Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2011, Page 12
12 | Erlent 26. september 2011 Mánudagur
Engar séróskir á dauðadeild
n Dauðadæmdir fangar í Texas fá ekki að velja síðustu kvöldmáltíðina
F
angelsismálayfirvöld í Texas í
Bandaríkjunum hafa ákveð-
ið að fella úr gildi þá reglu að
fangar á dauðadeild fái að velja
síðustu máltíðina sína. Á mið-
vikudag var kynþáttahatarinn Law-
rence Russell Brewer tekinn af lífi í
Texas fyrir morðið á James Byrd Jr.
árið 1998. Hann pantaði sér stóra mál-
tíð áður en hann var tekinn af lífi en
bragðaði ekki á henni þar sem hann
sagðist ekki vera svangur. Brewer var
tekinn af lífi fyrir að myrða Byrd, sem
var þeldökkur, með því að binda hann
við bílinn sinn og draga hann eftir
steinsteyptri götu þar til hann lést.
Uppákoman á miðvikudag, og sú
útbreidda skoðun meðal þingmanna
í Texas að það sé sérstaklega óviðeig-
andi að veita föngum á dauðadeild
þessa sérósk, hefur
nú orðið til þess að
reglan hefur verið
felld úr gildi.
„Nú er kom-
ið nóg. Það
er mjög óvið-
eigandi að veita
dauðadæmdum
einstaklingum þessi
forréttindi. Þetta eru forréttindi
sem misyndismennirnir veittu ekki
fórnarlömbum sínum,“ segir John
Whitmire, þingmaður demókrata
í Texas og einn helsti hvatamaður-
inn að breytingunni. BBC hefur eft-
ir yfirmönnum fangelsismála í Texas
að fangar sem bíða aftöku muni nú fá
sömu máltíð og aðrir fangar.
Breytingin tekur aðeins til Tex-
as en ekki annarra ríkja sem heimila
dauðarefsingar. Sum ríki bjóða upp
á fyrirfram tilbúna matseðla á með-
an önnur, til dæmis Flórída, hafa há-
marksupphæð á verði síðustu máltíð-
arinnar.
Vildi ekki borða Brewer pantaði sér stóra máltíð skömmu áður en hann var tekinn af lífi.
Hann borðaði hana ekki og sagðist ekki vera svangur.
Varð ástfanginn
af fórnarlambinu
n Afbrýðisöm eiginkona fékk leigumorðingja til að drepa ástkonu eiginmannsins
n Leigumorðinginn sviðsetti morðið því hann var ástfanginn af fórnarlambinu
Á
þeim átta árum sem ég hef
starfað í lögreglunni hef ég
aldrei upplifað annað eins
– og nóg hef ég séð,“ seg-
ir Marconi Almino de Lima,
lögreglustjóri í smábænum Pindo-
bacu í norðausturhluta Brasilíu.
Afar óvenjulegt mál kom upp fyr-
ir skemmstu og hefur það vakið
gríðarlega athygli í Brasilíu. Málið
snýr að afbrýðisamri konu sem réð
leigumorðingja til að ráða af dögum
meinta ástkonu eiginmanns síns.
Málið varð hins vegar flóknara þeg-
ar leigumorðinginn varð ástfanginn
af fórnarlambi sínu og má fullyrða
að færustu handritshöfundar Holly-
wood hefðu ekki getað skrifað betra
handrit.
Þekkti fórnarlambið
Það var í júní í sumar að Maria Nilza
Simoes réð Carlos Roberto de Jes-
us, fyrrverandi fanga, til að ráða af
dögum konu að nafni Lupita. Mariu
grunaði Lupitu um að halda við eig-
inmann sinn og taldi hún auðveld-
ast að fá leigumorðingja til að ryðja
henni úr vegi. Carlos átti að fá sem
samsvarar rúmum 60 þúsund krón-
um fyrir verkefnið. Allt gekk eins og
í sögu til að byrja með, eða allt þar
til Carlos barði Lupitu augum. Hann
þekkti hana enda höfðu þau verið
vinir þegar þau voru börn. Carlos
þurfti hins vegar nauðsynlega á pen-
ingunum að halda þannig að hann
rændi Lupitu og hélt henni fanginni
í nokkra daga. Carlos gat ekki með
nokkru móti drepið æskuvinkonu
sína, stúlku sem hann hafði verið
skotinn í á sínum yngri árum og bar
enn miklar tilfinningar til. Hann leit-
aði því allra leiða til að fá peningana
og telja Mariu trú um að hann hefði
klárað verkefnið.
Kærður fyrir þjófnað
Carlos lagði höfuðið í bleyti og fann
að lokum, að eigin mati, snilldar-
lausn: hann keypti tómatsósu, hellti
henni yfir Lupitu og tók svo mynd. Á
henni sést Maria halla höfðinu aft-
ur á bak, þakin „blóði“ og með hníf í
handarkrikanum. Carlos sagði loks
Mariu að verkefninu væri lokið, sýndi
henni myndina og fékk að sjálfsögðu
greitt fyrir. Málið vandaðist hins veg-
ar nokkrum dögum síðar þegar Maria
mætti Carlos og Lupitu þar sem þau
voru saman í verslun. Maria reiddist
mjög og fór beinustu leið á lögreglu-
stöðina þar sem hún kærði Carlos fyrir
þjófnað. Öll þrjú eiga nú von á ákæru:
Maria fyrir að brugga Lupitu banaráð
og Lupita og Carlos fyrir fjárkúgun.
Þrátt fyrir að málið sé litið alvar-
legum augum sjá bæjarbúar í Pindo-
bacu einnig spaugilegu hliðina. „Tók
hún virkilega ekki eftir því að hníf-
urinn var fastur í handarkrikanum?
Allir bæjarbúar hlæja að þessu,“ seg-
ir verslunarkonan Vera Márcia de
Araújo í samtali við brasilíska fjöl-
miðla.
„Á þeim átta árum
sem ég hef starfað
í lögreglunni hef ég aldrei
upplifað annað eins – og
nóg hef ég séð.
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Brasilía
Í slæmum málum Það er ekki ólíklegt að þremenningarnir þurfi að dvelja á bak við lás og
slá í einhvern tíma vegna málsins.
Þakin tómatsósu Hér sést myndin sem
Carlos tók af Lupitu. Á henni sést hnífurinn í
handarkrikanum og Lupita þakin tómatsósu.
Voru að skoða
Mount Everest
Nítján manns létu lífið þegar flugvél
brotlenti skammt frá Katmandú,
höfuðborg Nepals, á sunnudag. Um
borð voru sex heimamenn og þrett-
án útlendingar; tíu Indverjar, tveir
Bandaríkjamenn og einn Japani.
Hópurinn var að koma úr skoðunar-
flugi þar sem meðal annars var flog-
ið í kringum Mount Everest, hæsta
fjall heims. Vitni að slysinu segir að
vélin hafi rekist í þak húss í þorpinu
Bisankunarayan og brotnað áður en
hún skall til jarðar. Þoka var þegar
slysið varð og skyggni lítið. Talið er
að átján manns hafi látist samstund-
is en sá nítjándi lést á sjúkrahúsi
skömmu eftir komuna þangað.
Líkhús við
öllu búið
Forsvarsmenn líkhúss í Tyrklandi
virðast við öllu búnir ef svo ólík-
lega vill til að einhver „framliðinn“
vakni til lífsins. Anatolia-fréttaveit-
an í Tyrklandi greinir frá því að búið
sé að koma fyrir skynjara sem lætur
vita ef eitthvað fer á hreyfingu inni í
líkgeymslum eins líkhúss í Malatya-
héraði. Akif Kayadurmus, starfs-
maður líkhússins, segir að minnsta
hreyfing inni í geymslunum muni
koma viðvörunarkerfi af stað. Þá eru
handföng inni í geymslunum sem
eiga að auðvelda einstaklingum sem
ranglega hafa verið úrskurðaðir látn-
ir að komast út. „Við erum við öllu
búin,“ segir hann.
Sér ekki
eftir neinu
Danski kvikmyndaleikstjórinn Lars
von Trier segist ekki sjá eftir um-
mælum sem hann lét falla um nas-
ista á kvikmyndahátíðinni í Cannes
fyrr á árinu. Óhætt er að segja að
ummælin hafi vakið mikla athygli en
von Trier kallaði sjálfan sig nasista
og sagðist hafa samúð með Adolf
Hitler. Von Trier baðst afsökunar á
ummælum sínum skömmu síðar en
í nýju viðtali við tímaritið GQ segist
von Trier ekki harma uppátækið,
enda hafi um grín verið að ræða.
„Mér þykir ekki leitt að ég hafi grín-
ast, en mér þykir það leitt að ég hafi
ekki getað útskýrt að um grín væri
að ræða. En mér getur ekki þótt það
leitt sem ég sagði – það er gegn mínu
eðli,“ segir von Trier meðal annars.