Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2012, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2012, Blaðsíða 15
Ég er „pjúra nördisti“ Ég var hrædd við Dísu Þórdís Elva Þorvaldsdóttir sökkvir sér ofan í hlutina. – DVKristín Steinsdóttir skrifar um Bjarna-Dísu. – DV Stjórnmál upp á líf og dauða Spurningin „Ég reyni að „varíera“ á ham- borgarastöðum s.s. á Búllunni eða Big Lebowski, þannig að maður sé ekki alltaf að borða það sama.“ Vésteinn Snæbjarnarson 24 ára hugbúnaðarsérfræðingur „Noodle Station.“ Arnaldur Smári Sigurðarson 19 ára nemi „Heima hjá mér.“ Guðbjörg Guðmundsdóttir 57 ára bókmenntafræðingur „Subway.“ Bragi Hilmarsson 18 ára vinnur á Subway. „Búllan.“ Ingibjörg Lilja 19 ára þjónn Hvar finnst þér best að borða í bænum? 1 Lét skera sig í framan í von um að fá vernd Vitni í máli Annþórs og Barkar lýsti því hvernig hann lét vini sína skera sig í framan með rifinni bjórdós til þess að fá vernd lögreglu gegn Berki. 2 Efaðist um eigin frjósemi Þórdís Elva Þorvaldsdóttir leikkona háði áralanga baráttu við sjúkdóminn endómetríósu, en varð loks barns- hafandi. 3 Umdeildustu prestar Íslands Þeir eru ófáir prestarnir sem vakið hafa athygli fyrir viðhorf sín eða gjörðir – DV tók saman lista en hann prýða meðal annarra séra Sigurður Helgi Guðjónsson og séra Geir Waage. 4 „Ég datt niður í depurð“ Kristján Jóhannsson stórsöngvari er fluttur aftur til Íslands en tími depurðar tók við þegar hann kom heim og reyndist ekki eins eftirsóttur og fyrrum. 5 Vöruð við því að skrifa um Bjarna-Dísu Kristín Steinsdóttir skrifaði bók um Bjarna-Dísu, eina skelfilegustu draugasögu Íslendinga. 6 Mælir alls ekki með lituðum glösum Stefán Guðjónsson fjallar um vín og vínmenningu á Íslandi á DV.is – hann mælir ekki með lituðum vínglösum. Mest lesið á DV.is Þ inghaldið það sem af er þessu hausti hefur stundum minnt á ógnarlangan framboðsfund þeirra sem langar til að halda áfram í því undarlega starfi sem það er að vera alþingismaður, kjörinn fulltrúi. Og fróðlegt verður að finna hvernig stemmingin verður á vinnustaðnum eftir þessa örlagahelgi í prófkjörum, forvölum eða uppstill­ ingum. Í mínum flokki, VG, vekur það helst athygli mína í Suðvesturkjör­ dæmi hversu nálægt hinn vinnu­ sami og vinsæli Ólafur Þór Gunnars­ son læknir komst því að velta úr fyrsta sæti Ögmundi innanríkisráðherra sem hertur er úr mörgum stríðum. Að­ eins 30 atkvæði skildu á milli þeirra og forðuðu ráðherranum frá því að tapa andlitinu, forystunni, þingsætinu og þar með allri von um annað kjörtímabil í ráðherrastól. En Ögmundur hélt velli og mín persónulega skoðun er sú að framhaldslíf sitt í pólitík eigi hann ekki síst kínverska ljóðskáldinu Nubo að þakka og einarðri afstöðu sinni gagn­ vart kínverskri aðstöðugirnd á Íslandi. Í annan stað kom í ljós að vinstri­ grænir í Reykjavík eru ekki snoknir fyrir því að utanbæjarmenn setjist að á mölinni eða komist þar til áhrifa, þrátt fyrir að gegnum tíðina hafi dreifbýlið tekið margan Reykvíkinginn upp á sína arma og skotið undir hann þingsæti og jafnvel ráðherrastól. Ólafsfirðingurinn, Björn Valur Gíslason, aflaskipstjóri og formaður fjárlaganefndar fékk ekki góð­ an byr í forvali þar sem stjórnmáladív­ urnar Katrín og Svandís eru ósnertan­ legar og kjarnakonan Álfheiður vann þriðja sætið. Árni Þór gerði það gott með að ná fjórða sætinu sem mér finnst ganga kraftaverki næst í flokki þar sem pólitískur rétttrúnaður skilgreinir feðra­ veldið sem sinn höfuðóvin næst á eftir íhaldinu og Evrópusambandinu. Mismunandi tímar – mismunandi áherslur Það er varla við hæfi að ég tjái mig um baráttu um þingsæti hjá öðrum flokkum en á persónulegum nótum verð ég þó að segja að það gladdi mig að sjá að sjálfstæðismenn í Reykjavík meta vinnusemi og hreinlyndi Péturs Blöndal til þriðja sætis í Reykjavík. Enginn veit nákvæmlega hvað það er sem tryggir manni framgang í þeirri pólitísku fegurðarsamkeppni sem skipan framboðslista er. Mismunandi tímar kalla á mismunandi áherslur. Það er ekki auðvelt að greina í fljótu bragði hvað eða hvort eitthvað er sameiginlegt með því fólki sem lengst hefur náð í íslenskri pólitík á síðustu áratugum. Eru það persónutöfrar, hugsjóna­ eldur, hugmyndaauðgi, endur­ nýjunarkraftur, ræðusnilld, hlýja og ást á öllu sem lífsanda dregur sem eru mest áberandi einkennin í fari þess fólks sem er lífseigast í stjórnmálum? Eða er það útlitið? Breitt fjölmiðlabros og fannhvítur tanngarður? Allt þetta er gott og blessað sem veganesti fyrir þá sem vilja gerast at­ vinnumenn í stjórnmálum en það eru aðrir eiginleikar sem ráða úr­ slitum um hverjir fljóta og hverjir sökkva. Það virðist nokkuð ljóst að þeir sem ætla að gera stjórnmál að ævi­ starfi sínu skuli vera undir það bún­ ir að láta starfið ganga fyrir öllu öðru þannig að fjölskyldulíf og vináttu­ tengsl og öll önnur áhugamál verði að mæta afgangi og tilheyra stopulum tómstundum. Þrátt fyrir algjöra helgun og þá einsemd sem fylgir því að rækta hvorki fjölskyldu sína né vini þarf stjórnmálamaður engu að síður að virðast félagslyndur og úthverfur, hversu einrænn eða innhverfur sem hann/hún er að upplagi og vera til taks á kvöldin og um helgar og sitja málþing, ráðstefnur og fundi um hvers kyns málefni, skrifa greinar í blöð, koma sér í viðræðuþætti eða fréttatíma ljósvakamiðla og kunna að vekja á sér jákvæða athygli, jafnvel með því að sjást taka þátt í menn­ ingarlífi. Á náttborði ástríðumanns í stjórnmálum eru þó hvorki bækur eftir Arnald Indriðason ellegar Gyrði Elíasson heldur fjármálatíðindi, þing­ skjöl, greinargerðir, umsagnir og bunkar af skýrslum. Kenningar Darwins Atvinnumaður þarf að geta staðið af sér ósigra. Hún/hann þarf að þola stöðuga gagnrýni, jafnt sanngjarna sem ósanngjarna. Hún/hann þarf að vera reiðubúin(n) til þess á nóttu sem degi að tjá skoðun sína á hverju sem er, allt frá snjómokstri í Árneshreppi á Ströndum til stjórnmálaástands í Miðjarðarhafsbotnum. Og umfram allt má stjórnmála­ maður aldrei láta í ljósi efasemdir um eigin óskeikulleika ellegar rétt­ mæti skoðana sinna, og þar með eigin ágæti. Að þessu sögðu virðist mér að þeir eiginleikar sem mikilvægastir eru til langlífis í stjórnmálum séu ekki ósvip­ aðir þeim eiginleikum sem hafa gert þjóðinni kleift að þrauka frá kynslóð til kynslóðar með kostum sínum og göllum. Og kannski er ekki úr vegi að álykta að kjörnir fulltrúar í lýðræðis­ þjóðfélagi endurspegli þá eiginleika sem ráða vali meirihluta kjósenda. Að minnsta kosti ef maður trúir á kenningar Darwins um að hinir hæf­ ustu lifi af … Áfanga fagnað Nú styttist í lok haustannar skólanna og nemendur sitja margir hverjir sveittir við lestur fyrir próf um þessar mundir. Ljósmyndari DV rakst á þessa hressu uppá- klæddu nemendur úr Flensborgarskólanum í Hafnarfirði. Þeir voru að fagna útskrift sinni. MynD Sigtryggur AriMyndin Umræða 15Mánudagur 26. nóvember 2012 Mér þykir vænt um typpið Kynfræðingurinn Sigga Dögg segir stærð limsins ofmetna. – DV „Og umfram allt má stjórnmálamaður aldrei láta í ljósi efasemd- ir um eigin óskeikulleika ellegar réttmæti skoðana sinna, og þar með eigin ágæti. Kjallari Þráinn Bertelsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.