Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2011, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2011, Qupperneq 2
2 | Fréttir 21. september 2011 Miðvikudagur S ýslumaðurinn í Búðardal hefur hafnað umsókn hjóna um fertugt um að fá að ætt- leiða barn frá Tékklandi á þeim forsendum að þau hafi ekki nægilega „traustan fjárhag“ án þess að nokkur lögfest viðmið séu til um hvað teljist traustur fjárhagur. Hjónin hafa þó staðið við allar fjár- hagslegar skuldbindingar sínar og eru með 839 þúsund krónur í sam- anlögð mánaðarlaun. Þau hafa áður ættleitt barn og gefur barnaverndar- nefnd þeim mjög jákvæða umsögn. Ákvörðun sýslumanns er í sam- ræmi við umsögn ættleiðingar- nefndar sem hafði ekki getað mælt með því að veita hjónunum forsam- þykki til ættleiðingar barns erlend- is frá vegna þess að þau hefðu ekki traustan fjárhag. Mjög jákvæð umsögn barnaverndarnefndar Til þess að ættleiða barn þarf að sækja um leyfi hjá sýslumanninum í Búðardal. Hann fer síðan fram á um- sögn barnaverndar- og ættleiðingar- nefndar. Barnaverndarnefnd komst að þeirri niðurstöðu að hjónin væru fullkomlega fær um að ættleiða barn. Þau ættleiddu barn árið 2004 og sam- kvæmt skýrslu sem nefndin vann um fjölskylduna hefur „afar vel gengið“ með stúlkuna. Hjónin eiga að baki tæknifrjóvganir sem báru ekki árang- ur og er ættleiðing því þeirra eina leið til að eignast börn. Þá segir í skýrslu barnaverndarnefndar að hjónin hafi verið í sambúð í 21 ár og gift í 13 ár. Þeim komi vel saman og hjónaband- ið sé traust. Um heilsufar þeirra segir „hjónin eru bæði heilsuhraust og verða sjald- an veik.“ Hið sama á við um dótt- ur þeirra sem er afar heilsuhraust stúlka. Þá kemst barnaverndarnefnd- in að þeirri niðurstöðu að hjónin séu bæði í föstu, öruggu starfi og hafi þar af leiðandi öruggar tekjur. „Þau hafa meðaltekjur og geta vel séð fyrir fjöl- skyldu. Eðlilegt húsnæðislán hvílir á húsinu þeirra. Á skattaskýrslu þeirra hjóna er miðað við brunabótamat hússins þegar eignir og skuldir þeirra eru taldar fram og virðist því eigna- staða þeirra vera neikvæð. Söluand- virði hússins er hins vegar talsvert hærra en brunabótamatið. Ef tekið er tillit til þess telst eignastaða þeirra jákvæð.“ Þá segir í umsögn barnaverndar- nefndarinnar um fjárhag hjónanna að þau séu í skilum með allar sínar fjárhagslegu skuldbindingar og virð- ist vera skynsöm í fjármálum og eyði ekki um efni fram. Fullfær um að ættleiða barn Umsögn nefndarinnar um hjónin er mjög lofsamleg. Þau eru sögð búa við mjög góðar og stöðugar aðstæð- ur í fallegu einbýlishúsi í grónu, fjöl- skylduvænu hverfi. Þau njóti mikils stuðnings allra í kringum sig varð- andi ákvörðun sína um að óska eftir að ættleiða barn. Þá er tekið fram að öll aðlögun og tengslamyndun dótt- ur þeirra hafi gengið mjög vel. Dóttir þeirra sé hamingjusöm og heilbrigð stúlka sem gangi vel í öllu því sem hún taki sér fyrir hendur. Nefndin telur einnig að hjónin hafi mjög heilbrigt viðhorf til uppeld- is barna. „Þeim hefur gengið afar vel í foreldrahlutverkinu gagnvart dóttur sinni og hafa skynsamlegar áherslur í uppeldi hennar. Niðurstaða barna- verndarnefndar er afgerandi. „Hjónin séu fullfær til þess að ættleiða barn erlendis frá og upp- fylli allar þær kröfur sem gerðar eru til aðila sem óska eftir að ættleiða barn.“ Þá er tekið sérstaklega fram að hjónin búi við traustan fjárhag og séu fullfær um að búa litlu barni gott líf og veita því þá ást, umhyggju og stuðning sem það þarf á að halda. Nefndin leggur til að sýslumaðurinn í Búðardal veiti þeim forsamþykki til þess að ættleiða eitt eða tvö börn á aldrinum 0 til 4 ára. „Lítið megi bregða út af“ Í kjölfar álits barnaverndarnefnd- arinnar fór Áslaug Þórarinsdóttir, sýslumaður í Búðardal, fram á álit frá ættleiðingarnefnd um umsókn hjónanna. Sérstaklega óskaði sýslu- maður eftir því að nefndin gæfi um- sögn sína um það hvort hún teldi efnahag umsækjenda vera traustan, en ákvæði um traustan efnahag er að finna í reglugerð um ættleiðing- ar. Sem fyrr segir kemur ekkert fram í reglugerð eða lögum um við hvað skuli miða til að finna út hvort efna- hagur sé traustur eða ekki. Taldi sýslumaðurinn að barna- verndarnefndin hefði að mjög takmörkuðu leyti fjallað um fjár- hagslega stöðu hjónanna eins og sýslumaður fari fram á. Umsögnin hafi því verið ófullnægjandi. Sýslu- maðurinn bendir á að samkvæmt skattframtali hjónanna fyrir 2010 sé eiginfjárstaða þeirra neikvæð sem nemur tæpum tveimur millj- ónum króna. Heildarskuldir þeirra nema rúmum 32 milljónum, en þar af eru lausaskuldir um 2,6 milljón- ir króna. Sýslumaðurinn metur það svo að „lítið megi bregða út af í að- stæðum umsækjenda að það hafi ekki áhrif á mánaðarlegan fram- færslueyri þeirra og svigrúm þeirra til að bregðast við breyttum aðstæð- um sé takmarkað.“ Þá er tekið fram að kostnaður við að ættleiða barn sé talsverður og geti vel verið á þriðju milljón króna. Áslaug sýslumaður telur því að vafi leiki á því að „fjár- hagur umsækjenda sé traustur,“ eins og áskilið er í reglugerð um ætt- leiðingar. Því komi til álita að synja hjónunum. Gat ekki lagt mat á „traustan fjárhag“ Ættleiðingarnefnd fékk umsókn hjónanna svo inn á sitt borð í mars á þessu ári. Í umsögn ættleiðingar- nefndarinnar segir: „Þrátt fyrir að ekkert bendi til annars en umsækj- endur geti greitt af skuldum sínum og upplýsingar frá þeim bendi til þess að fjárhagur þeirra muni fara batnandi telur ættleiðingarnefnd að hafa verið í huga að upprunaríki barna sem ættleidd eru hingað til lands gera kröfur varðandi fjárhag aðila.“ Þá komst nefndin að því að hún gæti ekki lagt mat á að fjárhag- ur umsækjenda væri sem stendur traustur. Nefndin gat því ekki að svo stöddu mælt með því að hjónunum yrði veitt forsamþykki til ættleiðing- ar. Hjónin veittu því nefndinni frek- ari upplýsingar um fjárhagsstöðu sína. Í öðru bréfi dagsettu 28. apríl bendir ættleiðingarnefndin á að „ekki er að finna nánari skilgrein- ingu á því hvað teljist traustur fjár- hagur en ættleiðingarnefnd telur að meta þurfi aðstæður í hverju máli fyrir sig.“ Nefndin ákvað því að líta til áætl- aðra talna um framfærslukostnað sem finna má á heimasíðu umboðs- manns skuldara. Þá megi einnig hafa til hliðsjónar reikniverk varð- andi framfærsluviðmið sem finna má á heimasíðu velferðarráðuneyt- isins. Þær tölur séu hins vegar ein- göngu til viðmiðunar en nefndinni þyki rétt að líta til þessara talna. Nefndin bendir á að eiginfjár- staða hjónanna sé neikvæð sam- kvæmt skattframtali sé miðað við fasteignamat hússins, en jákvæð sé miðað við sölumat á húsinu, sem hjónin létu gera fyrir sig. Sé miðað við það mat er eiginfjárstaða þeirra jákvæð um 400.000 krónur. Heild- arskuldir séu að mestu vegna fast- eignarinnar og virðast því sem næst jafnháar verðmæti hennar. Þrátt fyr- ir það kemst nefndin að þeirri nið- urstöðu að hún geti að svo stöddu ekki mælt með því að hjónin fái for- samþykki til ættleiðingar barns. Hjónin telja um skýlaust brot á jafnræðisreglunni að ræða Þessari ákvörðun mótmælti Jóhann- es S. Ólafsson lögmaður hjónanna harðlega. Í bréfi lögmannsins til sýslumanns segir að greinin sem fjallar um traustan efnahag hafi ekki fullnægjandi lagastoð og því sé óheimilt að byggja ákvörðun um forsamþykki á reglunni um traust- an efnahag. Lögmaðurinn telur að að reglan sé íþyngjandi og takmarki möguleika hjónanna á að ættleiða barn. Stjórnsýsla verði að vera lög- bundin og að ákvæði í reglugerð- um sem séu íþyngjandi fyrir borg- arana eða takmarki rétt þeirra verði að eiga sér skýra stoð í lögum. Ekki nægi almenn heimild í lögum til þess að setja reglugerð um nánari fram- kvæmd laga. Telur hann að ákvæði um traustan fjárhag skorti lagastoð. Ennfremur brjóti beiting reglugerð- ar um traustan fjárhag grundvallar- reglur stjórnsýsluréttar. Reglan hafi hins vegar ekki að geyma neins kon- ar viðmið um hvað teljist traustur efnahagur. Lögmaðurinn bendir á að af gögnum málsins að ráða sé ljóst að enginn hlutlægur mælikvarði sé lagður til grundvallar við mat á hug- takinu traustur efnahagur. Þá komi ekkert fram í bréfi ætt- leiðingarnefndar um að hvaða leyti hjónin standist ekki viðmið umboðs- manns skuldara og velferðarráðu- neytisins. Ákvörðunin sé á endanum aðeins byggð á mati nefndarinnar á því hvað hún telji vera traustan efna- hag og án nokkurra fastra viðmiða. Slíkar stjórnvaldsákvarðanir séu ólögmætar. Fá ekki að ættleiða n Hjónum bannað að ættleiða annað barn n Barnaverndarnefnd taldi þau fullfær um að ættleiða n Sýslumaður telur þau ekki hafa „traustan efnahag“ n Hafa 839 þúsund í mánaðarlaun „Hjónin séu fullfær til þess að ætt- leiða barn erlendis frá og uppfylli allar þær kröfur sem gerðar eru til aðila sem óska eftir að ætt- leiða barn. Valgeir Örn Ragnarsson valgeir@dv.is Úttekt Hafnað Hjón með 839 þúsund krónur í samanlögð mánaðarlaun þykja ekki hafa „traustan efnahag“ sam- kvæmt sýslumann- inum í Búðardal og fá því ekki að ætt- leiða barn. Þau hafa staðið í skilum með allar skuldbindingar sínar. SviðSett Mynd eyþór ÁrnaSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.