Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2012, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2012, Side 14
Sandkorn S teingrímur J. Sigfússon sjávar­ útvegsráðherra varð fyrir fá­ dæma ruddalegri framkomu útgerðarmanna þegar hann ávarpaði þá á aðalfundi sam­ takanna. Ráðherrann hafði sýnt sam­ tökunum þá virðingu að mæta á fund þeirra og flytja ávarp. Það var brotin sú regla að klappa fyrir gestinum og einnig voru framíköll undir ræðu hans. Ástæða ruddaskaparins var að ráðherrann hefur ásamt stjórnar­ meirihlutanum staðið að því að leggja veiðigjald á útgerðina. Gjaldtakan er hluti af sátt um afnotaréttinn að þjóðarauðlindinni. Ekki skal dæmt um sanngirnina gagnvart minni eða með­ alstórum útgerðum en það liggur þó fyrir að tenging er milli hagnaðar og veiðigjalds. Málið er því ekki þannig vaxið að útgerðin fari á hausinn fyrir vikið eins og gefið er til kynna í mál­ flutningi hins háværa hluta útgerðar­ manna sem leiða samtök sín áfram með hatur og heift að leiðarljósi. Auk þess að niðurlægja gest sinn þá hafa róttækir útgerðarmenn kastað fram þeirri hugmynd að efnt verði til verkbanns og flotanum siglt í land. Sá dólgsháttur er til þess ætlaður að knýja fulltrúa þjóðarinnar til að hverfa frá veiðigjaldinu eða draga úr því. Fyrr á árinu var gripið til þess að stýra sjó­ mönnum – fá þá til þess að sigla til Reykjavíkur og mótmæla. Þá var ekki hátt risið á hetjum hafsins. Til þess að reka áróður sinn nota þessi sömu öfl dagblað sem stýrt er af helsta örlaga­ valdi hrunsins. Sjávarútvegsfyrirtæki í Vestmannaeyjum mokar peningum í miðilinn í því skyni að hafa áhrif á val fólks í kosningum og kúga stjórnvöld til þess að hlýða kúgurum sínum. Síbylju­ fréttir eru fluttar um bágindi útgerðar­ innar en sem betur fer sér meirihluti þjóðarinnar í gegnum hroðann. Það er engin ástæða til að vorkenna Steingrími J. sem á skilið að vera reglu­ lega skammaður fyrir afglöp sín og ríkis stjórnarinnar. En það verður að gera þá kröfu til andstæðinga hans að þeir fari að reglum og sýni manndóm og siðvendni. Samtök sem nýta sér rógsveitur til að berja á andstæðingum sínum eiga engan rétt og þeim ber ekki að hlífa í neinu. Þetta eru jaðarsamtök sem stjórnað er af fólsku og fantaskap. Útgerðarmenn eiga mikið undir því að starfa í sátt við þjóð sína. Það er góðum mönnum úr þeirra hópi ekki til framdráttar að gangast undir það hjarðeðli sem nært er af öfgamönnum. Það er málstað útgerðarmanna ekki til framdráttar að halda uppi fjölmiðlum sem undir fölsku flaggi hlutleysis halda uppi ofbeldisfullum árásum á réttkjör­ in stjórnvöld. Stálskipalýðræði LÍÚ skilar á endanum ekki öðru en óbeit landsmanna í garð stéttar sem er þrátt fyrir allt á meðal þeirra mikilvægustu. Þetta er fólkið sem stjórnar umgengn­ inni við fiskimiðin og skammtar sjó­ mönnum laun. Ráðist á Ragnar n Mikil taugaveiklun er inn­ an forystu Sjálfstæðisflokks­ ins vegna þess að bæði Ragn- ar Önundarson og Vilhjálmur Bjarnason hafa boðið sig fram gegn Bjarna Bene­ diktssyni for­ manni til að leiða listann í Kraganum. Ragnar hefur tæpitungulaust lýst vafasamri fortíð Bjarna í tengslum við Vafning, N1, og önnur fyrirtæki. Augljóst er að Bjarni er fallinn ef hann fær ekki góða kosningu í fyrsta sætið. Leðjuslagur er kominn í gang vegna þessa. Það sýndi sig vel þegar Ólöf Nordal varaformaður réðst gegn Ragnari í Mogganum og dylgjaði um fortíð hans en varði viðskiptabrall Bjarna. Lífróður formanns n Framtíð Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar á stóli for­ manns Framsóknarflokksins veltur á því hvort hann nær að leggja Höskuld Þór- hallsson í slagnum um oddvitasætið í Norðaustur­ kjördæmi. Þegar eru uppi vísbendingar um að róður­ inn sé þungur fyrir formann­ inn. Á Akureyri og í nágrenni mælist Höskuldur með yfir­ burðafylgi. Ef formaðurinn fellur nyrðra er nærtækt að ætla að Höskuldur geri aðra atlögu að formannsstólnum en hann var sem frægt er formaður í nokkrar mínútur þegar mistalið var milli hans og Sigmundar. Rólegur ráðherra n Ögmundur Jónasson innan­ ríkisráðherra á fyrir höndum mikið hreinsistarf. Nýfallnir dómar Mannréttinda­ dómstólsins í máli blaða­ mannanna Erlu Hlynsdóttur og Bjarkar Eiðsdóttur hafa leitt til þess að önnur fórnarlömb íslenska réttarkerfisins vilja bætur frá ríkinu. Það mun lenda á Ögmundi að semja fyrir hönd ríkisins vegna þeirra afglapa sem áttu sér stað fyrir dómstólum í tíð Björns Bjarnasonar og annarra forvera hans. Ögmundur hefur ekki svarað erindum vegna þeirra mála. Framboð Helga n Helgi Hjörvar hefur þótt standa sig vel sem formaður efnahags­ og viðskiptanefnd­ ar. Á Beinni línu DV.is á miðvikudag var Helgi spurður hvort hann hefði íhugað for­ mannsfram­ boð hjá Sam­ fylkingunni. Sagði Helgi að hann sæktist eftir að leiða annað Reykja­ víkurkjördæmið í prófkjörinu. „Ég held að samfylkingarfólk muni í prófkjörunum í næsta mánuði sjálft velja þá sem koma til greina í forystu.“ Af þessum orðum má dæma að vinni hann slaginn muni hann far í formannsframboð. Ég er leigusali Við brugðumst Unnur Guðjónsdóttir losnar ekki við leigjanda. – DV Teitur Björn Einarsson segir gjaldþrot Eyrarodda hafa verið áfall. – DV Stálskipalýðræði„Síbyljufréttir eru fluttar um bágindi útgerðarinnar U ppáhaldsgoðsögn Íslendinga er að Ísland sé fjölskyldu­ og barn­ vænt þjóðfélag. Þessi fjölskylduforgangs­ fantasía er sjálfsblekking á hæsta stigi. Annars myndum við greiða um­ önnunarstéttunum – fóstrum, mæðr­ um, kennurum, leikskólakennurum, starfsfólki heilbrigðiskerfisins – sem annast um börnin okkar, menntar þau; sem hjúkra veikum ástvinum okkar og fjölskyldum, svona … ISK800.000 – 1.000.000 í mánaðarlaun. Við myndum nota meðallauna­ formúlur ofangreindra stétta við launa­ útreikning fyrir okurgrenjagreifana – og ef þeim líst illa á það er einfald­ lega að ráða útlendinga í bankastjórn­ endastörfin. (Hér í USA er t.d. fullt af hörkuduglegum atvinnulausum við­ skipta­ og markaðsfræðingum sem myndu með ánægju þiggja laun ríkis­ bankastjórans.) Launin – 3–4 milljónir á mánuði – sem greidd eru yfirtalnatilfærslu­ tæknunum í okkar ofurspikaða okur­ grenjakerfi, sem engin verðmæti skapar, myndum við greiða fólki sem á þau skilið. Fólki sem ber raunveru­ lega ábyrgð, hvers framlag til þjóðfé­ lagsins er sannarlega verðmætt. Fólki eins og Birni Zoëga, lækni og forstjóra Landspítalans. Landsmenn blæða, bankarnir græða En fjárfestingarnar sem þjóðin hefur þó gert í mannviti á sviði heilsugæslu eru ekki forgangsatriði íslenskrar at­ vinnulífsframsjár. Enda er hún ekki til. Bara græða peninga. Einhvern veginn. Skjóta fyrst, miða svo. Gróðavænlegasti atvinnuvegurinn er blóðsugubúskapar­ útgerð okurlánagrenjanna á íslenskum heimilum og þess vegna er hún líka forgangsatvinnuvegurinn. Skiptir engu máli þó skuldaþrælkun blóðsugubú­ skaparins sé að drepa þjóðina – for­ gangsatriðin eru í réttri röð: Lands­ menn blæða, bankarnir græða. Eniga meniga peninga. Þess vegna eru það okraragrenja­ greifarnir sem enn fá feitu launa­ umslögin. Þess vegna hafa Íslendingar ótakmarkað langlundargeð gagnvart landráðarefum hrunsins sem lifa í lystisemdum á bankahrunsfanginu. Geisp, gemmér annan bjór og internet til að útgauða Steingrími. Og þess vegna varð allt brjálað þegar Björn Zoëga, forstjóri Land­ spítalans, fékk 450.000 kr. mánaðar­ launahækkun. Formaður Félags ís­ lenskra hjúkrunarfræðinga, Elsa B. Friðfinnsdóttir, Hrói höttur vikunnar í fjölmiðlum fyrir að úthúða Birni, sagði málið minna „óþægilega mikið á um­ ræðuna árið 2007 þegar … forstjórar og bankastjórar … þurftu stjarnfræði­ leg laun.“ Núverandi „stjarnfræðileg“ mánað­ arlaun Björns, sem er yfirmaður 4.500 starfsmanna á stærstu heil­ brigðisstofnun landsins og að auki bæklunar skurðlæknir, eru prinslegar ISK1.850.000. Árslaun landspítalaforstjóra = 3 vikna bankastjóralaun Gerir gullfiskaminnið okkur um megn að spóla til baka um 4–5 ár? Árslaun Björns dygðu til að greiða 388 milljóna króna 2007 árslaun fjármálasnillings­ ins Lárusar Welding – í 3 vikur. Björn þyrfti að vinna í næstum hálfa öld fyrir bankastjóralaununum sem Bjarni Ár­ mannsson hjá Glitni greiddi sér á árun­ um 2004–2008 – yfir einn milljarð. Hafa samtök launþega gagnrýnt bruðlið og bitlingagræðgina sem þrífst innan bankakerfisins eins og maðkar á hræi? Formaður ríkisbankaráðsins með ISK600.000 á mánuði, varaformaður­ inn ISK425.000. Varamenn fá mánaðar­ verkamannalaun fyrir að sitja á rassin­ um á einum okurholuráðsfundi! Hafa launþegasamtök krafist þess að fjár­ málageirinn sníði sér stakk til samræm­ is við þarfir landsmanna? Að landráðar­ efir hrunsins skili fjármununum sem þeir ryksuguðu úr sjóðum þjóðarinnar? „Allar þessar tekjur“ Nei, það var tilhugsunin um 450 þús­ und fyrir lækninn sem „fyllti mæl­ inn.“ Ekki tugmilljónalaun forstjóra og bankastjórnenda með hrunsreynslu, heldur „allar þessar tekjur“ fyrir for­ stjóra Landspítalans, lækni með tveggja áratuga nám að baki, flókið og erfitt sér­ nám og þjálfun í bæklunarskurðlækn­ ingum; með samanlagt nærri þrjátíu ára starfsreynslu á sjúkrahúsum heima og erlendis; áratuga reynslu í alþjóðleg­ um fagráðum. Launaójöfnuðurinn í landinu er óþolandi, en það er ekki þar með sagt að allir verðskuldi sömu launin. Með­ aldagvinnulaun hjúkrunarfræðinga eru ISK379.000.* Skítalaun fyrir erfitt starf sem krefst mikillar menntunar og í landi þar sem mánaðarframfærslu­ kostnaður fjögurra manna fjölskyldu er um ISK670 þúsund, en er eitthvað athugavert við að yfirlæknir, sem ber ábyrgð á þúsundum starfsmanna og sjúklinga fái talsvert hærri laun en undirmenn hans? Björn „missti traust“ starfsfólks spít­ alans; „… sagði sig í raun og veru úr liðinu,“ sagði Elsa Friðfinnsdóttir „og þar tel ég að … traust og … trúnaður hafi rofnað …“ Er það karaktergalli að vilja fá góð laun fyrir sérfræðiþekkingu sem kostað hefur ómælt erfiði, tíma og tilkostnað? Ekki undur ef Björn tæki hatt sinn og hlustunarpípu Björn Zoëga afþakkaði launahækk­ unina; enda hefur hann ekki að baki ofalið klappstýrulið eins og það sem klagar í Alþingi um hærri laun fyrir bankasnillingana – en samkvæmt rök­ semdum bankanna virðist erfiðara að „laða að“ hæfa sérfræðinga þangað en síðasta geirfuglinn. Ég yrði ekki undr­ andi ef forstjóri Landspítalans tæki hatt sinn og hlustunarpípu og hlypi sem hraðast af landi brott frá vanþakklæti því og virðingarleysi sem honum hefur verið sýnt. Skiljanlegt er að launafólk sé lang­ þreytt og reitt yfir gjörspilltu stjórn­ málaflokkakerfi hvers markmið er að hlekkja almenning í ormnagandi helvíti ævarandi skuldaþrælkunar í þágu landráðaiðju auðvaldsins. En vænna til árangurs væri að virkja þessa reiði í samstilltar aðgerðir gegn stjórn­ málaöflum okurlánagrenjanna (sem stór hluti kjósenda vill endursenda í Stjórnarráðið) og skapa sjálf það fjöl­ skylduvæna þjóðfélag sem börnin okk­ ar eiga skilið. *Fjármálaráðuneyti. Meðalheildar- laun m.vaktaálagi ISK519.000. Launapólitík lækna og talnatilfærslutækna Leiðari Reynir Traustason rt@dv.is Kjallari Íris Erlingsdóttir Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Ólafur M. Magnússon Ritstjóri: Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: www.dv.is F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéTTASkoT 512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AÐALnúmeR RiTSTJÓRn ÁSkRiFTARSími AuGLýSinGAR 14 29. október 2012 Mánudagur „Gróðavænlegasti atvinnuvegurinn er blóðsugubúskaparútgerð okurlána grenjanna á ís- lenskum heimilum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.