Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2012, Page 6
6 Fréttir 26. nóvember 2012 Mánudagur
Dagur gegn
kynbundnu
ofbeldi
Hildur Lilliendahl og Hanna Björg
Vilhjálmsdóttir leiddu Ljósa
göngu UN Women sem fram fór
um kvöldmatarleytið á sunnudag.
Gangan markaði upphaf sextán
daga átaks gegn kynbundnu of
beldi og var jafnframt síðasti
„Appelsínuguli dagurinn“ í ár.
Gengið var frá Alþingisgarðinum
að Bíó Paradís við Hverfisgötu. Þar
voru þær Hildur og Hanna Björg
heiðraðar fyrir framlag sitt til bar
áttunnar gegn kynbundnu ofbeldi.
Gangan fór fram á alþjóðadegi
Sameinuðu þjóðanna gegn kyn
bundnu ofbeldi. Að henni lokinni
var í Bíó Pardís sýnd verðlauna
myndin Tyrannosaur en myndin
er hluti af Reykjavík European
Film Festival (REFF). Allur ágóði
af myndinni rennur til UN Women
á Íslandi.
Kveikti í
útidyrahurð
Lögreglumaður slasaðist þegar
lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
var um hádegisbil á sunnudag
kölluð að húsi við Bríetartún, sem
áður hét Skúlagata. Í húsakynnum
Frímúrarareglunnar hafði bens
íni verið hellt á útihurð og eldur
lagður að. Sá sem grunaður er um
verknaðinn var enn á staðnum
þegar lögreglu bar að garði og var
umsvifalaust handtekinn. Hann
lét ófriðlega alla leið niður á stöð
og inn í fangaklefa. Einn lögreglu
maður slasaðist í þeim átökum.
Eldurinn sem maðurinn kveikti
var slökktur með handslökkvitæki
sem var innandyra. Hurðin ein
skemmdist við brunann. Mað
urinn var að sögn lögreglu undir
áhrifum vímugjafa. Ekki var unnt
að ræða við hann í því ástandi
sem hann var.
H
anna Birna Kristjánsdóttir
borgarfulltrúi í Reykja
vík kemur inn í landspóli
tíkina með látum. Hún
sigraði í prófkjöri sjálf
stæðismanna í Reykjavík með þó
nokkrum yfirburðum og hlaut um
það bil 74 prósent atkvæða í fyrsta
sætið. Hanna Birna hafði betur í
baráttunni við Illuga Gunnarsson,
þingflokksformann Sjálfstæðis
flokksins, sem einnig sóttist eftir
fyrsta sæti en hafnaði í öðru sæti.
Hanna Birna og Illugi munu því
leiða lista flokksins í Reykjavíkur
kjördæmunum tveimur. Athygli
vekur að Hanna Birna hlýtur mun
betri kosningu en Bjarni Benedikts
son, formaður flokksins, hlaut á
dögunum í prófkjöri í Suðvestur
kjördæmi. Ljóst er að staða for
mannsins er ekki sterk og hugsast
getur að Hanna Birna geri aðra at
lögu að formannsstólnum á kom
andi landsfundi Sjálfstæðisflokks
ins. Viðmælendur DV eru allir á
einu máli um að úrslit í prófkjörum
sjálfstæðismanna séu skýr krafa um
breytingar í flokknum.
Gæti velt Bjarna úr sessi
Hanna Birna tapaði naumlega
fyrir Bjarna í formannskjöri á síð
asta landsfundi Sjálfstæðisflokks
ins. „Ég held að hún eigi tvímæla
laust miklu meiri möguleika núna
en hún átti síðast. Við sjáum það
bara á úrslitum í prófkjörunum,
Bjarni stendur ekki sterkt en hún
fær svona rosalega afgerandi kosn
ingu í Reykjavík,“ segir Grétar Þór
Eyþórsson stjórnmálafræðiprófess
or um möguleika Hönnu Birnu á
formannsframboði. „Það er ekkert
launungarmál að það hefur verið
talað um Hönnu Birnu sem fram
tíðarformann í flokknum og sitj
andi formaður fór heldur laskaður
út úr sínu prófkjöri. Þetta eru mjög
skýr skilaboð.“
Þó er alls óvíst að Hanna Birna
hyggi á formannsframboð. „Svo er
annað mál hvort hægt er að túlka
þetta þannig að skipt verði um for
mann svona rétt fyrir kosningar, ég
sé það ekkert endilega þannig. Það
kæmi mér ekkert á óvart að hún
gæti orðið formaður ef hún býð
ur sig fram gegn Bjarna en hins
vegar er líklegt að hún verði hvött
til að bíða, meðal annars vegna
þess hvað landsfundurinn er ná
lægt kosningum.“ Sjálf hefur Hanna
Birna ekki tjáð sig um mögulegt for
mannsframboð en öruggt má telj
ast að fjölmargir sjálfstæðismenn
hvetji hana til framboðs. Einnig má
hafa í huga að sæti varaformanns
flokksins er laust.
Ákall um breytingar
Auk Hönnu Birnu hljóta Brynjar
Níelsson hæstaréttarlögmað
ur og Pétur H. Blöndal þingmað
ur að teljast til sigurvegarar próf
kjörsins í Reykjavík. Pétur hafnaði
í þriðja sæti þrátt fyrir að hafa rek
ið fyrir ferðarlitla kosningabaráttu
og Brynjar hafnaði í fjórða sæti sem
telst afar góður árangur fyrir ný
liða. Þar með skýtur Brynjar þing
mönnunum Guðlaugi Þór Þórðar
syni og Birgi Ármannssyni ref fyrir
rass. Pétur og Brynjar eru sammála
um að niðurstaðan endurspegli
vilja kjósenda til breytinga.
„Það er greinilegt að sjálfstæðis
menn í Reykjavík vilja sjá breytingar
á stjórn flokksins og flokknum.
Hanna Birna kemur þarna inn með
mjög afgerandi sigur, Brynjar kem
ur inn sem nýr maður sem ekki hef
ur verið í pólitík áður og svo fæ ég
þarna ágætis kosningu. Ég held að
það sé ákveðin krafa um að mín
sjónarmið hafi meiri áhrif innan
þingflokksins,“ segir Pétur sem hef
ur löngum farið sínar eigin leiðir
innan Sjálfstæðisflokksins. Brynjar
Níelsson tekur í sama streng. „Þetta
hefur þá þýðingu í mínum huga að
flokksmenn vilja einhverja endur
nýjun. Þetta er ákall um breytingar,
nú þurfa flokkarnir að fara að vinna
í því að auka traust fólks á þeim.“
Vissulega má túlka niðurstöður
prófkjörsins í Reykjavík sem ósk
eftir breytingum þó vert sé að
hafa í huga að í efstu sex sætum
kjörsins er Brynjar eini nýliðinn.
Í þessu samhengi hlýtur lakur ár
angur Guðlaugs Þórs Þórðarsonar
og Birgis Ármannssonar að vekja
athygli en þeir sóttust báðir eftir
öðru sæti og höfnuðu í fimmta og
sjötta sæti. Guðlaugur og Birgir
hafa báðir setið á þingi frá árinu
2003 auk þess sem sá fyrrnefndi
gegndi stöðu heilbrigðisráðherra
í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar.
Ein kona í efstu sex sætum
Í prófkjörum Sjálfstæðisflokks
ins gilda engar reglur sem ætlað
er að jafna hlut kynjanna. Hanna
Birna er eina konan í efstu sex sæt
um prófkjörsins í Reykjavík en þar á
eftir koma fjórar konur í sjöunda til
tíunda sæti. „Konur virðast ekki eiga
neitt sérstaklega auðvelt uppdráttar
í flokknum svona almennt séð þó við
verðum að halda því til haga að það
er kona sem hlýtur þarna afgerandi
kosningu,“ segir Grétar Þór.
Brynjar Níelsson hefur vakið
mikla athygli fyrir skrif sín um jafn
réttisbaráttu kvenna. Er hann ánæg
ur með hlut kvenna í prófkjöri helg
arinnar? „Já og nei. Það er nú kona
sem burstar þetta sem við getum
verið ánægðir með. Síðan eru þarna
fjórar konur í röð og mér sýnist að
minnsta kosti tvær þeirra eiga mjög
góðan möguleika á þingsæti þannig
það yrðu kannski þrjár konur af átta
sem er nú út af fyrir sig ágætis hlut
fall kvenna.“ Hann telur hlutfall
kvenna í stjórnmálum of lítið yfirleitt
en viðurkennir þó að vandinn hái
Sjálfstæðisflokknum öðrum fremur.
„Ég hef oft velt þessu fyrir mér. Ég
held að konur séu almennt vinstri
sinnaðri en karlar og þess vegna
er hlutfall þeirra kannski eitthvað
minna í Sjálfstæðisflokknum en í
öðrum flokkum.“
Ekki náðist í Hönnu Birnu Krist
jánsdóttur við vinnslu fréttarinnar. n
Stórsigur Hönnu
veikir stöðu Bjarna
n Úrslitin skýr krafa um breytingar n Aðeins ein kona í efstu sex sætum
Ólafur Kjaran Árnason
blaðamaður skrifar olafurk@dv.is
Sigurreifir Pétur H. Blöndal þingmaður og Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður voru á
meðal sigurvegara í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
„Ég held að hún
eigi tvímælalaust
miklu meiri möguleika
núna en hún átti síðast.
Hitnar undir Bjarna Borgarfulltrúinn
Hanna Birna Kristjánsdóttir vann stórsigur í
prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík. Ann-
að var uppi á teningnum hjá Bjarna Bene-
diktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins.