Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2012, Qupperneq 23
Sonurinn samdi viðlagið
Fólk 23Mánudagur 26. nóvember 2012
Tveir Íslendingar á Scala
n Tómas Tómasson og Bjarni Thor Kristinsson í Mílanó
T
ómas Tómasson, barítón-
söngvari, heldur áfram að gera
garðinn frægan en síðasta
sumar söng hann fyrstur Ís-
lendinga aðalhlutverk á óperuhátíð-
inni í Bayreuth. Í desember mun hann
þreyta frumraun sína við Scala-óper-
una í Mílano og mun syngja hlutverk
Friedrich von Telramund í nýrri upp-
færslu sem á að vera opnunaratriði
sýningarársins 2012–2013 á La Scala.
Frumsýningin verður þann 7. des-
ember. Daniel Barenboim stjórnar og
Martin Kusej mun leikstýra.
Það er Íslandsvinurinn frægi Jonas
Kaufmann sem syngur titilhlutverkið
í uppfærslunni á Scala af óperunni
Lohengrin eftir Richard Wagner en
önnur hlutverk syngja Anja Harteros
(Elsa), Evelyn Herlitzius (Ortrud)Rene
Pape (Hinrik konungur) og Zeljko
Lucic (Heerrufer).
Tómas hefur gefið upp að
framundan séu jafnvel fleiri verk-
efni með Barenboim og hann bíður
þess spenntur að sjá hver þau verk-
efni verða. Ljóst er að fleiri leikhús og
stjórnendur munu líta til Tómasar eftir
að hann hefur stigið fæti á Scala.
Óperusöngvarinn Bjarni Thor
Kristinsson er einnig í Mílanó og hver
veit nema hann stígi líka á svið en
hann söng í forföllum á æfingu um
daginn. „Í forföllum veiks kollega söng
ég Lohengrin í 6 klst í dag. Sérstak-
lega var nú gaman að syngja þriðja
þátt með hljómsveit og kór og auðvit-
að Kaufmann og Harteros. Tómas var
ekki með enda er hans persóna dauð í
þriðja þætti,“ sagði Bjarni.
Kristinn Sigmundsson óperu-
söngvari leggur orð í belg á Face-
book-síðu Bjarna Thor og segir söguna
endurtaka sig. „Þú gerir þér vænt-
anlega grein fyrir því að sagan er að
endurtaka sig. Fyrir 15 árum voru tveir
aðrir íslenskir söngvarar á Scala,“ seg-
ir Kristinn, en það voru hann sjálfur og
Guðjón Óskarsson. n
n Guðmundur Ingi Þorvaldsson samdi jólalag með 18 mánaða syni sínum
H
ann hafði raulað þetta stef
í allt sumar. Hugmyndin er
því komin frá honum,“ seg-
ir leikarinn og tónlistar-
maðurinn Guðmundur Ingi
Þorvaldsson úr hljómsveitinni Loft-
skeytamönnum en sveitin hefur sent
frá sér jólalagið Ég held heim um
jólin. Lag og texti er eftir þá feðga
Guðmund Inga og Aðalstein Inga
Guðmundsson sem var 18 mánaða
þegar hann fór að raula viðlagið síð-
asta sumar og kveikti þannig hug-
myndina að laginu.
„Þetta stef, hahahóhóhó, er al-
veg ekta jóla og mér datt jólalag strax
í hug þegar ég heyrði hann syngja
þetta. Ég reyndi að syngja með og
taka undir en honum fannst pabbi
sinn ekki gera þetta rétt,“ segir Guð-
mundur Ingi brosandi og játar að
sonurinn sé tónelskur. „Alveg rosa-
lega. Hann er ekki orðinn tveggja ára
en kann öll lög. Strax og hann byrjaði
í leikskóla fór hann að syngja mikið.
Hann kann til dæmis öll þrjú versin
í Sofðu unga ástin mín. Við syngj-
um líka mikið saman. Það er mikið
sungið á okkar heimili, spilað á gít-
ar og píanó. Alveg ofsalega gaman,“
segir Guðmundur Ingi en Aðalsteinn
Ingi er hans fyrsta barn. Hann segir
of snemmt að segja til um hvort sá
stutti muni feta leiklistarveginn eða
tónveginn líkt og pabbinn. „Miðað
við það sem er í gangi í dag held ég
að hann verði keyrandi traktora og
það helst með ámoksturstæki fram-
an á. Það er það flottasta sem hann
veit um svo líklega er of snemmt að
segja til um framtíðina.“
Hljómsveitin Loftskeytamenn
stefnir á að gefa út plötu með vorinu.
„Planið er að gera þetta bara í róleg-
heitum og vanda okkur og umfram
allt að hafa gaman af. Platan verður
eflaust full af einlægni og gleði. Það
er engin pressa á okkur. Þetta er
þriðja lagið sem við gefum út en okk-
ar fyrsta jólalag,“ segir hann en bæt-
ir við að ekki sé von á öðru jólalagi í
bráð. „Það er alveg nóg að gefa út eitt
jólalag á ári. Lagið er komið á netið
og vonandi hafa útvarpsstöðvarnar
áhuga á að spila það eftir 1. des-
ember,“ segir hann en lagið er leik-
ið og útsett af Loftskeytamönnum
sem fengu meðal annars hjálp frá
Rebekku Bryndísi Björnsdóttur úr
Hjaltalín við flutninginn.
Guðmundur Ingi viðurkennir að
hann sé mikið jólabarn. „Fyrir mér
eru jólin fjölskyldutími. Ég er úr sveit
og kem frá samheldinni fjölskyldu.
Jólin voru alltaf góður tími. Við höfð-
um aðgang að sundlaug og íþrótta-
húsi og spiluðum mikið á spil. Ég á
því margar góðar minningar tengdar
jólunum. Hins vegar verð ég ekkert
stressaður um jólin. Finnst ég ekki
þurfa að kaupa eitthvað, fá eitthvað
eða fara eitthvert. Ég hlakka bara
mest til að fara í sveitina með fjöl-
skyldunni.“ n
indiana@dv.is
Hugleikur og
góða hjartað
Pistillinn Já, ég er fín fyrirmynd,
eftir listamanninn Hugleik Dags-
son hefur vakið mikla athygli og
verið deilt af áfergju af femínist-
um. Hugleikur, sem er harður
femínisti, talar um muninn á
þeim sem geta gert grín að sam-
borgurum sínum og svo hin-
um sem hann kallar „douchbag“.
Hugleikur viðurkennir að grínið
hans geti verið ansi „núansað“
og ruglingslegt. Hann segir enn
fremur að það sé reyndar ótrúlegt
að hann skuli komast upp með
margt af því en útskýrir það með
því að það sé vegna þess að hann
sé „með hjartað á tiltölulega rétt-
um stað“
n Skorinn Sölvi skrifar um Jón Pál
Í dúndurformi
F
jölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason, sem
er þessa dagana að skrifa bók um krafta-
jötuninn Jón Pál Sigmarsson, notar tímann
meðfram skrifunum vel og hefur kom-
ið sér í dúndurform. Einkaþjálfari Sölva er að
vonum ánægður með árangurinn og hendir inn
„fyrir“ og „eftir“ myndum af kappanum á vefinn
en Sölvi skartar flottum „sixpack“ á þeirri síðari
sem er tekin af engum öðrum en stjörnuljós-
myndaranum Arnold Björnsson. Af myndunum
að dæma mætti halda að stífar æfingar fari illa
með bringuhár. En það er önnur saga.
„Fyrir mér
eru jólin
fjölskyldutími
Á von á stelpu
Meistarakokkurinn, sjónvarps-
konan og veitingahúsaeigand-
inn með langa nafnið, Hrefna
Rósa Sætran Jóhannsdóttir, á
von á stúlkubarni. Hrefna Rósa
og sambýlismaður hennar, ljós-
myndarinn Björn Árnason, eiga
fyrir soninn Bertram Skugga sem
fæddist 11. september 2011 og
er því nýorðinn eins árs. Bertram
Skuggi var skírður í höfuðið á
langafa Hrefnu Rósu sem hét
Bertram og uppáhaldskisunnar
hennar sem hét Skuggi.
Varakóngur Bassanum Bjarna Thor
bauðst óvænt að vera staðgengill Rene
Pape í hlutverki Hinriks konungs í Lohengrin.
Á æfingu Tómas Tómasson og stórtenórinn
Jonas Kaufmann á æfingu fyrir Lohengrin.