Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2011, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2011, Síða 4
4 | Fréttir 21. september 2011 Miðvikudagur Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Reykjavík - Reykjanesbæ Akureyri - Húsavík Vestmannaeyjum í Múrbúðinni VEGLEG VERKFÆRI DURATOOL Rafhlöðuborvél 18V 2.990 kr. NOVA 18V Rafhlöðuborvél 2 hraðar 4.990 kr. NOVA TWISTER 4,8V Skrúfvél og skrúfbitar 1.790 kr. Flísasög 800w, sagar 52 cm 19.900kr. B jarni Ármannsson, fjárfest- ir og fyrrverandi forstjóri Glitnis, á eignir upp á nærri 4,4 milljarða króna í tveimur helstu eignarhaldsfélögum sínum, Landsýn og Sjávarsýn. Á móti þessum eignum eru skuldir sem nema einungis rúmum sjöhundruð milljónum króna. Þetta kemur fram í ársreikningum þessara tveggja eign- arhaldsfélaga fyrir árið 2010 sem skilað var til embættis ríkisskatt- stjóra þann 11. september síðastlið- inn. Ársreikningarnir sýna enn frek- ar þá sterku stöðu sem Bjarni er í eftir íslenska efnahagshrunið árið 2008. Eignirnar eru fyrst og fremst eignar hlutir í öðrum félögum og skuldabréfaeign. Bókfært eigið fé félaganna tveggja er meira en 1.800 milljónir króna fyrir hvort félag. Taprekstur eftir arðgreiðslu Félögin skiluðu þó tapi samanlagt á árinu 2010. Sjávarsýn tapaði 96 milljónum króna á meðan Landsýn skilaði hagnaði upp á 61 milljóna. Heildartapið af rekstri félaganna tveggja var því 35 milljónir árið 2010. Þetta er nokkur breyting frá því árið 2009 þegar félögin skiluðu hagnaði upp á samtals 182 milljónir króna. Á árinu 2009 greiddi Bjarni sér út 400 milljóna króna arð vegna rekstrarársins 2008 þegar hagnaður félagsins nam nokkurn veginn sömu upphæð. DV greindi frá því í fyrra að Glitnir hefði þurft að afskrifa um og yfir 800 milljón- ir króna annars eignar haldsfélags í eigu Bjarna, Imagine Investments, á sama tíma og Bjarni tók sér 400 milljóna króna arð út úr Sjávarsýn. Því var afskrifað á einum stað hjá Bjarna á meðan hann tók sér arð upp á hundruð milljóna króna á öðrum stað. Fjárfestir í skuldabréfum Í ársreikningum Bjarna kemur fram að hann virðist hafa fjárfest í skuldabréf- um í fyrra fyrir samtals tæpan milljarð króna árið 2010. Ný skuldabréfaeign Sjávarsýnar nam rúmlega 640 millj- ónum króna og ný skuldabréfaeign Landsýnar nam rúmlega 350 milljón- um króna. Líkt og DV hefur greint frá átti Bjarni meðal annars skuldabréf á sparisjóð- inn Byr og olíufélagið N1. Skuldabréfa- eign Bjarna í Byr nam um 700 milljón- um samkvæmt frétt sem birtist í DV í fyrra. Inntakið í frétt DV var að Bjarni hefði átt í viðræðum við stjórn Byrs í ársbyrjun 2010 um að breyta þessu skuldabréfi í hlutafé í Byr. Þá hefur DV greint frá því að Bjarni eigi skuldabréf á N1 sem breytt verður í hlutafé í olíu- félaginu eftir nýlega yfirtöku kröfuhafa félagsins á N1. Bjarni greindi frá því í viðtali við DV í júlí að upphæð skuldabréfsins á N1 væri 100 til 200 milljónir króna og að ekki væri um háar fjárhæðir að ræða þegar litið væri á heildarumfang skuldabréfaflokks N1. „Ég á skuldabréf á N1, eða félag í minni eigu, að nafn- virði 100 til 200 milljónir króna [...] Skuldabréfaflokkurinn er um 6,5 millj- arðar króna þannig að þetta eru dverg- fjárhæðir sem ég á þarna í því sam- hengi,“ sagði Bjarni. Hugsanlegt er að þessi skuldabréf á Byr og N1 séu með- al þeirra bréfa sem tilgreind eru í árs- reikningum Bjarna. Skilaði milljarði Stærsta breytingin í þessum ársreikn- ingum Bjarna kemur fram í yfirliti yfir viðskipti Landsýnar á árinu 2009. Þá skuldajafnaði Bjarni kröfu upp á 3,9 milljarða króna sem hann átti á þrota- bú Glitnis á móti skuldum félagsins við bankann sem voru rúmlega 270 millj- ónum krónum lægri. Afleiðingin af þessari skuldajöfnun var sú að skuldir Landsýnar lækkuðu um meira en 3,5 milljarða á milli áranna 2008 og 2009 en í staðinn féll Bjarni frá sinni kröfu á hendur Glitni. Þessi viðskipti voru hluti af heildar- skuldauppgjöri Bjarna við Glitni sem meðal annars fól það í sér að hann endurgreiddi þrotabúi bankans 651 milljón króna sem hann fékk þegar hann seldi hlutabréf sín í Glitni í lok apríl 2007 fyrir 6,8 milljarða króna. Viðskiptablaðið greindi frá þessari endurgreiðslu í lok árs 2009. Bjarni lét af störfum í bankanum og seldi honum bréf sín á yfirverði sem nam 651 milljón. Endurgreiðslan var innt af hendi eftir að fyrir lá, samkvæmt hæstaréttardómi í máli Vilhjálms Bjarnasonar gegn stjórn Glitnis, að slitastjórn Glitnis gæti sótt fjármunina til Bjarna. Bjarni féllst á að endur- greiða fjármunina og því þurfti ekki að fara með málið fyrir dóm. Bjarni greiddi þetta yfirverð til baka auk launa sem hann fékk frá Glitni eft- ir að hann hætti sem forstjóri bankans árið 2007. Samtals námu þessar launa- greiðslur 370 milljónum. Bjarni end- urgreiddi Glitni því um milljarð auk þess sem hann féll frá kröfu á hendur bankanum upp á rúmar 270 milljónir. Á eignir fyrir 4,4 milljarða króna n Bjarni Ármannsson á gríðarlegar eignir í tveimur eignarhaldsfélögum n Fékk 6,8 milljarða fyrir Glitnisbréf sín árið 2007 n Skilaði milljarði af söluverðinu„Ég á skuldabréf á N1, eða félag í minni eigu, að nafnvirði 100 til 200 milljónir króna. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Áfram eignamikill Bjarni Ármanns- son fjárfestir á eignir upp á 4,4 milljarða króna í tveimur eignar- haldsfélögum. Hann auðgaðist gríðarlega þegar hann seldi hlutabréf sín í Glitni í apríl 2007. Síminn sektaður um 60 milljónir Samkeppniseftirlitið hefur sektað Símann um 60 milljónir króna. Ástæðan er sú að fyrirtækið misnot- aði markaðsráðandi stöðu sína með tilboði í 3G-lykla sumarið 2009. Í umræddu tilboði Símans fólst að nýjum viðskiptavinum Símans í gagnaflutningsþjónustu, þar sem 3G-netlykill er notaður, var boðinn frír 3G-netlykill og frí áskrift að þjón- ustunni í allt að þrjá mánuði gegn bindingu í viðskiptum í sex mán- uði. Fjarskiptafyrirtækið Nova kvart- aði til Samkeppniseftirlitsins vegna tilboðsins. Þann 2. júlí 2009 tók Samkeppniseftirlitið bráðabirgða- ákvörðun þar sem Símanum var bannað að bjóða umrætt tilboð. Nú liggur fyrir endanlegur úr- skurður Samkeppniseftirlitsins þess efnis að Síminn hafi verið með markaðsráðandi stöðu á viðkom- andi markaði og að fyrirtækið hafi misnotað stöðu sína með undirverð- lagningu á tilboðinu. Forsvarsmenn Símans gáfu það út á þriðjudag að ákvörðunin verði kærð til áfrýjunar- nefndar samkeppnismála. Verðbólgan mun aukast Verðbólga á Íslandi mun aukast úr 5 prósentum í 5,6 prósent í lok sept- ember og haldast þannig út árið 2011. Þetta er mat Greiningar Íslands- banka sem birti verðbólguspá sína á þriðjudag. Ef verðbólga fer í 5,6 prósent í september hefur hún ekki mælst hærri síðan í júní 2010. Nýjasta verðbólguspá Greiningar Íslandsbanka hefur breyst til hins betra frá síðustu spá. Er ástæðan meðal annars lítilsháttar styrking krónunnar og eftirgjöf á hrávöruverði á alþjóða- mörkuðum, samfara versnandi efnahagshorfum á heimsvísu. Greining bankans spáir því að verðbólgan á Íslandi verði komin niður í 3,6 prósent í lok árs 2012 en að 2,5 prósenta verðbólg- umarkmið Seðlabankans náist ekki fyrr en árið 2013. Þess skal getið að verðbólga hefur að með- altali verið 6,13 prósent frá því að íslenska krónan var sett á flot í mars árið 2001. Bára Sigurjónsdóttir er ósátt við vinnubrögð Iceland Express: Töskurnar týndar í Varsjá Enn eru töskur á leið frá Varsjá til Ís- lands úr flugi sem lenti í Keflavík á miðvikudag í síðustu viku. Töskurn- ar voru skildar eftir á flugvellinum í Varsjá eftir að fluginu hafði tvívegis verið seinkað um alls átta klukku- stundir. „Það komu einhverjar nokkrar töskur á færibandinu sem fólk fékk. Ég er ekki alveg með töluna á hreinu en við stóðum við töskufæribandið í allavega tuttugu mínútur ef ekki hálf- tíma. Okkur var ekki sagt neitt,“ seg- ir Bára Sigurjónsdóttir, farþegi með Iceland Express, sem beið á Keflavík- urflugvelli klukkan fjögur um nótt eft- ir töskunum sem ekki voru í vélinni. Bára segist hafa fengið takmörk- uð svör frá Iceland Express en hún segir að fulltrúar félagsins hafi sagt að hún eigi ekki rétt á neinum bótum vegna töskuvandræðanna þar sem hún sé búsett á Íslandi og sé stödd þar. Alla jafna eiga einstaklingar rétt á bótum en flugfélögin ákveða sjálf hvernig þær bætur eru greiddar út. Í tilfelli Iceland Express hefur kostn- aður venjulega verið endurgreidd- ur eftir að farþegar sjálfir hafa farið og keypt þær nauðsynjavörur sem í töskunum eru. „Það veit enginn neitt, og það er enginn tilbúinn til að segja hve- nær töskurnar eiga að koma,“ segir Bára um viðbrögð Iceland Express við fyrirspurnum hennar. „Okkur var svo sagt að þær kæmu á föstudag en í allra síðasta lagi á laugardag. Svo komu þær ekkert á laugardaginn.“ Þegar töskurnar komu ekki um helgina fékk Bára þau svör að tösk- urnar ættu að koma á mánudag. Það gekk þó ekki eftir. „Farþegar sem eru að koma heim eru í forgangi. Það eru kannski nokkrar töskur settar inn í vél en ef vélin fyllist þá er þessum auka- töskum bara hent út. Þannig að það er ekki í neinum forgangi að koma töskunum okkar heim,“ segir Bára og bætir við að einhverjir úr ferðinni hafi fengið töskurnar sínar. Hún seg- ist óánægð með að þar sem hún sé Íslendingur og Iceland Express borgi ekki bætur að þá sé ekki forgangsat- riði að koma töskunum til skila. adalsteinn@dv.is Engar töskur Bára segist hafa fengið takmörkuð svör vegna málsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.