Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2011, Síða 20
20 | Sport 26. september 2011 Mánudagur
Yngri leikmenn fengu að prófa sig
n Ísland tapaði öllum leikjunum á æfingamóti í Póllandi
Þ
etta var okkar jafnasti og
besti leikur. Varnarleikur
og markvarsla bara í
góðu lagi en leiðinlegt
að tapa,“ segir Ágúst Jóhanns-
son, landsliðsþjálfari kvenna
í handbolta, um tapið gegn
Tékklandi á sterku fjögurra liða
æfingamóti í Póllandi í gær, 30–
28. Ísland tapaði öllum þremur
leikjunum á mótinu. Fyrst gegn
Hollandi, 29–23 og svo gegn
gestgjöfum Póllands, 26–22.
„Þetta er sterkt mót og hér
var glæsileg umgjörð og mik-
ið af fólki á leikjunum. Það
sýnir líka styrkleikann að Hol-
lendingar unnu Pólverja í úr-
slitaleiknum en auðvitað hefði
maður viljað vinna leiki,“ seg-
ir Ágúst sem er samt ánægður
með margt hjá íslenska liðinu.
„Það vantaði stóra pósta í
liðið eins og Rakel Dögg fyrir-
liða og Rut Jónsdóttur og Anna
Úrsúla kom seint inn í þetta.
Að sama skapi fengum við gott
svigrúm til að leyfa yngri leik-
mönnum að prófa sig. Það var
líka svolítið markmiðið hjá okk-
ur, að skoða fleiri leikmenn og
stækka hópinn. Í þessari ferð
komu til dæmis Birna Berg og
Stella Sigurðardóttir hjá Fram
virkilega vel út. Þær skiluðu
sínum hlutverkum mjög vel og
eins var ég ánægður með að
sjá hversu jafnir markverðirnir
voru,“ segir Ágúst.
Hann segir helsta veik-
leika liðsins á mótinu hafi ver-
ið tæknifeila. „Við vorum að
gera of mikið af þeim. Í nútíma
handbolta er manni bara refsað
fljótt og það var dýrt í þessum
leikjum. Það lagaðist samt sem
betur fer þegar á leið mótið.
Mér fannst við vera inni í öllum
leikjunum og gátum unnið þá
alla en því miður töpuðum við.
Við vorum líka að fara illa með
góð færi,“ segir Ágúst.
Mótið í Póllandi var liður í
undirbúningi Íslands fyrir HM
í handknattleik í Brasilíu sem
hefst í byrjun desember en það
verður í fyrsta skipti sem ís-
lenska kvennalandsliðið keppir
á HM í handbolta.
tomas@dv.is
Kom seint inn Anna Úrsúla kom seinna til Póllands en ætlað var vegna veikinda.
Á ÓL 2012 í fyrstu tilraun
n Kári Steinn Karlsson bætti Íslandsmetið í maraþonhlaupi
É
g er svolítið lúinn og stíf-
ur en annars geng ég bara
á skýi, ég er svo glaður,“
segir Kári Steinn Karlsson
langhlaupari í viðtali við DV.
Kári Steinn bætti Íslandsmetið
í maraþoni í Berlínarmaraþon-
inu á sunnudaginn um ríflega
tvær mínútur þegar hann kom
í mark á 2 klukkustundum, 17
mínútum og 12 sekúndum.
Með tímanum náði hann Ól-
ympíulágmarki í greininni og
verður fyrstur Íslendinga til að
keppa í maraþoni á Ólympíu-
leikum, í Lundúnum á næsta
ári.
Kári, sem á Íslandsmetið í
fimm og tíu kílómetra hlaupi
og einnig hálfmaraþoni, var
þarna að keppa í fyrsta sinn á
ævinni í heilu maraþoni. Hann
var röltandi um götur Berlínar
ásamt þjálfara sínum að reyna
ná sér niður þegar DV náði
sambandi við hann. „Ég var
búinn að stefna að þessu lengi.
Ég er búinn að hlaupa nokkur
hálfmaraþon í sumar þannig
að þetta var bara spurning um
um að ná í styrkinn, andlega og
líkamlega, til að geta hlaupið
heilt. Vanalega hefur það ver-
ið þannig hjá mér að því lengra
hlaup, því betra og þess vegna
vildi ég færa mig upp í mara-
þonið,“ segir Kári Steinn.
Kári náði 17. sæti af um
40.000 keppendum en hann er
ánægðastur með að hafa náð
lágmarkinu strax í fyrstu til-
raun því nú hefur hann langan
tíma til að æfa sig fyrir Lund-
únir. „Hefði þetta ekki tekist
hefði ég þurft að reyna aftur
um áramótin og kannski aftur
næsta vor. Þá er maður minna
að undirbúa sig fyrir Ólympíu-
leikana heldur bara að reyna
að ná lágmarkinu. Það var því
frábært að ná þessu núna og
það gefur mér líka mikið sjálfs-
traust,“ segir Kári en hvernig
var fyrir hann að vera í návist
risa á borð við heimsmethaf-
ann Patricks Makau frá Keníu
og goðsögnina Haile Gebrse-
lassie frá Eþíópíu?
„Það var alveg rosalega
gaman að vera með þessum
náungum á hóteli, borða með
þeim morgunmat og aðeins að
fá að spjalla við þá. Mest var ég
samt að hugsa um mig. Ætli ég
heyri ekki bara aðeins betur
í þeim í kvöld,“ segir Íslands-
methafinn í maraþoni, Kári
Steinn Karlsson.
tomas@dv.is
Nýtt Íslandsmet Kári Steinn er kominn á ÓL og setti nýtt Íslandsmet.
Úrslit
Enska úrvalsdeildin
Man. City - Everton 2-0
1-0 Mario Balotelli (68.), 2-0 James Milner (89.).
Arsenal - Bolton 3-0
1-0 Robin van Persie (46.), 2-0 Robin van Persie
(71.), 3-0 Alex Song (89.).
n David Wheater, Bolton (55.).
Chelsea - Swansea 4-1
1-0 Fernando Torres (29.), 2-0 Ramires (36.),
3-0 Ramires (75.), 3-1 Ashley Williams (86.), 4-1
Didier Drogba (90.),
n Fernando Torres, Chelsea (39.).
Liverpool - Wolves 2-1
1-0 Roger Johnson (11. sm), 2-0 Luis Suarez (38.),
2-1 Steven Fletcher (49.).
Wigan - Tottenham 1-2
0-1 Rafael van der Vaart (3.), 0-2 Gareth Bale
(23.), 1-2 M. Diame (50.).
n Steve Gohouri, Wigan (62.).
Newcastle - Blackburn 3-1
1-0 Demba Ba (27.), 2-0 Demba Ba (30.), 2-1
David Hoilett (37.), 3-1 Demba Ba (54.).
n Martin Olsson, WBA (70.).
WBA - Fulham 0-0
Stoke - Man. United 1-1
0-1 Luis Nani (27.), 1-1 Peter Crouch (52.).
Staðan
1 Man. Utd 6 5 1 0 22:5 16
2 Man. City 6 5 1 0 19:5 16
3 Chelsea 6 4 1 1 12:7 13
4 Newcastle 6 3 3 0 7:3 12
5 Liverpool 6 3 1 2 8:8 10
6 Tottenham 5 3 0 2 9:9 9
7 Stoke 6 2 3 1 4:6 9
8 Aston Villa 6 1 5 0 7:5 8
9 QPR 6 2 2 2 5:7 8
10 Everton 5 2 1 2 6:6 7
11 Wolves 6 2 1 3 5:8 7
12 Arsenal 6 2 1 3 9:14 7
13 Sunderland 5 1 2 2 6:4 5
14 Norwich 5 1 2 2 5:7 5
15 Wigan 6 1 2 3 5:9 5
16 Swansea 6 1 2 3 4:9 5
17 Fulham 6 0 4 2 4:7 4
18 Blackburn 6 1 1 4 8:13 4
19 WBA 6 1 1 4 3:8 4
20 Bolton 6 1 0 5 8:16 3
Pepsi-deild karla
Stjarnan - Valur 5-0
1-0 Tryggvi Sveinn Bjarnason (2.), 2-0 Atli
Jóhannsson (9.), 3-0 Garðar Jóhannsson (30.),
4-0 Garðar Jóhannsson (77.), 5-0 Víðir
Þorvarðarson (89.).
Grindavík - Fram 1-2
0-1 Orri Gunnarsson (25.), 1-1 Magnús
Björgvinsson (66.), 1-2 Hlynur Atli Magnússon
(78.).
FH - ÍBV 4-2
0-1 Aaron Spear (19. víti), 1-1 Atli Guðnason (27.),
2-1 Atli Viðar Björnsson (44.), 3-1 Atli Guðnason
(57.), 3-2 Tonny Mawejje (61.), 4-2 Atli Viðar
Björnsson (72.).
Víkingur - Keflavík 2-1
1-0 Hörður Sigurjón Bjarnason (11.), 2-0
Björgólfur Takefusa (61.), 2-1 Magnús Sverir
Þorsteinsson (72.).
Þór - Breiðablik 1-2
1-0 Ingi Freyr Hilmarsson (3.), 1-1 Guðmundur
Kristjánsson (29.), 1-2 Kristinn Steindórsson
(64.).
KR - Fylkir 3-2
1-0 Bjarni Guðjónsson (28. víti), 1-1 Styrmir
Erlendsson (35.), 2-1 Baldur Sigurðsson (48.),
2-2 Bjarni Guðjónsson (51. sm), 3-2 Dofri
Snorrason (64.).
Staðan
1 KR 21 13 7 1 44:22 46
2 FH 21 12 5 4 43:28 41
3 ÍBV 21 12 4 5 37:25 40
4 Stjarnan 21 10 7 4 48:31 37
5 Valur 21 10 5 6 28:23 35
6 Fylkir 21 7 4 10 31:39 25
7 Breiðablik 21 6 6 9 30:39 24
8 Keflavík 21 6 3 12 25:31 21
9 Fram 21 5 6 10 18:27 21
10 Þór Akureyri 21 6 3 12 27:39 21
11 Grindavík 21 4 8 9 24:37 20
12 Víkingur R. 21 3 6 12 23:37 15
Enska B-deildin
Birmingham - Barnsley 1-1
Bristol City - Hull 1-1
Burnley - Southampton 1-1
Coventry - Reading 1-1
Derby - Millwall 3-0
Doncaster - Crystal Palace 1-0
Middlesbrough - Ipswich 0-0
Portsmouth - Blackpool 1-0
West Ham - Peterborough 1-0
Watford - Nott. Forest 0-1
Staðan
1 Southampton 8 6 1 1 20:10 19
2 Middlesbrough 8 5 3 0 13:5 18
3 Derby 8 6 0 2 13:6 18
4 West Ham 8 5 2 1 16:7 17
5 Brighton 8 5 2 1 14:8 17
6 Cardiff 8 3 4 1 10:7 13
7 Hull 8 4 1 3 6:7 13
8 Blackpool 8 3 3 2 9:7 12
9 Leicester 8 3 3 2 9:9 12
10 Leeds 8 3 2 3 16:15 11
11 Peterborough 8 3 1 4 14:11 10
n KR Íslandsmeistari í fótbolta í 25. sinn n Fyrsta liðið til að vinna tvö-
falt í tólf ár n Rúnar Kristinsson með tvo titla á fyrsta heila tímabilinu
K
R varð á sunnudaginn
Íslandsmeistari í fót-
bolta árið 2011 eftir
sigur á Fylki í hörku-
leik, 3-2. Á sama tíma
hjálpuðu FH-ingar Vesturbæ-
ingum í baráttunni með því að
leggja ÍBV að velli í Kaplakrika,
4-2. ÍBV hefur verið helsta ógn
KR um Íslandsmeistaratitilinn í
sumar en nú þegar ein umferð
er eftir hefur KR fimm stiga for-
skot á toppnum og verður ekki
ógnað. Gleðin var einlæg þegar
flautað var til leiksloka í Frosta-
skjólinu á sunnudaginn enda
átta ár síðan KR vann síðast Ís-
landsmeistaratitilinn. Sumarið
var einstaklega gott fyrir KR-
inga því þeir unnu tvöfalt, bæði
deild og bikar. Engu liði hefur
tekist það síðan ári 1999 en það
var einmitt KR sem vann það
afrek það árið undir stjórn Atla
Eðvaldssonar. FH gulltryggði
Evrópusæti sitt með sigri á ÍBV
en Stjarnan er enn í baráttunni
um Evrópusæti eftir að hafa
valtað yfir lánlausa Valsara, 5-0,
á teppinu í Garðabænum.
Besta liðið vann
Fylkismenn sem höfðu að engu
að keppa fá hrós fyrir sinn leik í
Frostaskjólinu. Þeir létu KR-ing-
ar heldur betur hafa fyrir sigrin-
um og finna fyrir hlutunum því
sumar tæklingarnar voru ansi
skrautlegar. Í þrígang þurfti KR
að komast yfir því Fylkir jafn-
aði alltaf um leið. Fyrst skor-
aði Bjarni Guðjónsson úr víta-
spyrnu en hinn ungi Styrmir
Erlendsson jafnaði metin fyrir
Fylki. Þá var komið að Mývetn-
ingnum Baldri Sigurðssyni að
skora fyrir KR en Bjarni varð fyr-
ir því óláni að skora sjálfsmark
og jafna fyrir Fylki. Það var svo
Dofri Snorrason sem tryggði KR
sigurinn með laglegu marki en
hann átti frábæran leik í hægri
bakverðinum.
Það verður ekki annað sagt en
að besta liðið hafi orðið Íslands-
meistari. KR var nánast búið
að gera út um mótið eftir fyrri
umferðina en Vesturbæjarstór-
veldið tapaði ekki leik fyrr en
í átjándu umferð. Það hægð-
ist aðeins á KR-ingum undir
lokin enda þurfti liðið að spila
flesta leiki allra liða á mótinu.
Það varð Íslandsmeistari, bikar-
meistari eftir sigur á Þór í ágúst
og komst í þriðju umferð Evr-
ópudeildarinnar. Magnað sum-
ar hjá KR sem verður á næsta
keppnistímabili eina liðið með
fimm stjörnur á búningi sínum
sem táknar fimm Íslandsmeist-
aratitla.
Stoltur af strákunum
„Ég verð að hrósa öllum leik-
mönnum mínum,“ sagði Rúnar
Tómas Þór Þórðarson
tomas@dv.is
Knattspyrna
Fimm stjörnu
Kr-ingar
Frábær árangur Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, og Pétur Pétursson að-
stoðarþjálfari unnu tvöfalt með liðið í ár. MyNd: EVA BjöRK ÆGiSdóTTiR
Fyrirliðinn Bjarni Guðjónsson kom heim úr atvinnu-
mennsku 2006 og lyftir nú Íslandsmeistaratitlinum með KR.