Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2012, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2012, Síða 22
Mikið álag í Mörg ár 22 Fólk 1. október 2012 Mánudagur S éra Hildur Eir Bolladóttir er vinsæll prestur á Akureyri og svo vinsæl að hún hefur fengið kaffidrykk nefndan eftir sér. „Nú get ég sumsé lagst niður og dáið, það er búið að nefna kaffidrykk eftir mér á einu eðal kaffihúsi hér í bæ. Ég vona þó að svipuð hugmynd vakni ekki á öldur- húsum bæjarins,“ skrifar Hildur Eir á fésbókarsíðu sína. Vinir hennar hópast um að óska henni til ham- ingju með heiðurinn auk þess sem einn spyr hvort í drykkn- um sé ekki örugglega „slatti af húmor, manngæsku og flottum skóm“. „Nei það er sýróp og rjómi og læti,“ svarar prestur- inn um hæl. n Nefndu drykk eftir presti n Slatti af húmor, mann- gæsku og flottum skóm Sýróp og rjómi Hildur er vinsæll prestur á Akureyri og þar í bæ er drykkur nefndur eftir henni. n Kanínugallinn ekki vinsæll í Suðurríkjunum F jölmiðlamaðurinn Auðunn Blöndal svaraði nokkrum léttum og hress- um spurningum nýverið á vefnum Hún. Þar greinir Auðunn meðal annars frá því að hann sé einhleypur og eigi sér leyndarmál sem hann muni taka með sér í gröfina. Hann ljóstrar ýmsu upp í þessu viðtali, meðal annars vand- ræðalegasta atviki sem hann hefur lent í en það var þegar móðir hans sendi hann átta ára í skóla í Bandaríkjunum í kan- ínugalla sem amma hans og afi höfðu keypt á Kanaríeyjum. „Kom í ljós að þetta var Playboy-galli sem þótti argasta klám í Suður- ríkjunum og var hringt í múttu og hún látin sækja þennan sora sem hún kallaði son í skólann,“ segir Auðunn sem hefur lent í fleiri tískuslys- um á ævinni en hann segist hafa alla jafna gengið í íþróttagalla til nítján ára aldurs og átti einar gallabuxur sem voru notaðar þegar hann fór á dansleiki. n T ónlistarmaðurinn Ásgeir Trausti sem hefur verið að slá í gegn upp á síðkastið vinn- ur nú að nýju tónlistarmynd- bandi og hefur fengið til liðs við sig barnakór Seltjarnarness. Börnin mættu í upptökur í hljóðveri Hljóð- rita í síðustu viku og sungu af hjart- ans lyst. Gagnrýnendur hafa keppst um að lofsama fyrstu plötu Ásgeirs Trausta, Dýrð í dauðaþögn, sem kom út fyrir skömmu. Á döfinni hjá tónlistarmanninum unga eru tón- leikar í Seattle í Bandaríkjunum næstkomandi föstudag á viðburði sem nefnist Reykjavík Calling og er haldinn í þriðja sinn. Þar koma fram vinsælir tónlistarmenn bæði frá Reykjavík og Seattle. n Ásgeir Trausti með barnakór n Vinnur að nýju tónlistarmyndbandi n Tónlistarmaðurinn Birgir Hilmarsson kominn aftur heim É g geri þetta fyrst og fremst af persónulegum ástæðum,“ segir þingkonan öfluga Þor- gerður Katrín Gunnarsdóttir sem hefur háð margar erfiðar orrustur í stjórnmálum. Þorgerður tilkynnti um það fyrir helgi að þátt- töku hennar í stjórnmálum væri lokið en í viðtali við hana fyrr í vet- ur mátti greina að það hefði verið gengið nærri henni og fjölskyldu hennar. Lögregla var kvödd að heimili þeirra vegna mótmæla þar fyrir utan í aprílmánuði 2010 og það fannst henni afar erfitt. Þeir sem fyrir utan stóðu tóku lítið til- lit til þess að Þorgerður og Kristján eiga þrjú börn og þar af dóttur sem á mjög erfitt með að höndla eða skilja atvik eins og þetta en hún er einhverf og með þroskahömlun. Nú ætlar Þorgerður að snúa sér að fjöl- skyldunni og byggja hana upp eftir það sem á hefur gengið. Mikið álag á fjölskyldunni „Ég er sátt við þetta. Þegar maður er búinn að taka ákvörðun þá stendur maður bara við hana, en þetta var erfið ákvörðun. Þingið er svo frábær vinnustaður og gefandi og hefur verið mér dýrmætur í gegnum árin. Það er búið að vera mikið álag á fjölskyldunni í mörg ár. Þetta er rétti tíminn til að hætta. Ég vona að fólk virði það við mig að þingmenn geta líka stigið til hliðar af persónuleg- um ástæðum.“ Þorgerður hefur oft tekið slaginn gegn meginstraumnum í Sjálfstæð- isflokknum. „Mér finnst svo gaman í pólitíkinni. það er gaman að taka þessa slagi og þá er bæði gam- an að finna fyrir því að hafa stuðning og berjast áfram án hans. En það hugsar maður sér. Þegar upp er stað- ið þá er það fjölskyld- an sem skiptir mestu máli. Hún er megin- uppistaðan í þessari ákvörðun minni.“ Skarðið stórt Skarð forystukvenna sem yfirgefa þing í Sjálf- stæðisflokki er stórt. Bjarni Benediktsson, for- maður flokksins, setti Ragn- heiði Elínu Árnadóttur af sem þingflokksformann og setti í hennar stað Illluga Gunnarsson. Þá sagði Ólöf Nordal skilið við for- ystusveit Sjálfstæðisflokks á dögun- um og nú gerir Þorgerður Katrín slíkt hið sama. n kristjana@dv.is n Þorgerður hætt á þingi n Ætlar að hlúa að fjölskyldunni Rétti tíminn til að hætta „Það er búið að vera mikið álag á fjölskyldunni í mörg ár.“ Mynd SigtRygguR aRi Þ etta er blanda af rokki, klassík og kvikmyndatónlist,“ seg- ir tónlistarmaðurinn Birgir Hilmarsson en fyrsta sól- óbreiðskífa hans, All We Can Be, kemur út eftir helgi. Birgir hefur verið búsettur erlendis síðustu árin þar sem hann hefur unnið með ekki smærri nöfnum en Hollywood-ris- anum Ridley Scott. „Seint á síðasta ári gerði ég „trailer“ fyrir Ridley Scott fyrir mynd hans Life in a Day um notendur YouTube. Svo um daginn gerði ég tónlist fyrir mynd sem Harry Bretaprins er að gefa út í Bretlandi og heitir Harry‘s Mounta- in Heroes,“ segir Birgir en bætir við að hann hafi ekki fengið að hitta prinsinn vinsæla þar sem öll sam- skipti fóru í gegnum umboðsskrif- stofu hans. „Það var ekki svo gott. Kannski næst,“ segir hann hlæjandi. Tónlist Birgis hefur auk þess hljómað í fjölda sjónvarpsþátta, á borð við Kyle XY, The Cleaner, Sugar Rush og Army Wives sem áhorf- endur RÚV kannast við, sem og í auglýsingum vörumerkja eins og Chevrolet, Motorola, Nike, Toyota og Ikea. Það er því ljóst að hann hef- ur ekki setið auðum höndum síðan Ampop var sem vinsælust. „Maður er líklega miklu þekktara nafn úti en hérna heima. En það fer vonandi að breytast,“ segir Birgir brosandi en hann mun halda útgáfutónleika í Fríkirkjunni á fimmtudagskvöldið 4. október þar sem hann mun flytja lag af plötunni og smáskíf- una War Hero sem hann samdi til systur sinnar. „Ég samdi þetta lag fyrir Motorola-auglýsingu sem var sýnd á Super Bowl-úrslitaleikn- um í Bandaríkjunum í fyrra en svo hljóðritaði ég það upp á nýtt og samdi textann til Ágústu Ernu systur minnar sem var þá að glíma við krabbamein. Hún var kveikjan að þessu lagi. Enda ótrúleg kona; sannkölluð stríðshetja.“ n indiana@dv.is Vann með Ridley Scott og Harry Bretaprins Spilar á Reykjavík Calling Næstu tón- leikar Ásgeirs Trausta eru á föstudaginn. UppnáM út af playboy-galla Vandræðalegt Auðunn lenti í vandræðlegasta atviki lífs síns í barnaskóla í Bandaríkjunum. Samdi lag til systur sinnar Biggi samdi lag fyrir Motorola-auglýsingu sem var sýnd á Super Bowl. Hann hljóðritaði það upp á nýtt og samdi texta til systur sinnar sem glímdi við krabbamein. Mynd MaRía KjaRtanS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.