Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2012, Side 21
Sport 21Mánudagur 26. nóvember 2012
Púað á Wenger
n Luke Donald og Rory McIlroy mættust á lokadegi World Tour-meistaramótsins n Þolinmæðin gagnvart Arsene Wenger loks á þrotum
B
lað var brotið á laugardaginn
var þegar aðdáendur Arsenal
á útileik liðsins gegn Aston
Villa létu rigna köllum yfir
stjóra liðsins, hinn franska Arsene
Wenger. Var púað á karlinn fyr
ir að nota ekki þennan eða hinn
leikmanninn í döpru 0–0 jafntefli
og svo virðist sem næsta óendan
leg þolinmæði aðdáenda gagnvart
Wenger sé loks að bresta.
Einu gildir hvort menn eru harð
ir aðdáendur Arsenal eða ekki að
enginn getur með góðum rökum
mælt gegn því að Arsene Wenger
sé frábær þjálfari með sérdeilis gott
auga fyrir hæfileikum.
Enginn getur heldur með rökum
haldið því fram að Wenger hafi ekki
staðið sig frábærlega í starfi hjá
Arsenal. Undir hans stjórn hefur
liðið jú unnið þrjá deildartitla, fjóra
bikarmeistaratitla og enska Góð
gerðaskjöldinn fjórum sinnum auk
þess að koma liðinu í úrslit í Meist
aradeild Evrópu. Þá hefur Wen
ger tólf sinnum verið valinn fram
kvæmdastjóri mánaðarins og eftir
sextán ár í starfi hjá Arsenal er vinn
ingshlutfall hans með liðið rétt um
57 prósent.
Heldur verður ekki litið framhjá
því hversu slyngur hann er að upp
götva frábæra leikmenn og fer að
sama skapi tiltölulega vel með pen
inga félags síns.
En allt þetta breytir ekki þeirri
staðreynd að átta ár eru síðan
Arsenal hampaði deildarmeistara
titlinum og langlundargeð stuðn
ingsmanna fer hratt minnkandi.
Slæm byrjun liðsins nú hefur lítið
hjálpað og liðið er nú tíu
stigum á eftir efstu lið
um þegar þetta er skrifað.
Sagan sýnir að ekki er hlaup
ið að því að vinna upp slíkt
forskot en til þess þarf Arsenal
að minnsta kosti að vinna sigur
gegn botnliðum deildarinnar. n
Arsene Wenger Hefur staðið sig
vel með Arsenal í gegnum tíðina, en
nú örlar á óþolinmæði hjá stuðnings-
mönnum Skyttnanna.
H
ann sá alltaf fyrir sér að
ljúka glæstum og við
burðaríkum ferli sínum í
Los Angeles. Þar ætluðu
hann, kona hans og börn
að koma sér vel fyrir meðal annarra
ríkra og frægra og njóta þess sem eft
ir væri. En ekki fyrr var David Beck
ham búinn að leika sinn síðasta leik
fyrir LA Galaxy en hann sagðist al
veg eiga eins og eitt ár eftir.
Með grasið í skónum á eftir
kappanum
Fjöldi félagsliða víða í heim
inum hefur borið víurnar í
Beckham síðustu dægrin eða
síðan hann sjálfur gaf grænt
ljós á þann möguleika að
hann væri nú kannski ekki
búinn að fá nóg af því að
spila fótbolta. Samningur
hans við LA Galaxy rennur
út í lok ársins en leiktíðinni
með liðinu er þó þegar lokið.
Umsvifalaust birtu
st fregnir af áhuga fjölda
liða og mörg þeirra buðu gull
og græna skóga. Lengst gekk
sennilega knattspyrnuliðið Mel
bourne Heart frá Ástralíu sem
vildi fá Beckham sem spilandi
þjálfara og vildi bjóða ofurlaun og
fría lúxusíbúð fyrir alla fjölskylduna
auk annars.
Sömuleiðis var Harry Redknapp
ekki fyrr ráðinn nýr þjálfari Queens
Park Rangers í ensku úrvals
deildinni en hann lýsti yfir miklum
áhuga að fá Beckham og taldi sig án
gríns geta talið stórstirnið á að enda
jafnvel ferilinn hjá QPR.
Einu sögusagnirnar sem Beck
ham sjálfur hefur tjáð sig um
persónulega varða hugsanlegt starf
sem yfirmaður knattspyrnumála
hjá bandaríska liðinu New York
Cosmos. Þar yrði hann jafnframt
spilandi eitt ár eða fleiri en þar er
þegar við stjórnvölinn gamall fé
lagi Beckhams frá hans bestu árum
með Manchester United; Frakkinn
Eric Cantona. Sjálfur vill Cantona
ólmur fá Beckham til liðs við félagið
og eigendur þess eru efnaðir og með
stóra drauma.
Beckham hefur ekki útilokað
neitt opinberlega varðandi Cosmos
þó ekki liggi fyrir hvort um raun
verulegt tilboð er að ræða. Ólíklegt
verður hins vegar að telja að hann
sprikli mikið fyrir Harry Redknapp
hjá QPR.
Of seint að hætta á toppnum
David Beckham virðist eiga erfitt
með að slíta sig frá boltanum þó
hann sé 37 ára orðinn. Spekingar
eru flestir sammála um að kappinn
eigi enn nóg inni til að spila með
betri liðum í betri deildum heims
en þá gleyma þeir því að ein stór
ástæða fyrir því að Beckham fór til
LA Galaxy á sínum tíma var stutt
keppnistímabil svo hann gæti líka
eytt tíma sínum í viðskipti.
Beckham er fyrir löngu orðinn
milljarðamæringur og viðskipta
veldi hans vex hröðum skrefum.
Finnst nafn hans á öllu frá nær
buxum og tannkremi og upp í gull
og glingur.
Hann þarf því ekki að gera
nokkurn skapaðan hlut það sem
eftir er ævinnar ef hann svo kýs
en efalítið yrði hann ekki fúll við
að spila eins og nokkra leiki aft
ur í ensku úrvalsdeildinni áður en
sparkskórnir fara af í allra síðasta
skipti og hefðbundinn bumbubolti
með félögunum tekur við. n
Beckham leggur
skó á hillu … og þó
n Ekki alveg viss í hvorn fótinn hann á að stíga n Margir sýna áhuga
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar albert@dv.is
Tölfræði (leikir – mörk)
n Manchester United 394/85
n Real Madrid 155/20
n Los Angeles Galaxy 116/20
n AC Milan 33/2
n Enska landsliðið 115/17
David Robert
Joseph Beckham
Endar knattspyrnu-
goðið David Beckham
hjá Queens Park
Rangers eða þiggur
hann fúlgur fjár í
Arabalöndum, Ástral-
íu eða annars staðar?
Reynir PSG
við Ronaldo
Orðrómur þess efnis að forráða
menn PSG íhugi risatilboð í Ron
aldo fær sífellt meiri byr undir
vængi í Frakklandi ef marka má
frönsk blöð. Fullyrt er að tilboð
upp á rúma 20 milljarða króna sé
í farvatninu. En hafa verður í huga
að eyðsluseggirnir í PSG eru sagð
ir hafa áhuga á öðrum hverjum
knattspyrnumanni þessa dagana.
O‘Neill
fer ekkert
Eigendur Sunderland hafa fulla
trú á þjálfaranum Martin O´Neill
þrátt fyrir slæmt tap liðsins um
helgina gegn WBA en Sunderland
er nú nálægt botninum með tólf
stig eftir tólf leiki í ensku úrvals
deildinni. Aðspurðir um framtíð
O´Neill kom skýrt fram að hann
verður áfram með liðið sem hef
ur gert sæmilega hluti með tilliti
til þess að lítið er um peninga og
leikmannahópurinn er ekki sá
ferskasti í boltanum. Sjálfur hefur
O´Neill boðist til að hætta sé vilji
til þess.
Jafnar sig
eftir meiðsli
Spænski tenniskappinn Rafael
Nadal er að jafna sig eftir hné
meiðsli, en hann hefur ekki keppt
síðan hann tapaði gegn Tékkanum
Lukas Rosol á Wimbledonleik
unum í sumar. Stefnir hinn 26 ára
Nadal að því að komast í form fyr
ir Opna ástralska mótið í janúar.
„Fyrsta æfingin eftir allar þessar
vikur. Mér fer batnandi og vona að
þetta haldi áfram á jákvæðum nót
um,“ sagði Nadal um málið.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
að Nadal, sem er talinn vera fjórði
besti tennisleikari heims, þarf
að glíma við eymsli í hné – hann
þurfti að sitja hjá á Ólympíuleik
unum og á Opna bandaríska
mótinu vegna rifinnar sinar.