Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2011, Blaðsíða 8
8 | Fréttir 26. september 2011 Mánudagur
16,6 milljarðar í tekjur í fyrra:
Áfengissala
skilar auknum
tekjum
Samanlagðar tekjur ríkissjóðs af
áfengissölu árið 2010 námu 16,6
milljörðum króna. Þetta kemur fram
í svari fjármálaráðherra við fyrir-
spurn Margrétar Tryggvadóttur,
þingmanns Hreyfingarinnar. Tekjur
af áfengi sem selt var í Áfengis - og
tóbaksverslun ríkisins námu 12,6
milljörðum króna og af áfengi seldu
á veitingastöð-
um um þremur
milljörðum
króna. Saman-
lagðar tekjur
af áfengis-
gjaldi námu
10,2 milljörð-
um króna en
af virðisauka-
skatti rúmum
5,4 milljörðum.
Áfengisgjald
hefur hækkað
fjórum sinnum
eftir efnahags-
hrun 2008 og
virðast þær hækkanir vera að skila
sér í auknum tekjum ef miðað er við
tölur árin á undan. Þannig námu
samanlagðar tekjur ríkissjóðs af
áfengissölu árið 2009 16 milljörðum
og árið 2008 tæpum 12,5 milljörð-
um.
Arðgreiðslur sem Áfengis- og tó-
baksverslun ríkisins (ÁTVR) greiðir
til eiganda síns hafa einnig hækkað
umtalsvert á undanförnum árum.
Þær námu 183 milljónum króna árið
2008, 960 milljónum króna árið 2009
en þúsund milljónum árið 2010. Þær
tölur eiga einnig uppruna sinn í sölu
tóbaks.
Margrét spurði fjármálaráð-
herra einnig að því hver árleg út-
gjöld ríkisins vegna áfengisdrykkju
landsmanna væru. Þær tölur virðast
ekki vera á takteinum ef marka má
svör fjármálaráðherra. „Vitað er að
sumt af neyslu áfengis veldur ein-
staklingum, fjölskyldum, fyrirtækj-
um og opinberum aðilum kostnaði,
en því er ekki hægt að svara hver
hann er. Skattlagningunni er ekki
beinlínis ætlað að koma í veg fyrir
neyslu áfengis og heldur ekki bein-
línis ætlað að greiða þann mögulega
kostnað sem af neyslunni kann að
hljótast, þótt skírskota megi til þess
kostnaðar í umræðu um álagningu
gjalda á áfengi.“
A
ldrei hefur verið talað jafn
lengi og á nýafstöðnu þingi.
Talað var í samtals 800
klukkustundir. Á sama tíma
hafa þingskjöl aldrei verið
jafn mörg, eða rétt tæplega 2.000 tals-
ins. Í hvern klukkutíma sem talað er
og í hvert þingskjal sem lagt er fram
fara þó talsvert fleiri klukkutímar en
kemur fram í heildartímafjölda ræðu-
tíma. Allar ræður er skrifaðar upp,
prófarkalesnar og gefnar út á vefsíðu
Alþingis. Öll þingskjöl eru einnig
prófarkalesin og flest þeirra eru gefin
út á vefsíðu Alþingis. Marga klukku-
tíma tekur að vinna hverjar fimmtán
mínútur sem talað er í ræðustól.
Þrír tímar fyrir korters ræðu
DV hafði samband við fyrrverandi
starfsmann Alþingis sem fór yfir
hversu langan tíma að jafnaði tekur
að vinna úr þingræðum þingmanna
í ræðustóli. Samkvæmt þeim upplýs-
ingum tekur að minnsta kosti þrjár
klukkustundir að fullvinna fimmtán
mínútna ræðu þingmanns í ræðu-
stól. Það þýðir að það taki að jafnaði
tólf klukkustundir að vinna klukku-
stundar ræðu til útgáfu á vef Alþingis
á prenti og í hljóðformi en allar ræður
eru aðgengilegar á bæði myndbands-
og hljóðupptöku á vefsíðu Alþing-
is. Þess má geta að það er lögbundin
skylda að gefa ræðurnar út.
Milljóna launakostnaður
Séu þessar tölur notaðar til viðmið-
unar til útreiknings á tímavinnu við
vinnslu allra ræðna á síðastliðnu þingi
kemur í ljós að vinna við ræður stóð í
9.600 klukkustundir. Það jafngildir
því að sex starfsmenn í fullu starfi allt
árið um kring vinni allan daginn við
að koma ræðum þingmanna á prent.
Í dag eru sex starfsmenn sem sjá um
ræðulestur og auk þeirra eru tveir rit-
stjórarar og þrír ritarar sem koma að
þessari vinnu, samkvæmt vef Alþing-
is. Launakostnaður vegna starfa þess-
ara starfsmanna hleypur á milljónum
króna ár hvert en hver starfsmaður er
með mismunandi tekjur eftir starfs-
aldri, menntun og reynslu. Algeng
laun samkvæmt heimildum DV eru
í kringum 300–400 þúsund krónur á
mánuði.
Tímafrekt og kostnaðarsamt
málþóf
Umræðan um breytingar á stjórnar-
ráði Íslands, sem töfðu nær allar aðr-
ar umræður á þinginu, stóð í alls 59
klukkustundir. Stjórnarþingmenn
og þinghópur Hreyfingarinnar köll-
uðu umræður stjórnarandstöðuþing-
manna málþóf. Málþóf á sér reglulega
stað í þinginu en þá tala þingmenn
einungis til að teygja lopann og fresta
afgreiðslu mála sem þeir styðja ekki
en vita að verða samþykkt af stjórnar-
meirihlutanum. Eru til dæmi um að
þingmenn hafi farið með ljóð, les-
ið heilu kaflana úr bókum og jafnvel
farið með ræður sínar oftar en einu
sinni.
Íslenska ríkið hefur því notað
skattfé ríkisborgara í að borga fyrir út-
gáfu og prófarkalestur á ræðum þing-
manna þar sem þeir flytja ljóð eða
lesa úr áður útgefnum bókum.
n Aldrei talað jafn mikið í þinginu n Kostnaðarsamt að endurskrifa allar þingræður
n Áætla má að 9.600 tímar hafi farið í að gefa út 800 klukkustundir af þingræðum
Málþóf getur
kostað milljónir
Flutti sömu ræðuna tvisvar
Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, flutti í umræðum
um breytingar á stjórnarráðinu sömu ræðuna tvisvar. Það þýðir að
skrifa þurfti upp ræðuna og vinna útgefið efni í kringum hana tvívegis.
Ræðan varði í um tuttugu mínútur. Það þýðir að líklega hafi farið um
fjórar klukkustundir hjá starfsmönnum Alþingis í að vinna ræðuna til
útgáfu. Þá höfðu starfsmenn þingsins þegar unnið sömu ræðu áður til
útgáfu en Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, uppgötvaði
að hann væri að hlusta á sömu ræðuna aftur þar sem hann var með
útprentaða útgáfu af ræðunni sem starfsmenn þingsins höfðu skrifað upp.
Ræðutími: 20 mínútur
Eftirvinnsla: 180 klukkustundir
360 klukkustunda vinna
vegna Péturs Blöndal
Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var ræðukóngur
þingsins að þessu sinni. Hann talaði í alls rúmlega 30 klukkustundir
eða alls 2.104 mínútur. Það á bæði við um athugasemdir og andsvör
og þingræður. Gera má ráð fyrir að starfsmenn á skrifstofu Alþingis
hafi eytt 360 klukkustundum við að skrifa upp og gefa út ræður
Péturs úr þingsal.
Ræðutími: 36 klukkustundir
Eftirvinnsla: 360 klukkustundir
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Tólf á móti einum Fyrir hvern klukkutíma sem talað er fara um tólf klukkustundir í að undirbúa ræðuna til útgáfu á prenti og á netinu.
ASDA vill
Iceland
Næststærsta verslanakeðja Bret-
lands, ASDA, vinnur nú að tilboði
í verslanakeðjuna Iceland sem
er í meirihlutaeigu skilanefndar
Landsbankans. Breska blaðið
Sunday Times fjallaði um þetta
á sunnudag. ASDA, sem meðal
annars selur föt, leikföng, mat
og raftæki, mun njóta stuðnings
Barclays-bankans fari svo að til-
boðið verði samþykkt.
Forsvarsmenn ASDA, sem er
hluti af bandarísku Wal Mart-
keðjunni, eru ekki þeir einu sem
lýst hafa yfir áhuga á Iceland-
keðjunni. Malcolm Walker, for-
stjóri Iceland, er einn þeirra en
hann hefur forkaupsrétt á hlut
skilanefndar Landsbankans.
Móðursystir þeirra Júlíusar og Jóels ætlar að ala þá upp:
Vill verða fósturmóðir drengjanna
Þórdís Ingibjartsdóttir, systir Laufeyjar
Ingibjartsdóttur, sem féll frá síðast-
liðið vor, ætlar að efna til styrktar-
tónleika fyrir syni systur hennar heit-
innar, þá Júlíus og Jóel. Þeir eru sex
ára í dag og hafa misst báða foreldra
sína með stuttu millibili. Faðir þeirra,
Ísrael, lést í októbermánuði 2009 eftir
að hafa drukkið stíflueyði. Það gerði
hann í kjölfar alvarlegrar líkamsárás-
ar á móður þeirra. Laufey var lengi
að takast á við afleiðingar árásarinn-
ar og hlaut alvarleg höfuðmeiðsl. Eft-
ir að heilsa hennar batnaði greindist
hún með krabbamein sem dró hana
til dauða í maí síðastliðnum. Þegar
hún féll frá sagði faðir hennar frá því
að hann teldi ekki hægt að útiloka að
andlát hennar mætti rekja til afleið-
inga árásarinnar þar sem oft er talið að
áföll sem þessi valdi alvarlegum sjúk-
dómum.
Þórdís hefur annast drengina síðan
og hefur sótt um að ganga þeim í móð-
urstað. „Ég vil standa vel að uppvexti
þeirra. Ég hef sótt um að verða þeim
fósturmóðir og vona að það gangi auð-
veldlega í gegn. Ég á tvær dætur fyrir,
17 ára og 8 ára, og þarf að stækka við
mig til að búa þeim gott heimili. Þá
þarf að huga að menntun þeirra og
veita þeim allt það liðsinni sem þeir
þurfa til að dafna. Því verður efnt til
stórtónleika í Gamla Bíói í október,“
segir Þórdís.
Meðal þeirra sem fram koma á tón-
leikunum eru KK, Bjartmar Guðlaugs-
son, Svavar Knútur, Valgeir Skagfjörð,
Dísa, Mugison og Fjallabræður. Kynnir
verður Ólafur Páll Gunnarsson.
Stofnaður hefur verið styrktar-
reikningur og eru frjáls framlög vel
þegin að sögn Þórdísar. Banki 0186-
26-100257 kt. 300571-5579.
Vill standa
vel að uppeldi
drengjanna Þórdís
Ingibjartsdóttir, systir
Laufeyjar, efnir til
stórtónleika í Gamla
Bíói þann 19. október.