Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2012, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2012, Qupperneq 3
„VIÐ HÖFÐUM BETUR“ Fréttir 3Mánudagur 29. október 2012 n Þriggja ára baráttu fjölskyldu lokið n Drómi samþykkir endurútreikninga lána Bankinn gafst upp Sigurður Hreinn með dóttur sinni, Dolores. Hann og eiginkona hans, Maria Elvira, höfðu betur gegn Dróma hf. Mynd pressphotos.Biz„Venjulegu fólki hefur verið att út í erfiða baráttu af tveimur ráðherrum. sem kröfur í erlendum gjald- miðli. Ég fæ ekki betur séð en að þetta sé svindl frá upphafi. Þegar bankarnir fóru að aug- lýsa þessi lán, þá hafði almenn- ingur ekki nægar upplýsingar til að meta forsendur lánanna. Almenningur gat ekki hugsað: Er þetta virkilega löglegt? Eða: Er þetta of gott til að vera satt? Maður gerir bara ráð fyrir því að bankar bjóði ekki upp á ólögmæt lán. Svo þegar þessi gengislán dugðu ekki til, af því bankarn- ir gátu ekki endurnýjað erlendu lánin sín þá stofnuðu þeir Ices- ave og Kaupthing Edge til að krækja sér í meira. Á endanum sporðrenndu þeir öllum gjald- eyrisforða Íslendinga með bless- un Seðlabankans. Þetta er eitt- hvað það stórkostlegasta svindl sem sést hefur og við hljótum að krefjast þess að það fari fram ein- hvers konar uppgjör.“ siðlaus hegðun Sigurður segir enn mikla baráttu fyrir höndum. „En réttlætinu er vissulega ekki fullnægt þar sem mikill fjöldi fólks borgar enn brúsann í gegnum verðtryggð lán sín. Það hlýtur að vera gerð krafa um réttlæti fyrir alla. Þess vegna skora ég á fólk með verðtryggð lán að leita réttar síns og gefast ekki upp fyrr en sanngjörn lausn er í boði. Það er einfaldlega ekki hægt að láta almenning borga fyrir óábyrga hegðun stjórnmála- manna og siðlausa hegðun gráð- ugra bankamanna,“ segir Sigurð- ur Hreinn að lokum. n Má ekkert segja um kynlífið n Anna Mjöll bundin af málaferlum við Cal Worthington A nna Mjöll Ólafsdóttir söng- kona staðhæfði í sjónvarps- þættinum Sjálfstæðu fólki á sunnudagskvöld að njósnað hefði verið um hana allan sólar- hringinn á meðan hún var gift bílasalanum Cal Worthington. Anna Mjöll ræddi við Jón Ársæl Þórðar- son um samband sitt við auðjöfurinn Cal og sagði meðal annars að hjóna- band þeirra hefði verið samningur. Cal hefði þurft á umönnun að halda enda gamall maður og hún hafi sam- þykkt að sjá um hann. Jón Ársæll spurði Önnu Mjöll meðal annars út í kynlífið með hin- um aldna Cal Worthington en hún sagðist ekki geta tjáð sig um það að svo stöddu vegna þeirra málaferla sem ennþá eru í gangi. Þá sagði hún að hún gæti sagt frá kynlífinu þegar málaferlunum væri lokið. Anna Mjöll sótti um skilnað frá Cal Worthington í desember í fyrra, en samkvæmt fréttum fór hún fram á að fá framfærslu frá honum í fram- haldinu. Málaferli hafa staðið yfir síðan. Cal, eins og hann er kallað- ur, fæddist í Shidler í Oklahoma þann 27. nóvember árið 1920 og er því níræður að aldri. 49 ára aldurs- munur er á honum og Önnu Mjöll. Cal er sagður eiga tíu risavaxna bú- garða í Bandaríkjunum og hefur í gegnum tíðina vakið verðskuldaða athygli fyrir sérstakar sjónvarps- og útvarpsauglýsingar sínar. Auk þess að reka bílasölurnar á hann þrjár verslunar miðstöðvar og eina skrif- stofubyggingu sem sagðar eru velta 600 milljónum dala árlega. Cal er einn ríkasti bílasali í heimi. Árið 1979 skildi Cal við eiginkonu sína til 37 ára, Barböru, og kvænt- ist konu að nafni Susan Henning. Það hjónaband endaði illa sjö árum síðar samkvæmt heimildum. Árið 1995 kvæntist hann útvarpskonunni Bonnie Reese sem þá var 35 ára. Þau skildu árið 2002 og var hann, að því er best er vitað, einhleypur eftir það allt þar til að Anna Mjöll heillaði hann upp úr skónum og giftust þau í apríl 2011. n Aðalskoðun ósátt við verklagið og leitar réttar síns I nnanríkisráðuneytinu hefur borist kvörtun frá fyrirtækinu Aðalskoðun sem sérhæfir sig í skoðun ökutækja. Kvörtunin snýr að svokallaðri sam- anburðarskoðun sem framkvæmd er af Umferðarstofu. Þá lætur Umferðar- stofa skoða bíl sem sérfræðingar fyrir- tækisins hafa þegar yfirfarið og er það liður í eftirliti með skoðunarfyrirtækj- um á borð við Aðalskoðun. Samkvæmt heimildum DV eru skoðunarfyrirtæk- in ósátt við þessa tilhögun en upplýs- ingafulltrúi Umferðarstofu segir farið að lögum í einu og öllu. Leiddir í gildru Starfsmaður ónefndrar skoðunarþjón- ustu sagði frá því í samtali við DV að þess væru dæmi að útsendarar Um- ferðarstofu hafi leitt skoðunarmenn í gildru. Þá hafi bifreið útsendarans fengið athugasemd hjá viðkomandi skoðunarfyrirtæki og ábendingu um að endurskoðunar væri þörf en út- sendarinn hafi beitt skoðunarmann þrýstingi til þess að komast hjá endur- skoðun. Ekki er langt síðan upp kom atvik þar sem útsendari Umferðar- stofu komst hjá endurskoðun með þessum hætti. Áðurnefndur starfs- maður segir Umferðarstofu gjarnan hafa fengið „laglegar stúlkur“ til verks- ins sem tæli skoðunarmenn ökutækja til að sleppa sér við endurskoðun gegn loforði um að farið verði með viðkom- andi bíl í viðgerð. Lögum samkvæmt Talsmaður Umferðarstofu segir ekkert athugavert við samanburðarskoðun af þessu tagi. Í þessu sambandi þykir honum hæpið að tala um að stofn- unin noti tálbeitur. „Umferðarstofa er eftirlitsstofnun, þetta er bara liður í eftirlitinu og lögbundið hlutverk okk- ar. Það kemur skýrt fram í reglugerð að við erum í einu og öllu að fara eftir settum lögum varðandi svona saman- burðarskoðun,“ segir Einar Magnús Magnússon, starfsmaður Umferðar- stofu, í samtali við DV. „Umferðarstofa gerir samanburðarskoðun þannig að sérfræðingar Umferðarstofu gera ná- kvæma athugun á ökutæki og ástand þess er kannað með tilliti til þeirra reglna sem gilda um skoðun ökutækja. Síðan er farið inn á skoðunarstöð með þetta ökutæki og gerður samanburð- ur á niðurstöðum skoðunarmanns og sérfræðinga okkar.“ Ef munur á niðurstöðum til- tekins skoðunarfyrirtækis og sér- fræðinga Umferðarstofu er meiri en eðlilegt getur talist er fyrirtækinu gert að gera ákveðnar ráðstafanir. Þá eru ýmis viðurlög til, til að mynda getur skoðunarstofu verið gert að veita starfsmönnum sínum fræðslu og eftir atvikum gera Umferðarstofu grein fyrir ástæðum frávika. Umferðarstofa getur jafnframt krafist þess að viðkomandi skoðunarmaður sitji sérstakt nám- skeið og sinni ekki skoðunarstarfi fyrr en að námskeiðinu loknu. samanburðarskoðunum hætt í bili „Ég held að það hljóti nú allir að sjá að þetta er náttúrulega mjög mikil- vægur þáttur í því að tryggja að öku- tækin sem í umferðinni eru séu sem öruggust og það stafi ekki af þeim hætta,“ segir Einar Magnús. Eins og áður sagði eru skoðunarfyrirtæki ósátt við það verklag Umferðarstofu sem hér hefur verið lýst. Þykir þeim eðlilegra að fyrirtækin séu látin vita þegar Umferðarstofa framkvæmir samanburðarskoðanir. Einar telur það ekki vænlegt enda hafi verið uppi grunsemdir um að skoðunar- fyrirtæki fari ekki alveg eftir bókinni. Bergur Helgason, framkvæmda- stjóri Aðalskoðunar, vildi ekki tjá sig um samskipti fyrirtækisins við ráðu- neytið. Ekki liggur fyrir hvernig tekið verður á umræddri kvörtun en sam- kvæmt heimildarmanni DV úr öðru skoðunarfyrirtæki hefur Umferðar- stofa ekki framkvæmt samanburðar- skoðanir frá því málið kom á borð ráðuneytisins. n Umferðarstofa notar tálbeitur Ólafur Kjaran Árnason blaðamaður skrifar olafurk@dv.is skiptar skoðanir Skoðunarfyrirtæki sem sérhæfa sig í skoðun ökutækja eru ósátt við svokallaða samanburðar- skoðun Umferðarstofu. 49 ára aldursmunur Anna Mjöll skildi við auðmann- inn Cal Worthington eftir stutt hjónaband en málaferli vegna skilnaðarins eru enn í gangi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.