Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2011, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2011, Page 3
Fréttir | 3Miðvikudagur 21. september 2011 Fá ekki að ættleiða n Hjónum bannað að ættleiða annað barn n Barnaverndarnefnd taldi þau fullfær um að ættleiða n Sýslumaður telur þau ekki hafa „traustan efnahag“ n Hafa 839 þúsund í mánaðarlaun Hjónin telji það ennfremur vera skýlaust brot á jafnræðisreglunni og reglunni um að stjórnvaldsákvarð- anir skuli byggðar á málefnalegum sjónarmiðum. Ákvörðunin „velti ein- ungis á geðþótta ættleiðingarnefnd- ar,“ eins og segir í bréfi lögmannsins. „Einungis hinir stórefnuðu“ Lögmaðurinn bendir einnig á að hjónin séu bæði í fastri vinnu og séu með samanlagðar tekjur upp á 839 þúsund krónur fyrir skatt og 507 þúsund krónur útborgað. Það megi slá því föstu að það sé yfir meðal- tekjum. Þar sem eiginfjárstaða þeirra sé raunverulega jákvæð en ekki nei- kvæð, sé miðað við sölumat á hús- inu þeirra, sé hægt að slá því föstu að efnahagur þeirra sé traustur, ef litið sé til almennrar merkingar þess orðs. Hann segir nefndina hafa útlokað hjónin frá því að mega ættleiða barn með því að vísa í reglugerðina um- deildu. Þá segir á öðrum stað í bréfi lögmannsins: „Verður að telja að án sérstakrar lagaheimildar geti sýslu- maður ekki gert þær kröfur að ein- ungis hinir stórefnuðu eigi mögu- leika á því að ættleiða barn.“ Þrátt fyrir rök hjónanna var ákvörðun sýslumannsins á Búðar- dal ekki hnikað. Í rökstuðningi fyrir synjun sinni vísar Áslaug sýslumað- ur meðal annars í grein ættleiðingar- laga þar sem segir að ekki megi veita leyfi til ættleiðingar nema sýnt þyki að ættleiðing sé barni fyrir bestu. Þrátt fyrir að hjónin hafi fengið góða umsögn barnaverndarnefndar taldi sýslumaður það ekki tékkneska barninu fyrir bestu að hjónin fengju að ættleiða það. n Halldór Ásgrímsson segist ekki hafa heyrt um Fjörur ehf. n Fjölskyldufyrirtæki Halldórs græddi 2,6 milljarða á bréfum í VÍS í gegnum Fjörur n Neitar að svara frekari spurningum É g get ekki hjálpað þér í þessu máli,“ segir Halldór Ásgríms- son, fyrrverandi forsætisráð- herra og formaður Framsókn- arflokksins, í svari í tölvupósti, aðspurður um aðkomu sína að fjár- festingum útgerðarfyrirtækisins Skinneyjar-Þinganess í hlutabréf- um í Vátryggingafélagi Íslands (VÍS) síðla árs 2002. Dótturfélag Skinneyj- ar, Fjörur ehf., græddi 2,6 milljarða króna þegar félagið seldi hlutabréf í fjárfestingarfélaginu Exista eftir sam- runa þess við VÍS árið 2006. Skinney- Þinganes er fjölskyldufyrirtæki Hall- dórs: Nánir ættingjar hans eiga um fjórðung alls hlutafjár í félaginu auk þess sem hann sjálfur á um 2,37 pró- sent. Íslenska ríkið hafði selt 50 prósent hlut sinn í vátryggingafélaginu til S- hópsins svokallaða í lok ágúst 2002. Halldór beitti sér fyrir sölunni og hót- aði að hætta við einkavæðingu ríkis- bankanna ef íslenska ríkið seldi ekki hlut sinn í fyrirtækinu. Þetta varð úr og S-hópurinn var orðinn eigandi alls hlutafjár í VÍS eftir sölu ríkisins á bréf- unum. Í kjölfarið settist Finnur Ing- ólfsson, fyrrverandi aðstoðarmaður Halldórs og meðlimur í S-hópnum, í forstjórastól VÍS og síðar í stjórn Hest- eyrar. Tímasetningar áhugaverðar Þann 16. ágúst fjárfesti Skinney- Þinganes í helmingshlut í félaginu Hesteyri sem var í eigu Kaupfélags Skagfirðinga sem Þórólfur Gíslason, annar meðlimur S-hópsins, stýrði. Tæpum tveimur vikum síðar eign- aðist S-hópurinn hlut ríkisins í VÍS. Landsbankinn hélt utan um hlut rík- isins í VÍS og ákvað stjórn bankans, sem Helgi S. Guðmundsson, við- skiptafélagi Finns Ingólfssonar, fór fyrir, að selja hlutinn. Dagana þar á undan fór fram svokallað „Sex daga stríð um VÍS“, eins og það var kallað í greinaflokki um einkavæðinguna í Fréttablaðinu árið 2005, sem end- aði með sigri S-hópsins. Í nóvember sama ár tryggði Hesteyri sér 25 pró- sent af hlutafé VÍS með því að kaupa bréf í félaginu á markaði. Bréfin sem fóru inn í Hesteyri voru því komin frá meðlimum úr S-hópnum sem átti allt hlutafé í félaginu. Hesteyri hélt utan um hlutinn í VÍS þar til árið 2006 þegar félagið sam- einaðist Exista. Hesteyri var í kjölfar- ið skipt upp í fjögur félög og var félag Skinneyjar-Þinganess nefnt Fjörur ehf. Þetta félag Skinneyjar seldi hluta- bréf sín í Exista í lok árs 2006 með 2,6 milljarða króna hagnaði. Bróðir Hall- dórs, Ingólfur, og sonur hans, Aðal- steinn Ingólfsson, hafa setið í stjórn Fjara frá upphafi. Aðalsteinn er auk þess framkvæmdastjóri Skinneyjar- Þinganess. Halldór segist hins vegar aldrei hafa heyrt Fjörur ehf. nefnt. Engar upplýsingar Halldór segir einnig í svari sínu við spurningum DV að hann hafi heyrt félagið Hesteyri nefnt en viti ekkert um starfsemi þess. Orðrétt segir Hall- dór: „Ég erfði lítinn hlut hlutabréfa í félaginu [Skinney-Þinganesi, inn- skot blaðamanns] eftir foreldra mína. Faðir minn lést 1996 og móðir mín sat í óskiptu búi þar til hún lést 2004. Þá kom í minn hlut 1/5 hluti af þeirra hlutafé, sem gefur mér hvorki mögu- leika né áhuga til afskipta eða áhrifa í félaginu. Félagið Fjörur ehf. hef ég aldrei heyrt nefnt og hef engar upp- lýsingar um. Félagið Hesteyri ehf. hef ég heyrt getið um, en hef engar upp- lýsingar um starfsemi þess.“ Halldór vildi ekki svara frekari spurningum sem DV sendi honum um málið og sagði: „Ég hef nú þegar svar- að þér og hef engu við það að bæta.“ Ein af þeim spurningum sem Hall- dór vildi ekki svara var hvort einhver samskipti hefðu átt sér á milli hans og stjórnenda Skinneyjar-Þinganess um einkavæðingu VÍS áður en hún var frágengin. Líkt og áður segir keypti Skinney sig inn í Hesteyri rétt áður en gengið var frá sölunni á hlutabréfum VÍS til S-hópsins. Spurningar DV til Halldórs Ásgrímssonar n „Um miðjan ágúst 2002, rétt áður en ákveðið var að selja helmingshlut Landsbankans (íslenska ríkisins) í VÍS, eignaðist Skinney- Þinganes helming hlutafjár í félaginu Hesteyri. Í lok ágúst var hlutur ríkisins í VÍS seldur til hins svokallaða S-hóps eftir tímabil sem kallað var ,,Sex daga stríðið um VÍS“. S-hópurinn var þá orðinn allsráðandi í VÍS. Samkvæmt grein um einkavæðingu bankanna sem birtist í Fréttablaðinu 2005 áttir þú að hafa hótað því innan ríkisstjórnarinnar að ekkert yrði af einkavæðingu bankanna ef Landsbankinn myndi ekki selja hlut sinn í VÍS. Hluturinn í VÍS var því á endanum seldur út úr bankanum. Nokkrum mánuðum síðar, í nóvember 2002, tryggði Hesteyri sé fjórðung hlutafjár í VÍS. Þessi atburðarás er meðal annars rakin í minnisblaði sem Ríkisendurskoðun vann árið 2005 um hæfi þitt til að fjalla um söluna á ríkisbönkunum. Hesteyri hélt utan um hlutinn í VÍS þar til 2006 þegar tryggingafélagið sameinaðist Exista. Þá eignaðist Hesteyri hlutabréf í Exista. Hesteyri var í kjölfarið skipt upp í fjögur félög. Félagið Fjörur er eitt af þeim og er það í eigu Skinneyjar-Þinganess. Bróðir þinn Ingólfur og sonur hans Aðalsteinn sitja í stjórn félagsins og hafa gert frá upphafi. Árið 2006 seldi Fjörur bréf sín í Exista með 2,6 milljarða hagnaði samkvæmt ársreikningi. Félagið á eignir í dag sem verðmetnar eru á meira en 5,5 milljarða króna. 1. Er þetta saga sem þú þekkir ekki? 2. Áttu sér ekki stað nein samskipti á milli þín og stjórnenda Skinneyjar-Þinganess um einkavæðingu VÍS áður en Skinney keypti hlut í Hesteyri um miðjan ágúst 2002? Mér finnst dálítið sérstakt að Skinney hafi fjárfest í Hesteyri rétt áður en hlutur ríkisins í VÍS var seldur, meðal annars með þinni aðkomu. Var fjárfestingin í Hesteyri og VÍS því ekki borin undir þig af stjórnendum Skinneyjar – bróðursyni þínum og bróður – áður en lagt var út í hana? 3. Þekkir þú þá heldur ekki ástæðurnar fyrir því af hverju Skinney fjárfesti í Hesteyri og VÍS? 4. Vissir þú ekki af hagnaði Skinneyjar á VÍS-bréfunum fyrr en ég sagði þér frá honum hér að ofan? 5. Annað um málið?“ Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is „Ég hef nú þegar svarað þér og hef engu við það að bæta. „Ég hef enga aðkomu í Skinney-ÞinganeS“ Engin aðkoma Halldór segist ekki hafa neina aðkomu eða áhrif í starfsemi fjöl- skyldufyrirtækisins Skinneyjar-Þinganess sem náin skyldmenni hans eiga fjórðung í. Félagið græddi 2,6 milljarða á einkavæð- ingu VÍS sem Halldór beitti sér fyrir. Forsíða DV Mánudaginn 19. september síðastliðinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.