Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2011, Qupperneq 25
Sport | 25Mánudagur 11. júlí 2011
Rory-vikan að hefjast
O
pna breska meistaramótið í
golfi hefst á fimmtudaginn á
Royal St. George‘s-vellinum
á Englandi. Kylfingarnir eru
allir mættir til leiks og farnir að æfa
sig. Vikan og mótið munu snúast um
aðeins einn mann, Norður-Írann
unga Rory McIlroy, sem á dögunum
vann opna bandaríska meistaramót-
ið.
Rory er nýjasta ofurstjarnan í golf-
inu en hann er aðeins 22 ára gamall.
Eftir sigur hans á opna bandaríska
sagði Graham McDowell, samlandi
hans og meistari opna bandaríska í
fyrra: „Rory er besti kylfingur sem ég
hef séð.“
Ekki er lengur talað um Tiger
Woods en hann er á hraðri niður-
leið og mun ekki einu sinni taka þátt
í opna breska að þessu sinni en það
mót hefur hann unnið þrisvar sinn-
um.
Golfspekingar hafa margir hverj-
ir áhyggjur af þeirri ótrúlegu pressu
sem Rory verður undir á mótinu
en fyrr á árinu þegar hann var með
örugga forystu á Masters-mótinu
koðnaði hann niður og gaf frá sér
sigurinn. Spilamennska hans á opna
bandaríska um daginn sýndi þó að
hann virðist tilbúinn.
„Þetta verður enginn smáfjöl-
miðlasirkus þannig að hann verð-
ur að passa sig,“ segir reynslubolt-
inn Colin Montgomerie sem stýrði
Ryder-liði Evrópu til sigurs síðast en
í því liði var einmitt hinn ungi Rory
McIlroy.
„Í Rydernum sá ég hversu magn-
aður þessi drengur er. Það sem gerð-
ist á Masters-mótinu hefði getað
komið fyrir hvern sem er. Núna er
hann tilbúnari og klárlega sigur-
stranglegastur. Hann er alinn upp á
Norður-Írlandi og kann því strand-
vellina alveg upp á hár. Hann gæti
jafnvel verið betri hér en á opna
bandaríska. Ég vona þó að þannig
verði það ekki. því þá verður engin
spenna.“
tomas@dv.is
Wenger vill
Mertesacker
n Þýski landsliðsmiðvörðurinn Per
Mertesacker er aftur kominn undir
smásjá Arsenal en litlu munaði
að hann gengi
í raðir liðsins í
janúar. Þá ákvað
hann frekar að
vera áfram hjá
Werder Bremen.
Hann á aðeins
eitt ár eftir af
samningi sínum
þar og eru mörg
lið farin að bera víurnar í hann.
Talið er að Brimarborgarar myndu
sætta sig við tilboð upp á 7 milljónir
punda fyrir þennan 26 ára gamla
miðvörð og er það verð sem Arsene
Wenger á að tíma að borga sam-
kvæmt breskum blöðum.
Risasamningur
við Hamburger
n Joe Cole gæti verið á förum frá
Liverpool eftir skelfilegt fyrsta ár á
Anfield. Þýska liðið Hamburger SV
hefur mikinn
áhuga á að
landa Cole en
nýi knattspyrnu-
stjórinn þar er
Frank Arnesen
sem var lengi hjá
Chelsea á sama
tíma og Cole.
Hamburger er
til í að greiða Cole 90.000 pund á
viku samþykki hann að spila í þýsku
úrvalsdeildinni á næsta ári. Einnig
er Hamburger tilbúið til að skoða
lánssamning vilji Liverpool ekki
láta Cole fara.
Bíðið aðeins
n Sögufrægasti kylfingur heims,
Jack Nicklaus, vill aðeins bíða með
að titla Norður-Írann unga Rory
McIlroy næstu
ofurstjörnu í
golfi. Þessi ungi
piltur kom, sá og
sigraði á opna
bandaríska á
dögunum og
vann það með
fáheyrðum
yfirburðum.
„McIlroy á eftir að vinna fullt af
stórmótum en við skulum nú ekki
gera hann að einhverjum krónprinsi
alveg strax,“ segir Nicklaus sem á
sínum tíma vann átján risamót.
Ekki hætta
n „Það er aðeins of snemmt fyrir
hann að hætta,“ segir hnefaleika-
kappinn Ricky Hatton um kollega sinn
David Haye sem á
dögunum tapaði
illa fyrir Wladimir
Klitschko. Hatton
vill að Haye reyni
að sameina beltin
í þungavigtinni
og byrji á því að
taka einn bardaga
til viðbótar, gegn
bróður Wladimirs, Vitali. „Það væri
gaman fyrir Haye að skjóta sér upp
á stjörnuhimininn almennilega.
Hann þarf að hætta við að hætta og
fá annan bardaga gegn Wladimir eða
Vitali.“
Hlæja alla leið
í bankann
n Rauði hluti Manchester-borgar
hlær dátt þessa dagana eftir að ná-
grannar þeirra í City tilkynntu nýja
heitið á borgarvellinum í Manchest-
er, heimavelli
sínum. Hann
heitir nú Etihad-
völlurinn en á
arabísku þýðir
Etihad United.
Það verða þó
væntanlega
City-menn sem
hlæja alla leið
í bankann þar sem þessi tíu ára
samningur sem City gerði við Etihad
tryggir liðinu 100 milljónir punda.
Molar
n Manchester United seldi tvo varnarmenn til Sunderland n Gamlir
leikmenn United hafa keypt fyrir tæpar 20 milljónir punda af félaginu
T
öluverðar hreyfingar hafa
verið á leikmannamál-
um Manchester United á
keppnistímabilinu en nú
þegar hefur félagið keypt
þrjá leikmenn fyrir meira en fimm-
tíu milljónir punda. Og er Fergu-
son ekki búinn enn því það vant-
ar miðjumann í púslið og er Samir
Nasri þar líklegur.
Á móti eru farnir frá Old Trafford
tveir varnarmenn sem lengi hafa
verið hluti af sigursælu liði United,
þeir Wes Brown og John O'Shea, en
gengið var frá félagaskiptum þeirra
til Sunderland í síðustu viku.
Brown og O'Shea eru ekki einu
leikmennirnir sem hafa farið frá
United til Sunderland. Þegar Roy
Keane, fyrrverandi leikmaður Man-
chester United, var þar við stjórn-
völinn fékk hann til liðsins bæði
vængmanninn Kieran Richards son
og bakvörðinn Phil Bardsley sem
áttu enga leið inn í lið United.
Eftir að annar fyrrverandi leik-
maður United, Steve Bruce, tók við
Sunderland hefur hann fengið til
liðsins framherjann Fraizer Camp-
bell og einnig fékk hann Danny
Welbeck á láni í fyrra.
Þessir tveir fyrrverandi leik-
menn Manchester United hafa því
nú þegar borgað sínu fyrrverandi
félagi rétt tæpar tuttugu milljónir
punda, eða sem nemur 3,5 millj-
örðum króna, fyrir leikmenn sem
ekki komust í liðið á Old Trafford.
Og svo gæti farið að sjötti leik-
maðurinn bætist við en upphaflega
bauð Sunderland einnig í miðju-
manninn Darron Gibson og er ekki
loku fyrir það skotið að hann gangi
einnig í raðir Sunderland.
Richardsson og Bardsley hafa
báðir notið sín hjá Sunderland
og náðu þar virkilega að lífga fer-
il sinn við. Það er því vonandi fyrir
Wes Brown, sem hefur verið mikið
meiddur, að endurvinnslan í Sun-
derland hjálpi honum að koma
ferlinum aftur af stað.
Keypt af United
fyrir 3,5 milljarða
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
Wes Brown
743 milljónir króna
John O‘Shea
743 milljónir króna
Phil Bardsley
371 milljónir króna
Fraizer Campbell
650 milljónir króna
Kieran Richardson
1 milljarður króna
„Þessir tveir fyrr-
verandi leikmenn
Manchester United hafa
því nú þegar borgað sínu
fyrrverandi félagi rétt
tæpar tuttugu milljónir
punda.
n Allra augu á Rory McIlroy á opna breska meistaramótinu
Skærasta stjarnan
Rory McIlroy verður í sviðsljósinu.
MyND ReUteRS
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is