Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2011, Blaðsíða 8
8 | Fréttir 31. ágúst 2011 Miðvikudagur
U
ndanfarna viku hafa lög-
reglu borist fjórar tilkynn-
ingar um karlmenn sem
reyna að lokka grunnskóla-
börn upp í bíl til sín. Fjögur
tilfelli hafa komið upp í Hafnarfirði
og eitt á Suðurnesjum. Lögregla lít-
ur málið alvarlegum augum en seg-
ist lítið geta aðhafst annað en að
auka eftirlit með skólunum og mæl-
ast til að foreldrar brýni fyrir börn-
um sínum að fara varlega.
Á mánudagskvöldið bauð
ókunnugur karlmaður ungum
dreng að leika við sig með Legó-
kubbum. Maðurinn í bílnum mun
hafa verið miðaldra, með sólgler-
augu og ekið um á hvítum jeppa.
Drengurinn þáði ekki boðið og
hljóp heim til sín – líkt og börn eiga
að gera í aðstæðum sem þessum.
Móðir hans tilkynnti lögreglu um
málið í gær.
Mamma þín er slösuð
Í Hafnarfirði hafa komið upp fjögur
slík atvik. Lögreglu er kunnugt um
þrjú þeirra en í þeim öllum hefur
verið um að ræða stóran og gamlan
bláan bíl. Ökumaður bílsins er digur
karlmaður og í einu tilfellinu sýnd-
ist stúlku vera tveir í bílnum. Málin
hafa komið upp í grennd við skóla í
bænum. Fyrst í síðustu viku, þegar
maður sagði tólf ára gamalli stúlku
að móðir hennar væri alvarlega
slösuð og hann ætti að koma stúlk-
unni á sjúkrahúsið til að hitta hana.
Sama var uppi á teningnum í Lækj-
arskóla um hádegisbilið á mánudag
þegar karlmaður á bláum bíl sagði
ungri stúlku sömu sögu og slíkt hið
sama gerðist síðdegis á laugardag,
einnig hjá nemanda í Lækjarskóla.
Lögreglu var ekki kunnugt um það
atvik, en hún fékk tilkynningu um
að svipað atvik hefði átt sér stað við
Hraunvallaskóla á laugardaginn.
Öll börnin brugðust hárrétt við og
hlupu í burtu og létu vita af mál-
inu. Þar sem sögunum í Hafnarfirði
ber öllum saman og börnin tengj-
ast ekki innbyrðis er líklegt að um
sama mann sé að ræða. Hann virð-
ist vera að færa sig upp á skaftið en
hann reyndi meðal annars að nálg-
ast stúlku fyrir utan skólann hennar
um hábjartan dag.
Mikilvægt að halda ró sinni
Skólastjórnendur í Lækjarskóla, Set-
bergsskóla og Hraunvallaskóla hafa
allir haft samband við foreldra og
nemendur. Brýnt hefur verið fyrir
nemendum að fara aldrei upp í bíla
með ókunnugum, sama hvað þeim
er sagt að komið hafi upp á. Hrönn
Bergþórsdóttir, aðstoðarskólastjóri
í Setbergsskóla, segir að þrátt fyrir
að ástandið sé að sjálfsögu ömur-
legt sé brýnt að halda ró sinni. „Við
erum búin að hafa tvisvar sinnum
samband við foreldra. Fyrst í síð-
ustu viku þegar þetta gerðist hérna
hjá okkur og svo aftur í gær þegar ég
heyrði að hann væri enn á ferðinni.
Svo fóru kennararnir allir í bekki og
ræddu við nemendur.“ Hún segir að
foreldrar og kennarar séu á tánum
vegna málsins og eftirlit hafi verið
aukið til muna. „Það er auðvitað sú
hætta að einhverjir fari af stað í kjöl-
farið á þessu en þessi sem var hér í
Hafnarfirði er greinilega sá sami og
hefur verið á ferli. Svo getur maður
auðvitað ekki treyst því að þetta sé
bara einhver að hrekkja.“
Enduðum síðasta skólaár
eins og þetta byrjar
Elma Karen Sigþórsdóttir, ritari
foreldrafélags Lækjarskóla, seg-
ir mikilvægt að foreldrar ræði við
börn sín. Hins vegar sé mikilvæg-
ast að foreldrar haldi ró sinni og að
þeir fái réttar leiðbeiningar til þess
að börnin verði sjálf ekki hrædd.
„Það er mikilvægt að fólk fari ekki
á nornaveiðar út af þessu. Það þarf
að vera gott samstarf á milli foreldra
og skólanna.“ Hún minnir einnig á
að síðasta skólaár hafi endað líkt
og þetta byrjar, en í fyrravor bárust
lögreglu tæplega tuttugu tilkynn-
ingar um að karlmaður sem æki um
á svörtum bíl reyndi að lokka börn
upp í bíl. Fjórar af tilkynningunum
áttu sér eðlilegar útskýringar, en að
öðru leyti var málið aldrei upplýst.
Kemur upp á vorin og haustin
Björgvin Björgvinsson, yfirmað-
ur kynferðisbrotadeildar lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu, seg-
ir lögregluna líta málin alvarlegum
augum. Hann segir þó að erfitt sé
að útiloka að ekki sé um hrekki
að ræða. Verið geti að einhverjum
finnist fyndið að bera sig svona að
við börn. Erfitt sé að eiga við slíkt og
það geti valdið hræðslu. Yfirleitt eru
þá fleiri en einn á ferð í bíl.
Hann segir þó að mál eins og þau
sem hafa komið upp undanfarna
viku komi oft upp í byrjun og lok
skólaárs. Öll málin eru í rannsókn og
verða rannsökuð ítarlega. Hins veg-
ar liggi fyrir litlar upplýsingar nema
lýsingar barnanna á bílnum. Það
sem lögreglan geti einna helst gert
sé að svipast um eftir manninum.
n Karlmenn reyna að lokka til sín skólabörn n Upplýsa börnin en hræða þau ekki
n Svipað tilvik kom upp árið 2004 þegar ung stúlka var skilin eftir á Þingvallavegi
Reyna að lokka
böRn upp í bíla
n Árið 2004 fór níu ára stúlka fór upp
í bíl með ókunnugum manni. Stúlkan
var á gangi ásamt vinkonu sinni þegar
maður á rauðum bíl ók upp að henni
og sagðist vera lögreglumaður. Hann
sagði stúlkunni að móðir hennar væri
illa haldin á sjúkrahúsi eftir slys og hann
ætti að fara með stúlkuna þangað.
Stúlkan trúði manninum og settist upp í
bílinn. Hann ók þá í átt að Mosfellsheiði.
Hann skildi hana svo eftir á Þingvalla-
vegi rétt hjá Skálafellsafleggjara og ók
í burtu. Þar var stúlkan ein og yfirgefin
í tæpa tvo tíma þegar henni tókst að
stöðva ökumann jeppa sem ók henni til
móts við lögregluna. Stúlkan var flutt
á slysadeild og málið var rannsakað í
þaula. Maðurinn fannst aldrei. Björgvin
Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrota-
deildar lögreglunnar, segir að maðurinn
í Hafnarfirði noti svipaðar aðferðir og
honum hafi að sjálfsögðu dottið í hug að
um gæti verið að ræða sama mann og
árið 2004. Hins vegar ber lýsingunni á
manninum frá því árið 2004 ekki saman
við lýsingar barnanna í þessari viku.
Svipað tilvik 2004
Svona áttu að ræða við barnið þitt
Steinunn Bergmann, félagsráðgjafi hjá Barnaverndarstofu, gefur foreldrum ráð um hvernig
best sé að ræða við börnin.
Mikilvægt er að brýna það fyrir börnum sínum að þau fari ekki undir neinum kringum-
stæðum með ókunnugum.
Ólíklegt er að ókunnugur sæki börn ef foreldrar lenda í slysi. Það er mikilvægt að börnin
viti að ef eitthvað kemur upp á þá er líklegra að lögregla, ættingi eða nákominn ein-
staklingur sæki þau. Að sama skapi, á skólatíma, er líklegast að kennari eða starfsmenn
skólans tali við barnið, en alls ekki ókunnugir einstaklingar.
Það er mikilvægt að hræða börnin ekki. Málið er vandmeðfarið og það er óþarfi að ræna
börn sakleysi. Engin ástæða er til að gera börn óttaslegin eða að valda því að þeim líði
þannig að þau þori ekki að vera ein á ferð. Það er samt nauðsynlegt að foreldrar ræði vel
og vandlega við börnin þar sem börn heyra umræðuna í samfélaginu eins og foreldrar.
Foreldrar þurfa því að meta það hvernig best er að nálgast umræðuefnið, enda þekkja
foreldrar börnin sín best. Þetta er ekki algengt að svona mál komi upp en þetta er eitt-
hvað sem getur gerst – og hefur gerst. Því er mikilvægt að börnin geti brugðist rétt við
líkt og hefur verið raunin undanfarið.
Meðan við erum vakandi sem samfélag þá halda menn sem þetta stunda sig til hlés og
vökul augu almennings hafa fælingarmátt. Það er því mikilvægt að vera vakandi fyrir
þeim hættum sem leynast í umhverfinu og með því að fylgjast ekki bara með okkar
börnum heldur börnum annarra líka þá gerum við umhverfi barnanna öruggara.
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
Lögreglumál
Rannsókn á máli au-pair stúlku lokið:
Ekkert
saknæmt
kom í ljós
Rannsókn á máli 18 ára þýskrar au-
pair stúlku sem virðist hafa verið
fengin hingað til lands á fölskum
forsendum, er lokið, að sögn Árna
Þórs Sigmundssonar, aðstoðaryfir-
lögregluþjóns á höfuðborgarsvæð-
inu. Hann segir rannsókn málsins
í raun ekki hafa snúið að stúlkunni
heldur leyfaskildri starfsemi gisti-
heimilisins sem hún starfaði á.
DV greindi frá máli stúlkunnar í
síðustu viku og ræddi við mann sem
skaut skjólshúsi yfir hana eftir að
hafa orðið vitni að harkalegri fram-
komu vinnuveitanda í hennar garð.
Maðurinn sagði stúlkuna hafa kom-
ið hingað til lands til að starfa sem
au-pair. Henni var tjáð að hún ætti
að sinna börnum vinnuveitandans
og aldraðri móður hans í fjóra til sex
tíma á dag, fimm daga vikunnar. Þá
átti hún að fá frítt fæði og húsnæði.
Ekkert af þessu stóðst hins vegar og
stúlkunni var þrælað út við þrif á
gistiheimili mannsins og leiguíbúð-
um fyrir rúmlega 300 krónur á tím-
ann – samkvæmt frásögn mannsins.
Árni segir lögregluna hafa verið
að kanna leyfi gistiheimilisins þegar
þeim barst ábending um aðstæður
stúlkunnar. „Til að fullvissa okkur
um að hún hefði fengið laun og væri
frjáls ferða sinna bara könnuðum
við þetta. En það var ekkert sem kom
í ljós sem benti til neins saknæms í
þessu.“ Árni segir jafnframt að málið
sé ekki endilega að stúlkan hafi verið
lokkuð hingað á fölskun forsendum.
„Það er nú oft þannig þegar fólk talar
mismunandi tungumál, þá kannski
verður misskilningur, en það er ekki
okkar að dæma um það.“
Fyrrverandi vinnuveitandi stúlk-
unnar og eigandi gistiheimilisins
vildi ekki tjá sig um málið þegar DV
hafði samband við hann. DV hefur
heimildir fyrir því að annar einstak-
lingur hafi skotið skjólshúsi yfir au-
pair stúlku sem hafði nánast sömu
sögu að segja og áðurnefnd stúlka.
Samkvæmt lögreglunni er þó ekki
annað mál til rannsóknar hjá þeim.
solrun@dv.is
16 ára dæmdur
fyrir líkamsárás
Karlmaður var á þriðjudag dæmd-
ur fyrir líkamsárás í Héraðsdómi
Suðurlands. Afplánun refsingar var
frestað og fellur hún niður eftir tvö
ár haldi viðkomandi almennt skil-
orð.
Ákærði játaði undanbragðalaust
og hreinskilnislega að hafa þann 24.
maí árið 2010 slegið annan mann
hnefahöggi í andlitið með þeim af-
leiðingum að maðurinn nefbrotn-
aði.
Þar sem ákærði var aðeins 16 ára
þegar hann framdi brot sitt og þar
sem sakavottorð hans er hreint, þá
fer hann ekki í fangelsi haldi hann
skilorð. Honum er gert að greiða
sakarkostnað og málsvarnarlaun
verjanda síns.
„Fimm mál hafa
komið upp á einni
viku þar sem ókunnug-
ir menn reyna að lokka
börn upp í bíl.
Hraunvallarskóli
27. ágúst kl 16:30-17:30
Setbergsskóli
26. ágúst síðdegis
Lækjarskóli
27. ágúst síðdegis
28. ágúst kl. 12:00-12:30
Hafnarfjörður Blár bíll á ferð,
ökumaður sem segir börnum
að foreldrar þeirra
séu slasaðir.
Suðurnes 29. ágúst
Hvítur jeppi á ferð,
ökumaður spyr barn
hvort það vilji leika sér
með Legó.
Hraunvallaskóli Lögregla hefur fengið
tilkynningu um að slíkt mál hafi komið upp í
grennd við Hraunvallaskóla á laugardaginn.
Tvö tilfelli í Lækjarskóla
Tvö tilfelli hafa komið upp í Lækjarskóla,
síðast á mánudag þegar bíllinn var á ferð í
kringum skólann um hádegisleytið og ungri
stúlku var boðið far á sjúkrahús.
Hófst í síðustu viku Fyrsta tilkynningin
barst eftir að ung stúlka í Setbergsskóla
kom hlaupandi heim og sagði foreldrum
sínum frá því að ókunnugur maður hefði
reynt að lokka sig upp í bíl.
LofTMynd googLE EaRTH