Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2011, Qupperneq 10
10 | Fréttir 26. september 2011 Mánudagur
S
org ríkir í bænum Sandgerði
þar sem ellefu ára drengur
lést á heimili sínu síðastlið-
inn föstudag en fjölmennt
var á bænastund í gærkvöldi
þar sem farið var yfir helstu stað-
reyndir málsins og fólki gafst kostur
á að koma saman og hlúa hvert að
öðru, ræða hlutina og taka utan um
hvert annað.
Samverustund með nemendum
Veitt hefur verið áfallahjálp um
helgina og í dag hefur verið boðað til
samverustundar í Grunnskóla Sand-
gerðis þar sem drengurinn var nem-
andi en mælst er til þess að foreldrar
mæti þangað með börnunum sínum.
Þar stendur til að fara yfir grunnþætti
málsins og gefa börnunum kost á að
ræða málin.
Sigurður Grétar Sigurðarson,
sóknarprestur í Útskálaprestakalli,
sagði í kvöldfréttum RÚV í gær að
það myndi taka langan tíma að vinna
úr svona áfalli. Það væri eðlilegt að
margir upplifðu sektarkennd og sam-
viskubit, þar á meðal skólasamfélagið,
heilbrigðiskerfið og félagar: „Átti ég að
gera eitthvað öðruvísi? Gerði ég nóg?
Var ég nógu vakandi? Þetta eru eðli-
legar spurningar og það er verkefni
okkar fullorðna fólksins að leita leiða
til þess að svona gerist ekki aftur.“
Óttast um börnin sín
Fjölskyldufaðir í Sandgerði sagði í
DV að hann hefði miklar áhyggjur
af stöðu mála, vitað hafi verið af ein-
eltinu en viðbrögðum skólayfirvalda
væri ábótavant. „Það er mikið talað
um þetta hér og ég finn fyrir mikilli
óánægju. Það er mikið einelti í bæn-
um og skólanum og ég get ekki séð
að það sé verið að grípa í taumana.
Við viljum að eitthvað verði afhafst
enda hefur þetta áhrif á alla sem
hér búa. Þetta hefur einnig orðið til
þess að ég hef áhyggjur af krökkun-
um mínum, ég óttast um börnin mín
og fjölskylduna. Ég er hræddur um
að með vaxandi einelti í þessu sam-
félagi geti börnin mín lent í þessu ef
ekkert er að gert.“
Ljúfur drengur
Honum fannst þó gott að fara á
bænastundina: „Það er mjög erfitt
ástand hér í Sandgerði, hér ríkir mik-
il sorg,“ sagði hann. „En nú verðum
við að halda saman og styðja hvert
annað, með því að votta samúð okk-
ar og vera til staðar.“
Íbúar í Sandgerði senda foreldr-
um drengsins og systkinum hans
samúðarkveðjur, þetta hafi verið
ljúfur drengur, og biðja þess að hann
hvíli í friði. Drengurinn hafði glímt
við mikla vanlíðan lengi, geðraskanir
og þunglyndi en hann hafði að auki
sætt einelti.
Afar sjaldgæft
„Þetta er náttúrulega alveg hrylling-
ur,“ sagði Ólafur G. Guðmundsson,
yfirlæknir á barna- og unglingageð-
deild Landspítalans. „Sem betur fer
eru sjálfsvíg barna afskaplega sjald-
gæf en þau gerast. Börn á svipuðum
aldri hafa fyrirfarið sér og það hef-
ur auðvitað áhrif á alla sem standa
þeim nærri,“ segir hann og bætir því
við að þegar svo ung börn svipti sig
lífi séu það yfirleitt börn sem eiga
sögu um geðræna erfiðleika og ým-
iss konar erfiðleika, hvort sem þeir
eru félagslegir eða annars eðlis, til
dæmis einelti.
„Svo eru það líka börn sem eiga
litla eða enga slíka sögu en í einhverju
bráðræði grípa til hættulegra aðgerða
þegar þau verða fyrir mótlæti, svo
sem að setja eitthvað um háls sér í
barnaskap. Við höfum séð slík dauðs-
föll sem eru sjálfsvíg en þar sem þau
eru gerð í augnabliksbráðræði ættu
þau frekar að flokkast sem slys.“
Margt sem spilar inn í
Þeir geðrænu erfiðleikar sem þessi
börn hafa verið að glíma við eru
margvíslegir: „Þetta getur verið
spurning um þætti eins og ADHD
eða hegðunarröskun sem felur í sér
að skapgerðin er þannig að fólk er
fljótt upp og er hætt við bráðræði eða
hvatvísi. Við það lækkar þröskuldur-
inn. Ef þar ofan á bætast tilfinninga-
leg einkenni eins og depurð, von-
leysi, uppgjöf, mótlæti og kannski
áföll í þokkabót er maður komin
með nokkra áhættuþætti sem verður
að taka alvarlega.“
Ung börn geta glímt við
þunglyndi
Rétt er að geta þess að börn á öllum
aldri geta glímt við þunglyndi. „Í raun
eru engin neðri mörk þar. Jafnvel leik-
skólabörn geta glímt við þunglyndi og
úti í heimi þar sem börn eru tilfinn-
ingalega vannærð á upptökuheimil-
um getur maður séð þunglynd ung-
börn, sem hreinlega eru að veslast
upp vegna þunglyndis.“
Hann segir að þunglyndi sé í raun
þríþætt. „Það snýst um hugsanir,
einhvers konar vonleysi og vanmátt.
Eðli þunglyndis felst í því að maður
finnur ekki lausn á vandanum. Síðan
er þetta líðan sem getur komið fram
með ýmsum hætti, til dæmis með
verkjum, óþægindum, þreytu og
ýmsu öðru. Í þriðja lagi er þunglyndi
hegðun, en þunglyndi veldur breyt-
ingum á hegðun fólks.
Þó að megindrættir þunglynd-
is séu alltaf þessir er þó töluverður
munur á því hvernig þunglyndi birt-
ist eftir þroskastigi barnsins. Fimm
ára barn getur verið þunglynt en
birtingarmynd þess er allt önnur en
hjá tólf ára barni sem hefur svo allt
aðra birtingarmynd en hjá sautján
ára unglingi.“
Það er ekkert eitt sem veldur
þunglyndi en Ólafur segir að oft séu
þetta næm börn, skapgerð þeirra geti
haft áhrif og sömuleiðis áföll. „Það
getur líka haft áhrif ef barnið upp-
lifir hjálparleysi hjá sér eða umhverf-
inu og finnur ekki lausnir við vanda
sem það glímir við. Þetta er samspil
margra þátta. Enda snýst meðferðin
fyrst og fremst um það að finna út úr
því hvar álagið liggur, hvar þarf að
bregðast við og veita barninu stuðn-
ing í samræmi við þroska þess.“
Viðkvæmari fyrir einelti
„Við sjáum það líka að okkar skjól-
stæðingar eru útsettari fyrir einelti
en að sama skapi getur verið erfitt að
átta sig á því hvað er afleiðing eineltis
og hvað er afleiðing annarra áhættu-
þátta. Vissulega getur þessi félaglegi
þáttur sem eineltið er vegið þungt í
einstaka tilvikum.“
Án þess að þekkja til málsins í
Sandgerði efast hann um að eineltið
eitt og sér ráði úrslitum í svona mál-
um. „Einelti er tiltölulega algengt og
nú er orðin mikil meðvitund hjá for-
eldrum og kennurum um að einelti
geti haft alvarlegar afleiðingar svo
það þarf að bregðast við því. En það
þarf eitthvað meira til að svona fari.“
Erfitt að sjá þetta fyrir
Hann segir einnig erfitt að benda á
einhvers konar einkenni sem beri
að fylgjast með. „Á þessum aldri er
afskaplega erfitt að sjá þetta fyrir.
Börn eru almennt ekki í áhættuhópi
því þetta er svo afskaplega sjald-
gæft. Af þeim hundrað börnum sem
glíma við vandamál af þessu tagi er
kannski eitt þeirra í hættu. Það getur
Sorg í Sandgerði
n Ellefu ára drengur svipti sig lífi n Glímdi við einelti og erfiðleika n „Hér ríkir mikil sorg,“ segir faðir í bænum
n Óttast um eigin börn n Sjaldgæft að börn á þessum aldri svipti sig lífi n Gera sér ekki grein fyrir endanleikanum
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
ingibjorg@dv.is
Úttekt „Það er oft þannig
að barnið vill ekki
endilega deyja heldur fá
frið fyrir vanlíðan sinni.