Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2011, Page 6
6 | Fréttir 21. september 2011 Miðvikudagur
17 ára drengur ákærður fyrir þátt sinn í meintri frelsissviptingu:
Þriðji aðilinn neitar sök
Önnur fyrirtaka í Black Pistons-
málinu fór fram í Héraðsdómi
Reykjavíkur á þriðjudag, en þriðji
maðurinn hefur verið ákærður fyr-
ir aðild sína í því. Hann er fæddur
1994 og er því aðeins 17 ára. Þurftu
allir sakborningar að taka afstöðu til
ákærunnar. Ríkharð Davíð Ríkharðs-
son og Davíð Freyr Rúnarsson neit-
uðu sök sem og maðurinn ungi.
Ungi maðurinn er ákærður fyr-
ir sinn þátt í meintri frelsissviptingu
fórnarlambsins og fyrir hótanir í
hans garð. Eins og áður hefur komið
fram eru Davíð Freyr og Ríkharð Júl-
íus ákærðir fyrir frelsissviptingu og
hrottalega líkamsárás sem á að hafa
staðið yfir í tæpan sólarhring.
Ungi maðurinn kom seinna inn
í réttarsalinn en Davíð Freyr og Rík-
harð og kallaði Ríkharð til hans og
benti honum með handahreyfing-
um á að koma og tala við sig. Hvort
Ríkharð hafi náð að hvísla ein-
hverju að honum áður en dómari
og saksóknari stöðvuðu hann skal
ósagt látið. Erfitt hefur verið að hafa
uppi á manninum unga og hafði því
lögmaður hans, Björgvin Jónsson
héraðsdómslögmaður, ekki haft
tækifæri til að ræða við skjólstæð-
ing sinn. Þeir viku úr dómsal áður en
hann tók afstöðu til ákærunnar. Þeg-
ar ungi maðurinn kom inn aftur fóru
Ríkharð og Davíð Freyr úr dómsal,
en áður hafði saksóknari farið fram
á það vegna ungs aldurs mannsins.
Eftir að ungi maðurinn hafði neit-
að sök var hann einnig beðinn um
að taka afstöðu til fíkniefnaákæru.
Hann neitaði einnig sök í því máli.
Hann talaði lágt og óskýrt og þegar
dómari spurði hvort hann hafi neit-
aði sök sagði hann: „Klárlega. Þetta
voru engin fíkniefni, þetta var syk-
ur. Og þetta voru 4 grömm ekki 8,9
grömm.“
Aðalmeðferð málsins fer fram 12.
október næstkomandi.
hanna@dv.is
Tveir sakborninga Davíð Freyr Rúnarsson og Ríkharð Júlíus Ríkharðsson á leið fyrir dóm.
R
ússneskur auðmaður pant-
aði aflraunasýningu frá
þekktum íslenskum krafta-
jötnum þegar hann var
staddur hér á landi árið
2008. Auðmaðurinn dvaldi á bæn-
um Hofsstaðaseli, nýuppgerðum
torfbæ, í Skagafirði ásamt konu sinni
og fylgdarliði og vildi ólmur sjá ís-
lenska aflraunamenn leika listir sín-
ar. Meðal þekktra gesta sem gist hafa
Hofsstaðasel í gegnum tíðina eru
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís-
lands, og dóttir Elísabetar Bretlands-
drottningar, Anna.
Kraftajötnarnir Hjalti Úrsus Árna-
son, Auðunn Jónsson og Kristinn
Óskar Haraldsson, betur þekktur
sem Boris, fóru norður í Skagafjörð
til fundar við manninn. „Við vorum
bara kallaðir til, pantaðir skilurðu.
Hann borgaði vel fyrir þetta og það
var einhver ferðaskrifstofa sem græj-
aði þetta. Við keyrðum bara upp eftir
með tæki og tól,“ segir Hjalti Úrsus.
Sagan segir að kveikjan að heim-
sókn jötnanna hafi verið sagan af
Gretti Ásmundarsyni hinum sterka.
Grettir dvaldi útlægur í Drangey á
Skagafirði síðustu þrjú ár ævi sinnar,
samkvæmt Grettissögu, þar til hann
var loks veginn í eynni árið 1031.
Drangey er sýnileg úr túninu á Hof-
staðaseli og blasti því við rússnesku
gestunum.
Rússinn og Grettir
Grettir þótti manna sterkastur og eru
við hann kenndir á íslenskri tungu
Grettistök og Grettishöf – feiknamikl-
ir steinar sem geta vegið allt að tíu
tonnum – sem hann á að hafa getað
lyft. Sagan segir að Rússinn auðugi
hafi heyrt söguna af Gretti og hrifist
svo mjög af henni að hann hafi spurt
hvort slíkir menn sem hann væru enn
til á Íslandi. „Sagan af Gretti er ekkert
ólíkleg því Drangey blasir hérna við
okkur á miðjum firði, beint fyrir fram-
an okkur,“ segir íbúi í sveitinni þegar
sagan um kveikjuna að aflraunasýn-
ingunni er borin undir hann.
Gestgjafar þeirra munu þá hafa
sagt að Íslendingar væru meðal
fremstu þjóða heims á sviði aflrauna
og hefðu unnið keppnina Sterkasti
maður heims í nokkur skipti. Þá mun
Rússinn hafa spurt hvort möguleiki
væri á því að sjá slíka Grettismaka
sýna krafta sína.
Hjalti Úrsus og félagar hans voru
því kallaðir til frá Reykjavík enda
munu gestgjafar Rússans hafa viljað
flest fyrir hann gera til að gera dvöl
hans í Skagafirði sem ánægjulegasta.
Sýndu bændagöngu
Hjalti og félagar hans sýndu auð-
manninum hefðbundnar aflraunir
sem þekktar eru af mótum eins og
Vestfjarðavíkingnum og öðrum slík-
um. Sýningin fór fram á hlaðinu við
torfbæinn í Hofstaðaseli. „Við vorum
með svona klukkutíma atriði. Þetta
tókst mjög vel og var skemmtilegt.
Við sýndum bændagöngu, lyftum
kúlusteinum, tókum helluburð og
annað slíkt,“ segir Hjalti Úrsus.
Upphaflega sagan hljómaði
þannig að um hefði verið að ræða
rússneska auðmanninn Roman
Abramovich, sem meðal annars á
knattspyrnufélagið Chelsea, og að
íslensku kraftakarlarnir hefðu farið
norður í Skagafjörð með þyrlu sem
send hafi verið eftir þeim. Svo var þó
ekki og sýnir þetta mishermi hvern-
ig slíkar flökkusögur taka gjarnan
á sig ýktar myndir: Auðmaðurinn
var rússneskur en ekki hinn heims-
frægi Abramovich og Hjalti og félagar
hans keyrðu norður en fóru ekki með
þyrlu.
Engin 370 kíló í réttstöðulyftu
Nafnið á rússneska auðmanninum
liggur ekki fyrir eftir athugun DV
á málinu þótt ljóst sé að ekki hafi
verið um Abramovich að ræða. „Ég
kannast ekki við að þetta hafi verið
Abramovich. Ég man ekki nafnið á
honum; hefði hann getað eitthvað í
kraftlyftingum þá hefði ég örugglega
munað það. En hann var bara venju-
legur maður fyrir mér, einhver Jón
Jónsson. Ef hann hefði átt 370 kíló í
réttstöðulyftu þá hefði ég örugglega
munað nafnið hans,“ segir Hjalti Úrs-
us.
Rússinn dvaldi í góðu yfirlæti í
Skagafirði í nokkra daga og fór með-
al annars í laxveiði, reiðtúr og fleira
í þeim dúr auk þess sem hann sá
nokkra sterkustu menn landsins
taka á því með Drangey í baksýn og
væntanlega Grettissögu í huganum.
n Rússneskur auðmaður fékk aflraunasýningu í Skagafirði n Helluburður sýnd-
ur á bæjarhlaðinu n Grettissaga sögð kveikjan að áhuga Rússans á aflraunum„Við sýndum
bændagöngu, lyft-
um kúlusteinum, tókum
helluburð og annað slíkt.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Sýndu auðmanni
aflraunir í Skagafirði
Drangey og Grettir Sagan af Gretti sterka og Drangey
mun hafa kveikt áhuga rússneska auðmannsins á
íslenskum aflraunamönnum. Þrír þekktir kraftajötnar
sýndu rússneska auðmanninum aflraunir í Skagafirði.
Hjalti Úrsus Árnason var einn þeirra. MynDin ER SaMSETT
Sjötugur
stunginn
Karlmaður um sjötugt var stunginn
með hnífi í húsi í miðborginni síð-
degis á mánudag. Árásarmaðurinn,
sem er nokkru yngri, var handtek-
inn á staðnum og vísaði á hnífinn,
sem var haldlagður af lögreglu. Að
sögn lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu var sá sem var stunginn
fluttur á slysadeild til aðhlynningar
en meiðsli hans voru ekki talin vera
alvarleg.
Segir
málshöfðun
óskiljanlega
Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi
bankastjóri Landsbankans, sagði,
í viðtali við fréttastofu Stöðvar 2 á
þriðjudag, skaðabótamál slitastjórn-
ar bankans á hendur sér algjörlega
óskiljanlegt. Sagði Sigurjón að ein-
hver í Landsbankanum hlyti að hafa
framlengt 19 milljarða króna lán til
Straums eftir að hann fór úr bank-
anum eða tekið ákvörðun um að
innheimta ekki lánið. Hinn 30. sept-
ember 2008, viku fyrir hrun, gerðu
Landsbankinn og Straumur, sem þá
voru í eigu sömu aðila, samning um
lánalínu. Tveimur dögum síðar, eða
2. október, dró Straumur 19 millj-
arða króna á þessa lánalínu án þess
að veita tryggingar fyrir lánveiting-
unni. Það er meðal annars á þessari
forsendu sem slitastjórn bankans
hefur höfðað skaðabótamál á hend-
ur Sigurjóni Þ. Árnasyni og Halldóri
J. Kristjánssyni, fyrrverandi banka-
stjórum bankans.
Hitti goðið
Andri Heiðar Ásgrímsson hitti
átrúnaðargoð sitt, Josh Groban, í
Kaupmannahöfn á laugardaginn.
Það var röð tilviljana sem réð því að
Andri fékk þetta einstaka tækifæri
til þess að spjalla við Groban. Andri
sagði söngvaranum meðal annars
frá því hvernig tónlist þess síðar-
nefnda hefði haft áhrif á fjölskyldulíf
hans alla tíð. Tónlist Josh Groban var
í miklum metum á heimili Andra, en
uppáhaldslag föður hans var „You‘re
Still You“. Þegar faðir hans féll síðan
frá fyrir níu árum var lagið meira að
segja spilað af geisladiski í jarðar-
förinni. Saga Andra hreyfði svo við
söngvaranum, að hann sagði af sam-
tali þeirra á tónleikum sem hann
hélt í Kaupmannahöfn á sunnu-
daginn og bað hann Andra að segja
2.000 áheyrendum söguna sjálfur,
sem hann og gerði. „Þetta var mjög
óraunverulegt og ég fæ enn gæsa-
húð,“ sagði Andri alsæll í samtali
við DV.