Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2011, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2011, Blaðsíða 23
fljótlega þau minni yfir og í dag eru Agfa, BASF og Bayer enn starfandi. I.G. Farben var þó áfram til sem lögaðili þrátt fyrir að það færi í greiðsluþrot árið 1952 og árið 2010 var enn höndlað með hlutabréf í því á þýskum hluta- bréfamarkaði þrátt fyrir að það hefði verið í greiðslustöðvun síðan 2003. Lagaleg álitamál I.G. Farben hafði látið hálfa milljón þýskra marka renna til samtaka þeirra sem voru í nauðungarvinnu hjá fyrirtæk- inu undir stjórn nasista, en eftirstandandi eignir, að verð- mæti 21 milljón þýskra marka, runnu til kaupanda. Allt þetta ferli hefur fyrir- tækið legið undir ámæli fyrir að draga lappirnar hvað varð- ar bótagreiðslur til fyrrverandi verkamanna fyrirtækisins, en áframhaldandi tilvist fyrirtæk- isins eftir 1952 grundvallaðist einmitt á væntanlegum bóta- greiðslum. Stjórnendur fyrirtækisins hafa borið því við að mála- rekstur gegn fyrrverandi nauð- ungarverkamönnum hafi komið í veg fyrir að hægt væri að taka fyrirtækið til gjald- þrotaskipta með þeim hætti að því sem eftir stæði yrði deilt til þeirra sem þjáðust í síðari heimsstyrjöldinni. Hvað sem þeim rökum líð- ur hafnaði I.G. Farben að taka þátt í þýskum bótasjóði sem settur var á laggirnar árið 2001 með það að markmiði að greiða þeim sem þjáðust bætur og ár- legur aðalfundur I.G. Farben í Frankfurt er án undantekninga tilefni viðamikilla mótmæla. Talið er að enn séu á lífi 900.000–1.400.000 einstakling- ar sem voru í nauðungarvinnu árin 1933–1945. Flestir þeirra eru rússneskir eða austurevr- ópskir og allir voru fangar í út- rýmingarbúðum nasista. I.G. Farben-réttarhöldin En málum I.G. Farben var eng- an veginn lokið þó Sovétríkin og Vesturveldin væru búin að hirða þá bita sem í boði voru við lok síðari heimsstyrjaldar- innar og höndla með þá eins og best þótti. Eftir var að gera upp hlut einstaklinga og opin- berra starfsmanna Þriðja ríkis Hitlers og skyldi það gert fyrir dómstólum við stríðsglæpa- réttarhöldin í Nürnberg. Fjöldi háttsettra stjórnenda efnaverksmiðjunnar var dreg- inn fyrir dóm, stríðsglæpa- dómstólinn í Nürnberg, og voru I.G. Farben-réttarhöldin önnur réttarhöldin af þremur sem haldin voru yfir mikils- metandi iðnjöfrum í Þýska- landi vegna gjörða þeirra í valdatíð nasista. Sakborningar í I.G. Farben- réttarhöldunum áttu það sam- eiginlegt að hafa allir með tölu verið forstjórar fyrirtækisins. Forstjórarnir fullyrtu að þeim hefði ekki verið kunnugt um glæpi nasista, eða að þeir hefðu verið beittir þrýstingi. Í bók Jacks Ewing, IG Far- ben and Hitler: A Fateful Chemistry, segir höfundur að hefði fyrirtækið verið „þó ekki nema örlítið tregara í taumi, hefði Hitler lent í vanda með að keyra stríðsvél sína áfram“. Ewing segir enn fremur að þrjátíu og fimm prósent bún- aðar þýskra fótgönguliða í síð- ari heimsstyrjöldinni hefðu verið framleidd af I.G. Farben. Réttarhöldin stóðu í tæpt ár, frá 27. ágúst 1947 til 30. júlí 1948, og voru þrettán af tuttugu og fjórum sakborningum sak- felldir fyrir einhverja af þeim sökum sem á þá voru bornar og dæmdir til fangelsisvistar. Erlent | 23Miðvikudagur 31. ágúst 2011 Dauði dauðaverksmiðju Ákæruatriðin í I.G. Farben-réttarhöldunum voru fimm. 1 Skipulagning, undirbúningur, frumkvæði og ástundun árásarstríðs og innrása í önnur lönd. 2Stríðsglæpir og glæpir gegn mannkyni með gripdeildum og yfirtökum í hernumdum löndum og með því að taka yfir verksmiðjur í Austurríki, Tékkóslóvakíu, Póllandi, Noregi, Frakklandi og Rússlandi. 3Stríðsglæpir og glæpir gegn mannkyni með þátttöku í þrælahaldi og stórfelldum flutningum nauðungarvinnuafls úr fangabúðum og röðum almennra borgara hernumdu landanna og stríðsfanga, og fyrir illa meðferð, ógnir, pyntingar og morð á nauðungarverkafólki. 4Að vera meðlimur í glæpasamtökum; SS (SS hafði fyrir verið úr-skurðað glæpasamtök af Alþjóðlega herdómstólnum) 5Að hafa verið leiðandi í samsæri um að fremja glæpi sem kveðið er á um í 1., 2. og 3. lið. Heimildir: Wikipedia, IG Farben and Hitler: A Fateful Chemistry e. Jack Ewing, politiken.dk, business.dk og fleiri miðlar. „Fjöldi hátt- settra stjórn- enda efnaverksmiðj- unnar var dreginn fyrir dóm, stríðs- glæpadómstólinn í Nürnberg. Allir sakborninga voru ákærðir fyrir liði 1, 2, 3 og 5, en einungis þrír fyrir að vera meðlimir SS. Þrátt fyrir yfirþyrmandi vísbend- ingar um að I.G. Farben hefði tekið viðamikinn þátt í endurhervæðingu Þýskalands eftir lok fyrri heims- styrjaldarinnar hafnaði dómstóllinn ákærum á hendur sakborningum um skipulagningu árásarstríðs og samsæri þar að lútandi. Hvað varðaði þriðja lið, þræla- hald, lét dómstóllinn sakborninga njóta röksemda verjenda um „nauðsyn“. Aðeins hvað varðaði útrýmingar- búðirnar í Auschwitz, þar sem I.G. Farben hafði reist verksmiðju í næsta nágrenni með það augljósa markmið að nýta fanga búðanna sem vinnuafl, taldi dómstóllinn að fyrir lægju nægar sannanir um frumkvæði af hálfu I.G. Farben. Einn dómaranna við réttarhöldin skilaði sératkvæði hvað varðaði áðurnefnd „nauðsynjar“-rök, bar brigður á þau og sagði að allir sakborningar hefðu átt að vera sakfelldir fyrir þriðja ákærulið. Dómarinn, Paul M. Hebert, sagði að „skýrslur sýndu að Farben hefði sjálfviljugt og með ánægju nýtt sér nýja starfskrafta á meðan það stækkaði. Vanvirða gagnvart grundvallar mannrétt- indum hefði ekki gert sakborninga afhuga því […] Viljug þátttaka í þrælahaldi Þriðja ríkisins var stefna fyrirtækisins og gegnumgangandi í fyrirtækinu.“ Enginn þeirra sem dæmdir voru til fangelsisvistar afplánaði dóm sinn að fullu og flestir þeirra fengu forstjórastöðu sína aftur, enda búið að kljúfa I.G. Farben í frum- eindir sínar. Sakborningar og sakargiftir I.G. Farben-byggingin í Frankfurt Er nú hluti Goethe-háskólans. Meindýraeitrið Zyklon B Nasistar fundu frekari not fyrir eitrið og I.G. Farben sá um framleiðslu þess. Höfuðstöðvar I.G. Farben í Frankfurt árið 1941 Þess hefur verið farið á leit að fyrirtækið verði loks afskráð úr þýsku kauphöllinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.