Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2012, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2012, Side 21
mér er drullusama,“ segir hann hlæj­ andi með og með miklum tilþrifum. „Ég ætla bara að gera það sem ég fíla og lífið er miklu skemmtilegra. Síðan erum við ógeðslega heppin að geta komið til Spánar og spilað og þetta gengur allt bara rosa vel,“ segir Brynjar. „Heppni er bara heppni en maður við vinnur að því að komast þangað sem maður fer,“ bætir Fann­ ey við, en hún vill alls ekki skrifa vel­ gengni hljómsveitarinnar á heppni. „Þetta er erfitt og allt það, en það er allt hægt.“ Að þeim orðum sögðum viður­ kenna þau öll að það sé mikil vinna á bak við velgengni þeirra. „Maður verður líka bara háður. Situr frá níu á morgnana og gleymir að borða. Svo er klukkan allt í einu orðin átta um kvöldið,“ segir Brynjar. „Vá, var þessi að hringja í mig?“ „Þetta snýst fyrst og fremst um að hafa trú á sjálfum sér. Auðvitað koma tímar þar sem maður hugsar að þetta gangi ekki upp og peningalega séð getur þetta verið mjög erfitt. Maður lifir ekki á þessum bransa einn, tve­ ir og þrír. Maður má ekki gleyma því þegar maður er að stefna að ákveðn­ um markmiðum að vera hamingju­ samur á leiðinni og njóta þess að vera á leiðinni þangað sem þú ætlar þér,“ segir Fanney. Brynjar segir að þau staldri reglu­ lega við til að átta sig á því hvað sé að gerast. Þau gera sér ekki alltaf grein fyrir því strax þegar verið að bóka þau á tónleika eða tónlistarhátíð­ ir um hve stóra viðburði er að ræða. „Það koma svona augnablik þar sem maður stoppar og hugsar: Bíddu, vá, var þessi að hringja í mig og segja þetta? Er þetta að fara að gerast? Vá, erum við komin svona langt?“ seg­ ir Brynjar til að lýsa upplifun þeirra af velgengninni. „Brynjar þarf alltaf reglulega að hrista mig og segja: Fanney, fattarðu þetta ekki?“ segir Fanney hlæjandi. Spiluðu á Hróarskeldu Kúra hefur spilað víða í Danmörku, meðal annars á Hróarskelduhá­ tíðinni í sumar. „Það var algjörlega frábært. Það voru þarna um 4.000 manns og allir sungu með,“ seg­ ir Fanney og ljómar þegar hún rifjar tónleikana upp. „Það var nánast yfir­ þyrmandi,“ skýtur Rasmus inn í. Þá hafa þau spilað í Svíþjóð og Póllandi og nú í Madríd á Spáni. „Það er svolítið kaldhæðnislegt að við höfum aldrei spilað á Íslandi, í ljósi þess að meirihluti bandsins er ís­ lenskur,“ segir Brynjar. „Við vonumst til að fá að spila á Íslandi sem fyrst. Okkur langar mjög mikið til að kynna tónlistina fyrir Íslendingum og fá við­ brögð,“ segir Rasmus sem er mjög áhugasamur um Ísland eftir að hafa kynnst Brynjari og Fanneyju sem er nýflutt aftur til Íslands eftir tæplega tveggja ára dvöl í Danmörku. „Tæknin er orðin svo mikil að Fanney getur sungið á Íslandi á með­ an við gerum okkar í Danmörku,“ út­ skýrir Rasmus. Þau segja það ekki hafa nein áhrif á hljómsveitina að þau búi ekki öll í sama landi. „Auð­ vitað finnst okkur skemmtilegast að vera saman þegar við erum að búa til tónlist og það er oftast þannig,“ segir Fanney. Það er þó ekki nauðsynlegt. „Það er meira að segja eitt lag á plöt­ unni tekið upp á Íslandi og svo sendi Fanney það okkur bara og við „mix­ uðum“ það,“ segir Brynjar. Það er augljóst að þau ná vel saman og eru ákveðin í að láta hlutina ganga þrátt fyrir breyttar aðstæður. Einn af ostunum á bakkanum En hvaðan kemur nafnið Kúra? „Ég hef alltaf verið hrifinn af því hvern­ ig orðið lítur út. Komman yfir ú­ið gefur því skemmtilega íslenskt yfir bragð. Við erum auðvitað frá Íslandi, tveir þriðju bandsins, og þar hófst ævintýrið,“ segir Brynjar. „Mörg íslensk bönd hafa „cheesy“ nöfn; Sigur Rós, Á móti sól, svo við ákváðum bara að fylgja straumn­ um og velja „the cheesiest one“,“ bætir Fanney við. „Við vildum vera einn af þessum ostum á ostabakk­ anum,“ útskýrir Brynjar og vísar þar til orðsins „cheesy“. Þau eru sammála um að nafnið henti hljómsveitinni mjög vel. „Tón­ listin er mjög draumkennd og ef fólki finnst gott að kúra við tónlistina þá er það auðvitað fullkomið,“ segir Brynj­ ar hlæjandi. „En það var þó ekki hug­ myndin með nafninu,“ bætir Fanney við til að það valdi ekki misskilningi. Á döfinni hjá Kúra á næstu vikum er að fara í áheyrnarprufur í London, sem þau segja geta orðið stórt stökk fyrir sveitina, gangi þær vel. n Menning 21Mánudagur 1. október 2012 Ört stækkandi hátíð Norrænir dagar í Madríd Menningarhátíðin Días Nordícos stendur nú yfir í þriðja sinn í Madríd á Spáni, en markmið hátíðar- innar er að kynna norræna listamenn ásamt því styrkja menningarleg samskipti á milli Norður- landaþjóðanna, Spánar og Rómönsku Ameríku. Um er að ræða samstarfsverkefni á milli Norræna menningarsjóðsins (Norden), Danska rokkráðsins (ROSA), Norræna tónlistarútflutningsverkefnisins (NOMEX) og spænska viðburðastjórnunarfyrirtækisins Zona de Obras. Días Nordícos stækkar hratt og áhuginn á norrænni menningu virðist sífellt vera að aukast. Á hátíðinni, sem stendur yfir til 16. desember, geta gestir notið tónlistar, ljós- mynda, myndlistar, kvikmynda og fleira eftir norræna listamenn. Meðlimir Kúra eru ekki einu íslensku listamennirnir á Días Nordícos en listamaðurinn Siggi Eggertsson er með myndlistarsýningu á hátíðinni. Viðburðirnir fara fram víðs vegar um Madríd en tónleikar Kúra fóru fram í Matadero, sem er miðstöð samtímalistar þar í borg. Tónleikasalurinn tekur um þúsund manns í stæði og er mjög skemmtilegur í alla staði. Rasmus, meðlimur Kúra, hafði á orði að salurinn líktist gróðurhúsi og má segja að þar hafi hann hitt naglann á höfuðið. Mikill gróður er bak við sviðið sem og til hliðar við áhorfendasvæðið sem gefur frumskógarlegt yfirbragð. Þá er er glerþak á húsinu, ekki ólíkt og er á gróðurhúsum. Tónlistarmennirnir hafa aðsetur í litlum timburkofum baksviðs, en hvert band hefur sinn kofa til afnota. Spænskt sjónvarp Spánverjar kunnu vel að meta tónlist Kúra og sveitin fór í viðtal í spænskum sjónvarpsþætti. Kúra Dansk-íslenska hljómsveitin Kúra hefur verið að slá í gegn síðustu misserin í Danmörku, en er lítt þekkt á Íslandi. Myndir Sólrún lilja

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.