Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2012, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2012, Side 16
16 Neytendur 29. október 2012 Mánudagur Algengt verð 254,9 kr. 260,9 kr. Algengt verð 251,4 kr. 260,5 kr. Höfuðborgarsv. 251,3 kr. 260,4 kr. Algengt verð 251,6 kr. 262,7 kr. Algengt verð 256,6 kr. 260,7 kr. Melabraut 251,4 kr. 260,5 kr. Eldsneytisverð 28. október Bensín Dísilolía Þ að er ekki bara á Íslandi sem hart er barist í áætlunar- fluginu, eins og sjá má á yfir- töku WOW á Iceland Express. Samdrátturinn eftir hryðju- verkaárásirnar 11. september 2001 tók sinn toll og tilkoma lággjaldaflug- félaga hefur aukið samkeppnina til muna. Þar að auki hefur bensínverð hækkað jafnt og þétt. American Air- lines er eitt nýjasta dæmið um risa- flugfélag sem farið hefur á hausinn, en flugfélagið missti tvær flugvélar í árásunum 2001 og hefur átt í miklum erfiðleikum síðan. Tekjur af aukaþjónustu Því er ekki að undra að flugfélögin leiti nýrra leiða til að afla sér tekna. Lággjaldaflugfélögin selja sætin ódýrar en rukka fyrir aðra þjónustu, svo sem mat eða farangur, og hafa önnur flugfélög tekið mið af því. Icelandair selur matinn aukalega, en taka má eina tösku með á venjulegu farrými. Borga þarf fyrir heyrnartól, en koddar eru innifaldir. WOW er með lægri fargjöld, en rukkar auka- lega fyrir töskur og mat og jafnframt er hægt að taka frá sæti gegn gjaldi. Í fyrra jukust tekjur flugfélaga almennt að meðaltali um 43,8 prósent fyrir þessar aukagreiðslur. Flugfélag og banki Eitt af þeim flugfélögum sem hefur gengið hvað lengst í aukaþjónustu er flugfélag Nýja-Sjálands. Air New Zealand er með sína eigin banka- þjónustu, og gefur út debetkort sem hægt er að nota til gjaldeyriskaupa og gefur bónuspunkta, en félagið tekur þóknun í hvert sinn sem kortið er notað. Kort þetta nefnist One- Smart og hefur reynst vinsælt, fyrsta mánuðinn höfðu yfir 100.000 manns tekið það í notkun. Bandaríska flugfélagið United Airlines er það stærsta í heimi ef tek- ið er mið af fjölda áfangastaða, en flugfélagið flýgur á yfir þúsund staði. Þar á bæ hafa menn einnig sótt fyrir- myndir í fjármálageirann. Í afleiðu- viðskiptum er hægt að kaupa svo- nefnda vilnun, sem merkir að maður getur keypt sér rétt til þess að kaupa eitthvað seinna á sama verði og það er á í dag. Verðfrysting á fargjöldum Margir kannast við að skoða flugfar- gjöld sem hafa svo hækkað til muna þegar ákvörðun hefur verið tekin um að kaupa þau, en með „FareLock“- kerfinu er hægt að frysta verðið í eina viku. Þetta kostar þóknun, sem flug- félagið innheimtir hvort sem miðinn er á endanum keyptur eða ekki. Í Kanada er veðráttan óútreiknan- leg og því gerist það stundum að flugi er frestað vegna veðurs, en flugfélag- ið er ekki alltaf skaðabótaskylt. Hjá Air Canada er hins vegar hægt að kaupa ferðatryggingu þar sem ferða- langurinn fær farmiða með öðru flugfélagi, rútu eða lest eða inni á hóteli ef flugi er aflýst. Allt eru þetta dæmi um þjónustu sem er innifalin á fyrsta farrými, en aðrir farþegar geta keypt aukalega. Hvers vegna er flugvélamatur svona bragðlaus? Farþegar á fyrsta farrými þurfa þó ekki að óttast um sinn hag, því á meðan sumir gera út á lægri far- gjöld gera aðrir út á meiri lúxus, svo sem betri afþreyingartæki, þráðlaust net og sæti sem hægt er að leggja aftur og gera að rúmum. Enn aðrir hafa ákveðið að leiðin að hamingju kúnnans liggi í gegnum magann, og hafa ráðið heimsfræga kokka til að útbúa matinn. Þetta er ekki jafn ár- angursríkt og það kann að virðast. Grill eru bönnuð um borð í flugvél- um og það verður að notast við ofna sem hita matinn upp með heitu lofti. Því þarf að útbúa allan mat fyrirfram og pakka honum inn í lofttæmdar umbúðir. Þar að auki breytist bragð- skynið í háloftunum. Loftið innan- borðs þurrkar upp nefið, sem svo aftur deyfir bragðskynið, og eftir því sem flogið er hærra slokknar á um þriðjungi hinna 10.000 bragðlauka mannsskepnunnar sem annars greina muninn á súru og sætu. Þetta leiðir ekki aðeins til þess að flug- vélamatur er oft mikið saltaður eða kryddaður svo að finna megi af hon- um bragð, heldur útskýrir einnig hvers vegna tómatdjús er einhver vinsælasta drykkjarvaran um borð og selst álíka mikið og bjór. Í loftlitlu rýminu er djúsinn minna súr en á jörðu niðri. standandi farþegar í flugvélum? Með aðstoð vísindanna er þó unnið að því að auka fjölbreytileika og gæði flugvélamatar, enda er eftir miklu að sækjast. Farþegar á fyrsta farrými eru einungis um þriðjungur ferðalanga en eru ábyrgir fyrir mestum hluta hagnaðar flugfélaganna. Við hin þurfum víst að leggja traust okkar á lægri fargjöld. Það flugfélag sem hefur gengið lengst í að lækka fargjöld en jafnframt rukka aukalega fyrir þjónustu er írska flug- félagið Ryan air, en um 20 prósent af tekjum þeirra kemur frá slíkri þjón- ustu. Þar er ekki hægt að tékka sig inn á flugvellinum nema gegn um- talsverðu gjaldi, ekki er heldur hægt að halla sætinu aftur þegar um borð er komið. Á meðal áforma félagsins er fjarlægja klósett eða taka gjald fyr- ir notkun þeirra, að láta farþega sjálfa ferma farangurinn um borð, að rukka þungt fólk aukalega eða jafnvel að losa sig við sætin og láta fólk ferðast standandi á milli staða. Góða ferð! n n Allt reynt til að auka samkeppnishæfni flugfélaga Lipurt og elskulegt starfsfólk n Yfirleitt leiðist mér að fara í sjón- mælingu og fá mér ný gleraugu, en hjá ProOptik í Kringlunni fékk ég svo góða þjónustu að ég hlakka til að fara þangað aftur. Sjón- mælingarmaðurinn var sérlega þægilegur, fljótur og fum- laus, þannig að mér fannst bara gaman að láta mæla sjónina. Aðrir starfsmenn voru líka ákaflega liprir og elsku- legir. Ég mæli með ProOptik í Kringlunni – al- veg frábær þjón- usta þar. Allri upphæð skellt inn n Lastið að þessu sinni fær Birtíng- ur útgáfufélag en einn áskrifandinn vildi koma eftirfarandi á fram- færi: „Ég hef verið áskrifandi að Nýju Lífi síðan í janúar þegar mér var boðið áskriftartilboð. Ég hélt að það væri tekið mánaðarlega af kortinu mínu en um daginn fer ég inn á heimabankann minn og sé að það er kominn þar inn rukkun upp á 10.000 krónur. Ég viðurkenni að það voru mín mistök að fylgjast ekki með þessu en mér finnst ein- kennilegt að ég fái enga viðvörun eða sé látin vita að ég hafi í raun ekki greitt neitt heldur er bara skellt inn allri upphæðinni sem ég á að greiða 12. nóvember. Mér finnst þetta skrýtin viðskipti og skil ekki að þetta sé hægt yfir höfuð,“ segir viðskiptavinurinn. DV hafði samband við Ólaf Val Ólafsson hjá Birtíngi sem sagði að tæknileg mistök í kerfinu hefðu verið ástæðan fyrir því að viðkomandi var ekki látinn vita. „Það er auðvitað mjög leiðinlegt þegar svona mis- tök gerast og við biðjumst afsök- unar á því. Það er sjálfsagt að hafa samband við okk- ur og hliðra til varðandi greiðslu eins og óskað er.“ Lof og last Sendið lof eða last á neytendur@dv.is Offituskattar, lúxusmatur og standandi farþegar Valur Gunnarsson skrifar valurgunnars@gmail.com Bragðlaus flugvélamatur Flugvélamatur er oft mikið saltaður eða kryddaður svo að finna megi af honum bragð. Farþegarnir í vinnu Sparnaður gæti falist í því að láta farþega sjálfa ferma farangurinn um borð. engin klósett og offituskattur Á meðal áforma félagsins er að fjarlægja klósett eða taka gjald fyrir notkun þeirra og að rukka þungt fólk aukalega eða jafnvel losa sig við sætin og láta fólk ferðast standandi á milli staða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.