Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2012, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2012, Page 20
20 Sport 29. október 2012 Mánudagur Endar Drogba hjá Liverpool? n Mörg félagslið farin að spá í spilin í janúar E f marka má slúðurblöðin leita forráðamenn Liverpool nú allra leiða til að fá Didier Drogba lánaðan frá sínu kín- verska félagsliði og Alex Ferguson stjóri Manchester United hefur mik- inn hug á hollenska miðjumannin- um Kevin Strootman. Allmörg félagslið bæði í Englandi og víðar eru þegar farin að undirbúa sig undir opnun leikmannamark- aðarins í janúarbyrjun. Fullyrða má að margar slíkar fréttir séu algjörlega úr lausu lofti gripnar og oftar en ekki eru það bresku slúðurblöðin sem bjóða upp á slíkar fréttir. Engu að síður er forvitnilegt að sjá hvaða leik- menn eru helst nefndir til sögunnar. Þar er fremstur í flokki Kólumbíu- maðurinn Falcao sem nú leikur með Atlético Madrid en það vakti undrun margra að hann skyldi ekki vera keyptur til stórliðs í sumar sem leið. Eru spekingar almennt á því að fyrir utan Brasilíumanninn Neymar þá sé ekki til betri sóknarmaður sem leik- ur ekki með stórliði en Falcao. Sjálf- ur hefur kappinn lýst yfir áhuga á að fara annað og er talið víst að Chelsea muni reyna að klófesta kappann. Ekki er þó ólíklegt að PSG reyni einnig við Kólumbíumanninn. Verð- ur fróðlegt að fylgjast með, því sagt er að bæði félög geti sótt í hyldjúpa vasa eigenda sinna. Alex Ferguson er sagður hafa reynt að kaupa miðjumanninn Strootman frá PSV í Hollandi í sum- ar sem leið en hætt við einhverra hluta vegna. Síðan hefur áhugi hans aðeins aukist en Strootman er talinn einn frambærilegasti miðjumaður í Hollandi. Staðfest er að PSV hafi gef- ið grænt ljós á að hann verði seldur en hvort hann endar í raun og veru hjá United verður að koma í ljós. Öllum er ljóst að krísa er hjá Liverpool og ýmsir leikmenn nefnd- ir til sögunnar til að færa það til betri vegar. Didier Drogba er sagður hugs- anlega á leið til liðsins í láni en leik- tímabilinu í Kína, þar sem Drogba leikur listir sínar, lýkur í vikunni. Það er þó ekki eini leikmaðurinn sem sagður er á leið til Liverpool. Fullyrt er að stjóri liðsins hafi forvitnast um Demba Ba hjá Newcastle en Ba hefur ekki síður verið frískur fyrir framan markið þessa leiktíðina en þá síð- ustu. n Messi hvergi hættur Ekki fyrr er búið að skrifa um eitt met Leo Messi hjá Barcelona en hann bætir um betur. Hann var á skotskónum enn á ný um helgina þegar Barcelona grillaði lið Rayo Vallecano í spænsku deildinni og það 0–5 á útivelli. Argentínumaðurinn setti tvö marka liðs síns og fór með því upp fyrir 300 marka markið á ferlinum. Hefur hann skorað alls 270 mörk fyrir Barcelona og 31 fyrir landslið Argentínu eða samtals 301 mark. Og Messi er aðeins 25 ára gamall. Vettel með aðra hönd á titli Þjóðverjinn Sebastian Vettel sigraði í Indlandskappakstrinum um helgina í annað skiptið í röð en með sigrinum náði kappinn þrettán stiga forskoti á Spán- verjann Fernando Alonzo í stigakeppni ökuþóra. Einungis þrjár keppnir eru eftir af keppn- istímabilinu og má segja að Vettel sé kominn með aðra hönd á titilinn. Sama gildir um keppnislið þeirra Red Bull sem er langfremst í keppni bílasmiða með 91 stigs forskot á Ferrari svo dæmi sé tekið. Fernando Alonzo varð annar um helgina og stendur fast við það í blaða- viðtölum að hann geti og muni standa uppi sem sigurvegari. Þá þarf hann að bretta upp ermar. Hanson hafði McIlroy Það var Svíinn Peter Hanson sem hafði sigur á BMW Masters- mótinu í golfi sem fram fór í Kína um helgina. Hafði Svíinn ágæta forystu lengi vel áður en McIlroy hóf ákafa sókn á lokaholunum og náði í skottið á Hanson og skildi aðeins eitt einasta högg þá félaga að á lokaholunni. Greinilegt var að Hanson var mjög taugaspenntur undir slíkri pressu en hann hélt þó stillingu sinni og hafði betur. Er þetta stærsti sigur Hanson í golfi að eigin sögn en sigurinn færði honum litlar 148 milljónir króna. Demba Ba Litinn hýru auga af stjóra Liverpool. E f aðeins allir leikir í enska boltanum væru eins skemmtilegir og slagur Chelsea og Manchester United um helgina. Æsispennandi viðureign þessara risa endaði með 2–3 sigri gestanna frá Manchester og þrjú stig á Stam- ford Bridge eru úrslit sem gætu vel skipt öllu máli á lokametrunum í vor. Helstu andstæðingar United í deildinni náðu reyndar einnig þremur stigum í hús um helgina en fjarri því með eins miklum bravúr og Rauðu djöflarnir hans Ferguson. Arsenal mátti teljast heppið að landa 1–0 sigri á heima- velli gegn QPR og sömuleiðis fer 1–0 heimasigur Manchester City á Swansea ekki í neinar sérstakar merkisbækur. Ferguson borubrattur Það vakti töluverða athygli fyrir helgina þegar Alex Ferguson lýsti yfir að hann liti ekki á Arsenal né Tottenham sem keppinauta um bikarinn þessa leiktíðina. Það byggði karlinn á gengi þessara fé- lagsliða hingað til á leiktíðinni en hann hefur nú áður gert lítið úr möguleikum liða á borð við Arsenal aðeins til að kyngja þeim ummælum síðar meir. Fergu- son sagði hins vegar að barátt- an nú stæði milli United, City og Chelsea og hann ætti því að vera í sjöunda himni með frábæran úti- sigur sinna manna í bráðfjörug- um leik þar sem áhorfendur fengu skemmtun fyrir allan peninginn. Vakti sérstaka athygli að Ferguson notaði ekki sama leikkerfi og hann hefur látið lið sitt nota undanfarið heldur notaði vængmenn og leyfði sínum mönnum að flakka frjáls- legar um völlinn. Það tókst sérdeil- is vel og sérstaklega voru þeir And- erson og Ashley Young frískir og skeinuhættir. Persie að finna sig Robin van Persie er að finna sig betur og betur undir stjórn Fergu- son og með vaxandi sjálfstrausti koma fleiri mörk. Það var í raun hann sem átti tvö marka United gegn Chelsea en það var skot hans í stöng sem svo endaði í varnar- manni Chelsea, David Luiz, og þaðan í markið og kom hann þannig Manchester United yfir strax á fjórðu mínútu. Leikmenn Chelsea höfðu vart náð sér eftir þá hörmungarbyrjun þegar Persie var búinn að skora annað mark á tólftu mínútu eftir fínan sprett og fyrirgjöf Valencia. Ár og dagur er síðan Chelsea hefur verið tveim- ur mörkum undir á heimavelli eftir tólf mínútur. Eflast við mótlæti Það mega leikmenn Chelsea eiga að þeir leggja ekki árar í bát þrátt fyrir dapra byrjun. Þeir bláklæddu sem voru bæði án Franks Lampard og John Terry sóttu stíft fram á við og nokkrum sinnum gátu leik- menn United þakkað markverði sínum fyrir frábæra markvörslu. Hann réð þó ekki við aukaspyrnu Juan Mata rétt utan vítateigs skömmu fyrir leikhlé. Minnkaði Spánverjinn þar muninn og tryggði að síðari hálfleikurinn var spenna frá a til ö. Hófst sá með lát- um af hálfu heimamanna og tíu mínútum síðar var staðan 2–2 eftir mark Brasilíumannsins Ramirez. Við tók enn meira fjör með hættu- legum tækifærum á báða bóga en halla fór undan fæti hjá heima- mönnum þegar þeir misstu tvo leikmenn út af með rauð spjöld á skömmum tíma. Með aðeins níu menn eftir að Ivanovic og Torres var vísað af velli náðu gestirnir völdunum og fimmtán mínútum fyrir leikslok skoraði Hernandez sigurmark United. Fæst orð hafa minnsta ábyrgð Þó Alex Ferguson hafi þegar af- skrifað bæði Tottenham og Arsenal sem raunverulega keppi- nauta um titilinn má velta fyrir sér hvort það hafi nú ekki verið helst til mikil fljótfærni. Tottenham er eftir útisigur gegn Southampton aðeins fimm stigum á eftir United og Arsenal sex stigum á eftir. Og nóg er eftir af leiktímabilinu. n n Æsispennandi umferð í ensku úrvalsdeildinni n United hirti þrjú stig á Brúnni Albert Örn Eyþórsson blaðamaður skrifar albert@dv.is Nú færist fjör í leikinn Sigurmark frá Mexíkó Þrjú stig United á heimavelli Chelsea verða æði mikilvæg þegar fram líða stundir. Yfir litlu að gleðjast Arséne Wenger stökk lítið bros á vör meðan hans menn áttu í bullandi vandræðum með að skora gegn QPR. Markahæstir í enska boltanum Sex mörk: Fimm mörk: Demba Ba Jermain Defoe Robin van Persie Edin Dzeko Miguel Michu Steven Fletcher

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.