Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2011, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2011, Blaðsíða 14
Boðið á opið hús n Lofið að þessu sinni fær Borgar­ leikhúsið fyrir að bjóða gestum á opið hús á laugardaginn þar sem hægt var að sjá brot úr leiksýningum næsta leikárs. Þá var boðið upp á lif­ andi tónlist á meðan leikarar og aðrir starfsmenn stóðu sveittir við vöfflu­ járnin og framreiddu kræsingar ofan í svanga gesti leikhúss­ ins. Guðjón Davíð Karlsson, eða Gói, fór síðan á kostum með krökkunum á Litla sviðinu þar sem hann fór yfir söguþráðinn í leikritinu Eldfærin eftir H.C. Andersen. Seinkun hjá Icelandair n Lastið fær Icelandair en um þriggja tíma seinkun varð á flugi félagsins frá Kaupmannahöfn á mánudags­ kvöldið. Farþegar þurftu að sætta sig við að bíða rólegir þar til vélin færi í loftið. Upphaflega átti að seinka vélinni um tvær klukkustundir en síðar kom í ljós að seinkunin var þrjár klukkustundir. 14 | Neytendur 31. ágúst 2011 Miðvikudagur E ld sn ey ti Bensín Dísilolía Algengt verð 229,7 kr. 229,7 kr. Algengt verð 232,5 kr. 232,5 kr. Höfuðborgarsv. 232,4 kr. 232,4 kr. Algengt verð 232,7 kr. 232,7 kr. Algengt verð 234,5 kr. 232,8 kr. Melabraut 232,5 kr. 232,5 kr. SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS Lof&Last Baunar fá Boot Camp Íslenska líkamsræktartöðin Boot Camp mun opna útibú í Kaupmanna­ höfn þann 12. september. Boot Camp hefur verið ein vinsælasta líkamsrækt Íslendinga undanfarin ár, en í henni eru þátttakendur látnir gera æfingar og nota sína eigin þyngd af miklum krafti. Nú ætla eigendur Boot Camp að kynna herþjálfunina fyrir Dönum. Haft er eft­ ir Arnaldi Birgi Konráðssyni, fram­ kvæmdastjóra Boot Camp í Reykjavík, á Vísi að skráningar séu þegar komn­ ar af stað í Kaupmannahöfn. Stöðin í Kaupmannahöfn hefur fengið nafnið Budz Boot Camp með vísun í enska orðið buddies eða félagar. N ú er akkúrat tíminn til að fara á fjóra fætur í skógum landsins í leit að dýrind­ is matsveppum. Sveppa­ tínslutímabilið stendur sem hæst og í flestum opnum skóg­ um landsins er hægt tína sveppi. Ása Margrét Ásgrímsdóttir, höf­ undur bókarinnar Matsveppir í náttúru Íslands, segir að fólk þurfi ekki að leita langt yfir skammt ætli það sér að tína villta matsveppi. „Fyrir Reykvíkinga og þá sem búa á höfuðborgarsvæðinu þá er Heið­ mörkin langbest fyrir styttri ferðir. Svo er auðvitað hægt að fara lengra, en Heiðmörkin er rosalega stór og það er margar sveppategundir að finna í henni. Mér finnst þetta vera perla fyrir okkur sem búum hér,“ segir hún við DV. Sveppir í flestum skógum Sveppasprettan í ár gæti orðið lakari en síðustu ár, enda var júní óvenju kaldur mánuður víðast hvar. Hægt er að tína sveppi á fjöl­ mörgum stöðum í nágrenni höfuð­ borgarsvæðisins, en almenna reglan er sú að þar sem er skóg­ rækt, þar vaxa líklega matsveppir. Sveppatínslutímabilið stendur yfir þangað til næturfrost er orðið viðvarandi. Allir mega fara í opna skóga á vegum skógræktar ríkisins til að tína sveppi. Nefna má svæði á borð við skógrækt ríkisins í Skorra­ dal, Norðtunguskóg í Borgarfirði og skógræktarsvæðið í Botnsdal í Hvalfirði. Ása segir Heiðmörkina hins vegar henta flestum sem vilja tína sveppi mjög vel. „Ég byrja allt­ af á að benda fólki að fara þangað. Svo getur þú farið lengri ferðir en það þarf þá að keyra í burtu til að finna skógræktarreiti. Ég set Heið­ mörkina hins vegar í fyrsta sæti fyrir þá sem vilja aðeins skreppa til að tína sveppi. Hún er líka það stór að þú getur farið víða um hana og tínt sveppi á mörgum stöðum. Uppi í Borgarfirði eru síðan víða skógarreitir og hver sem er má fara í opnu skógana án þess að bðja um leyfi.“ Lærðu að þekkja réttu sveppina Einhverjir gætu verið ragir við að tína sveppi sökum vankunnáttu og af ótta við að tína óvart eitraða sveppi. Ása segir að auðvelt sé að læra að þekkja pípusveppi, en þeir eru meðal ann­ ars furusveppir, lerkisveppir, kúa­ lubbi og kóngssveppir. „Þeir eru í það miklu magni að flestir geta fengið þá og þeir eru mjög góðir. Það er auðvelt að læra að þekkja þá og þeir eru að­ gengilegir,“ segir hún. „Ef þú heldur þig við pípusvepp­ ina þá er engin hætta á ferðum. Svo er nauðsynlegt að lesa sér til, hafa bók með sér eða einhvern sem kann að tína sveppi. Það er mjög gott svo maður lendi ekki í hættu. Maður get­ ur lent í því að tína sveppi sem eru ekki æskilegir og þeir geta valdið veikindum,“ segir hún en tekur það fram að ekki séu margir varasamir sveppir. Auðvelt er að þekkja ýmsa sveppi sem vaxa þar sem ákveðnar trjáteg­ undir vaxa. Þannig vaxa furusveppir í kringum furutré og lerkisveppir vaxa í kringum lerkitré. „Kúalubb­ inn er svo þar sem birkið er. Hann er mjög algengur en þeir vaxa ekki mjög margir saman.“ Hnífur og tannbursti Sveppatínsla er ekki eins og laxveiði þar sem æskilegt er að græja sig upp fyrir tugi þúsunda áður en maður lætur sjá sig á árbakkanum. Sá sem ætlar að tína matsveppi þarf að eiga körfu, hníf og bursta. Það er allt og sumt. Ása gefur góð ráð: „Ekki tína sveppi í plastpoka. Það er líka hægt að fá sérstaka sveppahnífa sem eru mjög góðir. Það er hins vegar vel hægt að komast af með góðan hníf og svo tannbursta. Það þarf nefnilega að hreinsa sveppina, bæði að skera neðan af stafnum þegar maður tekur þá upp og líka að líta eftir því hvort maðkur sé kominn í þá. Það er fluga sem verpir í sveppina og þá kemur maðkur sem þarf að taka burt.“ Ása segir að best sé að tína unga og stinna sveppi en láta þessa gömlu slöppu einfaldlega eiga sig. Það er hægt að gera ýmislegt við matsveppina. Ása segir að hún ým­ ist steiki þá strax með kvöldmatn­ um eða þurki þá og frysti. hún segir að sveppir með pasta og villisveppa­ rísottó séu í uppáhaldi hjá sér. Einn­ ig sé hægt að gera góða sveppasúpu eða útbúa sósu úr sveppunum. „Mér finnst einnig mjög gott að búa til litla máltíð þar sem ég steiki sveppina og borða þá með rúgbrauði með góðu smjöri og lifrarkæfu.“ Nóg að eiga hnífkuta Helgi Hallgrímsson náttúrufræðing­ ur hlaut íslensku bókmenntaverð­ launin fyrir bókina Sveppabókin ­ Ís­ lenskir sveppir og sveppafræði, sem kom út á síðasta ári. Helgi hefur tínt sveppi og rannsakað þá áratugum saman. Hann segir að á skógræktar­ svæðinu í Skorradal og í Heiðmörk Valgeir Örn Ragnarsson valgeir@dv.is Matvæli n Höfundur bókar um Matsveppi segir auðvelt að læra að þekkja ætisveppi n Heiðmörk er perla n Allir mega tína í opnum skógum Tíndu villta matsveppi „Sveppatínslutíma- bilið stendur yfir þangað til næturfrost er orðið viðvarandi Heiðmörk Norðtunguskógur í Borgarfirði Botnsdalur í Hvalfirði Skógrækt ríkisins í Skorradal Sveppakarfa Ekki er mælt með því að tína sveppi í plastpoka því það fer mjög illa með sveppina. Best er að tína þá í þar til gerðar sveppakörfur. Hér getur þú tínt sveppi Sveppahnífur Sérstakur hnífur með bursta til þess að hreinsa sveppinn um leið og hann er tíndur. Hægt er að fá sveppahníf í Kokka á 1.980 krónur og svipaðan hníf á Vefverslun femin.is á 1.998 krónur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.