Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2012, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2012, Side 3
Fréttir 3Mánudagur 26. nóvember 2012 Jósefína enn á ný með of marga hunda n Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja neitar að tala við DV É g stefni að því að leggja frum- varpið fram fyrir mánaðarmót. Þá er þetta tvíþætt sem fyrir mér vakir. Annars vegar stefni ég að því að setja fram frumvarp sem kveður á um stofnun Happdrættis- stofu sem verður ráðgefandi aðilinn og sinnir eftirlitsskyldu í þessari starf- semi sem veltir milljörðum og snert- ir líf og heilsu fólks. Jafnframt er gert ráð fyrir að setja bann við netspilun sem er að færast mjög í aukana en opna á þann kost að þeir sem reka þessa starfsemi hér á landi get boðið netspilun en þá undir mjög sterku eftirliti og ströngum reglum,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráð- herra. Hann hefur lengi barist fyrir því að settar verði auknar reglur um starf- semi tengda fjárhættuspili hérlend- is og hefur látið sig spilafíkn varða. Á næstu dögum mun Ögmundur leggja fram frumvarp er snýr að því að ganga frá breytingum á lögum um happdrætti sem eru í gildi og koma í veg fyrir ólöglega spilun á netinu auk þess að koma á virku eftirliti á mark- aðnum. Eftir áramót hyggst hann svo leggja fram annað frumvarp sem snýr að framtíðarfyrirkomulagi þessa málaflokks. Ráðgefandi aðili „Það er annað og stærra mál og ég sé það þannig fyrir mér að grundvallar- kerfisbreytingar eigi sér ekki stað í heljarstökki heldur kæmu þau lög til framkvæmdar að nokkrum árum liðnum þannig að okkur tækist að að- laga starfsemina nýju umhverfi. Allt þetta er ég að reyna að gera í góðri sátt og samvinnu við þá aðila sem hafa þessa starfsemi höndum núna,“ segir Ögmundur um frumvarpið sem hann hyggst leggja fram eftir áramót. Í fyrra frumvarpinu, sem lagt verð- ur fram á næstu dögum, er lagt til að stofnuð verði Happdrættisstofa og lagt bann við erlendum netspilum. Hlutverk Happ drættisstofunnar eigi að vera ráðgefandi ríkisvaldinu. „Þeir yrðu ráðgefandi aðili gagn- vart löggjafar- og fram- kvæmdarvaldinu. Myndu fylgjast með þessum mál- um á erlendri grundu og því sem er að gerast hér innanlands. Hjálpa okk- ur að smíða regluverk í kringum þessa starf- semi og síðan hafa með höndum einhvers kon- ar skipulagningu hvað varðar rannsóknir á þessu sviði og síðast en ekki síst forvarnarstarf. happdrættisstofa myndi ekki sinna því sjálf, heldur aðstoða við að beina fjármunum í réttan farveg.“ Varðandi erlendu netspilunina þá segist Ögmundur gera sér grein fyrir því að það verði aldrei hægt að koma algjörlega í veg fyrir hana en nauðsynlegt sé að hafa á henni höml- ur. „Það verður alltaf hægt að fara eitthvað framhjá þessu, það er alveg klárt mál. En ef við horfum til reynslu Norðmanna þá telja þeir að þessi leið skili verulegum árangri. Norðmenn hafa gert hvort tveggja, þeir hafa bannað netspilun og sett á laggirnar svona happdrættisstofu samsvarandi þeirri sem við stefnum að.“ Minningargreinar sýna alvarleikann Eins og fram hefur komið hefur Ög- mundur lengi viljað setja auknar hömlur á fjárhættuspil og málaflokk- urinn verið honum hugleikinn. Hann hefur látið sig spilafíkn varða. „Það er langt síðan ég byrjaði að spá í þetta. Ætli það hafi ekki bara verið einhvern tímann á síðustu árum síðustu aldar. Guðrún Helgadóttir alþingismaður hafði sinnt þessu málefni vel á þingi og þegar hún hvarf þaðan þá eigin- lega tók ég við boltanum. Þá fór fólk að hafa samband við mig sem var annað hvort háð þessu sjálft eða að- standendur. Ég kom á laggirnar hópi sem kom saman reglulega í viku hverri um nokkuð langt skeið. Þá kynntist ég mjög mörgu fólki sem að einhverju leyti tengdist þessu. Svo fór ég að sjá margar minningargreinar í blöðunum um þetta fólk sem mætti á fundina og þá fór að renna upp fyrir mér alvarleiki málsins. Og síðan hef ég ekki viljað gleyma þessu máli. Eitt það fyrsta sem ég gerði þegar ég kom inn í ráðuneyti dómsmála var að hreyfa þessum málum. Ég hef síð- an fengið ráðgefandi aðila til þess að hjálpa mér í þessu núna svona á síð- asta hlutanum og afraksturinn fer nú að birtast í þessum frumvörpum,“ segir Ögmundur. Útbreiddara vandamál Fáar rannsóknir hafa verið gerðar um spilafíkn sem slíka. Í DV í síðustu viku var fjallað um spilafíkn og þar sögðu nokkrir spilafíklar frá þeirra þrauta- göngu sem fíknin hefur lagt á þá. Samkvæmt rannsókn sem gerð var fyrir innanríkisráðuneytið og kynnt fyrr á þessu ári kemur fram að um 2,5 prósent þjóðarinnar eigi við þennan vanda að stríða. Ögmundur segist þó telja að vandamálið sé útbreiddara en tölur segja til um. „Það hefur alltaf verið mín kenning. Og með fullri virðingu fyrir öllum þeim prýðilegu fræðimönnum sem komið hafa að rannsókn á þessu sviði þá er þetta eitt af því sem fólk svarar ekki svo glatt spurningum um þegar það er spurt í könnun um hegðun sína fyrir framan spilakassa eða við netið á kvöldin og nóttunni. Þú gefur ekki hið rétta upp. Ég held það eigi við um æði marga,“ segir Ögmundur. Hann segir fíknina ekki fara í manngreinarálit. „Það er eitt af því sem ég hef kynnst í gegnum tíðina – því ég hef lengi haft áhuga á þessu málefni – það er hversu afar margt vel gert fólk verður þessari fíkn að bráð. Það á kannski við um svo margar fíknir að þeir sem búa yfir einhverjum miklum krafti missa sig út á brautir fíkna.“ Í sem mestri sátt Hann segist finna fyrir velvilja vegna þessara tillagna og vonast til að geta unnið þær í samstarfi við hagsmuna- aðila. „Eins og ég segi þá finn ég fyrir miklum velvilja inni í þessum geira. Það hafa allir mikinn skilning á því sem ég hef stundum sagt, svolítið óbilgjarn, að það séu til tvenns konar fíklar. Þeir sem spili og þeir sem njóti ágóðans, báðir háðir þessari starf- semi. En ég hef orðið var við það að það er rík ábyrgðarkennd hjá öllum sem að þessum málum koma. Og ég bind vonir við að við getum leyst þessi mál sem allra fyrst og í sem mestri sátt.“ n „Svo fór ég að sjá margar minningar- greinar í blöðunum um þetta fólk sem mætti á fundina og þá fór að renna upp fyrir mér alvar- leiki málsins. Viktoría Hermannsdóttir blaðamaður skrifar viktoria@dv.is 14. nóvember 2012 Vill setja hömlur á spilun Ögmundur hefur lengi látið sig spilafíkn varða. Hann vill setja auknar hömlur á fjárhættuspil og setur fram frumvarp þess efnis á næstu dögum. Vill setja bann Við netspilun n Ögmundur leggur fram frumvarp um stofnun Happdrættisstofu n 2,5% Íslendinga spilafíklar n Lét rífa hús sem var ónýtt vegna veggjatítlna n Ætlar að byggja Kínasafn Var með tugi hunda Jósefína var með 24 hunda og 4 ketti í 60 fermetra kjallaraíbúð sem hún leigir. J ósefína Þorbjörnsdóttir, íbúi í Reykjanesbæ, sem var bannað að eiga fleiri en tvo hunda eftir að 17 hundar í hennar eigu gerðu að- súg að konu í mars á síðasta ári, hefur samkvæmt heimildum DV fengið sér þriðja hundinn. Eins og DV hefur áður greint frá bjó Jósefína áður með 24 hunda og 4 ketti í 60 fermetra kjallaraíbúð sem hún leigði. Ítrekað hafði verið kvart- að undan dýrahaldi hennar til Heil- brigðiseftirlitsins. Það var ekki fyrr en 17 hundar, sem voru í eigu Jósefínu, gerðu aðsúg að konu og bitu að grip- ið var til aðgerða. Konan, Guðrún Sig- ríður Guðmundsdóttir, hlaut meðal annars sex bitsár aftan á hægra læri. Svo fór að 22 hundum var lógað en Jósefína fékk að halda tveimur. „Ég skil ekki hvers vegna hún fékk að halda tveimur hundum, hún er búin að brjóta allar reglur sem hægt er að brjóta í sambandi við hundahald og meðferð hunda. Ég veit ekki hvers vegna þessar reglur eru yfirhöfuð,“ segir Guðrún Sigríður. Hún óttast að Jósefína sé aftur farin að safna hund- um og að hundahaldið muni vinda upp á sig. Hún furðar sig á sofanda- hætti Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja sem hefur yfirumsjón með hunda- haldi í bænum. „Það er nú síst hægt að sakast við blessaða konuna, hún er náttúrulega bara veik. Það sem manni finnst alvarlegast í þessu er hvað yfir- völd eru sofandi yfir þessu og grípa ekki inn í. Maður spyr sig hvort þeir séu að bíða eftir að næsta atvik komi upp, af hverju er þetta ekki stoppað áður en þetta fer í einhverja vitleysu.“ Nágranni Jósefínu segist í sam- tali við DV hafa áhyggjur af því að hundunum muni fjölga enn meir. „Við hringdum um daginn í hunda- eftirlitið og erum búin að panta fund með bæjarstjóranum. Við nennum ekki að fara í gegnum þetta allt eins og við gerðum síðast. Eftirlitið ger- ir ekki neitt og maður skilur eigin- lega ekki hvað hundaeftirlitið er eig- inlega að gera hérna. Miðað við þessa reynslu af öllum þessum hundum þá höfum við ekkert með hundaeftirlit að gera, það væri hægt að spara þessi laun fyrir sveitarfélagið. Þetta var hálft tonn af gæludýrum sem var tekið af henni hérna 16. júní í sumar og brennt. Það er enginn dýravinur sem gerir svona, eða ég get ekki sé það.“ Þegar blaðamaður DV reyndi að fá viðbrögð símleiðis frá Magnúsi H. Guðjónssyni, framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, fékk hann þau svör frá konu hans að hann hefði ekki áhuga á ræða við DV. Þegar hann að lokum féllst á að ræða við blaðamann og var spurður hvort eftir- litið ætlaði að beita sér í máli Jósefínu svaraði hann: „No comment“. Ekki náðist í Jósefínu sjálfa við vinnslu fréttarinnar. hanna@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.