Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2011, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2011, Síða 15
Neytendur | 15Miðvikudagur 21. september 2011 Allt á einum stað! Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir Þú færð fría olíusíu ef þú lætur smyrja bílinn hjá okkur Komdu með bílinn til okkar og þú færð fría ástandsskoðun n Fyrirheit um að bjóða ákveðnum hópum frítt í strætó hafa ekki orðið að veruleika n Markmið að fargjöld standi undir hærra hlutfalli kostnaðar n Karl Sigurðsson, formaður samgönguráðs, segir forgangsreinar hafa gefist vel Svikin loforð um strætó É g hef núna hjólað allt sem ég fer í þrjú ár,“ segir Hrönn Harð- ardóttir, 47 ára bankastarfs- maður og hjólreiðakappi. Hrönn er ein þeirra sem hef- ur tekið upp þann lífsstíl að hjóla í vinnuna. Það gerði hún árið 2008. Ástæðan fyrir því að Hrönn ákvað að hefja hjólreiðar var sú að hún var í slæmu líkamlegu formi að eigin sögn. „Ég er í gönguklúbbi og ég sá ekki fram á að geta farið með þeim í gönguferð að hausti. Ég byrjaði að hjóla til að reyna að létta mig og það heppnaðist svona ljómandi vel,“ segir hún. Keppir í hjólreiðum Hrönn segist finna mikinn mun á líkamlegu formi ár frá ári. Hún kom- ist í sífellt betra form. Nú sé svo kom- ið að hún sé meðlimur og stjórnar- maður í Fjallahjólaklúbbnum, sem sé skemmtilegur félagsskapur fyrir hjólreiðafólk af öllu tagi. „Ég er meira að segja farin að keppa í hjól- reiðum,“ segir hún glaðbeitt. Hrönn segir að fjárhagslegur ávinningur sé mikill. Hún spari um það bil fimmtán þúsund krónur í mánuði með því að hjóla til og frá vinnu, það samsvarar meira en 500.000 á þremur árum. Bíllinn slitni hægar og sparnaðurinn hafi verið fljótur að borga upp reiðhjólið. Hún segist aðeins nota bílinn þegar hún þurfi að sækja börnin eða fara í ferðalög út á land. „Ég keyri tugum þúsunda kílómetra minna en áður.“ Hjólreiðastíga með stofnbrautum Hrönn, sem býr á Háaleiti, segir allt- af hægt að finna sér leiðir til að hjóla í Reykjavík, aðbúnaður hjólreiða- manna sé því ágætur. Hún hafi byrj- að að hjóla á stígum en hafi fljótt fært sig út á götu. Hún velji þó göt- ur þar sem hámarkshraðinn sé 50 kílómetrar á klukkustund. Hún hafi fyrst um sinn verið smeyk um eigið öryggi en það hafi liðið hjá. „Ég er í endurskinsvesti á veturna og er með ljós á sumrin auk þess sem ég klæði mig í áberandi fatnað. Ég ef ekki lent í neinu óhappi og hef ekki einu sinni verið nálægt því.“ Hún segir að stjórnvöld gætu bætt aðstöðu hjól- reiðamanna til muna með því að sjá til þess að sérstökum hjólabraut- um yrði komið upp meðfram stofn- brautum, líkt og sé til dæmis gert í Danmörku og Hollandi. „Það myndi gerbreyta landslaginu til hjólreiða,“ segir hún. Hrönn segist ekki bara spara sér peninga með því að hjóla heldur sé tímasparnaðurinn nokkur. „Ég er 10 mínútur að hjóla í vinnuna en 5 mín- útur að keyra. En þegar ég fer á bíln- um þarf ég að finna stæði og ganga smá spöl. Það tekur mig í heildina 20 mínútur að fara á bílnum.“ Missti þrjátíu kíló n Hrönn Harðardóttir byrjaði að hjóla 2008 n Hefur sparað meira en 500.000 krónur n Er farin að keppa í hjólreiðum„Ég er meira að segja farin að keppa í hjólreiðum. Baldur Guðmundsson blaðamaður skrifar baldur@dv.is Líður betur Hrönn kemst í sífellt betra form. Mynd gunnar gunnarSSon stakrar ferðar eða tímabilskorta. Bláa kortið, sem gildir í ár, hefur hækkað um 8 þúsund krónur á þessu ári. Það þýðir að frá og með 1. október greið- ir árskorthafi 666 krónum meira á mánuði en áður, ef kostnaðinum er skipt niður á 12 mánuði. Hann greið- ir 3.208 krónur á mánuði fyrir bláa kortið. Sá sem kaupir græna kort- ið, sem gildir í mánuð, greiðir 7.000 krónur frá 1. október en greiddi áður 5.600 krónur. Sömu sögu er að segja af öðrum kortum sem í boði eru. Stakt fargjald stendur í stað nú en hækkaði um áramótin um 25 pró- sent, úr 280 krónum í 350 krónur. Svona hefur verðið hækkað Stakt græna Bláa unglingar Desember 2010 280 5.600 30.500 100 Janúar 2011 350 6.400 35.000 350* Október 2011 350 7.000 38.500 350* Hækkun 25% 25% 26% 250% *Lægra fargjald fyrir ungmenni var lagt niður og allir greiða nú sömu upphæð fyrir staka ferð. Markmiðið að fjölga farþegum Verðið hefur hækkað um 25 prósent á einu ári.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.