Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2011, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2011, Page 21
Í slenska kvennalandsliðið í handbolta hélt á þriðju­ dagsmorgun til Póllands en þar mun liðið taka þátt í sterkur fjögurra liða æf­ ingamóti. Mótherjar Íslands í Chorzow, þar sem mótið fer fram, verða heimamenn auk Tékka og Hollendinga. Mótið er liður í undirbúningi fyrir heimsmeistaramótið í Brasilíu sem hefst í byrjun desem­ ber. Þar verður íslenska liðið í fyrsta skipti í sögunni en það er annað stórmótið í röð sem íslensku stelpurnar komast á. Ágúst Jóhannsson lands­ liðsþjálfari valdi upphaflega sautján leikmenn í mótið en stórskyttan Rut Jónsdóttir þurfti að draga sig úr hópn­ um vegna meiðsla og í hennar stað kom hornakonan Sólveig Lára Kærnested, leikmaður Stjörnunnar. Línukonan sterka og einn albesti leikmaður Íslands, Anna Úrsúla Guðmundsdótt­ ir, gat heldur ekki farið með liðinu á þriðjudagsmorgun vegna veikinda en vonast er til að hún geti haldið utan seinna í vikunni. Íslensku stelpurnar mæta Hollend­ ingum á föstudaginn klukk­ an 15.30, Pólverjum á laug­ ardaginn klukkan 17.30 og síðasti leikurinn verður svo gegn Tékkum á sunnudaginn klukkan níu um morguninn að íslenskum tíma. tomas@dv.is Sport | 21Miðvikudagur 21. september 2011 Farnar til Póllands n Kvennalandsliðið í handbolta á sterku æfingamóti F ormúlu 1 ökuþórinn Lewis Hamilton hefur ekki átt góðu gengi að fagna á þessu tímabili í Formúlunni. Hann hefur aðeins unnið tvær keppnir af þrettán, komist fjórum sinnum á verðlauna­ pall og verið í fjórða sæti fjórum sinnum. Það er þó akstur hans og sú áhætta sem hann hefur tekið sem hefur hvað mest verið á milli tann­ anna á fólki. Hann hefur oft­ ar en einu sinni og oftar en tvisvar skapað mikla hættu á brautinni og verið sektaður og misst sæti vegna aksturs­ mátans. Þá hefur hann tví­ vegis ekki lokið keppni þar sem hann ók á. Sjálfur seg­ ist Hamilton alltaf hafa ver­ ið svona áhættusækinn og ætlar ekkert að breyta um stíl. Næsta keppni fer fram á hinni mögnuðu, flóðlýstu braut í Singapúr og þar þyrfti Hamil­ ton helst að vinna sigur til að blanda sér í baráttuna um verðlaunasæti í heimsmeist­ aramótinu. Nýr gagnrýnandi Nýjasti liðsmaður hópsins sem er óánægður með Hamil­ ton og hans framgöngu í ár er Þjóðverjinn Hans Stuck sem ók í Formúlunni á árum áður og náði best þriðja sæti. Stuck sagði í viðtali við þýskt bíla­ tímarit að Hamilton ætti að fara í meðferð, hann væri svo æstur. Aðspurður um þessi ummæli spurði Hamilton: „Ég í meðferð? Hvernig gekk þessum manni í Formúlu 1?“ Hann fékk hreinskilið svar frá blaðamönnum: „Ekkert rosalega vel.“ Hamilton svar­ aði að bragði: „Nákvæmlega, nákvæmlega. Ég held að það að taka aðeins meiri áhættu í brautinni skilji að hröðustu ökumennina og hina sem keyra ekki svo hratt. Ég er bara orðinn auðvelt skotmark í dag því ég vil vinna og tek áhættu til þess. Þetta ár hefur verið það erfiðasta á mínum ferli því ég hef aldrei hlotið svona gagnrýni áður.“ Tek meiri áhættu Hamilton segir unga öku­ menn taka meiri áhættu en þá eldri því þegar fjölskyldur eru komnar í spilið og menn eru farnir að eignast börn fari þeir að hugsa öðruvísi. Sjálf­ ur er Hamilton í sambandi við poppsöngkonuna Ni­ cole Scherzinger en þau eru barnlaus. „David Coulthard sagði einu sinni við mig að þegar maður eignaðist barn myndi maður ekki taka svona áhættu. Hann vildi alltaf tryggja að hann stæði upp úr bílnum og gæti faðmað barn­ ið sitt. Það voru því eðlileg­ ar ástæður fyrir því að hann tók ekki meiri áhættu,“ segir Hamilton. „Ég er enn ungur og ekki kominn í þessa aðstöðu. Ég veit ekkert hvort ég mun eignast fjölskyldu, en ef svo verður er langt í það,“ seg­ ir Hamilton sem finnst öku­ menn í dag ekki jafnævin­ týragjarnir og í gamla daga. Sjálfur hefur hann mikið dá­ læti á kappakstri fyrri tíma og væri helst til í að hafa verið uppi fyrr. „Mennirnir í gamla daga tóku áhættu því líf þeirra var einfaldlega alltaf í meiri hættu. Ég hefði elskað að geta keyrt í gamla daga. Ég veit ekki alveg af hverju ég er svona en ég hef alltaf verið svona. Svolítið fyrir áhættu. Ég vil ekki stefna öðrum í hættu en ég er alltaf til í að­ eins meiri áhættu en aðrir,“ segir Lewis Hamilton. n Lewis Hamilton verið gagnrýndur fyrir akstursmátann í ár n Segist taka meiri áhættu en aðrir n Erfiðasta ár ferilsins Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is Formúla 1 Farnar út Stelpurnar okkar spila á sterku æfingamóti í Póllandi. Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, Valur Arna Sif Pálsdóttir, Aalborg DH Ásta Birna Gunnarsdóttir, Fram Birna Berg Haraldsdóttir, Fram Brynja Magnúsdóttir, HK Dagný Skúladóttir, Valur Hanna Guðrún Stefánsdóttir, Stjarnan Hrafnhildur Ósk Skúladóttir, Valur Karen Knútsdóttir, HSG Blomberg-Lippe Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir, Valur Rakel Dögg Bragadóttir, Levanger HK Sólveig Lára Kjærnested, Stjarnan Stella Sigurðardóttir, Fram Þórey Rósa Stefánsd., Team Tvis Holstebro Þorgerður Anna Atladóttir, Valur Markverðir: Guðný Jenný Ásmundsdóttir, Valur Guðrún Ósk Maríasdóttir, Fram Hópurinn Tekur áhættu til að vinna Áhættusækinn Lewis Hamilton hefur verið harðlega gagnrýndur í ár. „Ég er auðvelt skotmark F r j á l s t, ó h á ð d a g b l a ð Skuldbinding Mánaðarverð Engin binding 3.091 kr. 3 mánuðir 2.944 kr. 6 mánuðir 2.688 kr. 12 mánuðir 2.473 kr. DV sent heim þrisvar í viku, á mánudögum, miðviku dögum og föstudögum. Netáskrift fylgir frítt með! Prentáskrift Komdu í áskrift! Það er ódýrara en þig grunar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.