Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2011, Page 16
Í
kringum 1930 birtist grein í
bandarísku tímariti þar sem
fjallað var um fegrunariðnaðinn.
Segir þar að á hverri konu séu um
fimm fermetrar af húð. Henni
þurfi að halda við, og séu um 40.000
fegurðarbúðir í landinu þar sem um
tveimur milljörðum dollara sé eytt
á ári hverju. Niðurstaða greinarhöf
undar er á annan hátt en búast mætti
við; að þetta sé hvergi nærri nóg.
Segir hann að til lágmarksviðhalds
þurfi að fara í olíumeðferð 12 sinn
um á ári, fimmtíu og tvisvar sinnum í
andlitsmeðferð, tuttugu og sex sinn
um að láta plokka á sér augabrýnnar
og þar fram eftir götunum.
„Kvennarusl“
Um kynslóð síðar fengu margar
bandarískar konur nóg, og árið 1968
var efnt til mótmæla gegn fegurðar
samkeppninni Miss America. Rót
tækar konur tóku sig til og hentu
brjóstahöldurum, fölskum auga
brúnum, hárkollum og öðru sem
þær kölluðu „kvennarusl“ í tunnu
sem þær nefndu „ruslatunnu frelsis
ins“. Að því búnu var kind krýnd sem
hina nýja ungfrú Ameríka.
Þrátt fyrir kvenfrelsishreyfingar
er líklegt að höfundi greinarinnar
frá 1930 hafi orðið að ósk sinni, því
vafalaust er talsvert meira en tveim
ur milljörðum dollara eytt í fegrun
araðgerðir og fegrunarvörur á ári
hverju þessa dagana. Og þrátt fyr
ir þessi gríðarlegu útgjöld eru kon
ur enn víðast hvar verr launaðar en
karlmenn. Hefur þá ekkert áunnist?
Clooney-kvarðinn
Launamunur er þó ekki einungis
kynbundin, því samkvæmt nýlegri
rannsókn í Háskólanum í Texas (af
öllum stöðum) þénar fallegt fólk
rúmlega 230.000 dollurum meira
um ævina en aðrir, eða um 26 millj
ónum króna. Það sem vekur enn
frekar athygli er að þetta er ekki ein
ungis bundið við konur. Á meðan
fallegar konur þéna að meðaltali 12
prósentum meira en þær sem telj
ast síður fríðar, þá þéna myndarleg
ir karlmenn um 17 prósentum meira
en þeir sem minna eru fyrir augað.
En skiptir þetta einhverju máli?
Er fegurðin ekki afstæð þrátt fyrir allt
saman, þó að launaseðillinn kunni
ekki að vera það? Svo virðist ekki
vera samkvæmt þessari sömu rann
sókn. Þegar fólki var skipt upp í feg
urðarkvarða á bilinu einn til fimm
voru aðspurðir í svo til öllum tilfell
um sammála um hvar væri hægt að
flokka hverja. Fólk eins og George
Clooney og Anne Hathaway voru
öruggar fimmur, á meðan vísinda
maðurinn sem framkvæmdi rann
sóknina reyndist þristur.
Heimalegt útlit
Flestir eru, eins og gefur að skilja,
með miðlungsútlit, eða 59 prósent
karlmanna og 51 prósent kvenna.
Tvö prósent karla og þrjú prósent
kvenna reyndust afburðafalleg, á
meðan eitt prósent karla og tvö pró
sent kvenna voru á hinum enda
kvarðans, það sem Bandaríkjamenn
kalla „homely“ sem merkir líklega að
þau séu lítt til þess fallinn að láta sjá
sig utandyra. Telur vísindamaðurinn
að lítill munur sé í reynd á þessum
útlitstengda launamun og öðrum er
viðkemur kyni eða kynþætti, en að
hinir útlitsgölluðu eigi erfiðara með
að sækja rétt sinn. Lýtaaðgerðir virð
ast lítið hjálpa og segir hann að fólk
verði því að spila úr þeim spilum
þeim það hefur.
Ef til vill er eitthvert réttlæti fólgið
í því að bæði kynin séu nú dæmd eft
ir útlitinu í stað annars þeirra áður,
en þó verðum við víst öll að búa und
ir oki fegurðarinnar enn um sinn.
16 | Umræða 26. september 2011 Mánudagur
tryggvagötu 11, 101 reykjavík
Útgáfufélag: Dv ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja Skaftadóttir
Ritstjórar:
jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir traustason, rt@dv.is
Fréttastjóri:
Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is
Umsjón helgarblaðs:
Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is
Umsjón innblaðs:
kristjana guðbrandsdóttir, kristjana@dv.is
DV á netinu: dv.is
Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010,
Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050.
Smáauglýsingar: 512 7004.
Umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
Leiðari Reynir Traustason ritstjóri skrifar
Bókstaflega
Matthías týndur
n Brotthvarf Matthíasar Imsland af
forstjórastóli Iceland Express vakti
mikla athygli. Matthías hefur verið
áberandi í fjöl
miðlum við að
afsaka flugfélag
sitt undir alls
konar kringum
stæðum. Hann
hefur verið ein
staklega vin
sæll á meðal
fjölmiðlafólks
vegna þess hve duglegur hann hef
ur verið að svara. En nú kveður við
annan og lægri tón. Eftir að starfs
lokin áttu sér stað er Matthías sem
horfinn af yfirborði jarðar og eng
inn fjölmiðill nær sambandi við
hann.
Björn hissa
n Björn Bjarnason, eftirlaunaþegi og
fyrrverandi ráðherra, ber sig aum
lega vegna málsóknar athafna
mannsins Jóns Ásgeirs Jóhannes-
sonar sem vill ekki una því að vera
í bók Björns sagður sekur um fjár
drátt. Segist Björn ekki átta sig á
réttarágreiningi í málinu þar sem
hann hafi beðist afsökunar og leið
rétt málið í annarri prentun bókar
innar. „ ...Þrátt fyrir þetta hefur Jón
Ásgeir stefnt mér og krefst einnar
milljón kr. í bætur,“ bloggar Björn
hissa. Málið ætti þó væntanlega
að vera auðleyst með því að Björn
borgi milljónina og er þá ekkert
eftir af málabúnaðinum.
Fleiri meiðyrði
n Björn Bjarnason er kjarkmaður
þegar litið er til þess að hann not
ar síðu sína til að hrauna yfir Jón
Ásgeir Jóhann-
esson. Þar birtir
hann klausu frá
Axel Jóhanni Ax-
elssyni sem gef
ur Jóni Ásgeiri
hrikalega ein
kunn. „Í huga
almennings í
landinu stendur
Jón Ásgeir fyrir ímynd hins eina
og sanna útrásargangsters og eng
in leið að sverta mannorð hans
með ritvillum um þau brot sem
hann hefur þegar verið dæmdur
fyrir ...“ Ekki er útilokað að Birni
verði einnig stefnt fyrir að gefa
umræddum orðum farveg á síðu
sinni. Það má því búast við fjöri í
réttarsalnum.
Misvísandi skilaboð
n Það eru býsna misvísandi skila
boð sem berast innan úr herbúð
um Besta flokksins um hvort borg
arfulltrúar Besta flokksins séu á
leið í framboð í nýjum stjórnmála
flokki sem menn eru í óða önn að
setja saman. Einar Örn Benedikts-
son sagði við DV á föstudag að
ekki stæði til að borgarfulltrúarnir
færu í framboð þar sem þeir hefðu
verkefnum að sinna í borginni.
Daginn áður hafði Hrafnhildur Elsa
Yoe mann sagt allt aðra hluti, en
þá sagðist hún vera mjög spennt
fyrir því að fara í framboð til al
þingiskosninganna. Besta fólkið
er greinilega ekki alveg samstíga í
framboðsbrölti sínu.
Sandkorn
„Hún er hetja fyrir að hafa
komið til mömmu og sagt
frá því sem hann gerði.“
n Móður stúlku sem var misnotuð af
manni sem var dæmdur í sjö ára fangelsi í
vikunni. – DV.
„Ég verð því
miður að viður-
kenna að starfið
hefur verið
númer eitt og
fjölskyldan númer tvö.“
n Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn
hættir brátt í lögreglunni eftir 36 ár í
búningnum. – DV.
„Íhugunin hefur leitt það í
ljós, og leiddi fljótt í ljós
að ég þarf að vera þekkt-
ari, undirbúa mig og alla
mér nákomna betur,
undirbúa mig betur
fjárhagslega.“
n Jóhanna Magnúsdóttir ráðgjafi segir
á bloggsíðu sinni að hún hafi ákveðið að
bíða í fjögur ár með framboð sitt til
forseta íslands.
„Baldur er minn
besti vinur og
minn sálufélagi.
Það er bara
nákvæmlega
þannig.“
n Felix Bergsson er enn jafnástfanginn
af eiginmanninum Baldri Þórhallsyni.
– DV.
„Ég tjái mig ekki
um sambandið
mitt.“
n Hlín Einarsdóttir og
Björn Ingi eru nýtt par en
Hlín vill ekkert segja um nýju ástina. – DV.
Hvað má bjóða þér
á pylsuna þína?
„Það má bjóða mér bassasöngvara
á pylsuna mína,
af því ég má
ekki hjakka á
stálskrúfum,“
segir Hallgrímur
Ólafsson leikari
sem fór með
hlutverk pylsu-
sala sem notaði
ansi óhefðbundið
tungutak í nýjum
gamanþætti, kexvexmiðjunni.
Spurningin
Valur
Gunnarsson
Kjallari
Hrun stjórnmála
Þ
að blasir við flestum hugs
andi mönnum að álit þjóðar
innar á stjórnmálamönnum
lýðveldisins er í lágmarki.
Ofboðsleg þreyta er á með
al venjulegs fólks vegna framgöngu
þeirra sem eiga að fara fyrir þjóð
sinni af visku og forsjá. Þingheim
ur er í dag að sumu leyti eins og þar
hafi tekið sér bólfestu hjörð vitleys
ingja þar sem hver æpir upp í annan
og málefnin fjúka út í veður og vind
undan hrakviðri slagorðanna. Svart
verður hvítt og hvítt verður svart.
Engin leið er að átta sig á því hver
raunveruleikinn er. Orðum á borð
við forsetafíflið er hiklaust hent fram
í ræðustól æðstu stofnunar lands
ins. Fyrirlitningin á kurteisi og hátt
vísi er algjör. Frammíköll og endur
flutningur á sömu ræðum viðgangast
á þinginu. Skotgrafir eru leikmyndin
sem við blasir. Hrun stjórnmála blas
ir við.
Flest snýr á haus í umræðunni í
þinginu. Annar stjórnarflokkurinn
vill inngöngu í ESB en hinn berst
klofinn gegn henni. Á meðan hin al
menna stemning er sú að þjóðin eigi
að greiða atkvæði í stórum málum er
öflug hreyfing hræsnara uppi um að
þjóðin fái ekki að greiða atkvæði um
aðild að Evrópusambandinu. Þess er
krafist að viðræðum verði tafarlaust
hætt svo þjóðin fái ekki að ráða. Til
þrautavara vill hópur fólks að þjóð
in greiði atkvæði um það hvort hún
vilji halda áfram viðræðum við ESB. Í
einföldu máli á þjóðin að gefa frá sér
réttinn til þess að greiða atkvæði um
samning sem enn hefur ekki orðið til.
Forseti Íslands steig stór skref
þegar hann nýtti sér í þrígang rétt
inn til að vísa málum til þjóðarinn
ar. Nú vilja valdníðslumenn hverfa
til baka frá þeirri stefnu sem hefur
verið mörkuð og svipta almenning
réttinum til að taka beinar ákvarð
anir. Leiðtogar stjórnmálaflokkanna
og meðreiðarsveinar þeirra sveiflast
sumir hverjir til og frá í afstöðu sinni
til kosninga um aðild að ESB. Sérlega
er þar athyglisvert hvernig Bjarni
Benediktsson, formaður Sjálfstæðis
flokksins, snýst eins og skoppara
kringla á markaðstorgi atkvæðanna
og er ýmist með eða á móti ESB.
Það sorglega við stjórnmálin í dag
er að algjör skortur er á einhverju
nýju og vitrænu afli. Helst er leitað
í skemmtanabransann eftir mönn
um sem lofa að svíkja öll kosninga
loforð. Undantekningin frá fíflagang
inum virðist vera stjórnlagaþing þar
sem saman valdist hópur af fólki sem
skeytti ekkert um slagorð en þess
meira um málefni. Það er umhugs
unarefni hvort ekki sé hægt að ná
saman slíkum hópi á Alþingi Íslend
inga eða gjörbylta vinnubrögðum og
umræðuhefð í musteri lýðveldisins.
Þjóðin sjálf verður að átta sig á þeirri
ábyrgð sem felst í því að velja fulltrúa
sína á þing. Eðlilegt svar við þreytu
almennings er að efnt verði til kosn
inga hið fyrsta og umboð stjórnmála
manna verði afturkallað og endur
nýjað þar sem slíkt er mögulegt.
Það borgar sig að vera fallegur