Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2012, Blaðsíða 12
12 Erlent 26. nóvember 2012 Mánudagur
Vígreifir Hamas-liðar
Fjölmörg mannslíf óbreyttra
borgara hafa farið í súginn í átökum
Ísraelsmanna og Hamas-liða.
Myndir reuters
Í
sraelsher og Hamas- samtökin
féllust á miðvikudaginn á
vopnahlé á Gaza-ströndinni.
Bardagarnir kostuðu að minnsta
kosti 160 mannslíf auk þess sem
margir særðust. Sex Ísraelar féllu en
aðrir fallnir voru Palestínumenn.
Með samkomulaginu átti að binda
endi á vikulöng átök á milli stríð-
andi fylkinga. Eða það var í það
minnsta markmiðið með samn-
ingnum.
Þrátt fyrir samkomulagið gáfu
Ísraelsmenn út að herinn væri
reiðubúinn í frekari átök ef vopna-
hléið yrði rofið. En hvað stendur í
þessu samkomulagi, sem er í fjór-
um liðum. Hér er það í íslenskri
þýðingu:
1 Ísraelar láti af öllum hernaðar-aðgerðum á Gaza-ströndinni
á sjó, á landi og úr lofti, þar á meðal
áhlaup og fyrirætlanir um að ráða til-
tekna einstaklinga af dögum.
2 Allir hópar Palestínumanna láti af öllum hernaðaraðgerðum
gegn Ísraelsmönnum, þar á meðal
eldflaugaárásum og árásum við
landamæri.
3 Landamæri Gaza-strandarinnar verða opnuð innan 24 tíma frá
því vopnahléið tekur gildi, bæði fyrir
fólk og varning.
4 Egyptum berist loforð frá báðum aðilum þess efnis að
samkomulagið verði virt og að þeir
muni rannsaka allar fregnir af því að
samkomulagið hafi verið brotið.
Myrtur eftir 40 mínútur
Vopnahléið hafði ekki staðið yfir
lengi þegar fyrstu fregnir af árás-
um í trássi við vopnahléið fóru að
berast. Fimmtán ára drengur var
myrtur 40 mínútum eftir að vopna-
hléið tók gildi, á óskilgreindu svæði.
Þá greindi Al Jazeera frá því á föstu-
dag að einn hafi verið myrtur og hafi
19 særst þegar ísraelskir hermann,
staðsettir á landamærum Ísraels og
palestínska bæjarins Khan Youn-
is, hófu skothríð á heimamenn.
Piltur hafði hætt sér nærri yfirráða-
svæði Ísraela en ekki er óhætt að
koma nærri landamærunum en 300
metra.
skutu á bændur
Fréttamaður Al Jazeera segir
að honum hafi borist margar
ábendingar um að bændur hafi
talið að 300 metra línan hafi ver-
ið afnumin og að þeim væri óhætt
að hlúa að uppskeru sinni. Fregnir
um að farartálmun hafi verið aflétt
hafi verið óljósar. Með skothríðinni
hafi Ísraelsmenn hins vegar vilj-
að koma þeim skilaboðum skýrt á
framfæri að 300 metra reglan gilti
ennþá. Flestir þeirra sem særðust
voru bændur en sonur eins þeirra
lét lífið, saklaus borgari eins og hin-
ir bændurnir. Hann var 21 árs, skot-
inn í höfuðið.
Grunnt á því góða
Tvennum sögum fer raunar af því
hvernig þetta atvikaðist. Reuters
greindi frá því að pilturinn hafi ver-
ið skotinn þegar hann reyndi að
koma fyrir Hamas-fána á girðingu
sem tilheyrði svæði Ísraelsmanna.
Hermenn hafi skotið þremur við-
vörunarskotum áður en þeir hófu
skotárásina.
Talsmaður ísraelska hersins leit
hins vegar þannig á málið að hóp-
ur Palestínumanna hafi ráðist að
landamærunum með það að mark-
miði að rífa hliðin niður. Þá frásögn
hafði Al Jazeera ekki fengið staðfesta
en ljóst er að grunnt er á því góða
á milli Palestínumanna og Ísraela.
Tortryggnin er allsráðandi. n
n Fjörutíu mínútur voru liðnar af vopnahléi þegar 15 ára drengur var myrtur
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Eg
yp
ta
la
nd
Fjarlægð
frá Gaza
Landamæri
Ashkelon
Ashdod
Kiryat Gat
SderotGaza-borg
Beersheba
Ofakim
Eshkol
Dimona
Kiryat
Malachi
Tel Aviv
Jerúsalem
Gaza
ströndin Ísrael
Vestur-
bakkinn
Vestur-
bakkinn
10 km
20 km
30 km
40 km
50 km
Eg
yp
ta
la
nd
Eg
yp
ta
la
nd
Eg
yp
ta
la
nd
Eg
t
l
d
E
t
l
d
l
d
HeiMild: Global security
Qassam-1
Qassam-2
Qassam-3
Grad
Qassam-4
WS-1E
Fajr-5
3–4,5 km
8–9,5 km
10–12 km
15–17 km
18–20 km
34–45 km
Hámarks drægni: 75 km
eldflaug
Eldflaugarnar á Gaza
Hamas-hreyfingin og aðrir öfgahópar á Gaza-ströndinni búa yfir
úrvali af eldflaugum sem þeir nota í baráttu sinni við Ísraelsmenn.
0.5 kg
5-9 kg
10-20kg
18kg
18-22kg
175kg
about
10kg
Þyngd
80cm
180 cm
200 cm
283 cm
294 cm
648.5 cm
244 cm
lengd
Gaza/
Vestur
bakkinn
Gaza/
Vestur
bakkinn
Gaza/
Vestur
bakkinn
Gaza/
Vestur
bakkinn
Íran/
Rússland
Kína
Íran
uppruni
Vígreifir
í Vopnahléi
Mikil eyðilegging Lífið fyrir botni Mið-
jarðarhafs er ekki dans á rósum um þessar
mundir. Það vita þessi feðgin.
fl rnar á Gaza
Ha fi in og aðrir öfgahópar á Gaza-ströndinni búa yfir
úrv l fl gu sem þeir nota í baráttu sinn við Ísraelsher.
HeiMild: Global security
Sjálfsvígsárás
við kirkjuna
Ellefu létust í sjálfsvígsárás á
kirkju í herbúðum Kaduna í Ní-
geríu. BBC hafði það eftir her-
foringja á svæðinu að rútu hefði
verið ekið að herbúðunum og á
kirkjuna þar sem hún sprakk. Tíu
mínútum síðar hefði bíll sprungið
í loft upp fyrir utan kirkjuna. „Fyrri
sprengingin olli engum meiðslum
en forvitnir vegfarendur söfnuð-
ust saman á svæðinu til þess að
skoða rústirnar … og þá sprakk
seinni sprengjan,“ sagði talsmað-
ur hersins. Vitni á svæðinu sagð-
ist hafa séð lík á vettvangi og fólk
borið burt á sjúkrabörum.
Að minnsta kosti fimmtíu féllu
í sprengjuárás í Kaduna í júní og
hefndaraðgerðunum sem fylgdu
í kjölfarið. Fyrir um mánuði dóu
sjö einstaklingur í sjálfsvígsárás á
kaþólska kirkju á svæðinu.
Kaduna er mitt á milli Suður-
Nígeríu þar sem flestir eru kristnir
og norðursins þar sem múslímar
eru í meirihluta. Ekki er vitað hver
stendur að baki árásinni en sam-
kvæmt upplýsingum BBC liggur
íslamski öfgahópurinn Boko
Haram undir grun, þar sem hann
hefur að undanförnu beint árás-
um sínum að kirkjum á svæðinu.
Hópurinn hefur það að markmiði
að steypa stjórninni og innleiða
öfgafullt form af íslömsku lögun-
um, sjaría. Á föstudaginn bauð
herinn peninga fyrir aðstoð við að
finna leiðtoga hópsins, Abubakar
Shekau, og aðra meðlimi hans.
Nakinn á styttu
í þrjá tíma
Nakinn maður sat uppi á nítjándu
aldar styttu í miðborg Lundúna
á laugardag, stillti sér upp fyrir
myndavélar vegfarenda og veifaði
í allar áttir á meðan lögreglumenn
reyndu að ná honum niður, að því
er Telegraph greinir frá. Lögreglan
lokaði einnig götum fyrir umferð
við Trafalgar-torg. Á einum tíma-
punkti stóð maðurinn reisulega
uppi á höfði styttunnar, sem er af
prinsinum George, fyrsta hertoga
af Cambridge, áður en hann settist
ofan á hausinn.
Eftir þriggja tíma samningavið-
ræður náði lögregla manninum
niður og ók með hann á brott, að
því er fram kemur í frétt BBC. „Ég
hló bara,“ sagði bandarískur ferða-
maður um atvikið og bætti við:
„Þetta er lífsreynsla.“
Eigandi bars í nágrenni við
styttuna var ekki eins glaður vegna
uppákomunnar. Hann sagðist
hafa tapað viðskiptum eftir að lög-
reglan lokaði götum í nágrenninu.
Þá sagðist hann ekki skilja hvers
vegna það þyrfti átta lögreglubíla,
tvo slökkviliðsbíla og fjóra lög-
reglumenn á hestbaki til þess að
ná „einum nöktum manni“ aftur
niður á jörðina. Yfirmaður lög-
reglunnar sagði hins vegar: „Við
svona aðstæður er öryggi almenn-
ings í forgangi.“