Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2011, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2011, Síða 3
Fréttir | 3Miðvikudagur 31. ágúst 2011 S pár sem gerðar voru við upphaf samstarfs Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins (AGS) hafa ekki gengið að fullu eftir. Gengi íslensku krónunnar er enn á svipuðum slóð- um og það var síðla árs 2008 þegar upphaflega áætlun Íslands og AGS var samþykkt. Eitt af markmið- unum með samstarfinu við sjóð- inn var einmitt að tryggja stöðug- leika í gengismálum og var gert ráð fyrir því að gengið myndi styrkj- ast á tímabilinu. Þá eru gjaldeyris- höft enn víðtæk og og sumu leyti strangari en gert var ráð fyrir í upp- hafi áætlunarinnar. Þetta kemur fram í Morgunkornum greiningar Íslandsbanka sem tekur saman ár- angurinn af starfinu og efndir. Fjár- lagahalli er minni en ráðgert hafði verið en hins vegar er mælist at- vinnuleysi meira og hagvöxtur hef- ur verið minni en gert hafði verið ráð fyrir. Minni halli Markmiðið með samstarfinu varið AGS var þríþætt. Í fyrsta lagi að koma í veg fyrir frekara gengisfall krónunn- ar og koma á stöðugleika í gengis- málum. Í öðru lagi átti að tryggja sjálfbærni ríkisfjármála til meðal- langs tíma og í þriðja lagi að endur- reisa fjármálakerfi landsins sem var í molum eftir hrunið í október 2008. Greining Íslandsbanka telur að tvö af þremur stóru markmiðunum hafa í stórum dráttum náðst. Í áætl- uninni var gert ráð fyrir að fjárlaga- halli yrði 7,3% á þessu ári en sam- kvæmt fjárlögum er hann umtalsvert lægri eða um 3%. Íslandsbanki tel- ur því að stjórnvöld geti með góðri samvisku fullyrt að aðlögun ríkisfjár- mála hafi gengið samkvæmt áætlun- inni. Stór þáttur í því hafi verið að endurreisn bankanna reyndist tals- vert ódýrari fyrir ríkið en upphaflega áætlun um hreinan kostnað upp á 55% af vergri landsframleiðslu gerði ráð fyrir. Þá var gert ráð fyrir því að Icesave-málið myndi kosta allt að 19% af landsframleiðslu, en engin niðurstaða er komin í málið því Ice- save fyrir dómstóla á næstu misser- um. Meira atvinnuleysi Bankinn telur að árangurinn af sam- starfinu hvað varðar stöðugleika krónunnar hafa verið blendari. Tek- ist hafi að koma í veg fyrir algjört hrun með umfangsmiklum gjaldeyrishöft- um og aðhaldssamri peningamála- stefnu. Hins vegar „eru gjaldeyrishöft enn víðtæk, og að sumu leyti strangari en þau voru við upphaf áætlunarinn- ar, þrátt fyrir að í henni hafi verið gert ráð fyrir að þau yrðu afnumin á áætl- unartímanum sem þá var reiknað með að yrði um tvö ár. Höftin koma í veg fyrir að þau kerfislægu vandamál sem enn eru í íslensku efnahagslífi endurspeglist af fullum þunga í efna- hagsframvindunni.“ AGS gerði ráð fyrir að í lok áætl- unarinnar yrði atvinnuleysi hér á landi um 5,4% en samkvæmt spá Seðlabanka Íslands er gert ráð fyr- ir 7,1% atvinnuleysi í ár. Hagvöxt- ur átti að vera farinn að taka við sér og spáði AGS 4,5% hagvexti. Í reynd er hann hins vegar um 3% á þessu ári. n Meira atvinnuleysi en AGS gerði ráð fyrir n Minni fjárlaga- halli n Spár um afnám gjaldeyrishafta gengur ekki eftir AGS spáði ekki rétt Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður skrifar valgeir@dv.is Gjaldeyrishöft Spá AGS: Gjaldeyrishöftin afnumin á áætlunartímabilinu Í reynd: Gjaldeyrishöft enn víðtæk Hagvöxtur 2011 Spá AGS: 4,5% Í reynd: 3% Atvinnuleysi 2011 Spá AGS: 5,4% Í reynd: 7,1% Fjárlagahalli 2011 Spá AGS: 7,3% Í reynd: 3% Höfuðstöðvar AGS á Íslandi Mikil mótmæli voru höfuðstöðvar AGS í fyrrasumar. Mynd Hörður SveinSSon hræðslu og að hann játaði að hafa reynt að breyta honum sér í hag hjá lögreglunni. „En ég sé að það gengur ekki,“ sagði hann svo. Ríkharð vildi meina að hann hefði ekki átt neinn þátt í árásinni. Hann viðurkenndi þó að hafa reiðst mannin- um vegna þeirra lyga sem hann hefði borið út. Aðspurður hvort hann hefði hótað manninum sagði hann: „Stór orð voru látin falla,“ en það hefðu þá verið hótanir um barsmíðar. „Hótan- irnar beindust ekki að fjölskyldu hans eða neitt þannig. Ég hef kannski sagt ég lem þig ef þú gerir þetta aftur, eða eitthvað svoleiðs.“ „orð geta ekki lýst því hvernig þetta var“ Vitnaleiðslur voru færðar yfir í annan sal þegar ungi maðurinn og foreldrar hans báru vitni. Það var gert svo ekki væri hætta á að Davíð og Ríkharð gætu haft áhrif á vitnisburð þeirra með nær- veru sinni. Hann var skýr í framburði sínum, rólegur og yfirvegaður, þegar hann lýsti raunum sínum fyrir dómi. Hann er dökkhærður og strákslegur í útliti en líklega brenndur fyrir lífstíð. Hann lýsti því hvernig barsmíðarn- ar byrjuðu fyrirvaralaust þegar hann kom á dvalarstað Ríkarðs að Bæjar- hrauni. „Davíð hringir og segist vilja hitta mig. Hann kemur og sækir mig í iðnaðarhúsnæði á Holtinu. Við förum til Ríkharðs og þegar við komum inn heldur Rikki á sverði og spyr hvar tölv- an hans sé. Davíð kemur inn í það og þeir byrja báðir að berja mig. Segja mig hafa svikið þá. Ég vildi vita hvernig en þeir sögðu bara að ég hefði svikið þá. Þeir lömdu mig í bak og fyrir og sögðu að ef ég myndi ekki redda þeim ferða- tölvu og tveimur sjónvörpum myndu þeir drepa mig.“ Um árásina sjálfa sagði hann að Ríkharð hefði kastað að honum skærum og lamið hann með tölvusnúru. Þegar dómari spurði um andlitsáverka mannsins sagði hann að tvímenningarnir hefðu slegið hann með þeim afleiðingum að blóðpoki myndaðist undir öðru auganu. Þeir hefðu síðan slegið hann ítrekað í and- litið með það fyrir augum að blóðpok- inn spryngi. „Voðalega tekur andlitið á þér vel við höggum,“ höfðu þeir á orði við barsmíðarnar. „Orð geta ekki lýst því hvernig þetta var,“ sagði ungi mað- urinn. Rödd hans var stöðug og sterk en sjálfur er hann ekki sami maður og hann var fyrir árásina. „Ég er ekki með fulla sjón á öðru auga og ekki fullan styrk í vinstri hendi. Ég fæ verki í bakið og ég er alltaf mikið þreyttari en ég var,“ sagði hann þegar saksóknari bað hann um að lýsa afleiðingum áverkanna. Af- leiðingarnar eru ekki bara líkamlegar. Ungi maðurinn býr í foreldrahúsum og hefur ekki farið af heimili sínu nema í örfá skipti og þá í fylgd ættingja. Hann óttast um líf sitt. Hann óttast hefndar- aðgerðir og ekki að ástæðulausu því reynt hefur verið að hafa upp á honum eftir að Ríkharð og Davíð voru hneppt- ir í gæsluvarðhald. Hann var spurður út í þær afleið- ingar sem árásin hefur haft á fjöl- skyldu hans. „Pabbi er búinn að styrkja útidyrahurðina og setja krækjur á gluggana. Mamma er svo hrædd út af þessu öllu að það er ekki hægt að lýsa því,“ sagði hann. vitstola af hræðslu Átakanlegt var hlusta á foreldra hans lýsa þeim afleiðingum sem árásin hefur haft á fjölskylduna. Bæði móð- ir hans og faðir brotnuðu saman og grétu í vitnaleiðslum. Móðir fórn- arlambsins er ósköp venjuleg kona á miðjum aldri. Kona sem lifir nú í stöðugum ótta við ofbeldismenn. Hún byrjaði að segja frá því hvernig hún hefði reynt að hringja ítrekað í son sinn aðfaranótt 11. maí, án ár- angurs. „Hann svaraði ekki og það er óvanalegt. Ég hélt áfram að hringja og að lokum var svarað. Það var ekki sonur minn heldur maður sem sagð- ist heita Brynjar. Það var skellt á og ekkert svarað eftir það. Daginn eft- ir var hringt í mig af lögreglustöð- inni og ég var spurð að nafni.“ Hún sagði son sinn hafa komið í símann og hafa verið vitstola af hræðslu. „Hann sagði bara mamma, mamma, komdu og sæktu mig, komdu og sæktu mig.“ Hún hringdi í föður hans sem fór á lögreglustöðina og sótti hann. Faðir hans lýsti því hvern- ig sonur hans hefði legið á gólfinu í herbergi á lögreglustöðinni þegar hann bar að garði. „Hann var greini- lega skíthræddur. Hann var alveg að fara á taugum.“ Við minninguna brotnaði faðir hans saman en hélt áfram. „Hann nefndi Rikka og Dav- íð. Ég varð alveg öskureiður að hann skyldi vera búinn að koma sér í vandræði. Þegar við keyrðum burt lagðist hann í aftursætið og var al- veg vitstola af hræðslu.“ Þegar heim var komið tóku foreldrar hans eftir áverkum hans. „Útlitið á honum var hræðilegt. Hann sagðist hafa náð að sleppa en hann hefði haldið að þeir ætluðu að drepa sig.“ Móðirin sagði son sinn hafa einangrað sig og fara ekki út úr húsi. Hann væri óöruggur og miður sín yfir að hafa komið sér og fjölskyldunni í þessar aðstæður. Faðir hans sagði að sér liði eins og fanga á eigin heimili. Móðir hans upplifir einnig frelsissviptingu. Þau eru hrædd um líf sitt og óttast hefndaraðgerðir. Þau lifa nú í stöð- ugum ótta og hafa íhugað að flytja úr landi. Þau vita til þess að kunn- ingjar Davíðs og Ríkharðs hafi reynt að hafa upp á þeim en þeir gengu á milli húsa í götunni þeirra og leituðu að þeim. „Þá upphófst mikið panikk og við hringdum í lögregluna. Það komu fjórir bílar en þeir voru farnir.“ Hann bar lögreglunni vel söguna og sagði hana alltaf vera í kallfæri. Nágranni fjölskyldunnar kom fyr- ir dóminn sem vitni og staðfesti að tveir menn hefðu leitað að foreldrum fórnarlambsins. „Ég spurði þá hvers vegna þeir væru að leita að [foreldr- unum, innsk. blm.]. Þeir sögðust vera með tilboð sem þeir gætu ekki hafnað.“ farðað yfir áverka „Litu út fyrir að vera vinir“ n Á meðal þeirra sem báru vitni í málinu var hár- greiðslumaðurinn og stílistinn Karl Berndsen. Hann er eigandi hárgreiðslustofunnar Bjútíbars þar sem Davíð fór í klippingu. Hann var beðinn um að lýsa sinni aðkomu að málinu. Hann kom inn á Bjútíbar og sá þá ungan mann sitja í sófa frammi í biðstofu. „Þeir voru komnir inn þegar ég kom. Annar þeirra lá í sófanum frammi á biðstofu og mér fannst það mjög undarlegt. Þeir voru einu viðskiptavin- irnir á stofunni og ég veitti þeim kannski sérstaka eftir- tekt út af útliti þeirra.“ Hann sagði þá þannig útlítandi að þeir væru ekki eftirsóknarverðir kúnnar. Aðspurður sagðist hann ekki hafa tekið eftir áverkum á fórnarlamb- inu og ekki tekið eftir því að það væri þar gegn eigin vilja. „Þeir litu út fyrir að vera vinir,“ sagði Karl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.