á kolmunna og mikinn samdrátt í veiðum á norsk-íslenskri síld. Þetta kemur fram í ráðgjöf stofn- unarinnar sem birt var á föstudag og LÍÚ fjallaði um á vef sínum. Lagt er til að makrílveiðar verði á bilinu 497 til 542 þúsund tonn árið 2013 á móti 586 til 639 tonn- um sem ráðlögð voru í fyrra. Þetta samsvarar 15,2 prósenta sam- drætti milli ára. Hins vegar er lögð til 64,4 prósenta aukning í veiðum á kolmunna eða úr 391 þúsund tonni í 643 þúsund tonn árið 2013. Ef stuðst verður við samninga um nýtingaráætlun verður heim- ilt að veiða 619 þúsund tonn af norsk-íslenskri síld árið 2013 sem er 25,7 prósenta samdráttur frá því í fyrra, þegar ráðgjöfin hljóðaði upp á 833 þúsund tonn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.